Morgunblaðið - 16.02.2016, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Tveir af hverjum þremur fé-
lagsmönnum Eflingar sem sóttu
launaviðtal á síðasta ári hlutu launa-
hækkun umfram kjarasamnings-
bundnar hækkanir. Þetta kemur
fram í árlegri viðhorfskönnun Gallup
meðal félagsmanna Flóabandalags-
ins. Í niðurstöðunum könnunarinnar
kemur einnig fram að 65,4% fé-
lagsmanna telji vinnuveitanda sinn
hafa mikið svigrúm til að greiða hærri
laun.
Könnunin var gerð frá nóvember
og fram í janúar, en fjöldi svarenda í
könnuninni var 997, eða 41,8% af upp-
haflegu úrtaki. Að þessu sinni sýna
niðurstöður könnunarinnar aðeins
myndina á al-
mennum markaði.
Í niðurstöðun-
um kemur einnig
fram að 41,1% fé-
lagsmanna sé
ósátt við laun sín,
30,2% séu sátt við
þau og 28,7%
hvorki né.
45,7% hafa
frekar eða mjög
miklar áhyggjur af fjárhagsstöðu
sinni og 47,3% félagsmanna telja
vinnuálag sitt of mikið.
Hvetja félagsmenn í viðtöl
Að sögn Hörpu Ólafsdóttur, sviðs-
stjóra kjaramála hjá Eflingu, bólar á
meiri bjartsýni félagsmanna nú en
fyrri ár. Hún segir Eflingu munu
hvetja félagsmenn til að fara í launa-
viðtöl. „Það er alveg ljóst að launa-
viðtölin skila árangri, en það fer vissu-
lega svolítið eftir hópum. Þeir sem
starfa við ræstingar eru til dæmis
síður að ná árangri,“ segir hún.
Harpa segir niðurstöður um starfs-
öryggi og fjárhagsstöðu hafa batnað
milli ára. „Sá hópur sem lægstar hef-
ur tekjurnar er hjá okkur og hátt
hlutfall lýsir því yfir að erfitt sé að ná
endum saman. Ef horft er á þróun
milli ára gætir þarna ákveðinnar
bjartsýni og ýmis atriði koma betur út
nú en í fyrra,“ segir hún.
Hún áréttar þó að tölurnar eigi að-
eins við um þá sem starfi á hinum al-
menna vinnumarkaði, ekki um þá sem
starfi hjá hinu opinbera. Saman-
burður við fyrri ár sé erfiður enda
þurfi að bera saman sömu hópa.
Laun kynjanna misjöfn
Heildarlaun karla í fullu starfi eru
að meðaltali um 443 þúsund krónur
og meðallaun kvenna 341 þúsund
krónur, um 102 þúsund krónum
lægri. Karlar telja að sanngjörn laun
sín séu um 63 þúsund krónum hærri
en konur svöruðu 69 þúsund krónur.
Minni munur er þó á meðaldagvinnu-
launum kynjanna, um 42.000 krónur.
„Við höfum enn áhyggjur af launa-
muninum en förum alltaf varlega í að
bera tölurnar saman,“ segir hún. Yfir-
gnæfandi hluti félagsmanna sem
starfa hjá hinu opinbera er konur en
karlmenn eru í meirihluta á almenn-
um markaði.
Launaviðtölin skila hækkun
Tveir þriðju hlutar félagsmanna Eflingar sem fóru í viðtal fengu launahækkun
Niðurstöður könnunar benda til bjartsýni 41,1% félagsmanna ósátt við laun sín
Harpa
Ólafsdóttir
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Þjóðin mun eiga þarann en land-
eigendur þangið ef frumvarpsdrög
til laga um öflun sjávargróðurs í
atvinnuskyni verða óbreytt að
veruleika. Frumvarpsdrögin voru
kynnt á vef atvinnuvegaráðuneyt-
isins í gær. Vinnuhópur fulltrúa
sjávarútvegsráðuneytisins, Fiski-
stofu og Hafrannsóknastofnunar
hefur unnið að undirbúningi frum-
varpsins.
Jóhann Guðmundsson, skrif-
stofustjóri í atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytinu, segir að við-
miðunin sem notuð er eigi við um
svokölluð netlög, þar sem tilgreint
er hve langt út í sjó landeigandinn
getur gert tilkall til þess sem nátt-
úran gefur af sér. Miðað er við
tæpa 113 metra frá stórstraums-
fjörumáli, en þangið vex í fjörunni
en þarinn utar. „Fram til þessa
hefur verið lítill rammi utan um
þessa hluti í löggjöfinni,“ segir Jó-
hann, en nýlunda er að sjávar-
gróður sé nýttur í atvinnuskyni í
svo miklum mæli sem raun ber
vitni. „Þangið er í fjörunni en þar-
inn vex alla jafna fyrir utan netlög
og því getur enginn landeigandi
helgað sér hann. Því tilheyrir hann
ríkinu,“ segir Jóhann. Hann segir
þó að ef þari vaxi innan 113 metra
frá stórstraumsfjöru megi landeig-
andi nýta sér það kjósi hann svo.
Þang landeigenda en þari ríkis
Morgunblaðið/Jim Smart
Þang Þarinn mun tilheyra ríkinu en þangið geta landeigendur nýtt.
Frumvarp kynnt
um öflun sjávargróð-
urs í atvinnuskyni
Aftakaveðri er spáð fyrri hluta dags
í dag. Vindhviður gætu farið upp í 50
m/sekúndu í Skagafirði og Eyjafirði
í morgunsárið. Um suðvestan- og
vestanátt er að ræða og mun lægðin
verða dýpst um norðanvert landið
frá vestri til austurs en hennar mun
einnig gæta um sunnanvert landið
snemma dags. Veðurfræðingar
breyttu spám sínum í gærkvöldi og
búast má við meðalvindi upp á 20-25
sekúndur. Upp úr hádegi mun lægja
um allt land, mest um sunnavert
landið, og klukkan 18 verður það
versta gengið yfir þó að enn verði
hvasst. Frost verður víðast hvar 2-6
gráður. vidar@mbl.is
Hviður allt
að 50 m/sek
Morgunblaðið/Rax
Íslenskt listafólk var í kastljósinu á
norrænu kvikmyndahátíðunum
HARPA og Nordic Lights um
helgina, en tvö íslensk tónskáld
unnu til verðlauna á fyrri hátíðar-
innar og íslensk leikkona á þeirri
síðari. Hátíðirnar fóru fram í húsa-
kynnum norrænu sendiráðanna í
Berlín, en þar í borg fór einnig fram
hin árlega kvikmyndahátíð Berlin-
ale.
Atli Örvarsson hlaut verðlaun
fyrir bestu kvikmyndatónlistina, í
myndinni Hrútum eftir Grím Há-
konarson.
Í áliti dómnefndar um tónlist Atla
í Hrútum segir að með harmonikk-
una í forgrunni kalli Atli fram ein-
manaleika og náttúruna en einnig
jarm sauðfjárins sín á milli. Þar seg-
ir einnig að tónlistin, andrúmsloftið
og myndefnið passi fullkomlega
saman. Kvikmyndin Hrútar hefur
unnið flest verðlaun allra íslenskra
kvikmynda. Auk Atla voru tilnefnd
til verðlaunanna tónskáldin Jonas
Struck frá Danmörku, Knut
Avenstroup Haugen frá Noregi,
Pessi Levanto frá Finnlandi og Lisa
Holmqvist frá Svíþjóð.
Nanna Kristín Magnúsdóttir leik-
kona hlaut Nordic Lights-verðlaunin
fyrir leik sinn á ferlinum en alls voru
níu leikarar tilnefndir.
Jóhann fékk heiðursverðlaun
Jóhann Jóhannsson hlaut heiðurs-
verðlaun verðlaunahátíðarinnar
fyrir verk sín, en hann hefur samið
tónlist fyrir 28 kvikmyndir og verið
tilnefndur til fjölda verðlauna.
Í áliti dómnefndar segir að Jó-
hann hafi einstakan starfsferil, ekki
einungis á Norðurlöndum heldur
líka á alþjóðavettvangi. Tónverk
hans séu flókin en heilsteypt og í
verkum hans sé mikil orka og mikill
listrænn metnaður. Auk Jóhanns
voru tilnefnd tónskáldin Ginge An-
vik frá Noregi, Frans Bak frá Dan-
mörku, Lauri Porra frá Finnlandi og
Adam Nordén frá Svíþjóð.
Kvikmyndahátíðirnar HARPA og Nordic Lights fóru fram um helgina
Ljósmynd/María Rúnarsdóttir
HARPA Atli Örvarsson tónskáld, Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona og Jóhann Jóhannsson tónskáld stilla sér
upp í myndatöku að lokinni verðlaunaafhendingunni. Íslendingar fylltu öll verðlaunasæti hátíðanna tveggja.
Íslenskt
listafólk í
forgrunni
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
Rekstur bill.is og hjól.is er til sölu
• Öflug bílasala og hjólasala á besta stað.
• Blasir við fjölförnustu götu Íslands.
• 550 m2 sýningarsalur og 70-100 bíla plan.
• Langur leigusamningur.
• Mjög góð framlegð.
• Selst saman eða í sitt hvoru lagi.
• Verð 20 milljónir.
Frekari uppl. birnir@bill.is
bíll.is hjól.is
Stjórn Borgunar sendi í gærkvöldi
frá sér tilkynningu þar sem alvar-
legar athugasemdir eru gerðar við
framgöngu Steinþórs Pálssonar,
bankastjóra Landsbankans, í fjöl-
miðlum. Í tilkynningu segir að Stein-
þór fari ítrekað fram með dylgjur og
óbeinar ásakanir um óheiðarleika og
illan ásetning stjórnenda Borgunar
sem standist enga nánari skoðun.
Segja stjórnendur Borgunar ásak-
anir Steinþórs alvarlegar og að þeir
frábiðji sér að vera gerðir að blóra-
bögglum í málinu.
Gerir stjórn Borgunar fjórþættar
athugasemdir við málflutning Stein-
þórs og segir m.a. Steinþór marg-
saga um hvort og hvernig Lands-
bankinn hafi kynnt sér mögulegan
valrétt Visa Inc. Þá segir að Lands-
bankinn hafi haft aðgang að öllum
gögnum við kaup Borgunar á hlut
Landsbankankans, þar með talinn
aðgang að samningum við VISA.
„Landsbankanum var í lófa lagt að
fá ytri sérfræðinga til þess að yfir-
fara hverjar þær upplýsingar sem
hann vildi um málefni Borgunar,
hefði hann kosið að gera slíkt,“ segir
m.a. í tilkynningunni.
Steinþór var í viðtali í Kastljósi
Ríkisútvarpsins í gær þar sem hann
sagði m.a. að bankinn hefði ekki haft
vísbendingar um möguleg verðmæti
vegna kaupa Visa Inc. á Visa Eu-
rope, en eignir Borgunar í Visa Eu-
rope voru þar á meðal. „Við vorum
grandalaus,“ sagði Steinþór.
Gagnrýna
Steinþór
harðlega