Morgunblaðið - 16.02.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2016
Svona lýsir Gunnar Rögnvalds-son einu púsli í heimsmynd-
inni:
Eftir að Sovét-ríkin féllu, þá
féll Rússland í eins-
konar dá. Það lagð-
ist í trans með Bor-
is Jeltsin við stýrið.
Ekið var í hlutlaus-
um gír fyrir engu
afli þar til að sú
stutta ökuferð stöðvaðist af sjálfu
sér. Sumir héldu að þarna væri
Rússland komið í sitt eðlilega
ástand á ný. Þeir voru ekkert smá
skrítnir sem hugsuðu þannig.
Á meðan Boris var úti að aka,notaði ESB og NATO tæki-
færið til að gúffa í sig það sem
annars hefði ekki verið hægt: sjálft
öryggissvæði Rússlands öldum
saman. Svæðið sem verndar Rúss-
land gegn innrásum, því ekki gerir
landslagið það fyrir þetta land-
massaríki, sem er án náttúrulegra
landamæra og þarfnast því mann-
gerðra stuðara. Pólitískra stuðara.
Svo hætti Boris að dunda sér viðaksturinn á sjáfum sér, missti
reyndar prófið, og þá hrökk Rúss-
land í sinn gamla gír á ný. Og fór
þar með að hugsa um hin gömlu
utanríkisliggjandi öryggissvæði
sín.
Þetta var svo ofur eðlilegt aðengum þurfti að koma þetta á
óvart. Þeir sem eru hneykslaðir,
eru það bara í þykjustunni. En
þannig hefur utanríkispólitík ávallt
verið. Þykjusta að mestu, en þó án
þess að vera það að fullu.
Allt er við sitt gamla á ný. Þaðfer veröldinni best, því Útópía
er og verður alltaf einungis klikk-
unarmannadella er hvergi tollir við
veraldlegt landakort.“
Gunnar
Rögnvaldsson
Rússland
í gömlum gír
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 15.2., kl. 18.00
Reykjavík 2 rigning
Bolungarvík 2 rigning
Akureyri 4 alskýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló 0 heiðskírt
Kaupmannahöfn -1 léttskýjað
Stokkhólmur -5 skýjað
Helsinki 0 léttskýjað
Lúxemborg 1 alskýjað
Brussel 5 léttskýjað
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 6 upplýsingar bárust ek
London 6 léttskýjað
París 5 léttskýjað
Amsterdam 5 léttskýjað
Hamborg 1 skýjað
Berlín 2 skýjað
Vín 7 alskýjað
Moskva 1 skýjað
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 8 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 13 skýjað
Aþena 18 heiðskírt
Winnipeg -7 skýjað
Montreal -13 léttskýjað
New York -6 alskýjað
Chicago -4 þoka
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:21 18:03
ÍSAFJÖRÐUR 9:36 17:58
SIGLUFJÖRÐUR 9:20 17:41
DJÚPIVOGUR 8:54 17:30
Það er heilsársverk að viðhalda Laug-
ardalsvelli. Kristinn Vilhjálmur Jó-
hannsson hreinsaði snjó af vellinum í
gær og er það liður í því að losa klaka
af vellinum í þeirri hláku sem fram-
undan er. Fyrir tveimur árum
skemmdist hluti vallarins þegar grasið
var undir klaka langtímum saman.
„Ástandið er miklu betra núna en það
var þá,“ segir Kristinn.
Hreinsa snjó
af Laugar-
dalsvelli
Ljósmynd/myndasafn KSÍ
Snjóhreinsun Kristinn V. Jóhannsson hreinsar snjó af Laugardalsvelli í gær en völlurinn skemmdist í hittiðfyrra.
www.fi.is
Myndakvöld
Ferðafélags Íslands
Miðvikudagskvöld 17. febrúar kl. 20 í sal FÍ
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
Skaftárhlaup, fortíð,
nútíð, framtíð.
Tómas Jóhannesson,
eðlisfr. Veðurstofu Íslands
Afleiðingar
Skaftárhlaupa
á gróður og
jarðveg
Sveinn Runólfsson,
landgræðslustjóri
Aðgangseyrir
kr. 600
innifalið kaffi
og kleinur
Allir velkomnir
Abel Dhaira, knattspyrnumaður frá
Úganda og leikmaður ÍBV, hefur í
dag lyfjameðferð við krabbameini.
Abel var skorinn upp í Úganda fyrir
áramót vegna krabbameins í kviðar-
holi en það hefur nú dreift sér í fleiri
líffæri. ÍBV og
styrktaraðilar
standa þétt að
baki Abel og til að
tryggja honum
bestu læknishjálp
sem völ er á var
hann sóttur til
Úganda og flutt-
ur til Vestmanna-
eyja. Þá mun út-
gerðarfyrirtæki
borga kostnað af
komu móður hans til landsins. Til að
létta Abel þá fjárhagslegu byrði sem
sjúkdómurinn orsakar hefur félagið í
samstarfi við Vodafone ákveðið að
standa fyrir fjársöfnun.
Knattspyrnufélög á Íslandi létu
ekki sitt eftir liggja. Reið Grindavík
á vaðið og gaf Abel sektarsjóð sinn
og skoraði um leið á önnur félög að
gera slíkt hið sama. Þar sem sjóður
Grindvíkinga var ekki í hæstu hæð-
um bættu allir sem koma að
meistaraflokknum 1.500 krónum við.
Fram, Stjarnan og Keflavík fylgdu í
kjölfarið, en fyrir leik ÍBV og Kefla-
víkur í Lengjubikarnum á sunnudag
var ÍBV afhent umslag með pening-
um frá Keflvíkingum sem fara beint
til Abels.
„Ég veit ekki hversu mikið er
komið í sjóðinn og í raun veit ég ekki
hvað ég á að segja. Maður er hrærð-
ur yfir þessum viðtökum og hvað all-
ir hugsa fallega til hans,“ segir Ósk-
ar Örn Ólafsson, formaður knatt-
spyrnudeildar ÍBV.
„Abel er frábær strákur og góð
manneskja. Ég kann öllum bestu
þakkir fyrir stuðninginn,“ segir Ósk-
ar. benedikt@mbl.is
Standa þétt við
bakið á Abel
Knattspyrnulið gefa sektarsjóði
Morgunblaðið/Eggert
Frá keppni Abel Dhaira, markvörð-
ur ÍBV, greindist með krabbamein.
Óskar Örn
Ólafsson