Morgunblaðið - 16.02.2016, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2016
Í umræðunni um
frumvarpið um auk-
ið aðgengi að áfengi
hefur stuðningsfólki
þess orðið tíðrætt
um að með því sé
verið að fara að
vilja fólksins í land-
inu. Nú er um það
eins og fleira í rök-
stuðningi þessara
manna að þetta
stenst engan veginn
skoðun og fellur oftast nær um
sjálft sig. Ný skoðanakönnun
Fréttablaðsins sýnir t.d. þvert á
móti afgerandi meirihluta fólks
gegn þessum tilburðum og kem-
ur okkur ekki á óvart sem höf-
um sterklega varað hér við.
Sannleikurinn er einmitt sá að
fólk almennt er með hina þokka-
legustu dómgreind og þar þarf
enginn langt að leita til að finna
ömurleg dæmi um afleiðingar
áfengisneyzlu, nokkuð sem
flutningsmenn virðast ekki hafa
leitt hugann að eða í raun þegja
um, af því þessi dæmi eru í
hrópandi mótsögn við eðli frum-
varps þeirra. Fólk er líka sæmi-
lega að sér um þær rannsóknir
og kannanir sem benda allar í
átt að því að þessi fyrirhugaða
lagabreyting stuðli einungis að
fleiri og alvarlegri vandamálum
og er þó nóg af þeim fyrir. Grát-
broslegir tilburðir fylgjenda
þessa „frelsis“frumvarps til
réttlætingar skoðun sinni eru
býsna margir, s.s. að þetta sé til
að tryggja hagfelldari verzlun á
landsbyggðinni með því að leiða
áfengi til öndvegis í matvöru-
búðum hvarvetna, langsótt firra,
enda veit ég að andstaða við þetta
fyrirkomulag á vínsölu er áber-
andi meiri úti á landi en hér á höf-
uðborgarsvæðinu. Ein röksemdin
með afnámi einkasölunnar er t.d.
sú að þetta fyrirkomulag sé eitt-
hvað gamaldags og úrelt í raun.
Ólafur Haukur Árnason, sem
lengi gegndi starfi áfengisvarnar-
ráðunautar af mikilli prýði og
röggsemi, benti einmitt í samtali
okkar á það að einkasalan var
blessunarrík nýjung miðað við
hömlulausa sölu alls konar prang-
ara hér áður fyrr, sölu kaupmanna
sem leiddi oft til ómældrar ógæfu
og örbirgðar fólks. Þar var nefni-
lega hin gráa forneskja við lýði og
er virkilega ástæða til að hverfa
aftur til þess tíma? Eru ekki
vandamálin næg nú þegar, þarf
endilega að taka þá áhættu að
bæta þar við og auka
á vandann?
Og enn að einkasöl-
unni og atlögunni að
henni. Það mál reifaði
Ólafur Haukur einnig
skýrlega við mig. Ein
röksemdin væri sú að
við værum ein þjóða
með það fyrirkomulag
sem nú gildir, við
héldum með einkasölu
ÁTVR heltekin aft-
urhaldssemi sem
hvergi fyndist á byggðu bóli. En
ekki þarf nú langt að leita til að
fá hrakið, einfaldlega getum við
litið til frændþjóða okkar, þar
hefur einu gilt hvort vinstri eða
hægri öfl hafa farið með völd,
þar hafa menn ekki hreyft við
einkasölunni. Menn þar hafa
heldur ekki séð samfélagslegan
ávinning af að láta einkaaðila
græða ómælt á sölunni, þó ekki
væri, en slíkt virðast sumir sjá
hér í hillingum.
Og mætti biðja fulltrúa fólks-
ins á Alþingi að hlýða á rödd
þeirra er horfast daglega í augu
við ógæfuna sem af áfenginu og
öðrum vímuefnum stafar og er
ekki einfalt að hafna öllum til-
raunum sem mjög líklega, svo
ekki sé meira sagt, fjölga að-
göngumiðunum að ógæfunni?
Og ættu menn ekki að líta í
niðurstöður virtustu heilbrigð-
isstofnana heims sem vara allar
eindregið við auknu aðgengi sem
einungis myndi leiða til aukinn-
ar neyzlu með alþekktum afleið-
ingum?
Aldrei er minni ástæða til að
opna allar flóðgáttir en nú þegar
sannað er að æ færri unglingar
neyta áfengis, neita sér sem
sagt um það til ómældra heilla
fyrir framtíðina. Einnig það
mætti hafa í huga þegar fulltrú-
ar fólksins í landinu gera upp
hug sinn.
Á að fjölga að-
göngumiðum að
ógæfu fólks?
Eftir Helga Seljan
Helgi Seljan
» Fólk er almennt er
með hina þokkaleg-
ustu dómgreind og þar
þarf enginn langt að
leita til að finna ömurleg
dæmi um afleiðingar
áfengisneyzlu.
Höfundur er form. fjölmiðlanefndar
IOGT.
Allar lífverur eru
gerðar af frumum. Þar
á lífið sér í raun stað.
Fruma er afmörkuð
með himnu eða vegg
og innan hennar er
frymið með vel á ann-
an tug mismunandi líf-
færa eins og kjarna og
hvatbera (nema í
rauðu blóðfrumum
spendýra, bakteríum
og blágrænum þörungum) sem sjá
um brennslu (oxun) efna eins og
glúkósa, fitusýra og amínósýra með
súefni loftsins. Við brunann mynd-
ast vatn og kolsýra (CO2) auk úr-
gangsefna. Úr efnaorku þessara
þriggja efnaflokka lagera hvatber-
arnir orku í efnasambandinu ATP
til að knýja alla vinnu í frumunni
(samdrátt, flutning, osmósu, efna-
smíði sykra, fitu, prótína og kjarna-
sýra). Efnið ATP afhleðst en er
stöðugt hlaðið upp aftur.
Allt til 1969 héldu líffræðingar
því enn fram að sjúkdómar kæmu í
líkamann utan frá! Lífið er í frum-
unum og efnaskiptin í aðalatriðum
þau sömu fyrir dýra- og plöntu-
frumur. Margt bendir til þess að
öldrun okkar myndist í frumunum
og komi af stað mörgum krónískum
bæði líkamlegum og andlegum
sjúkdómum auk þess sem ellin sjálf
er sjúkdómur sem vex með hækk-
andi aldri. Hún sé afleiðing upp-
söfnunar eitraðs úrgangs sem
frumurnar ná ekki að brjóta niður
né losa sig við. Þetta háir hægt og
bítandi starfsemi
frumnanna frá 25 ára
aldri okkar og fyllir að
lokum mestallt pláss
milli líffæra þeirra í
fryminu.
Árið 1938 gaf próf.
dr. Reichinstein út 340
bls. bók í Prag á
þýsku um öldrun og
lífefnahvörf í frum-
unum þar sem þekk-
ing til þess tíma var
tíunduð. Þar kemur
fram að vísindamenn
höfðu fundið litarkorn í dýra- og
plöntufrumum sem fundust dreifð í
fyminu fljótlega eftir myndun
frumnanna en jukust með tímanum.
Var talið að frumurnar tækju við
meira af brennsluefnum en fruman
brenndi eftir 25 ára aldur hjá
manninum og staðfestu að jafnt og
þétt drægi úr starfsemi hennar og
þar með alls líkamans til 80 ára ald-
urs einstaklingsins vegna þess að
vökvi innan frymisins yrði sífellt
minni og frumulíffærin eyddust eða
visnuðu. Að lokum deyr fruman.
Var talað um þreytu í frumunum og
ráðlagt að auka brennsluna með
líkamlegri áreynslu auk bætts
mataræðis úr jurtaríkinu.
Það er svo dr. Harman sem 1969
kemur með líklegustu skýringu á
þessu sem tók vísindaheiminn um
20 ár að melta. Það er nú einu sinni
svo að tvö frumefni eru bundin
saman með tveimur rafeindum (ein-
faldur efnabindingur) í lífrænum
efnasamböndum. Við brennsluna í
frumunum myndast hvarfleif (free
radical, sindurefni) sem vantar eina
rafeind. Þessi hvarfleif er mjög
hvarfgjörn og getur opnað veikan
binding í umfram-næringarefnum í
frumunni og bundist því en nú
verður aftur ein rafeind þar laus og
heldur þetta því áfram sem keðju-
hvörf. Útkoman verður loks nýtt
efni: 30-50% oxuð prótín, 19-51%
oxuð lípíð (fita og kólesteról) og þá
geta steinefni o.fl. líka fest í þessu
óreglulega mjög oxaða þvers og
kruss bundna efni sem kallast lípó-
fúscín (elliblettir, lifrarblettir) og
eru sama gulbrúna litakornaefnið
og gömlu vísindamennirnir höfðu
fundið í frumunum. Þetta efni getur
fruman ekki losað sig við né brotið
niður og ekki leysist það heldur
upp í vatni. Sama skeður líka hjá
gróðri og öðrum dýrum. Hvað varð-
ar manninn þá eru einkum
heilafrumur, þar sem efnið safnast
með tímanum og svo taugafrumur
verst settar en þessar tvær frumu-
gerðir endurnýja sig ekki. Þær
frumur sem skipta sér ná að helm-
inga styrkinn af lípófúscín við
hverja frumuskiptingu sem geta
víst orðið 45-50.
En hvað er til ráða? Jú, Harman
ráðlagði að neyta andoxunarefna
eins og t.d. C- og E-vítamína og
beta-caroten auk þess sem ávextir
og grænmeti eru full af andoxunar-
efnum. Andoxunarefnin (sindur-
varar) eru álitin vera fljót að stöðva
þessi keðjuefnahvörf í frumunni
með því að bindast hvarfleifunum
en þau þurfa að vera til staðar í
nægjanlega miklum styrk og þau
eyðast hratt.
Það ætti því að vera unnt að
hægja á ellinni og ellihrörnuninni
með réttu mataræði og hugsanlega
lengja líf okkar.
Frumurnar og öldrunin
Eftir Pálma
Stefánsson »Ellin er líklega
vegna uppsafnaðs
úrgangs í frumunum
sem getur valdið ýmsum
krónískum líkamlegum
og heilakvillum vegna
hindrunar í starfsemi
frumnanna
Pálmi Stefánsson
Höfundur er efnaverkfræðingur.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið.
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með
og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess
fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi
hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu.
Apple, Apple merkið, iPhone, iPad og iPod touch eru
vörumerki Apple Inc, skráð í BNA og öðrum löndum.
App Store er þjónustumerki Apple Inc. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Heyrnartæki eruniðurgreidd afSjúkratryggingum
Íslands
Hummel
Útsöluaðilar:
Útilíf – allar verslanir
Intersport – allar verslanir
Skór.is – allar verslanir
Debenhams
Steinar Waage
Englabörn
Sportver Akureyri
Toppmenn og
Sport Akureyri
Nína Akranesi
K Sport Keflavík
Borgarsport Borgarnesi
Siglósport Siglufirði
Sentrum Egilsstaðir
Pex Reyðarfirði
Sportbær Selfossi
Axel Ó Vestmannaeyjum
Músik & Sport
Efnalaug Vopnafirði
Verið getur að auglýstar vörur
séu ekki til hjá útsöluaðila.
Umboðsaðili: DanSport ehf.
Nýjar vörur