Morgunblaðið - 16.02.2016, Side 24

Morgunblaðið - 16.02.2016, Side 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2016 Loftslagsráðstefn- unni í París í desem- ber 2015 lauk með því að öll ríkin sam- þykktu áætlun ráð- stefnunnar. Sá áfangi þykir mikill sigur enda er þetta líklega þetta í fyrsta sinn sem öll ríki heims standa að ályktun þar sem því er slegið föstu að gróðurhúsaáhrif af manna- völdum séu eitt bráðasta vandamál mannkyns. Sumum þykir reyndar lítið til koma, því að samkvæmt ályktuninni munu þjóðir heims að- eins gefa viljayfirlýsingar um að draga úr útblæstri gróðurhúsa- lofttegunda en ekki skuldbinda sig. Svo virðist sem þjóðir heims hafi notað tilefnið til að marka stefnu í orkumálum sem gefur raunverulega von um að þetta risavaxna vandmál verði leyst. Veðjað á tvíþætta leið Vandann má leysa eftir tveimur leiðum. Áherslan hefur hingað til verið lögð þá fyrri, þ.e. að þjóðir dragi úr orkunotkun sinni og minnki þannig útblástur. Hér er þó ekki hægt um vik, því að notkun á orku er grundvöllurinn að efna- hagslífi þjóða og hreyfiafl sam- félaga. Stórþjóðir á borð við Kína og Indland hafa ekki verið til við- tals um að hægja á ferðinni meðan þær eru að ná lífsgæðum Vestur- landabúa. Síðari leiðin felst í því að leggja meiri fjármuni í þróun kolefnafrírra orkugjafa á borð við kjarnorku. Hún er eina kolefnislausa auðlindin sem núverandi tækni getur nýtt í því magni að verulega muni um. Nú virðist eiga að há- marka árangur eftir báðum leiðum samtímis. MSR tæknin Sú tækni sem virðist ætla að greiða þessari stefnu leið byggist á MSR kjarnakljúfum (Molten Salt Reactors) af fjórðu kynslóð kjarnaofna. Þar er bráð- ið salt notað bæði sem kæli- og burðarmiðill fyrir eldsneytið. MSR kjarnakljúfar þykja bera af hefð- bundnum annarrar kynslóðar kjarnaofnum frá umhverfissjónar- miði. MSR kjarnakljúfar nýta elds- neytið allt að 100 sinnum betur en annarrar kynslóðar ofnar og geta að auki nýtt kjarnaúrganginn frá þeim. Þannig minnkar vandinn við geymslu geislavirks úrgangs veru- lega. Tæknin er reyndar ekki ný. MRS ofninn var fundinn upp í Bandaríkj- unum á sjötta ártugnum og tilraun- ir stóðu í 20 ár. Þegar kalda stríðið svonefnda var í algleymingi, var þeim tilraunum hætt þar sem úr- gangur þessara ofna er lítt hæfur til þróunar yfir í kjarnorkuvopn. Sú aukageta þótti nauðsynleg á tímum ógnarjafnvægis milli þjóða heims. N-Ameríka í fararbroddi Bandaríkjamenn standa fremstir í þróun á MSR-ofnum. Bandarískt fyrirtæki áætlar að taka fyrsta MSR-ofninn til rafmagnsfram- leiðslu í gagnið í Indónesíu árið 2021 og annað hyggst ljúka á þessu ári fullnaðarhönnun MSR-ofna sem ganga eingöngu fyrir kjarnaelds- neytinu þóríum. Kanadamenn eru einnig mjög framarlega í þessari þróun. Þarlent fyrirtæki áætlar að hefja fram- leiðslu á fyrsta visthæfa raforkuveri sínu snemma á næsta áratug og áætlar að raforkuverðið verði strax í upphafi mun lægra en verð frá kola- og gasorkuverum. Kínverjar einbeittir Kapphlaupið er alþjóðlegt því að Kínverjar ætla sér einnig að vera í fremstu röð í þróun þessarar tækni. Þar er stórt og mannaflafrekt verk- efni í gangi við þróun tveggja gerða fjórðu kynslóðar kjarnaofna. Kín- verjar eru mjög áfram um að flýta tæknilegu framvindunni, enda bún- ir að fá upp í kok af kolarykskýinu sem liggur iðulega eins og mara yf- ir stórum hluta þessa víðlenda ríkis. Stefnubreyting Breta ógnar sæstrengsdraumum Bretar tilkynntu á loftslags- ráðstefnunni í París þá stefnubreyt- ingu, að þeir mundu hætta niður- greiðslum á allri kolefnafrírri orku að undanskilinni vindorku frá hafi („offshore“) en leggja í staðinn áherslu á þróun fjórðu kynslóðar kjarnaofna sem hægt er að fjölda- framleiða. Þessi stefnubreyting þeirra getur haft áhrif á vilja okkar til að leggja sæstreng til Bretlands. Hún sýnir í hnotskurn þá pólitísku áhættu sem því risaverkefni er samfara enda illt að treysta á breskar niðurgreiðslur sem tekju- öflun til lengri tíma litið. Stefnu- breyting Breta getur leitt til lækk- unar orkuverðs um langa framtíð og einnig í Evrópu allri, verði sama stefna tekin upp þar. Bretar stefna á að bæta við kjarnorku um 16 GW til ársins 2030 og vera með 75 GW um miðja öld- ina. Þeir hafa nú alls um 82 GW uppsett afl, þar af 10 GW í kjarn- orku og 10 GW í vindorku og end- urnýjanlegri orku. Vatnsafl þeirra er aðeins 1,6 GW. Því er við að bæta að Bretar eru nýfarnir að dæla gasi frá gríðarlega stórum lindum sínum við Hjaltlandseyjar og til lands. Í þessum áfanga er gert ráð fyrir að orkan dugi fyrir u.þ.b. tvær milljónir heimila eða sömu tölu og sæstrengurinn frá Ís- landi átti að geta skilað. Tekur kaldur samruni flugið? Einn spennandi og mikilvægan orkukost er vert er að nefna við- bótar. Það er svonefndur kaldur samruni („cold fusion“) en nú hefur verið vísindalega staðfest að unnt sé að nota hann sem orkugjafa. Þessi orkuuppspretta er talin um- hverfisvæn, hættulaus og hag- kvæmari leið en kjarnaklofningur. Á það sérstaklega við í smáum stíl á bilinu frá 1 kW upp í nokkur MW sem hentar t.d. vel fyrir farartæki. Taki notkun kalds samruna flugið, getur tæknin hæglega skotist fram úr þeirri tækni sem rædd er hér að framan. Það er því ljóst að við lifum á spennandi tímum. Gróðurhúsaáhrif og kjarnorka Eftir Kjartan Garðarsson » Síðari leiðin felst íþví að leggja meiri fjármuni í þróun kolefnafrírra orkugjafa á borð við kjarnorku. Kjartan Garðarsson Höfundur er vélaverkfræðingur. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Bridsfélag eldri borgara í Hafnarfirði Föstudaginn 5. febrúar var spil- aður tvímenningur með þátttöku 24 para. Efstu pör í N/S (% skor): Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 62,3 Björn Árnason - Auðunn R. Guðmss. 54,2 Bjarni Þórarinss. - Magnús Jónss. 53,9 Jón Sigvaldason - Katarínus Jónss. 53,7 Ágúst Vilhelmsson - Björn Arnarson 52,8 A-V Sigurður Hallgrs. - Steinmóður Einarss.61,8 Tómas Sigurjss. - Björn Svavarss. 59,0 Sigurður Láruss. - Sigurður Kristjánss. 59,0 Jón M. Guðröðsson - Ómar Ellertss. 55,8 Kristján Þorláksson - Ásgeir Sölvason 54,2 Þriðjudaginn 9. febrúar var spil- aður tvímeningur með þátttöku 30 para. Bestum árangri náðu í N/S: Auðunn Guðmss. - Guðm. Sigursteinss. 63,3 Jón Sigvaldason - Katarínus Jónss. 59,0 Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnsson 56,5 Hulda Hjálmarsd. - Hrafnh. Skúlad. 55,8 Örn Ingólfsson - Örn Isebarn 55,0 A-V Sigurður Hallgrs. - Steinmóður Einarss.62,3 Sturla Snæbjss. - Ormarr Snæbjörnss. 60,5 Viktor Björnsson - Hrólfur Guðmss. 59,9 Birgir Sigurðss. - Jón Svan Sigurðss.. 55,5 Kristrún Stefánsd. - Sverrir Gunnarss. 53,7 Föstudaginn 12. febrúar spiluðu 24 pör tvímenning. Efstu pör í N/S: Jón Sigvaldason - Katarínus Jónsson 59,0 Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 55,8 Örn Einarsson - Pétur Antonsson 55,3 Albert Þorsteinss. - Björn Árnason 55,1 A-V Ólöf Hansen - Alma Jónsdóttir 55,8 Tómas Sigurjss. - Björn Svavarsson 54,4 Ólafur Ólafsson - Anton Jónsson 53,7 Sigurður Kristjánss. - Sigurður Láruss. 52,5 BFEH spilar á þriðjudögum og föstudögum í Hraunholti, Flata- hrauni 3. Spilamennska byrjar kl. 13. Það þarf nokkuð til núorðið að maður setjist niður og dragi til stafs en sjónvarpsfréttirnar á sprengidag drógu mig að púltinu. Í tilefni dagsins heimsóttu báðar sjónvarpsstöðvarnar verta sem hafa það að lifibrauði að selja út mat og að sjálfsögðu voru salt- kjötið og baunirnar máltíð dagsins. Skemmst er frá því að segja að fréttafólkið hélt beina leið að kjötpottunum og mynduðu í bak og fyrir herlegheitin sem elduð voru í misstórum pottum. Þá er komið að því sem mér þótti at- hyglisverðast við innskotin. Nokkrir starfsmenn sáust í mynd, sem og fréttamennirnir, en ég sá engan þeirra með hárnet eða húfu. Ég þykist vita að það sé skylda að þeir sem starfa við matseld og selja afurðirnar séu með höfuðfat eða net. Ég velti því fyrir mér hvort þessi mál séu í þeim ólestri sem sjónvarps- stöðvarnar upplýstu okkur um eða að þetta hafi verið tilviljun? Það má líka segja við fréttafólkið, t.d. eins og Unu með sitt síða fallega hár, að láta ekki mynda sig án höfuðfats. Þau eiga að vita að það er ólöglegt að fara inn í eldhús með flaksandi hár. Guðjón. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Þjónn – Það er hár í súpunni minni Augnhvílan Margnota augnhitapoki Fæst í helstu apótekum og Eyesland Gleraugnaverslun, Glæsibæ Ef augnhvílan er notuð tvisvar á dag með reglulegu millibili hefur hún jafnan jákvæð áhrif á hvarmabólgu (Blepharitis), vanstarfsemi í fitukirtlum, augnþurrk, vogris, augnhvarma- blöðrur og rósroða í hvörmum/augnlokum. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Þýskar innréttingar EIRVÍK Innréttingar Eirvík Innréttingar eru sérsmíðaðar í Þýskalandi. Einingarnar koma samsettar til landsins sem sparar tíma í uppsetningu og tryggirmeiri gæði. Sérstaða okkar fellst í því að bjóða heildarlausn fyrir eldhúsið. Við höfum næmt auga fyrir smáatriðumog bjóðumpersónulega þjónustu. Höfuðáhersla er lögð á lausnir sem falla að þörfumog lífsstíl hvers og eins. Líttu við hjá okkur og fáðu tilboð í innréttinguna og eldhústækin og tryggðu þér raunveruleg gæði á réttu verði. Hönnun og ráðgjöf á staðnum. NÝTT 2016 - 10% lægri verð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.