Morgunblaðið - 17.02.2016, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. F E B R Ú A R 2 0 1 6
Stofnað 1913 39. tölublað 104. árgangur
EILÍFUR
GLERÞVOTTUR
MANNSINS ÁHUGALJÓSMYNDARI
REYKJAVÍKUR-
DÆTUR TROÐA
UPP Á SÓNAR
Á LJÓSMYNDIR Í ERLENDUM MIÐLUM 10 „KÚL LITLA HÁTÍÐIN“ 30LEIKRITIÐ ÞVOTTUR 35
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Útlagar Snjóruðningar hafa þrengt að
listaverki Einars Jónssonar á mótum
Hrafnagilsstrætis og Eyrarlandsvegar.
Víða er mikill snjór á austan-
verðu Norðurlandi en sjatnaði þó
aðeins í hlákunni í fyrrinótt. Snjó-
dýpt á Akureyri fór upp í 102 senti-
metra en var 90 sentimetrar í gær-
morgun. Samkvæmt upplýsingum
Trausta Jónssonar veðurfræðings
mun snjódýptin þar ekki hafa verið
meiri síðan 1995. Áður hafði oft
mælst þar meiri snjódýpt. Á öðrum
stöðum er ekki jafn langt síðan
meiri snjór mældist.
Mest snjódýpt í ár til þessa mæld-
ist fyrir nokkrum dögum við
Skeiðsfossvirkjun í Fljótum, 160
sentimetrar, en þar hefur snjódýpt
oft mælst meiri, síðast fyrir tveim-
ur árum. Ekki er mjög mikill snjór
úti við sjávarsíðuna á þessum slóð-
um og ekki er mikill snjór í Skaga-
firði og þar vestan við. Meira er aft-
ur á Vestfjörðum. Um stuttan tíma
var mikill snjór í Hornafirði og á
stöku stað eystra, en mikið hefur
sjatnað, samkvæmt upplýsingum
Trausta. aij@mbl.is
Mesta snjódýpt á
Akureyri frá 1995
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Nýtt Íslandsmet var sett í meðal-
afurðum sauðfjárbúa á nýliðnu ári.
Hver ær á búi Eiríks Jónssonar í
Gýgjarhólskoti 1 í Biskupstungum
skilaði 44,9 kílóum kjöts að meðal-
tali. Er það 3,6 kílóum meira en
eldra met sem Eiríkur setti á árinu
2012.
Reiknaðar af-
urðir eftir hverja
kind voru 26,9
kíló á síðasta ári,
samkvæmt
niðurstöðum
skýrsluhalds í
sauðfjárrækt
sem Ráðgjafar-
miðstöð landbún-
aðarins (RML)
hefur tekið saman. Er það tæpu
kílói minna en árið 2014. RML tel-
ur að aðalástæðan fyrir minni af-
urðum sé erfitt tíðarfar síðastliðið
vor sem leiddi til aukinna van-
halda. Þannig komu færri lömb til
nytja árið 2015 þótt fjöldi fæddra
lamba hafi verið svipaður og síð-
ustu ár. Ef litið er á einstök svæði
sést að mestu meðalafurðirnar
voru í Vestur-Húnavatnssýslu, 29,6
kg eftir hverja á. Þar eru einnig
nokkur af efstu búunum á afreks-
lista sauðfjárbænda.
Eiríkur í Gýgjarhólskoti segist
oft hafa hugsað um að raunhæft
væri að ná 44-45 kílóum eftir
kindina og hann hefur nú náð því
marki. Hann telur að það verði á
brattann að sækja að gera betur.
Nýtt Íslandsmet í afurðum
Eiríkur Jónsson í Gýgjarhólskoti 1 enn á toppnum yfir afurðahæstu sauð-
fjárbú landsins Meðalafurðir allra búa landsins minnkuðu um tæpt kíló í fyrra
MVakin og sofin … »14
Eiríkur
Jónsson
Morgunblaðið/RAX
Hnjúkurinn Hjarnkollurinn er ekki
nógu þykkur til að teljast jökull.
Landmælingar Íslands (LMÍ) ætla
ekki að mæla hæð Hvannadals-
hnjúks sérstaklega á þessu ári
nema um það berist sérstök beiðni,
að sögn Magnúsar Guðmundssonar,
forstjóra LMÍ. Eins og kom fram í
Morgunblaðinu í gær telur Einar
Rúnar Sigurðsson leiðsögumaður
að Hvannadalshnjúkur hafi hækkað
talsvert í vetur og fyrravetur.
Oddur Sigurðsson, sérfræðingur
á sviði jöklarannsókna hjá Veður-
stofu Íslands, sagði að snjóað gæti
um 15 metrum af snjó uppi á
Öræfajökli á hverju ári.
„Uppi á sjálfum Hvannadals-
hnjúki er snjóhettan svo þunn að
hún er ekki eiginlegur jökull. Það
safnast ekki svo mikið á hann að
það nái þeim 40-50 metrum sem
þarf til að gera jökul,“ sagði Oddur.
„Snjórinn fýkur af og sjatnar, en
það bráðnar sáralítið uppi á toppn-
um því meðalhiti ársins er þar um
-10°C. Þá hefur farg jökulsins lést
og landið er að rísa. Á þeim 20 ár-
um sem liðin eru frá því að óðaflótti
brast á í jöklunum hefur Hvanna-
dalshnjúkur líklega hækkað um
meira en hálfan metra.“ »4
Hækkar vegna landriss
Hvannadalshnjúkur a.m.k. 1⁄2 metra hærri en fyrir 20 árum
Þessir drengir á leikskólanum Eyrarskjóli á Ísafirði
létu slæmt veður ekki aftra sér frá því að njóta útiver-
unnar um miðjan dag í gær. Inni á milli getur þó verið
gott að fá skjól frá veðrinu og gott ef þeir voru ekki að
skipuleggja næsta leik. Aftakaveður var fram eftir
degi á Ísafirði, sem og víðar um norðanvert landið.
Versta veðrinu hafði þó slotað í gærkvöldi þó að enn
væri hvasst. »4
Létu veðrið ekki ekki stöðva leikinn
Afar slæmt veður var um norðanvert landið fram eftir degi í gær
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Á síðasta ári
var vöruflutn-
ingur um Faxa-
flóahafnir hátt í
3,4 milljónir
tonna og hefur
ekki verið meiri
frá árinu 2007.
Þetta sýna
bráðabirgðatölur
Faxaflóahafna
sh. fyrir árið
2015. Flutningar jukust um 4% milli
ára, aðallega vegna aukins inn-
flutnings, t.d. á bílum og olíu. »6
Vöruflutningar ekki
meiri frá árinu 2007
Metin frá 2007 fara
að falla eitt af öðru.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
svaraði á síðasta borgarráðsfundi
fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins frá því 16. júlí, 2015,
þar sem óskað var upplýsinga um
fundi og samskipti sem formaður
borgarráðs og borgarstjóri áttu við
innanríkisráðherra eða fulltrúa hans
varðandi Reykjavíkurflugvöll, í að-
draganda þess samkomulags sem
undirritað var 25. október 2013.
Í fyrirspurninni var óskað eftir að
lagðir yrðu fram í borgarráði minnis-
punktar, samningsdrög og önnur
samskipti sem ofangreindir aðilar
áttu vegna þessa. Í svari borgar-
stjóra segir m.a. orðrétt: „Um sam-
komulagið liggja ekki fyrir hjá
Reykjavíkurborg fundargerðir eða
önnur skráð samskipti á milli
borgarstjóra eða formanns borgar-
ráðs annars vegar og innanríkisráð-
herra hins vegar.“
Á fundinum í fyrra var einnig lagt
til að borgarstjóra og formanni borg-
arráðs yrði skylt að leggja fram í
borgarráði minnispunkta og aðrar
upplýsingar vegna funda sem borg-
arstjóri og formaður borgarráðs
ættu við ráðuneyti og stofnanir. »12
Engin gögn um sam-
skipti ríkis og borgar
Landsbankinn
segir að við verð-
mat á 38% hlut
bankans í Valitor
hafi mögulegum
greiðslum af val-
rétti milli Visa
Inc. og Visa
Europe verið
haldið utan við
matið. Þá hafi mikil óvissa um mögu-
lega nýtingu valréttarins verið uppi
og ekki víst að hann yrði virkjaður.
Á heimasíðu bankans kemur hins
vegar fram að við verðlagningu á
hlutnum, sem seldur var Arion
banka í árslok 2014, hafi verðið með-
al annars ráðist af því að bankinn
taldi forsendur til að semja um við-
bótargreiðslu ef Visa Inc. myndi
kaupa Visa Europe.
Við söluna á hlutnum í Valitor, á
3,6 milljarða króna, var eiginfjár-
margfaldarinn 1,18. Þegar 31,2%
hlutur var seldur í Borgun nokkrum
vikum fyrr, á 2,2 milljarða, var sami
margfaldari 1,88. »16
Valréttur
ekki hluti
af verðinu
Landsbankinn tví-
saga varðandi Valitor
Sala Valitor er
nú í eigu Arion.