Morgunblaðið - 17.02.2016, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2016
Ekki er óþekkt að dauðsföll þjóð-þekkts fólks kalli fljótlega á
samsæriskenningar um hvað hafi
„raunverulega gerst“. Slíkar kenn-
ingar eru mjög lífseigar.
Frá Bandaríkj-unum eru
þekktar sögur um
„dularfullt“ dauða-
slys Pattons, hins lit-
ríka hershöfðingja í
Evrópustyrjöldinni
síðustu.
Þegar þess varminnst fyrir
rúmum tveimur ár-
um að 50 ár voru lið-
in frá því að Ken-
nedy forseti var myrtur voru
margvíslegar samsæriskenningar
dregnar fram og fjölbreytnin var
mikil.
Samsæriskenningin um ElvisPresley snerist raunar helst um
það að stórstjarnan hefði alls ekki
dáið.
Og dauði Antonin Scalia hæsta-réttardómara er nú kominn í
þetta sviðsljósið.
Breska blaðið Guardian segir ávef sínum í gær að Donald
Trump forsetaframbjóðandi hafi að-
spurður af útvarpsfréttamanni svar-
að því til að ekki væri útilokað að
eitthvað kynni að vera til í nýjum
fréttum um dauða dómarans.
Trump: Þetta er auðvitað hrylli-legt umræðuefni, en þeir segja
að þeir hafi fundið hann með svæfil
yfir andlitinu, sem er auðvitað sér-
kennilegur staður fyrir kodda. En ég
get ekki svarað þér, því ég var bók-
staflega að heyra þetta fyrir stuttu.
Þetta er rétt byrjað að koma fram
núna, eins og þú veist, Michael.“
Donald Trump
Samsæriskenn-
ingar fljótar til
STAKSTEINAR
Antonin Scalia
Veður víða um heim 16.2., kl. 18.00
Reykjavík -1 skýjað
Bolungarvík -1 snjókoma
Akureyri 0 skýjað
Nuuk -7 slydda
Þórshöfn 9 súld
Ósló -2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 0 heiðskírt
Stokkhólmur -1 heiðskírt
Helsinki -1 heiðskírt
Lúxemborg 2 heiðskírt
Brussel 5 léttskýjað
Dublin 7 skúrir
Glasgow 7 skúrir
London 7 léttskýjað
París 5 heiðskírt
Amsterdam 5 heiðskírt
Hamborg 2 heiðskírt
Berlín 1 skýjað
Vín 6 alskýjað
Moskva 0 snjókoma
Algarve 13 heiðskírt
Madríd 7 léttskýjað
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 12 skýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg -17 skýjað
Montreal -3 slydda
New York 11 alskýjað
Chicago -2 alskýjað
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:18 18:07
ÍSAFJÖRÐUR 9:33 18:02
SIGLUFJÖRÐUR 9:16 17:44
DJÚPIVOGUR 8:50 17:33
Sunna Sæmundsdóttir
sunnasaem@mbl.is
Bónusgreiðslur sem núverandi og
fyrrverandi starfsmenn íslenska
eignaumsýslufélagsins ALMC, sem
áður var Straumur-Burðarás, fengu í
lok síðasta árs eru í takti við þróunina
erlendis. Þetta segir fyrrverandi for-
stjóri bankans.
DV greindi frá
bónusgreiðslunum
í gær, en sam-
kvæmt heimildum
blaðsins fengu um
20 til 30 starfs-
menn greiddar
samtals um 23
milljónir evra, eða
sem jafngildir um
3,3 milljörðum ís-
lenskra króna, í
desember síðastliðnum.
Í samtali við mbl.is staðfesti Jakob
Ásmundsson, fyrrverandi forstjóri
Straums, að bónusgreiðslurnar hefðu
átt sér stað. Hann sagðist ekki geta
staðfest fjárhæðina en samkvæmt
heimildum mbl.is væri það sem fram
kæmi í DV mjög nærri lagi.
Jakob er einn þeirra sem fá hæstu
bónusgreiðsluna, en hann var fjár-
málastjóri ALMC til ársins 2013. Þá
tók hann við starfi forstjóra og gegndi
því þar til síðasta sumar, þegar hann
hætti í kjölfar sameiningar Straums
og MP banka.
Í samræmi við samþykkt
kaupaukakerfi
Jakob segir að greiðslurnar séu í
takti við bónusgreiðslukerfið sem sett
hafi verið á fót á sínum tíma, þ.e.
kaupaukakerfi sem samþykkt hafi
verið á aðalfundi ALMC árið 2011. Þá
bendir hann á að starfsmennirnir séu
búnir að starfa lengi hjá félaginu
Straumur-Burðarás var tekinn yfir
af Fjármálaeftirlitinu í mars 2009 og í
kjölfar samþykktar nauðasamninga í
júlí 2010 varð eignaumsýslufélagið
ALMC til. Eftir samþykktina fengu
kröfuhafar yfirráð í nýja félaginu en
eigendurnir eru að stærstum hluta
erlendir bankar og fjárfestingar-
sjóðir.
Mörg félög öflug erlendis
Í frétt DV er fullyrt að þetta sé
langsamlega hæsta bónusgreiðsla
hjá íslensku félagi frá hruni. Jakob
bendir á að fjölmörg íslensk félög séu
komin með mikla starfsemi erlendis
og það kæmi sér ekki á óvart ef önn-
ur félög hefðu greitt álíka bónusa.
„Síðan veit maður ekki hversu mikið
af þessu er innleyst og svona hlutir
eru ekki alltaf í sviðsljósinu,“ segir
hann.
Bónusgreiðslur hjá Straumi kom-
ust í umræðuna árið 2009 þegar hug-
myndir um háar árangursríkar
greiðslur rötuðu í fjölmiðla. Hug-
myndin um greiðslurnar var þó sleg-
in af borðinu eftir hörð viðbrögð al-
mennings. Óttar Pálsson, þáverandi
forstjóri fyrirtækisins, skrifaði í kjöl-
farið bréf í Morgunblaðið og baðst af-
sökunar fyrir hönd Straums. Hann
sagði að einblínt hefði verið um of á
erlendar aðstæður og að fyrirætlan-
irnar hefðu ekki verið í nægilegum
tengslum við veruleikann sem við Ís-
lendingar bjuggu við.
Óttar er einn þeirra sem fengu
bónusgreiðsluna í desember síðast-
liðnum en þegar mbl.is hafði sam-
band við hann í gær sagðist hann
ekki vera til viðtals.
Í frétt DV kemur fram að þeir
lykilstjórnendur sem hafi fengið
langhæstu greiðslurnar séu Andrew
Bernhardt, forstjóri ALMC, Óttar
Pálsson, Jakob Ásmundsson og
Christopher Perrin, stjórnar-
formaður ALMC.
Segir bónusa
í takti við
erlenda þróun
Fengu 3,3 milljarða í bónusgreiðslur
Jakob
Ásmundsson
Ámorgun 18. febrúar gefur Íslandspóstur út þrjú frímerki
til að minnast stórafmæla. Alþýðusamband Íslands 100
ára, Ísafjarðarbær 150 ára og Hið íslenska bókmenntafélag
200 ára. Þá kemur út Norðurlandafrímerki tileinkað matar-
gerðarlist og fjögur frímerki tileinkuð keramikhönnun.
Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum.
Einnig er hægt að panta þau hjá
Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050.
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
facebook.com/icelandicstamps
Safnaðu litlum listaverkum