Morgunblaðið - 17.02.2016, Síða 14
Eiríkur Jónsson í Gýgjarhólskoti 1
átti ekki von á að setja nýtt Íslands-
met í afurðum búsins í ár. „Nei, ég
átti ekki von á því. Ég hef oft hugs-
að um að það væri raunhæft að ná
44-45 kílóum eftir kindina. Eftir
það verði á brattann að sækja. Ein-
hverjir aðrir verða að reyna við
það,“ segir Eiríkur.
Eiríkur er með 280 ær og skilaði
hver þeirra 44,9 kg kjöts á síðasta
ári. Það er ótrúlegt afrek sem búast
má við að verði seint leikið eftir.
Hann hefur í það minnsta sett nýtt
viðmið fyrir aðra að máta sig við í
framtíðinni. Fyrra metið, frá 2012,
var 41,3 kg og átti Eiríkur það sjálf-
ur. Hermundur Valdimar Eiríksson
í Vallanesi í Skagafirði komst einn-
ig yfir 40 kg markið, það var árið
2014. Fyrir utan það ár hefur bú Ei-
ríks verið í efsta sæti afurðalistans
flest undanfarin ár.
Mikil frjósemi
Eiríkur segir að óvenjumikil frjó-
semi hafi verið í fénu í fyrra, rúm-
lega tvö lömb fædd eftir hverja á að
meðaltali. Meðaltalið yfir landið er
nálægt 1,80 lömbum. Hann lenti
ekki í óvenjulegum afföllum í fyrra-
vor, vegna tíðarfarsins, eins og
margir sauðfjárbændur kvörtuðu
undan. „Við sluppum nokkuð frá
því. Ég var með þokkalega góð hey
til að gefa á sauðburði. Það hefur
kannski munað því. Í það minnsta
bjargar það heilmiklu á svona
köldu vori,“ segir Eiríkur.
Sló eigið Íslandsmet
í meðalafurðum
Eiríkur Jónsson í
Gýgjarhólskoti trón-
ir enn á toppnum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sauðfjárbóndi Eiríkur Jónsson
hugar að fé í fjárhúsum sínum.
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2016
Frá
morgni
líkama
og sál
fyrir alla
fjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir
líkama
Laugarnar í Reykjavík
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Maður þarf að hafa metnað til að
gera betur. Við erum vakin og sofin
yfir þessu. Höfum verið að auka frjó-
semi fjárins og mjólkurlagni, og auka
kjötgæðin,“ segir Elín Anna Skúla-
dóttir, sauðfjárbóndi á Bergsstöðum
í Miðfirði. Bú þeirra hjóna, Elínar
Önnu og Ara Guðmundar Guð-
mundssonar, var með afurðahæstu
sauðfjárbúum landsins á síðasta ári,
samkvæmt niðurstöðum skýrslu-
halds í sauðfjárrækt sem Ráðgjaf-
armiðstöð landbúnaðarins (RML)
hefur birt.
Afurðahæsta búið á síðasta ári var,
eins og flest síðustu árin, bú Eiríks
Jónssonar í Gýgjarhólskoti 1 í Bisk-
upstungum. Ærnar hans skiluðu 44,9
kílóum kjöts að meðaltali. Er það
nýtt Íslandsmet.
Þrjú bú í Vestur-Húnavatnssýslu
eru í þremur af næstu fjórum sætum.
Í öðru sæti varð bú Elínar Önnu og
Ara Guðmundar á Bergsstöðum í
Miðfirði með 38,7 kg og bú Þormóðs
og Borghildar á Syðri-Sauðadalsá á
Vatnsnesi í þriðja sæti, sjónarmun á
eftir.
Mestar afurðir í Húnaþingi
Reiknaðar afurðir eftir hverja kind
voru 26,9 kg, sem er tæpu kílói minna
en árið 2014. Samkvæmt upplýsing-
um RML munar þar mest um erfitt
tíðarfar síðastliðið vor, sem leiddi af
sér aukin vanhöld. Þannig komu
færri lömb til nytja árið 2015 þótt
fjöldi fæddra lamba hafi verið svip-
aður og síðustu ár. Mestu meðal-
afurðir voru í Vestur-Húnavatns-
sýslu, 29,6 kg, og þar eru nokkur af
afurðahæstu búunum. Næst kemur
Strandasýsla með 28,9 kíló.
Listarnir yfir bestu búin miðast
við bú með 100 skýrslufærðar ær eða
fleiri. Tölur um enn hærri afurðir
sjást á minni búum, hjá svokölluðum
„hobbýbændum“. Þegar þau bú eru
tekin með í reikninginn sést að Eg-
ilsstaðabúið í samnefndum byggða-
kjarna er efst með 57,2 kg. Þar eru
aðeins 15 ær og frjósemin ótrúleg,
eða 2,71 fædd lömb eftir hverja á.
Of litlar tekjur
Hjónin á Bergsstöðum í Miðfirði
tóku við búi af foreldrum Elínar
Önnu fyrir tæpum tuttugu árum.
Hún segir að þau hafi tekið við góð-
um fjárstofni og hafi haldið áfram að
kynbæta hann, meðal annars með því
að láta sæða þó nokkuð á hverju ári
og kaupa hrúta af nágrannabæjum
til að fá nýtt blóð inn í stofninn. Það
hafi skilað sér í aukinni frjósemi og
mjólkurlagni ánna, auk betri kjöt-
gæða.
„Það eru allt of litlar tekjur eftir
kindina, þetta er dýrt hobbý. Aðal-
málið er að kindin skili sem flestum
kílóum af kjöti ásamt því að lömbin
séu vel gerð og lítil fita á skrokk-
unum. Fyrir það fáum við mest í
budduna,“ segir Elín Anna.
Þau hafa ágætar aðstæður til
sauðfjárræktar. Þau eru að vísu enn
með gömul fjárhús, samhliða nýrri.
Draumur þeirra er að stækka fjár-
húsin og bæta aðstöðuna.
Þau eiga land inn til dala í Miðfirði
og leigja viðbótarland. Það eru jarð-
irnar Aðalbreið og Aðalból undir
samnefndri heiði. Þangað geta þau
farið með féð og náð í það þegar þeim
hentar.
Vorið var dýrt
Vorið var afar kalt um mestallt
land og gróður kom seint til. Það
skapaði vandræði hjá sauðfjárbænd-
um. Það kom því Elínu Önnu
skemmtilega á óvart að svo vel skyldi
rætast úr sumrinu og haustinu að
þau náðu meiri meðalafurðum en
nokkru sinni áður. „En vorið var afar
dýrt, líka vegna þess hversu frjósem-
in var mikil. Féð var mikið til á gjöf
hér heima til 20. júní. Mikil hey voru
notuð og fóðurkostnaður hár.“ Elín
segir að bændur hafi verið orðnir
þreyttir á tíðarfarinu og því sé gott
að fá þessa gulrót eftir allt baslið.
Mikil afföll urðu hjá sauðfjár-
bændum síðasta vor. Elín Anna segir
að ærnar hafi verið rýrari en oft áður
vegna lélegra heyja en engin óeðlileg
afföll orðið hjá þeim.
Þrengir að sauðfjárbændum
Elín Anna er svolítið uggandi yfir
framtíðinni vegna hugsanlegra
áhrifa nýrra búvörusamninga.
„Heyrst hefur að margir kúabændur
muni hætta búskap vegna aukinna
krafna til aðbúnaðar kúnna. Þeir eiga
jarðir, tún og byggingar sem auðvelt
er að breyta. Ef þeir fara út í sauð-
fjárrækt mun það þrengja að okkur
sem fyrir erum eða mynda kjötfjall,“
segir Elín Anna. Hún bætir því við að
einfaldast og hreinlegast væri að rík-
ið greiddi allan stuðning út á fram-
leiðslu. Annað fyrirkomulag flækti
málið að óþörfu.
Vakin og sofin yfir búskapnum
Hjónin á Bergsstöðum í Miðfirði vinna stöðugt að ræktun fjárstofnins til meiri og betri afurða
Meðalafurðir yfir landið minnkuðu um tæpt kíló á síðasta ári vegna erfiðs tíðarfars sl. vor
Afurðahæstu sauðfjárbúin 2015
Bú með fleiri en 100 ær
Heimild: rml.is
26,6
26,9
11 Inga Ragnheiður Magnúsd. Svínafell 3 344 36 1,99
12 Þórður og Simmi Möðruvellir 2 171 35,9 1,89
13 Stóri-Dunhagi ehf. Stóri-Dunhagi 118 35,8 1,96
14 Ragnar og Sigríður Heydalsá 1 og 3 537 35,7 2,07
15 Sigríður og Sævar Arnarholt 159 35,7 1,93
16 Jón og Hrefna Hóll 148 35,6 1,88
17 Þórarinn Már Halldórsson Ytri-Hofdalir 171 35,6 1,82
18 Ólafur Rúnar Ólafsson Syðri-Urriðaá 377 35,5 1,93
19 Gunnar og Doris Búðarnes 223 35,4 1,84
20 Gunnar og Matthildur Þóroddsstaðir 360 35,3 2,11
20
22
24
26
28
30
Meðalafurðir
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
20
15
- reiknaðar afurðir eftir kind (kg)
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Sauðfjárbændur Elín Anna Skúladóttir og Ari Guðmundur Guðmundsson
eru öflugir sauðfjárbændur á Bergsstöðum í Miðfirði.