Morgunblaðið - 17.02.2016, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2016
Sigurþór Hallbjörn eða Spessi, eins og hann er ávallt kallað-ur, á 60 ára afmæli í dag. „Mér finnst þetta dálítið ótrúlegt,ég er mikið yngri en 60 ára og er satt að segja hálffeiminn
við þetta. Ég held upp á afmælið með því að við hjónin förum
með yngsta barninu okkar á skíði í svissnesku Ölpunum. Við
fljúgum til Berlínar og tökum púlsinn þar hvar við verðum ná-
kvæmlega.
Núna er ég að byrja á nýju verki sem fjallar um Breiðholtið,
ætla að portretta fólkið þar, fékk listamannalaun til að byrja á
því verkefni og stefni á að vera með sýningu á því 2017. Það eru
engar fyrirhugaðar sýningar hjá mér á þessu ári. Annars er þetta
dagleg amstur við að taka myndir af hinu og þessu fyrir salti í
grautinn. Svo eru mörg járn í eldinum, t.d. að klára heimildar-
mynd sem við Bergsteinn Björgúlfsson tókum í Kansas og fjallar
um ameríska mótorhjólakúlturinn.
Mótorhjól og rokk og ról, það eru áhugamálin. Það er verið að
smíða fyrir mig mótorhjól í Kansas“ – en Spessi hélt sýningu þar
í september sl. á myndum sem hann tók í Kansas 2011/2012 og
var sama sýningin og hann hélt hér á Listahátíð 2014. „Þetta hjól
er mjög reist með löngum gaffli og gaffallinn stendur ekki fram
heldur reistur upp. Þetta er stíllinn sem þeir gera í Kansas. Sá
sem er að smíða hjólið fyrir mig sagði að ég yrði að fá mér svona
hjól og ég sagði: „Það er alveg rétt hjá þér.““
Eiginkona Spessa er Áróra Gústafsdóttir, markaðsstjóri hjá
Forlaginu. Dóttir þeirra er Saga 13 ára og fósturbörn Spessa eru
Markús, Bergrós og Stefán Þorsteinsbörn.
Ljósmynd/Andrew
Kansas-stíllinn Spessi á svipuðu hjóli og er verið að smíða fyrir hann.
Breiðholtsbúar
næst á dagskránni
Spessi er sextugur í dag
M
agnús fæddist á
Siglufirði 17.2. 1946
en ólst upp í Reykja-
vík, á Háteigsvegi
og í Laugarnesinu.
Þá var hann í sveit á sumrin á
Brekku í Austur-Húnavatnssýslu.
Magnús var í Austurbæjarskóla og
Laugarnesskóla, lauk leiklistarnámi
við Leiklistarskóla Ævars Kvaran
1963, stundaði nám við Iðnskólann í
Reykjavík og lauk prófum sem
prentsmiður 1966.
Magnús var prentsmiður hjá
Hilmi hf 1961-65, hjá Morgunblaðinu
1966-76, útlitsteiknari við DV 1976-
86, hönnuður hjá Prentsmiðju Ólafs
Karlssonar 1986-96, stofnaði síðan
prentsmiðjuna Prentkó ehf 1996 og
var framkvæmdastjóri hennar í þrjú
ár og var síðan sölumaður hjá Ís-
landsprenti til 2008.
Magnús var leikari við Þjóðleik-
húsið 1962-64 og lék þá m.a. í My
Fair Lady, Pétri Gaut, Andorru og
Hamlet, og hefur síðan leikið fjölda
hlutverka á sviði Þjóðleikhússins,
Revíuleikhússins, Borgarleikhússins
og Loftkastalans sem og hjá Leik-
félagi Kópavogs og í Garðaleikhús-
inu.
Magnús hefur leikið í gífurlegum
fjölda sjónvarpsmynda, sjónvarps-
þátta og stuttmynda um langt árabil,
lék m.a. Bjössa bollu í Stundinni okk-
ar og samdi auk þess bók um Bjössa
bollu og hljóðbók, hefur tekið þátt í
fjölda áramótaskaupa og fjölmörgum
skemmtiþáttum, hefur talsett ara-
Magnús Ólafsson leikari – 70 ára
Jólin 2015 Magnús með eiginkonu, foreldrum sínum, börnum, tengdabörnum og barnabörnum og allir í jólaskapi.
Gamanleikari af guðsnáð
Úti í garði Magnús og Sonja með Sonju Maggý, Rósmundi, Herði og Hjalta.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinni mbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.
Nýjar vörur komnar í verslanir