Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Qupperneq 12
FORSETAVAKTIN
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016
R
ólegt hefur verið á for-
setavaktinni eftir
páska og þegar þessi
orð eru skrifuð síðdeg-
is á föstudegi eru fram-
bjóðendurnir ennþá bara þrettán.
Já, „bara“ þrettán.
Birgir Guð-
mundsson, dósent
við félagsvís-
indadeild Háskól-
ans á Akureyri, á
hins vegar von á
því að líf færist í
tuskurnar strax í
næstu viku og tveir
til þrír kandídatar
með talsverða vigt á bak við sig
komi til með að stíga fram og breyta
landslaginu verulega. Fólkið sem
honum þykir á þessu stigi líklegast
til að blanda sér í baráttuna eru Sig-
rún Stefánsdóttir, forseti hug- og fé-
lagsvísindasviðs Háskólans á Ak-
ureyri, Bryndís Hlöðversdóttir
ríkissáttasemjari og rithöfundarnir
Ólafur Jóhann Ólafsson og Andri
Snær Magnason. Hann vill heldur
ekki útiloka að Össur Skarphéð-
insson alþingismaður og Guðrún
Nordal, forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar, eða jafnvel Ei-
ríkur Björn Björgvinsson bæj-
arstjóri á Akureyri, gefi kost á sér
en telur hin fjögur þó líklegri. „Til-
kynni einhver af þeim sem ég hef
nefnt hér framboð sitt eftir helgina
myndi það gjörbreyta stöðunni,“
segir Birgir. Þrátt fyrir allan
fjöldann nú á Birgir ekki von á því
að fleiri en fimm eða sex verði í
kjöri 25. júní. „Hinir munu tínast út,
einn af öðrum, sérstaklega eftir að
fyrstu skoðanakannanir fara að birt-
ast. Það er greinilega mismikil al-
vara á bak við þau framboð sem
fram eru komin. Kannanirnar koma
til með að ráða miklu og virka þann-
ig lagað séð eins og forkosningar.
Hegðun kjósenda mun breytast
hratt þegar kannanirnar fara að
koma.“
Af þeim þrettán sem þegar eru í
kjöri þykir Birgi Halla Tómasdóttir,
Hrannar Pétursson og séra Vigfús
Bjarni Albertsson líklegust til að
hafa úthald til að halda baráttu sinni
áfram. Þau séu næst því að falla inn
í þá staðalmynd sem hann ímyndar
Kanónur stíga fram eftir helgina!
Ef marka má orð Birgis
Guðmundssonar, dós-
ents við Háskólann á
Akureyri, mun færast
fjör í kosningabarátt-
una í næstu viku.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ekki er úr vegi að rifja upp
hverjir eru þegar í kjöri. Það
eru þrettán manns, níu karlar
og fjórar konur.
Þau eru: Ari Jósepsson, Ást-
þór Magnússon, Bæring Ólafs-
son, Elísabet Kristín Jökulsdótt-
ir, Guðmundur Franklín
Jónsson, Guðrún Margrét Páls-
dóttir, Halla Tómasdóttir,
Heimir Örn Hólmarsson, Hild-
ur Þórðardóttir, Hrannar Pét-
ursson, Sturla Jónsson, Vigfús
Bjarni Albertsson og Þorgrímur
Þráinsson.
Sjötti forseti lýðveldisins frá
stofnun þess verður kjörinn 25.
júní næstkomandi og mun taka
við embætti af Ólafi Ragnari
Grímssyni 1. ágúst.
ÞAU ERU Í KJÖRI NÚ ÞEGAR
Níu karlar og
fjórar konur
12 vikur
TIL KOSNINGA
Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.flugrutan.is • www.re.is
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
Reykjavík
Keflavíkurflugvöllur
Kauptu miða núna á www.flugrutan.is
*Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka frá BSÍ eða Keflavíkurflugvelli á 4.000 kr.
2.200 kr.*
FYRIR AÐEINS
Alltaf laus sæti Alltaf ferðir Hagkvæmur kostur
Frí þráðlaus internet-
tenging í öllum bílum
Ferðatími u.þ.b.
45 mínútur
Umhverfisvænt
VIÐ
SKUTLUM
ÞÉR!
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í
tengslum við allar komur & brottfarir
flugvéla um Keflavíkurflugvöll.
Birgir
Guðmundsson
Sigrún Stefánsdóttir, forseti hug- og
félagsvísindasviðs HA.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Ólafur Jóhann Ólafsson
rithöfundur.
Morgunblaðið/Ómar