Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Page 13
sér að hinn almenni kjósandi hafi af
forseta lýðveldisins. „Ég held að ís-
lenskir kjósendur séu svolítið
íhaldssamir þegar kemur að forseta-
embættinu. Forsetinn þarf að njóta
virðingar, vera vel máli farinn og
koma vel fyrir. Hann þarf að vera
verðugur fulltrúi lands og þjóðar.“
Hann segir Höllu, Hrannar og
Vigfús öll uppfylla þessi skilyrði en
á samt ekki von á því að neitt þeirra
hljóti brautargengi, af þeirri ein-
földu ástæðu að öflugri frambjóð-
endur eigi eftir að koma fram. Þau
búi eflaust öll að góðu baklandi en
það muni ekki duga þegar út í kosn-
ingarnar er komið. „Ég held að ekk-
ert þeirra njóti nægilega mikillar
hrifningar meðal landsmanna.“
Meiri Vigdísar-stíll
Ólafur Ragnar Grímsson hefur
breytt embætti forseta Íslands
verulega í sinni tíð á Bessastöðum;
verið mun pólitískari og um leið um-
deildari en forverar hans. Birgi þyk-
ir enginn sem hér hefur verið nefnd-
ur líklegur til að halda þeim kyndli á
lofti. Helst Össur. „Það er auðvitað
orðrómur á kreiki þess efnis að
Davíð Oddsson, ritstjóri Morg-
unblaðsins, sé að íhuga framboð en
ég hef ekki trú á því að hann láti
verða af því. En geri hann það verða
kosningarnar sjálfkrafa mun póli-
tískari en ella,“ segir Birgir og bæt-
ir við að margt bendi til þess að
meiri Vigdísar-stíll verði á næsta
forseta, frekar en Ólafs Ragnars-
stíll.
Bjóði Andri Snær sig fram segir
Birgir það líka koma til með að gera
kosningarnar pólitískari, þótt með
öðrum hætti sé. „Hann er líklegur
til að setja umhverfismál á oddinn
en ég hef ekki á tilfinningunni að
þjóðin hafi áhuga á því að forseta-
embættið verði virkjað með þeim
hætti enda þótt þau sjónarmið sem
Andri Snær talar gjarnan fyrir njóti
víða hylli. Þetta gæti orðið of um-
deilt.“
Að endingu hefur Birgir ekki trú
á því að kjósendur vilji konu frekar
en karl eða öfugt. Leitað verði að
frambærilegum einstaklingi, óháð
kyni.
3.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
Komdu, við kunnum þetta!
Nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is
TT-1 námskeiðin okkar fyrir konur fela í
sér leiðbeiningar um mataræði, líkamsrækt,
sjálfsstyrkingu, fundi, vigtun og mælingar.
Þessi sívinsælu námskeið hafa margsannað
ágæti sitt og reynst konum afburðavel
til að ná markmiðum sínum. Við bjóðum
hvorki skyndilausnir né sveltikúra, heldur
raunhæfar leiðir til að lifa góðu lífi.
TT-3 námskeiðin okkar eru fyrir 16-25 ára
stelpur. Þetta eru sérsniðin lífsstílsnámskeið
fyrir þær sem vilja taka mataræðið í gegn og
komast í gott form. Við byggjum námskeiðin á
áralangri reynslu af því að kenna ungmennum
líkamsburð og listdans ásamt þekkingunni sem
við höfum byggt upp af því að veita konum
sambærilega þjónustu í gegnum tíðina.
Alltaf frábær
árangur á TT!
stelpur 16-25 ára
og komast í form?
Viltu taka til í holdafarinu
Síðustu TT námskeið vetrarins
fyrir stelpur og konur að hefjast! Innritun stendur yfir
Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari.
Morgunblaðið/Eggert
Andri Snær Magnason rithöfundur.
Morgunblaðið/Kristinn
Birgir á von á því að meiri Vigdísar-
stíll en Ólafs Ragnars-stíll verði á
næsta forseta.
Morgunblaðið/Eggert