Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Qupperneq 27
Bretinn Zaha Hadid fæddist íÍrak. Hún lærði stærðfræði íameríska háskólanum í Bei-
rút áður en hún flutti til London árið
1972 til þess að nema arkitektúr við
Architectural Association School of
Architecture. Árið 1980 stofnaði hún
sína fyrstu stofu í London og hlaut
breskan ríkisborgararétt.
Hadid er fyrsta konan sem hlotið
hefur heiðursverðlaun The Royal
Institute of British Architects.
Um 400 manns starfa hjá Zaha
Hadid-arkitektum í Clerkenwell í
London.
Drottning boga-
dregnu línunnar
Verk Hadid eru bæði nútímaleg og
framúrstefnuleg með áherslu á
bogadregnar línur sem framkalla
ákveðinn kvenleika í módernismann
en Hadid var gjarnan kölluð drottn-
ing bogadregnu línunnar. Arkitekt-
inn Peter Cook sagði í viðtali við
BBC að Hadid hefði framkallað
form sem arkitektar hefðu ekki gert
sér grein fyrir að væri yfirleitt hægt
að framkvæma.
Þegar Zaha Hadid hóf störf sem
arkitekt átti hún erfitt uppdráttar. Í
viðtali við BBC greindi hún frá því
að hugmyndum hennar hefði oft ver-
ið hafnað og segir hún ástæðuna að-
allega þá að hún var kona og gerði
óhefðbundin verk. Hún sagðist jafn-
framt hafa fundið fyrir mikilli kven-
fyrirlitningu.
Arfleifð hennar sýnir þó að með
dugnaði og þrautseigju er hægt að
ná gríðarlega langt og er hún mikil
fyrirmynd í dag og þá sérstaklega
fyrir konur.
Hún skilur eftir sig stórkostleg
verk sem eiga eftir að standast tím-
ans tönn.
Sundhöll Lundúna, Stratford (2012)
Sundhöllin er í Ólympíugarðinum í Stratford í London og var reist fyrir Ólympíuleikana 2012. Í
byggingunni eru tvær 50 metra sundlaugar ásamt 25 metra dýfingalaug. Steypt þakið er reist á
þremur burðarveggjum og stórir gluggar hleypa birtunni inn í rýmið.
Zaha Hadid skilur eftir sig stórkostleg-
ar byggingar víðsvegar um heiminn.
Framúrstefnu-
leg fyrirmynd
Einn merkasti arkitekt samtímans, Zaha Hadid,
lést 65 ára gömul af völdum hjartaáfalls síðastlið-
inn fimmtudag. Höggmyndaleg nálgun á arkitekt-
úr einkennir byltingarkenndar byggingar hennar.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Vitra-slökkviliðsstöðin, Weil am Rhein (1994)
Vitra-slökkviliðsstöðin, sem innblásin er af kúbisma, kom Zaha Hadid á kortið. Hún er vissulega
mjög frábrugðin seinni byggingum arkitektsins sem flestar byggjast á lífrænum formum og mjúkum
línum. Byggingin þótti of geómetrísk í laginu fyrir slökkviliðsmennina og er því nú viðburðasalur.
Óperuhúsið í Guangzhou, Guangzhou (2010)
Byggingin hefur verið kölluð eitt magnaðasta óperuhús heims. Gluggar umlykja
bygginguna og skapa áhugaverð form og gefa góða birtu. Hadid sjálf lýsti bygg-
ingunni sem steinvölum í straumi.
Phaeno-vísindamiðstöðin, Wolfsburg (2005)
Byggingin er 154 metra löng og er arkitektúrinn ákaflega framúrstefnulegur. Gagnrýnendur hafa nefnt að byggingin gæti
breytt sýn okkar á framtíðina. Zaha Hadid hlaut RIBA European Award árið 2006 og Institution of Structural Engineers
Award sama ár fyrir verkið.
3.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
LOKAHELGIN
SÝNINGAREINTÖK
MEÐ ALLT AÐ 40%AFSLÆTTI
* Taxfree tilboðið gildir bara á LA-Z-BOY og
jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður viðisaukaskatt
af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað
Húsgagnahallarinnar og gildir til 31. mars 2016