Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 33
3.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Konur sem þjást af endómetríósu
gætu verið í meiri hættu á að fá
hjartasjúkdóma en aðrar að því er ný
rannsókn sýnir fram á.
Rannsóknin sem gerð var af fræði-
mönnum við Brigham and Women’s
Hospital í Boston var unnin út frá
gögnum um heilsufar ríflega 116 þús-
und kvenna á árunum 1989-2009.
Þátttakendur með sögu um hjarta-
sjúkdóma og hjartaáföll voru ekki
hafðir með. Um einn tíundi hluti
hópsins var með endómetríósugrein-
ingu. Þegar sá hópur kvenna í rann-
sókninni sem voru með greinda
endómetríósu var borinn saman við
þær sem ekki voru greindar með
sjúkdóminn kom í ljós að fyrri hóp-
urinn var 52% líklegri til að fá hjarta-
áfall, 91% líklegri til að þjást af brjóst-
verk og líkur á því að þær þyrftu
aðgerð vegna hjartasjúkdóma voru
35% meiri en hjá hinum. Þessi tengsl
milli endómetríósu og hjarta-
sjúkdóma mældust meiri meðal
kvenna yngri en 40 ára.
Tíðni hjartaáfalls meðal kvennanna
í rannsókninni var 21 af hverjum
100.000. Þegar sama hlutfall var
skoðað fyrir konur undir fertugu með
greinda endómetríósu kom í ljós að
það hækkaði í 65 af hverjum 100.000.
Þá kom í ljós að tengsl voru milli
legnáms (sem fleiri konur sem eru
með endómetríósu höfðu gengist
undir en þær sem eru ekki með
greininguna) og þess að fá hjarta-
sjúkdóma, sem rannsakendur telja að
skýri að einhverjum hluta tengslin
milli hjartasjúkdóma og endómet-
ríósu.
Konur með endómetríósu í
meiri hættu á hjartaáfalli
Endómetríósa er krónískur, sársaukafullur sjúkdómur sem orsakast af
því að frumur úr innra lagi legsins finnast á öðrum stöðum í kviðarholinu.
Æ fleiri stunda gönguskíði hér á
landi og nú fer hver að verða síð-
astur að nýta snjóinn og prófa
þessa heilnæmu íþrótt áður en
sumarið skellur á.
Með skíðagöngu er hægt að
byggja upp úthald enda fáar
íþróttir sem hægt er að brenna
jafnmiklu á að stunda.
Með vorinu fara að detta inn til-
boð og útsölur á skíðabúnaði. Það
er því upplagt að nota tækifærið
og endurnýja búnaðinn, eða fjár-
festa í nýjum fyrir næsta vetur á
niðursettu verði.
Gönguskíði eru vinsæl til útivistar.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gengið á
skíðum og
gengið í
útsölur
Þrátt fyrir að gagnreynd meðferð-
arúrræði hafi verið þróuð fyrir
helstu geðraskanir hjá börnum og
unglingum er ennþá hátt hlutfall
einstaklinga sem svarar ekki með-
ferð. Dr. Þórhildur Halldórsdóttir
heldur hádegisfyrirlestur í boði
Sálfræðideildar Háskóla Íslands
miðvikudaginn 6. apríl í stofu 103 í
Lögbergi milli 12 og 13 þar sem
hún fjallar um mögulegar ástæður
þessa. Hún fjallar sérstaklega um
áhrif fylgiraskana á birtingarmynd
geðraskana og virkni meðferðar-
úrræða.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fyrirlestur um
geðraskanir
hjá börnum
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
TAX FREE
af öllum snyrtivörum í apríl