Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016
FJÖLSKYLDAN Þegar barnið kemur heim úr skólanumgefðu þér þá tíma til að spyrja hvernig dag-urinn hafi gengið. Segðu svo barninu frá
þínum degi. Fjölskylda á að njóta sín saman.
Segið litlar sögur
Ferðalög erlendis heilla flesta.Við sem búum hér á hjaraveraldar og eigum ekki
landamæri að öðrum löndum
stöndum frammi fyrir því að ferða-
kostnaður getur verið umtals-
verður. Flestir kjósa flugleiðina út
í heim og þegar þangað er komið
þarf að borga fyrir gistingu og
mat. Margir kjósa einnig að leigja
bíl.
Íslendingar hafa uppgötvað nýja
og ódýrari leið til að komast í
draumafríið til útlanda. Það er
hægt að skiptast á heimilum við
fólk erlendis en margar vefsíður
bjóða upp á slík skipti. Kostirnir
eru fjölmargir. Þú sparar gisti-
kostnaðinn sem oft er stærsti
kostnaðarliðurinn; þú getur eldað
„heima“ og oft er hægt að skiptast
á bílum líka. Þannig gæti til dæm-
is stór fjölskylda farið í nokkurra
vikna frí hvert sem er í heiminum
og borgað einungis fyrir flug og
uppihald.
Margt í boði
á vefsíðunum
Heimasíðurnar sem bjóða upp á
þessa þjónustu taka þóknun fyrir
sem nemur á bilinu 12-50 þúsund
krónum á ári sem er í raun mjög
lítið ef af skiptum verður, eða sem
nemur einni eða tveimur nóttum á
hóteli.
Fyrst þarf að skrá sig á síðu,
borga og setja inn upplýsingar og
myndir. Þá hefst leitin. Ef
draumahúsið finnst er send út fyr-
irspurn um hvort viðkomandi sé til
í skipti og ef það gengur upp er
bara eftir að panta flug. Einnig
eru margir að skiptast á sum-
arbústöðum og þannig þurfa fríin
ekki endilega að vera samtímis hjá
báðum fjölskyldunum.
Hús í franskri sveit
Algengt er að fyrirspurnum sé
hafnað og að þú hafnir einnig
mörgum fyrirspurnum því margt
þarf að ganga upp til að skiptin
geti orðið. Blaðamaður ákvað að
prófa eina síðuna og valdi love-
homeswap.com. Eftir nokkra leit
fékk ég fyrirspurn frá franskri
konu en sú á hús í sveitum Frakk-
lands. Úr varð tveggja vikna skipti
í júlí þar sem hún kemur hingað
og ég og mín fjölskylda förum til
Frakklands og fáum við þar hús í
sveitinni nálægt Lyon. Hún lánar
mér einnig bílinn sinn og fær minn
í staðinn ásamt heimilinu mínu.
Þannig kemst fjölskyldan í dásam-
legt tveggja vikna frí fyrir and-
virði þriggja flugmiða sem kostuðu
samtals 150 þúsund.
Gott er að plana ferðina með
nokkurra mánaða fyrirvara en
einnig er hægt að detta niður á
góð skipti með styttri fyrirvara.
Enn eru að berast mörg girnileg
tilboð fyrir sumarið 2016 á síðunni
minni sem ég hef þurft að hafna.
Skynsamlegur
kostur fyrir fjölskyldur
Guðrún Ragnarsdóttir hefur fimm
sinnum notfært sér húsaskipti og
segist eindregið mæla með því.
Fjölskyldan hefur dvalið í húsum á
Ítalíu, í Barcelona, í Washington,
Flórida og Danmörku. „Þetta hef-
ur gengið rosa vel. Þegar maður
er með fjölskyldu er þetta svo
miklu ódýrari kostur. Og þegar
maður er með krakka er svo gott
að vera inni á heimili því þau
nenna ekki að vera að dandalast
úti á kvöldin,“ segir Guðrún. Þau
hafa samið um að fá bíl með og
sparað þar með kostnaðinn við að
leigja bílaleigubíl. Hún segir
marga kosti við húsaskiptin. „Mað-
ur fer á staði sem maður væri
kannski ekki annars að fara á, eins
og til dæmis fórum við til Sardin-
íu,“ segir hún.
Guðrún notar homeexchange og
segist borga aðeins 100 dollara á
ári. Hún segir að hún hafi fyrst
verið treg að prófa en segir að það
þurfi að treysta á að fólk sé heið-
arlegt. „Maður verður að vera
tilbúinn til að fara inn í gagn-
kvæma skuldbindingu,“ segir hún
og bætir við að hún hafi verið
mjög heppin með fólk sem hefur
dvalið í hennar húsi.
Öðruvísi tilfinning
fyrir landinu
Berglind Helgadóttir er ein þeirra
sem notað hafa þessa leið en hún
og fjölskylda hennar hafa þrisvar
skipst á heimilum á síðustu tveim-
ur árum; tvisvar á Ítalíu og einu
sinni í Frakklandi en hún notaði
síðuna Homeexchange.com. Berg-
lind segist vera mjög ánægð með
þetta fyrirkomulag. „Mér fannst
þetta æðislegt. Þetta er leiðin til
að ferðast. Það er miklu þægilegra
að vera í húsi með eldhúsi og þar
sem krakkarnir fá sín eigin her-
bergi. Svo er þetta mikið ódýrara
þar sem við borguðum bara flug-
ið,“ segir Berglind. „Húsin sem við
höfum verið í voru mjög flott. Við
höfðum allt til alls sem er ekki á
hóteli. Maður fær líka öðruvísi til-
finningu fyrir landinu og menning-
unni þegar maður er inni á heimili
fólks. Margir bjóða líka upp á
sumarbústaðina sína. Okkur finnst
þetta alveg meiriháttar og það hef-
ur alltaf verið tekið mjög vel á
móti okkur. Allt vel undirbúið. Og
við gerum það sama. Það hefur
alltaf verið mjög vel gengið um
húsið okkar hér heima,“ segir hún.
„Það þarf að greiða áskrift fyrir
þessa þjónustu og ég held að
hugafar fólks sé öðruvísi þegar
það þarf að greiða fyrir aðgang
heldur en þegar það er frítt.“
Berglind segist hiklaust ætla að
nota þetta áfram í framtíðinni.
Ekkert er planað í sumar en hún
segist vera að fá fullt af tilboðum.
„Sumir geta farið með stuttum
fyrirvara og við höfum fengið fyr-
irspurnir frá mörgum stöðum,
Ástralíu og Simbabve til dæmis,“
segir hún og bætir við að hún gæti
hugsað sér að eyða ellinni í húsa-
skiptum um víða veröld.
„Þetta er
leiðin til að
ferðast!“
Að skiptast á húsum við fólk í
öðrum löndum er sérstaklega
hentugt fyrir fjölskyldufólk sem vill
ferðast á ódýrari og þægilegri máta.
Getty Images/iStockphoto
Að ferðast til útlanda er kostnaðarsamt og ekki á
allra færi. Margir hafa nýtt sér þann möguleika að
skiptast á heimilum við fólk úti í heimi. Íslenskar
fjölskyldur eru farnar að nýta sér þennan valkost í
auknum mæli og eru hæstánægðar.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Húsaskipti eru góð leið fyrir
fjölskylduna að ferðast fyrir
lítinn pening og kynnast
menningu þjóðar á annan
hátt. Hér eru nokkrar til-
lögur að góðum síðum sem
bjóða upp á húsaskipti.
homeexchange.com
lovehomeswap.com
homeforexchange.com
ivhe.com
homelink.org.uk
homebase-hols.com
exchangezones.com
ÓDÝR FERÐAMÁTI
Húsaskipti á
netinu
Berglind
Helgadóttir
Guðrún
Ragnarsdóttir
Strikinu 3 • Iðnbúð 2 • Garðabæ • 565 8070 • facebook.com/okkarbakari
SÆLKERA
SÚRDEIGSBRAUÐ
bökuð eftir aldagömlum hefðum
SÍÐDEGISBAKSTUR
Um kl. 15 alla virka daga
tökum við nýbökuð
súrdeigsbrauð úr
ofninum, fást einungis
í Iðnbúð 2
Skoðið
úrvalið á
okkarbakari
.is
Við getum skipulagt árshátíðir fyrir stóra sem smáa hópa.
Gistihúsið Hrauneyjar er í aðeins 150 km. fjarlægð frá Reykjavík.
Árshátíð á hálendi Íslands