Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Qupperneq 40
Sýndarveruleikabylting virðist við það að bresta á og tæknirisarnir komnir í harðan slagum að framleiða besta sýndarveruleikahjálminn. Sennilega er ekki seinna vænna aðbyrja að huga að því að fjárfesta í einu setti, til að missa ekki af öllu fjörinu – en
hvaða sýndarveruleikahjálmur er bestur?
Þrír stórir og nokkrir smærri
Svarið við spurningunni er í senn einfalt og flókið. Í reynd er aðeins um þrjá „alvöru“ sýnd-
arveruleikahjálma að velja: Oculus Rift, HTC Vive og PlayStation VR.
Það eru til önnur tæki sem mætti kalla sýndarveruleikagræjur, en þau eru ýmist ekki
nógu öflug, ekki fullþróuð, eða falla ekki alveg inn í þann ramma sem flestir eru að hugsa
um þegar talað er um sýndarveruleika. Þetta eru tæki á borð við Samsung Gear VR, Micro-
soft Hololens og Avegant Glyph.
Tækið hans Zuckerbergs
Byrjum á Oculus Rift, sem núna er loksins farið að berast í hendur neyt-
enda og er tækið sem má segja að hafi komið sýndarveruleikabylting-
unni á hreyfingu. Það var árið 2012 að söfnun fyrir smíði Oculus Rift
fór af stað á Kickstarter og eins og hendi væri veifað voru
2,5 milljónir dollara komnar í kassann. Facebook keypti
Oculus tveimur árum síðar fyrir 2 milljarða dala og hef-
ur síðan þá lagt allt kapp á að þróa og fullkomna
tæknina.
Af stóru sýndarveruleikahjálmunum þremur er Ocu-
lus Rift léttasta tækið og vegur um 470 gr. Þyngdin
getur skipt máli fyrir langtímanotkun enda væntanlega
þægilegra að hafa léttari hjálm á höfðinu svo klukku-
stundum skiptir. Oculus Rift er líka næstdýrasta tækið af
þrenningunni, og kostar 599 dali vestanhafs. Rift er með inn-
byggðum hreyfiskynjara og fæst með Xbox One fjarstýringu og
tveimur leikjum.
Sá dýrasti og ódýrasti
HTC Vive er næstléttasta tækið og vegur 550 gr. Vive er líka
dýrasti sýndarveruleikahjálmurinn, verðlagður á 799 dali á
Bandaríkjamarkaði. Með í pakkanum eru frístandandi hrey-
fiskynjunarkubbar og tveir þráðlausir stýripinnar sem ættu
að gera notandanum kleift að komast í betri „snertingu“ við
sýndarveruleikaheiminn.
Loks er PlayStation VR, ódýrasta tækið af þeim þremur á
460 dali, og líka það þyngsta eða um 610 gr. PlayStation VR
kemur með tveimur PS Move stýripinnum og einum leik.
Oculus Rift fór í dreifingu seint í mars, von á HTC Vive
snemma í apríl og Sony segir PlayStation VR koma í októ-
ber, rétt fyrir jólagjafavertíðina.
Tæknilegir jafningjar
Þegar tæknilegu tölurnar eru skoðaðar virðast sýndar-
veruleikahjálmarnir nokkuð svipaðir. Allir eru með skjá
með góða upplausn. Rift og Vive eiga að hafa 90 Hz skjá en
PS VR allt að 120 Hz.
Stærsti munurinn liggur kannski í upplifuninni, sem töl-
urnar geta ekki endilega sýnt: hversu þægilega hjálmurinn sit-
ur á höfðinu, og hversu vel hefur tekist til við að gera sýndar-
veruleikaupplifunina þægilega og sannfærandi með hugvitsamlegri
forritun.
Eins og með leikjatölvurnar og snjallsímana skiptir líka máli hvaða
afþreying og sniðug forrit eru í boði. Til hvers að eiga dýran og full-
kominn sýndarveruleikahjálm ef ekki er hægt að gera eitthvað
skemmtilegt við hann?
Í dag má kaupa 30 leiki fyrir Oculus Rift, að sögn Tech Insider, ríf-
lega 30 leiki fyrir HTC Vive og er reiknað með að í lok þessa árs verði
búið að smíða 50 sýndarveruleikaleiki fyrir tækið frá Sony.
PlayStation eða PC
Þeir sem eru í leikjahugleiðingum ættu
kannski að gefa PS VR meiri
gaum en hinum tækj-
unum tveimur, enda
sýndarveruleikahjálmur smíðaður gagngert með PlayStation
4 leikjatölvuna í huga. Sony er nú þegar risi á leikjamarkaði
og ekki erfitt að velja hvern ætti að veðja á að verði fyrstur
til að búa til mergjaðan sýndarveruleikaleik.
PS VR virkar hins vegar eingöngu með leikjatölvunni á
meðan Oculus Rift og HTC Vive stóla á PC-tölvutæknina til
að keyra hugbúnaðinn. Bæði Rift og Vive eru tengd leikja-
veitunni Steam en Oculus er að auki með sinn eiginn for-
ritamarkað. Það þarf öflugar PC-tölvur til að keyra sýndarveru-
leika og þess vegna getur heildarpakkinn kostað mun meira ef fjár-
fest er í Rift og Vive. Tech Insider skýtur á samtals 1.500 til 1.800 dali
borið saman við þá rúmlega 800 dali sem það kostar að kaupa saman PS
VR og leikjatölvu Sony.
Spurning um forrit
Hver er svo niðurstaðan? Hvaða græju á að velja? Kannski er besta svar-
ið að láta forritin ráða, frekar en vélbúnaðinn. Kaupendur ættu að bíða
átekta þar til þeir koma auga á forrit sem þeir geta ekki staðist,
hvort sem það verður hugbúnaður gerður fyrir leik eða störf.
Það gæti verið PlayStation leikur, sem þýðir að PS VR
er það eina sem vit er í, eða PC undra-
forrit og þá hægt að þrengja
hringinn utan um Rift og
Vive.
Oculus Rift kom byltingunni af
stað á Kickstarter.
HTC
Vive
Ertu að hugleiða að flytja
inn í sýndarveruleikann?
Oculus Rift, HTC Vive og PlayStation VR munu keppa um
yfirráðin, en hvaða sýndarveruleikatæki á að kaupa?
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Aðdáendur Star Trek þáttanna hafa lengi látið sig dreyma
um að geta ferðast inn í sýndarheim. William Riker
(Jonathan Frakes) ein af hetjum þáttanna, stígur inn í
sýndarveruleikaklefann um borð i geimskipinu Enterprise.
PS VR
TÆKNI
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016
Triton Gills er græja sem er eins og beint út úr vísindaskáldsögu. Að sögn framleiðandans dreg-
ur þetta köfunartæki súrefni úr vatninu jafnóðum, svo svamla má neðansjávar án súrefnistanks.
Safnað er fyrir framleiðslunni á Indiegogo og gengur vel, þó margir hafi efasemdir um tæknina.
Dregur súrefnið úr vatninu