Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Síða 41
3.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Samsung Gear VR
Suðurkóreski raftækjarisinn Sam-
sung svipti hulunni af nýjum Galaxy-
snjallsíma á dögunum og fengu fyrstu
kaupendurnir ókeypis sýndarveru-
leikasett í kaupbæti. Samsung Gear
VR þar sem Galaxy-símanum er ein-
faldlega komið fyrir, og svo boxinu
smeygt yfir augun. Gear VR þykir
nokkuð vel heppnað tæki, alls ekki
dýrt, og notast við tækni frá Oculus.
Vinnslugeta snjallsímans þýðir að
sýndarveruleikaupplifuninni eru tak-
mörk sett og eins þykir mörgum mið-
ur að Samsung stýrir öllu framboði á
sýndarveruleikaforritum fyrir sím-
ann. Samsung Gear VR gæti verið
sniðugur kostur fyrir þá sem eru á
annað borð að fara að kaupa sér dýr-
an snjallsíma og langar til að fá nasa-
sjón af því sem sýndarveruleikinn
hefur að bjóða.
Microsoft HoloLens
HoloLens er ekki beinlínis sýndar-
veruleikahjálmur. Notandinn er ekki
færður inn í annan heim, heldur
varpa gleraugun nýjum veruleika of-
an á umhverfið. Á ensku er talað um
augmented reality og hefur verið þýtt
á íslensku sem gagnaukinn veruleiki.
Upplifunin sem hugbúnaðarrisinn
Microsoft vill ná fram getur verið
eitthvað á þá leið að tölvuheimurinn
birtist á stofuborðinu í þrívídd sem
hægt er að skoða frá öllum sjón-
arhornum.
Nýlega var sýnt hvernig koma má
fyrir skynjurum sem geta búið til
heilmynd af notandanum. Geta þá
tveir einstaklingar, staddir á ólíkum
stöðum, sett HoloLens á kollinn og
látið skynjarana senda „afrit“ af sér
yfir netið. Notendurnir tveir talast
svo við með heilmynd hvor af öðrum
fyrir framan sig, eins og þeir væru
staddir í sama herberginu.
HoloLens er enn í þróun og ekki
ljóst hvenær almennir neytendur
geta fest kaup á tækinu.
Avgeant Glyph
Hér er komið tæki sem á lítið skylt
við sýndarveruleika annað en það að
setja skjá fyrir augun. Glyph er ekki
með innbyggða hreyfiskynjara og því
ekki hægt að snúa höfðinu til að virða
fyrir sér þann heim sem notandinn er
að skoða.
Tæknin á bak við Glyph er samt
mjög merkileg en tækið notast við
ótalmarga örspegla sem varpa mynd
beint inn í sjónhimnuna. Útkoman á
að vera mun skarpari mynd en í sýnd-
arveruleikahjálmunum og líkja
tækjagagnrýnendurnir upplifuninni
við að sitja fyrir framan nokkuð stór-
an háskerpuskjá. Græjan kostar 699
dali í Bandaríkjunum.
Hin
tækin
Avgeant
Glyph
Microsoft HoloLens
Samsung
Gear VR
Grunnur að góðum viðskiptum
Hafsjór af þekkingu
Sérhæfum okkur í sölu:
• Fyrirtækja
• Aflaheimilda
• Skipa og báta
Hamraborg 1 • Kópavogur • Sími 560 0000 • www.safir.is • safir@safir.is