Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.4. 2016
H
vað eiga Píratar og Donald
Trump sameiginlegt? Þessi
spurning er ekki af léttara tag-
inu. Og þótt hún sé líkleg til að
móðga báða, þá er hún ekki al-
veg fráleit.
Það er a.m.k. eitt sem einkennir bæði fyrirbærin, í
hlutlausri merkingu orðsins.
Horft í vestur
Þegar Donald Trump náði bæði athygli og fylgi með-
al kjósenda úr röðum Repúblikana, á fyrstu vikum
prófkjörsbaráttu flokksins, gerðu helstu forkólfar
hans lítið úr. Mörg dæmi væru til, sögðu þeir, um
stjörnur og tilheyrandi stjörnuhröp í sögu beggja
stóru flokkanna.
Þeir bættu því við að síendurtekin innantóm slag-
orð Trumps í bland við barnalegt sjálfshól og
glannalegar gloppur í staðreyndum stjórnmálanna
myndu fljótlega skola honum út og skilja „al-
vörumennina“ eftir.
En flokkseigendafélögum repúblikana um Banda-
ríkin þver og endilöng brá mjög, þegar „alvöru-
mennirnir“ voru sigtaðir út í hverju prófkjörinu af
öðru. Alvörumennirnir gættu sín og héldu sjálfshóli
innan við pínlegu mörkin. Og þeir fóru lipurlega með
utanbókar svör sem erfitt var að hanka. En vandinn
var sá að kjósendur voru komnir með kórrétt svör
upp í kok. Þeir höfðu heyrt þau alla sína hundstíð og
þau höfðu litlu skilað. Þeir þráðu mest að heyra aft-
ur í manni sem talaði óþvingað mál, helst í líkingu
við það sem Ronald Reagan hafði átt svo létt með.
Reagan hafði augljósa unun af því að spjalla við
landa sína og þótt tugir þúsunda hlustuðu varð það
samt eins og tveggja manna tal. Orð hans og áreitn-
islaus kímnin, létu eins og ljúf tónlist í eyrum.
En nú var enginn Reagan í augsýn svo langt sem
augað eygði.
En Trump var mættur. Þótt Trump sé eins ólíkur
Reagan og hægt er að hugsa sér hafði hann kost sem
bætti þann galla upp að hluta. Þótt Trump væri ólík-
ur Reagan var hann enn ólíkari frambjóðendum
flokkseigenda. Það var meginástæða þess að því ein-
kennilegri og stórkarlalegri sem yfirlýsingar
Trumps urðu því betur vegnaði honum. Þegar
flokkseigendum tókst með herkjum að smala 500
manns á fund með frambjóðendum sínum mættu 50
þúsund á boltavellina hjá Trump. Vonarpeningar
virðulegri hluta flokksins týndu tölunni einn af öðr-
um.
Nú er svo komið að forystumennirnir spyrja sig
hvort orðið sé of seint að stöðva Trump. Ótti grefur
um um sig í forystunni. Hann er margbrotinn. Hún
óttast að von um að repúblikanar nái Hvíta húsinu sé
úti með Trump í framboði.
Sumir þeirra bæta því við að hitt sé jafnvel meira
áhyggjuefni að frú Clinton hafi marga annmarka
sem frambjóðandi, og Trump kynni þrátt fyrir allt
að slysast til að ná kjöri.
En ekki eru öll óttaefnin þar með upp talin. Repú-
blikanar eru nú með meirihluta í báðum deildum
þingsins. Þriðjungur þingmanna öldungadeildar
þarf að leita eftir endurnýjuðu umboði. Og þannig
háttar til að repúblikanar eru í verulegum meiri-
hluta þeirra sæta sem koma til kjörs núna. Neikvæð
áhrif af Trump í leiðtogahlutverki gætu því hæglega
orðið til þess að flokkurinn tapaði meirihluta sínum í
öldungadeildinni. Hann væri einnig líklegur til að
tapa fjölda sæta í fulltrúadeildinni. En meirihlutinn
er þar svo ríflegur nú að ólíklegt er að hann færi,
þrátt fyrir mjög slæm úrslit.
Er galdurinn að gufa upp?
En hvað svo?
Nýliðin vika var ekki hagfelld fyrir Trump. Honum
urðu á margvísleg taktísk og efnisleg mistök og varð
að éta ofan í sig vanhugsaðar yfirlýsingar. Sam-
kvæmt Trump-lögmálinu hefur hann oftast grætt á
slíkum atvikum. Fréttaskýrendur telja að lögmálið
hafi ekki virkað í þetta sinn.
En nýliðin saga sýnir að ekki má útiloka að fram-
bjóðandinn nái að hrista mistökin af sér og draga at-
hygli fjölmiðla að öðru. Verði ekki þáttaskil núna
þykir einsýnt að Trump muni mæta á landsþing
repúblikana með fleiri kjörmenn á bak við sig en
nokkur annar. Ekki þó nægilega margra til að
tryggja kjör í fyrstu eða annarri atkvæðagreiðslu.
Kjörmenn eru bundnir frambjóðendum í fyrstu at-
kvæðagreiðslu flokksþingsins. En þurfi fleiri at-
kvæðagreiðslur til þá taka flóknar reglur að hafa
áhrif. Í annarri umferð losnar þannig um 5% lands-
þingsfulltrúa.
Væri betri sátt en nú er um þann sem kemur til
fundar með flesta kjörmenn, mætti gera ráð fyrir að
þeir fulltrúar sem losnar um í 2. atkvæðagreiðslunni
myndu flytja sig yfir á forystusauðinn, til að tryggja
kjör hans og flýta því þannig að þingið næði að sýna
samstöðu út á við. Því fer fjarri að öruggt sé að þetta
eigi við um Trump.
Æðisleg atburðarás
Eftir aðra atkvæðagreiðslu losnar hratt um kjör-
menn og flokkseigendafélagið metur það svo að
hraðast muni eyrnamerktir kjörmenn hlaupa frá
Trump. Hann reynir nú að styrkja stöðu sína með
hótunum um upplausn á þinginu og sérframboð sitt
verði þetta atburðarásin.
Óvíst er að flokksþingið myndi treysta sér til að
velja einhvern þeirra sem Trump hefur sett aftur
fyrir sig í prófkjörsslagnum í hans stað eða Ted
Cruz, sem kemur til þings með næstflesta kjörmenn.
Vangaveltur eru uppi um að leitað verði til Pauls
Ryans, forseta fulltrúardeildarinnar. Hann var vara-
forsetaefni Romneys í kosningunum 2012 og er vin-
sæll meðal repúblikana.
Þótt Ryan yrði valinn mundu repúblikanar senni-
lega koma vængbrotnir frá þessum hremmingum.
Fyrir því eru margar ástæður. Fleiri hafa kosið í
prófkjörum flokksins nú en áður vegna áhuga á
Trump. Hann hefur einnig náð til fjölda staðfastra
repúblikana sem munu telja Trump sæta afarkost-
um. Obama forseti er illa þokkaður af kjósendum
repúblikana og vaxandi fjölda þeirra sem teljast
hugsanlegir kjósendur repúblikana. En hitt er jafn-
rétt að stór hluti þessara hópa, ekki síst þess síðar-
nefnda, hafa lítið álit á meirihlutum repúblikana í
öldungadeild og fulltrúadeild. Flokkurinn lofaði því
að næðu repúblikanar meirihluta í þessum þing-
deildum myndi fjölmargt breytast til batnaðar.
Meirihlutinn vannst en þau fyrirheit fóru fyrir lítið.
Repúblikanaflokkurinn stendur því frammi fyrir
mörgum ólíkum kostum en flestum afleitum.
Samlíkingin
En hvað kemur þetta okkar ágætu pírötum við? Svo
sem ekki mikið. En hitt er víst að þegar Píratar tóku
að hækka í skoðanakönnunum tóku fáir það alvar-
lega. Hér, eins og í dæmi Trumps, var sagt sem svo
að nýir flokkar hefðu oft siglt með himinskautum en
úrslit orðið önnur. Kvennalisti var lengi með mynd-
arleg fylgi sem ekki skilaði sér. Flokkur Vilmundar
Gylfasonar einnig. Borgaraflokkur, Þjóðvaki og
Frjálslyndir voru meðal sigurvegara í skoðanakönn-
unum sem urðu fyrir vonbrigðum í kosningum.
Flokkar fóru jafnvel mikinn um hríð en komu svo
ekki manni á þing.
Er Trump sjóræningi
og hafa Píratar þegar
týnt trompásnum?
Reykjavíkurbréf 01.04.16