Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Blaðsíða 53
3.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
TÓNLIST „Erum við svona leiðinlegir? Hvað er svona mikilvægt
á seyði í heiminum að þú þurfir að vera að sms-a alla tón-
leikana?“ grenjaði David Draiman, söngvari bandaríska málm-
bandsins Disturbed, á konu nokkra á tónleikum sveitarinnar í
Texas á dögunum. Allra augu beindust að aumingja konunni.
Dagblaðið The Dallas Observer setti sig í samband við kon-
una, Shannon Pardue, í kjölfarið til að heyra skýringar
hennar á atvikinu. Í fyrsta lagi kvaðst hún ekki hafa
byrjað að sms-a fyrr en í uppklappinu og í annan stað
hafði hún verulegar áhyggjur af fjórtán ára gamalli
dóttur sinni sem var á faraldsfæti í kafaldsbyl í
grenndinni. Pardue segir Disturbed frábært band
en hún muni aldrei borga sig inn á tónleika
þeirra aftur.
„Svona leiðinlegir?“
SJÓNVARP Það var sjónvarpssögulegt
augnablik þegar nýjasti meðlimur Gallagher-
fjölskyldunnar í gaman-dramanu Shameless
var skírður í höfuðið á afa sínum, Frank
gamla Gallagher. Að vísu er um stúlkubarn
að ræða og hlaut það strax við fæðingu nafn-
ið Frances. Móðirin er eitt fjölmargra barna
Franks (sem vitað er um), hin fimmtán ára
gamla Debbie. Nafngiftin sætir miklum tíð-
indum í ljósi þess að Frank Gallagher er lík-
lega versti faðir sjónvarpssögunnar enda
þurftu systkini Debbie að láta segja sér þetta
tvisvar. En gamli maðurinn varð glaður.
Eins langt og það nær.
Skírð í höfuðið á afa sínum
Frank og Debbie Gallagher í ómskoðun.
Hún vakti fyrst athygli sem af-
brýðisama systirin í Ferris Buell-
er’s Day Off 1986 og sló svo ræki-
lega í gegn sem hin tápmikla
Frances „Baby“ Houseman í Dirty
Dancing ári síðar. Lék þar í eld-
heitum senum á móti einum vin-
sælasta leikara þess tíma, Patrick
heitnum Swayze, og var tilnefnd
til Golden Globe-verðlaunanna.
Síðan hefur afskaplega lítið spurst
til Jennifer Grey.
Hún fæddist í New York 26.
mars 1960 og fagnaði því 56 ára
afmæli sínu um páskana. For-
eldrar hennar eru báðir leikarar
og faðir hennar, Joel Grey, vann
Óskarsverðlaunin fyrir frammi-
stöðu sína í Cabaret árið 1972.
Það kom því fáum á óvart þegar
stúlkan ákvað að leggja fyrir sig
leik og dans. Eftir útskrift úr
Neighbourhood Playhouse í New
York 1978 vann hún um tíma fyrir
sér sem gengilbeina meðan hún
beið eftir bitastæðum hlut-
verkum. Gömul saga og ný.
Milljón myndbönd
Grey byrjaði, eins og svo margir
leikarar, í auglýsingum en fyrsta
kvikmyndahlutverkið kom 1984 í
Reckless eftir James Foley. Heims-
frægðin var handan við hornið. Af
öðrum myndum frá þessum tíma
má nefna The Cotton Club og Red
Dawn.
Dirty Dancing var ekki dýr kvik-
mynd í framleiðslu en féll óvænt í
frjóa jörð og hefur öðlast költ-
stöðu í huga margra. Hún er óvíða
til í einkasöfnum en Dirty Dancing
var fyrsta kvikmyndin í sögunni til
að seljast í einni milljón eintaka á
myndbandi.
Grey naut þó ekki hyllinnar
enda var hún að jafna sig eftir
árekstur sem hún lenti í ásamt
ástmanni sínum á þeim tíma, leik-
aranum Matthew Broderick, á
Norður-Írlandi skömmu áður.
Mæðgur, sem voru í hinum bíln-
um, biðu bana.
Auk andlega áfallsins varð Grey
fyrir slæmum áverkum á hálsi.
Snemma á tíunda áratugnum
gekkst Grey vegna kvilla undir
tvær aðgerðir á nefi sem gjör-
breytti útliti hennar. Þetta hafði
mjög slæm áhrif á kvikmynda-
ferilinn. „Ég lagðist heimsfræg inn
á spítala en sneri óþekkt til baka,“
hefur Grey látið hafa eftir sér.
„Mér leið eins og ég væri í vitna-
vernd eða hreinlega ósýnileg.“
Hún hugleiddi meira að segja að
skipta um nafn, það er taka sér
listamannsnafn, og byrja frá
grunni en ekki varð af því.
Grey hefur leikið í fjölmörgum
myndum, einkum sjónvarps-
myndum, og sjónvarpsþáttum síð-
an, þeim síðustu 2014. Hún hefur
hins vegar verið víðsfjarri því að
endurheimta fyrri vinsældir. Og
mun líklega alla tíð lifa í skugga
„Baby“ Houseman.
Grey og Broderick hættu sam-
an fljótlega eftir slysið og síðar sló
hún sér upp með Johnny Depp.
Grey gekk að eiga leikarann og
leikstjórann Clark Gregg árið
2001 og eiga þau eina dóttur,
Stellu, fædd sama ár. Heimili
þeirra er í Venice, Kaliforníu.
Jennifer Grey ásamt Patrick Swayze í hinni vinsælu mynd Dirty Dancing 1987.
HVAÐ VARÐ UM JENNIFER GREY?
Nef-nilega það
Svona lítur Grey út í dag.
Heimurinn beið með öndina í hálsinum eftir hverju
einasta stökki. Myndi hann standa í fæturna? Myndi
hann detta? Myndi hann brjóta í sér hvert bein?
Myndi hann yfirhöfuð lifa af?
Eddie „The Eagle“ Edwards var enginn venjuleg-
ur skíðastökkvari; stíllinn var með afbrigðum und-
arlegur og ótraustvekjandi í alla staði. Eigi að síður
skilaði Örninn sér alla leið á Ólympíuleikana í
Calgary 1988 og varð þar með fyrsti Bretinn til að
keppa í skíðastökki á því ágæta móti í sex ára-
tugi.
Nú er þessi merkilega saga komin út á
kvikmynd. Kallast hún einfaldlega „Eddie
the Eagle“ og er leikstýrt af Dexter Fletc-
her. Nýstirnið Taron Egerton fer með tit-
ilhlutverkið en af öðrum leikurum má
nefna Hugh Jackman, sem leikur
þjálfara Eddies, og Christopher
Walken.
Eddie Edwards hafði dreymt
um að keppa á Ólympíu-
leikum frá blautu barnsbeini
en gekk bölvanlega að finna
íþróttagrein sem hentaði
honum. Þangað til hann átt-
aði sig á því hvað kröfurnar í
skíðastökkinu voru litlar í
Bretlandi enda ekki nokkur lifandi maður
að æfa greinina.
Edwards náði lágmarkinu með naum-
indum en var ákaft hvattur til að
fara ekki á leikana og vera hafður
að athlægi. Hann lét ekki segjast
og vann á endanum hug og
hjörtu áhorfenda, ekki bara á
leikunum sjálfum, heldur um
heim allan, og sneri heim
sem þjóðhetja. Þrátt
fyrir að hafa hafnað í
síðasta sæti í skíða-
stökkskeppninni í Calg-
ary.
En hann lifði af. Það var
ekki lítill sigur!
Taron Egerton og Hugh Jackman sem Eddie „The Eagle“
Edwards og þjálfari hans í kvikmyndinni um ævintýrið.
GOÐSÖGN Í HEIMI SKÍÐASTÖKKSINS
Arnarflug
kvikmyndað
Eddie „The
Eagle“ Edwards.
David Draiman.
Ármúla 24 • S: 585 2800Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is
Cloudy loftljós frá