Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Page 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.04.2016, Page 56
SUNNUDAGUR 3. APRÍL 2016 Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu þreytti frumraun sína í nýja landsliðsbúningnum í æfingaleikjum gegn Danmörku og Grikklandi á dögunum. Kvennalandsliðið mun á hinn bóginn klára undankeppni EM 2017 í gömlu búningunum en ekki er hefð fyrir því að skipta um bún- inga í miðri keppni. Ekki frekar en hest í miðri á. Kven- sniðið hefur en ekki verið fáanlegt í verslunum en Ómar Gestsson hjá Sport Company ehf., sem hefur umboð fyr- ir Erreà, segir það standa til bóta og gerir ráð fyrir að það verði komið í verslanir eftir næstu helgi. Búning- arnir sem nú standa áhangendum íslensku landsliðanna til boða eru unisex, það er ætlaðir báðum kynjum, og hafa þeir selst vel. Kvensniðið er aðeins aðþrengdara, að sögn Ómars. Karlalandsliðið mun á hinn bóginn leika í enn þrengri búningum í sumar, svokölluðum „slim fit“- búningum, sem henta vitaskuld ekki öllum línum. Ljósmynd/KSÍ Kvensniðið væntanlegt Kvensnið af nýja landsliðsbúningnum væntanlegt í verslanir innan tíðar. Á almennum fundi kvenna sem haldinn var í Góðtemplarahús- inu í Reykjavík í byrjun apríl 1946 kom glöggt í ljós að mikill áhugi var fyrir því, að konur um land allt hæfust handa til að stöðva hina miklu drykkjuskap- aröldu, sem yfir landið fór. Frá þessu var greint í Morg- unblaðinu fimmtudaginn 4. apríl en að fundinum stóðu flest kven- félög bæjarins. Málshefjandi var frú Aðal- björg Sigurðardóttir, en fjöldi annarra kvenna tók til máls. Var samþykkt fundarályktun, er mótmælti því harðlega, að ríkið gerði áfengisverslunina að tekjulind fyrir sig, því að slíkt framferði hlyti að enda með því að þjóðin liði andlegt og menningarlegt skipbrot. Fjölda margar tillögur komu fram á fundinum og var ákveðið að kjósa sérstaka nefnd til þess að athuga þær og samræma og leggja þær svo fyrir annan fund seinna. Í nefndina voru kosnar frú Jóhanna Egilsdóttir, ungfrú Jóhanna Knudsen, frú Soffía Ingvarsdóttir, frú Sigríður Ei- ríksdóttir og frú Ólöf Kristjáns- dóttir. GAMLA FRÉTTIN Vildu stöðva drykkju Góðtemplarahúsið við Vonarstræti. Þar komu konur saman fyrir sjötíu ár- um og skáru upp herör gegn drykkjuskaparöldunni sem yfir landið fór. Ljósmynd/Magnús Ólafsson ÞRÍFARAR VIKUNNAR John Goodman kvikmyndaleikari Magnús Eiríksson tónlistarmaður Brad Boothe sauðfjárbóndi í TexasSkeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Natuzzi Ítalía Capriccio Model 2896 Lengd 195 cm. Áklæði ct.70. Verð 275.000,- ▲ Natuzzi Italia Borghese Model 2826 Lengd 220 cm. Leður ct.15. Verð 515.000,- ▲ Natuzzi Italia Quadro Model 2849 Lengd 200 cm. Leður Ct.10. Verð 475.000,- Lengd 167 cm. Leður Ct.10. Verð 435.000,- ▲ ▲ Natuzzi Italia Duse Model 2829 Lengd 206 cm. Áklæði ct.83. Verð 399.000,- Flottir sófar í Þar sem hönnun og gæði fara saman Natuzzi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.