Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Blaðsíða 23
langt í burtu og hugsast getur frá mannvonsk- unni í Úsbekistan,“ segir Irina. Ég spyr þau lokaspurningar sem brennur á mér en ég veit að það er ekkert svar við. Framtíðin! Hver er hún? Hvar er hún? Þreytuleg horfast þau í augu og dæsa. „Það er engin framtíð, það er bara á morgun og á morgun förum við aftur upp á þessa skrifstofu og vonandi fáum við þá húsnæði,“ segir Irina. Vladimir bölvar kefinu og lýðveldinu, þau eru þreytt og uppgefin eftir síðastliðna daga. Tilfinningarnar eru ekki langt undan og þau vita að baráttan er ekki bú- in heldur rétt að byrja. Þau vita að franska kerfið er erfitt en þau taka bara einn dag í einu. Ég kveð þau og held af stað út að strætó- skýli. Vladimir fylgir mér eins og sönnum herramanni sæmir, bíður með mér eftir strætó í nær 10 mínútur. Vladimir og Irina eru ekki svo frábrugðin sjálfri mér, við erum meira að segja á sama aldri. Við kyssumst á hvora kinn og kveðjumst með það í huga að heyrast í gegnum Facebook. Ég vil vita hvað gerist á morgun. Ég er þreytt og strætó tekur sér tíma að komast upp á lestarstöð. Ég missi af lest- inni sem kemur á 20 mínútna fresti svo ég kaupi mér vatn og KitKat til að narta í á með- an ég bíð. Ég næ hraðlestinni og er komin heim til mín á innan við klukkutíma. Ég sofna á leiðinni enda dauðþreytt eftir rosalegan dag. Tilfinningar mínar eru heldur ekki langt und- an, það er erfitt að fylgjast með samferðafólki í þessu lífi þjást. Ég kem heim, opna tölvuna og byrja að skrifa. Skrifa þeirra sögu með von um að Irina og Vladimir fái draum sinn um að búa á Íslandi uppfylltan. Föstudagur 29.apríl Ég vakna heima hjá mér í norðurhluta Parísar og hugsa til Irinu og Vladimir. Klukkan er 9 og þau ættu að vera komin upp a skrifstofuna aftur. Núna fá þau húsnæði hugsa ég og fæ mer kaffi. Síðar um daginn kemst eg að því í gegnum Facebook skilaboð frá Irinu að þau voru send aftur burt af skrifstofunni og sagt að koma á mánudaginn. Enn hindra tækni- vandamál umsóknarferli. Baráttan við kerf- in, bæði íslenska og franska, heldur áfram. „Af hverju sendum við börn á götuna í Frakklandi? spyr lögfræðingur fjölskyldunnar. Börnin vita ekki hvenær eða hvar þau komast næst í skóla. 1.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 ég fengi að ráða því hvort ég hafi gert eitthvað á þinn hlut og ég fengi að ráða því hvort þú fáir að fara með málið fyrir dóm eða ekki. Þetta er auðvitað ekki boðlegt. Þetta er ekki hægt.“ Börn send út í óvissuna Helga Vala ætlar alla leið til dóm- stóla með málið. „Ég veit ekki til þess að það hafi áður reynt á þetta ákvæði varðandi vegabréfsáritunina. Hvar er réttur einstaklings til að vera á land- inu á meðan að málið er rekið fyrir dómstólum? Er þetta jafnræði aðila fyrir dómi, að vera staddur einhvers staðar úti í heimi og geta ekki fylgt málinu eftir? Fyrir utan þær að- stæður sem er verið að bjóða börn- unum upp á, að vera á götunni í Frakklandi,“ segir hún og telur að verið sé að brjóta þar lög. „Það er í sjálfu sér brot af því að við megum ekki senda börn frá landinu út í óvissu. Við megum það ekki. Það er í lögum. Þá spyr ég, eru þetta við- unandi aðstæður sem við setjum þessi börn í – þrjá litla krakka?“ seg- ir hún og er mikið niðri fyrir. Ekkert til saka unnið Hún telur kerfið meingallað varðandi hver fær hér dvalarleyfi og hver ekki. „Þetta fólk er fullfrískt og tilbú- ið að vinna og láta hendur standa fram úr ermum. Af hverju viljum við bara fylla landið af einhverjum far- andverkamönnum sem borga enga skatta og skyldur á Íslandi? Af hverju viljum við ekki frekar fólk sem vill borga til þjóðfélagsins? Okk- ur vantar fólk. Leyfum þessu fólki að vera hérna. Þetta fólk hefur ekkert til saka unnið. Það sótti sannarlega um vegabréfsáritun til Íslands.“ Ábyrgð í alþjóðasamfélagi Ég spyr um dómsmálið og mögu- leika fólksins á að vinna það. „Mér finnst þetta vera grundvallarmál. Þarna reynir mjög á þessar reglur í Dyflinnarreglugerðinni. Við get- um ekki falið okkur á bak við það að við erum hvergi með sendiráð. Við verðum að bera ábyrgð í al- þjóðasamfélaginu. Það er verið að breyta lögunum en það liggur frumvarp fyrir Alþingi. En þetta er auðvitað túlkun á lögunum – túlkun stjórnvalda, Útlendingastofnunar. Það er í Dyflinnarreglugerðinni gert ráð fyrir að við berum ábyrgð á þeim umsóknum þar sem fólk hefur sótt um vegabréfsáritun til Íslands,“ segir Helga Vala sem vinnur að málinu án þess að þiggja laun fyrir. Almenningur á að hafa hátt Þegar spurt er um hvenær megi vænta dómsúrskurðar svarar Helga Vala: „Eftir tólf mánuði.“ Það er langur tími fyrir þrjú lítil börn og foreldra þeirra sem búa nú við mikla óvissu. „Það er svo mikið álag á kerf- inu – á dómstólum,“ segir hún. Þau eru semsagt að fara að dvelja í Frakklandi næstu tólf mánuði? spyr ég. „Já, nema að eitthvað annað ger- ist,“ segir hún. Margir hafa haft samband við Helgu Völu sem og aðra sem til fjölskyldunnar þekkja og vilja bjóða fram aðstoð. Er eitthvað sem almenningur getur gert til að hjálpa þeim? spyr blaðamaður. „Já, bara hafa hátt. Mótmæla þess- ari framkvæmd. Það sjá allir hvað þetta er brútalt. Af hverju sendum við börn á götuna í Frakklandi? Af hverju?“ Kveðjustundir voru haldnar í fyrsta og fjórða bekk í Ak- urskóla á mánudag til að kveðja tvíburana Samir og Kemal og systur þeirra Milinu. Skólastjórinn, Sig- urbjörg Róbertsdóttir, segir að börnin hafi verið búin að aðlagast vel íslenska skólalíf- inu og félagslífinu. „Þau tóku þátt í atriði á árshátíð þar sem nem- endur með annað móðurmál settu upp og það var mjög flott hjá þeim. Annar tvíburinn söng einsöng,“ segir hún. Sigurbjörg segir krakkana hafa verið farin að skilja tölvuvert í íslensku og áttu vini í skólanum. Það var því erfitt að kveðja þau um daginn. „Ég held að strákarnir hafi ekki alveg gert sér grein fyrir að þeir væru að fara af landinu, þeir héldu að þeir væru að fara í frí til Parísar. En ég veit að þetta var erfið stund. Þau voru farin að tengjast það mikið og þurfa svo að fara til baka. Það er alltaf erfitt. Sérstaklega fyrir börnin, maður finnur til með þeim.“ Börnin leið að kveðja Sigurbjörg telur að Milina hafi gert sér betur grein fyrir ástandinu. „Já, ég held hún hafi gert sér grein fyrir því. Hún áttaði sig betur á hvað var að gerast heldur en litlu strákarnir. Það var kveðjustund í bekkjunum. Ég held að krakkarnir hafi áttað sig á því að þetta var öðruvísi en að þau væru bara að flytja til ann- ars lands því það var sorg í hjarta barnanna. Þau voru leið yfir þessu. Þau fylgjast auðvitað með umræðunni og foreldrar barnanna eru að deila þessu þannig að þau vita um hvað þetta snýst. Þetta voru erfiðar stundir í skól- anum,“ segir Sigurbjörg sem vonar að þau fái að snúa til baka í skólann sinn. Sorg í hjarta barnanna Ljósmynd/Óli Haukur Mýrdal Sigurbjörg Róbertsdóttir Krakkarnir tóku þátt í at- riði á árshátíð skólans. Annar tvíburinn er í hvítri skyrtu fremst á mynd. N ýbýlavegur8.-200 Kópavogur-S:527 1717 - dom usnova@ dom usnova.is -w w w .dom usnova.is Frítt verðmat Viltu vita hvað þú færð fyrir fasteignina þína ? Fasteignasala venjulega fólksins... Fagljósmyndun Traust og góð þjónusta alla leið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.