Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Side 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Side 30
Það lá eftirvænting í loftinu á Bazaar þegar gestirnir settust til borðs áþessum glænýja veitingastað að smakka á gæðaréttunum hans Eyþórsyfirkokks. Það þótti gott tilefni að prufukeyra eldhúsið og borðsalinn á afmælisdegi Margrétar, eiganda Oddsson. Gestirnir, sem voru á aldrinum 11 til 73, urðu ekki fyrir vonbrigðum. „Þetta var besti fiskur sem ég hef smakkað og er ég ekki mikið fyrir fisk,“ segir Sindri Sigurðarson, yngsti gestur afmælisins. Ítalskt í bland við Miðjarðarhafsmat Boðið var upp á fjórréttaðan matseðil og var mikil ánægja meðal veislugesta. Eyþór og félagar göldruðu fram ljúffenga rétti í anda hússins. „Við leggjum áherslu á ítalskan mat í bland við Miðjarðarhafsmat. Þetta verður svona bistró- fílingur, bæði kaffihús, bistró og svo fínna á kvöldin,“ segir Eyþór. „Við verðum með steinbakaðar pítsur, ferskt pasta, fisk, steikur, samlokur og salöt,“ segir hann, en allur matur er eldaður frá grunni. Lesendur fá að spreyta sig á nokkr- um réttum sem verða á matseðli Bazaars. Eftirvænting fyrir opnun Margrét var hæstánægð með af- mælisveisluna. „Þetta heppnaðist gríðarlega vel og allir eru hæstánægðir þótt það sé formlega ekki búið að opna og ekki allt tilbúið. Við höfum unnið að þessu verkefni í rúmlega ár og það var virkilega gaman að geta gefið vinum og vinnu- félögum smjörþefinn af því sem koma skal. Viðbrögð afmælisgesta lofa góðu fyrir framhaldið,“ segir Margrét, en Oddsson og Bazaar verða opnuð í næstu viku. „Við höfum heyrt að mikil eftirvænting sé fyrir opnuninni og gleður það okkur að sjálfsögðu og erum við full eftirvæntingar að taka á móti gestum, er- lendum jafnt sem innlendum. Við sjáum fyrir okkur góða stemningu á Oddsson enda talsverð fjölbreytni í boði fyrir gesti, eins og jóga, karókíherbergi, kaffi- hús, setustofa, bar og veitingastaður þar sem allir geta fengið eitthvað við sitt hæfi. Ég býð ykkur bara öll hjartanlega velkomin til okkar á Oddsson,“ segir Margrét með bros á vör. Blásið var til afmælisveislu á Bazaar, nýjum veit- ingastað sem opnaður verður innan skamms í Oddsson hosteli í JL húsi. Afmælisbarnið, Mar- grét Ásgeirsdóttir, annar eigenda Oddsson, bauð vinum og vinnufélögum að prófa matseðilinn hjá kokkinum Eyþóri Rúnarssyni. Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Bazaar býður til veislu Eyþór Rúnarsson, yfir- kokkurinn á Bazaar, útbýr diskana fyrir veislugestina. Fjölmennt var í veislunni sem samanstóð af vinum og vinnufélögum afmælisbarnsins. Mikil stemmning var við mat- arborðið í afmælisveislunni. Eigendur Oddsson, Arnar Gunn- laugsson og Margrét Ásgeirsdóttir, sjást hér með hótelstjórann Krist- ínu Ólafsdóttur á milli sín. ’ Við sjáum fyrir okkurgóða stemningu á Odds-son enda talsverð fjölbreytnií boði fyrir gesti, eins og jóga, karókíherbergi, kaffi- hús, setustofa, bar og veit- ingastaður þar sem allir geta fengið eitthvað við sitt hæfi. 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.5. 2016 MATUR Uppskrift fyrir 8 SAFFRAN ARANCINI 45 g skalotlaukur (fínt skorinn) ½ hvítlauksrif 150 g risottógrjón 100 ml hvítvín 350 ml humarsoð (eða kjúk- ingasoð) 50 g parmesanostur 25 stk. saffranþræðir appelsínusafi úr 1 appelsínu sjávarsalt olía til steikingar 2 egg 100 g hveiti 100 g brauðraspur Hitið pott með olíu í og steikið laukinn og hvítlaukinn við vægan hita þar til hann fer að mýkjast. Bætið risottógrjónunum og saffr- aninu út í og steikið með lauknum í ca 2 mín. Setjið hvítvínið út í pottinn og sjóðið í ca 5 mínútur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.