Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Qupperneq 38
Tengsl eru á milli námsárangursog svefns að sögn ErluBjörnsdóttur sálfræðings.
„Fjöldamargar rannsóknir erlendis
hafa sýnt að unglingar sem eru van-
svefta eiga erfitt
með einbeitingu,
upplifa minn-
istruflanir, eyða
minni tíma í
heimanám og fá
lægri einkunnir
samanborið við
unglinga sem sofa
nóg,“segir Erla
sem líka er doktor
í líf- og læknavísindum. Hún vinnur
við rannsóknir á Landspítalanum og
er starfandi sálfræðingur hjá Sál-
fræðiráðgjöfinni. Einnig starfrækir
hún vefsíðuna betrisvefn.is. „Sífellt
algengara er að ungt fólk leiti sér
hjálpar vegna svefnvandamála, Við
erum að fá til okkar unglinga og ungt
fólk sem er jafnvel að flosna upp úr
skóla vegna vandamála tengdum
óreglulegum svefni. Það er algengt
að sólarhringnum sé snúið við og svo
skapist vítahringur sem erfitt er að
losa sig úr,“ segir hún. Erla segist
hlynnt því að unglingar og mennta-
skólanemar fái að byrja daginn
seinna að morgninum. Heilinn fram-
leiði svefnhormónin ekki á sama tíma
og hjá fullorðnum einstaklingum og
því eru unglingar oft ekki tilbúnir í
rúmið á sama tíma og þeir, segir
Erla.
Áreiti frá tækjum oft orsökin
„En vandamálin liggja líka í ofnotkun
á tækjum eins og snjallsímum, tölv-
um, tölvuleikjum og sjónvarpi sem
leiðir gjarnan til svefnvandamála hjá
ungu fólki. Of seint er farið að sofa á
kvöldin og því erfitt að vakna á
morgnanna. Einnig hafa ljósáreitin
frá tækjunum truflandi áhrif á svefn-
hormónið melatonin sem heilinn
framleiðir þegar dimma tekur á
kvöldin. Þess vegna eru ljósáreiti
ekki góð fyrir svefntíma,“ segir Erla.
Skammdegið hefur líka áhrif og hef-
ur Erla þá skoðun að við séum að
nota rangan tíma hér á Íslandi miðað
við líkamsklukkuna og segist hún
vera talsmaður þess að klukkan verði
færð yfir veturinn þannig að við fáum
meiri birtu á morgnana.
Svefn ein af grunn-
stoðunum
Við gætum ekki lifað án þess að sofa.
Ef svefn er ekki nægur hefur það
áhrif á andlega líðan, samskipti, mat-
aræði og það hvernig líkamleg hreyf-
ing er stunduð, að sögn Erlu. Vísar
hún í nýja rannsókn sem Erlingur Jó-
hannsson prófessor vann, þar sem
kemur fram að börn í tíunda bekk
grunnskóla sofa að meðaltali 6
klukkutíma á sólarhring sem er alls
ekki nóg og eru 4 kílóum þyngri nú
en fyrir 12 árum. „Ungt fólk og full-
orðnir þurfa að sofa að meðaltali 7 og
1/2 klukkutíma. Það er heldur ekki
gott að sofa of mikið. Óregla á svefni
og að snúa sólarhringnum við um
helgar er ávísun á svefnvandamál,"
segir Erla.
Góðar svefnvenjur
Ráðleggingar hennar til fólks varð-
andi góðar svefnvenjur eru fyrst og
fremst að hafa reglu á svefntímanum.
Fara að sofa á svipuðum tíma á
kvöldin og vakna á svipuðum tíma á
morgnana. Mikilvægt sé að slökkva á
öllum áreitum klukkutíma fyrir svefn
og fara yfir skipulag og verk morg-
undagsins áður en lagst er til hvílu.
Slökkva öll ljós í herberginu og mælir
hún með lestri bóka fyrir svefn sem
hefur yfirleitt góð áhrif á fólk áður en
það sofnar.
Auðvelt að meðhöndla
svefnvandamál
Erla segir að tiltölulega einfalt sé að
hjálpa fólki með svefnvandamál.
Hugræn atferlismeðferð hafi reynst
vel og 90% einstaklinga nái að bæta
svefn sinn verulega eftir meðferð. Því
fyrr sem fólk leiti sér aðstoðar því
betra. Svefnleysi skerði lífsgæði okk-
ar og hafi slæm áhrif á ónæmiskerfið.
Ljósáreiti frá tækjum hafa
truflandi áhrif á svefn-
hormónið melatónin sem
heilinn framleiðir þegar
dimmir á kvöldin.
Getty Images/iStockphoto
Svefnleysi hefur víð-
tæk áhrif á heilsuna
Margir unglingar eru vansvefta. Hverjar eru ástæðurnar og
hvað er hægt að gera til að bæta svefn og svefnvenjur?
Bergþóra Jónsdóttir beggaj@gmail.com
Erla Björnsdóttir
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.5. 2016
FJÖLSKYLDAN Fjölbreytt dagskrá er um land allt 1.maí.Víða er sérstök dagskrá, m.a. bíósýn-
ingar, fyrir börn. Nánar á www.asi.is.
Bíó fyrir börnin
Askalind4,Kópavogi
Sími 564 1864
www.vetrarsol.is
w
w
w
.h
el
iu
m
.is
Sláuvél með dri
B&S 450E mótor
Hækkun í einu handfangi
55 lítra graskassi
Frábær heimilisvél
Lúxus sláuvél með dri
B&S 625E mótor, auðveld gangsetning
Tvískiptur sláuhnífur, slær 2svar
70 lítra kassi, "notendavænn"
Frábær vél í estan slá
Sga Collector 46 SB Sga TwinClip 50 SB
Sjálfskiptur lúxus sláutraktór
Kawazaki FS600V mótor, þrýssmurður
Notendavænt sæ og stýri
320 lítra graskassi
Frábær traktór í stærri svæði
Sga Estate 7102 H
Léttu þér lífið
með Stiga sláttuvél