Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Síða 49
1.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
sívaxandi vonbrigðum og þegar
hann snýr aftur, orðin sextugur,
er myndin sem hann dregur upp
af ástandinu í Afríku orðin enn
svartari. Í Dark Star Safari segir
vissulega af góðu og vinsamlegu
fólki en líka af hræðilegum og sið-
spilltum einræðisherrum sem arð-
ræna þjóðirnar og myndin sem
dregin er upp af
vestrænum
hjálparsam-
tökum er ekki
falleg – Afr-
íkumenn væri
mun betur
komnir án
þeirra, segir
Theroux sem er
mikið niðri fyrir
og lýkur ferðini vonlítill um að
ástandið kunni að batna.
Í kolsvartri eymd Angóla
Það kom því á óvart að sjá að
ferðahöfundurinn hafi ákveðið að
leggjast aftur í flakk um Afríku,
kominn á virðulegan aldur ellilíf-
eyrisþega. Í The Last Train to
Zona Verde leggur hann upp frá
Höfðaborg, þar sem fyrri Afríku-
bókinni lauk áratug fyrr, segir af
fólki þar og breytingum sem hafa
átt sér stað, ýmist til hins verra
eða betra, áður en hann leggur
upp í ferð norður eftir vestur-
strönd álfunnar. Leiðin liggur til
hinnar strjálbýlu Namibíu, með
verulegum þýskum áhrifum, og
ferðin verður sífellt vonlausari eft-
ir því sem norðar dregur. Namibía
er þó hátíð miðað við Angóla, hið
fyrrverandi stríðshrjáða en þó
auðuga olíuríki sem hefur í áratugi
verið lokað fjölmiðlamönnum og í
raun öðrum ferðalöngum en þeim
sem starfa í ol-
íuiðnaðinum.
En Theroux
kemst inn, und-
ir því yfirskyni
að hann heldur
fyrirlestra í
skólum, og
hann nær því
að fræða okkur
um fólkið og
ástandið í þessu landi sem hagnast
gríðarlega á auðlindum sínum en
nær ekkert af því fé virðist ná til
alþýðunnar sem er upp til hópa
ómenntuð og atvinnulaus og
ástandið svart. Og þar lýkur ferð-
inni; hryðjuverkamenn og allra-
handa níðingar halda til í lönd-
unum norðan Angóla, þangað
liggja heldur engir vegir eða lest-
arteinar, Theroux kemst ekki
lengra og gefst upp – en við les-
endur erum miklum mun fróðari
um ástand mála á suðvesturhorni
Afríku en áður en við lögðum af
stað heima í sófa í heillandi en erf-
itt ferðalagið með honum.
Nóbelshöfundur, hundur
og húsbíll
John Steinbeck: Travels With
Charley – In Search of America
Rúmum tveimur áratugum eftir
að hafa sent frá sér meistaraverkin
Þrúgur reiðinnar og Mýs og menn –
og tveimur árum áður en hann hlaut
Nóbelsverðlaunin,
lagði bandaríski
rithöfundurinn
John Steinbeck
(1902-1968) árið
1960 upp í ferðalag
þvert yfir Banda-
ríkin. Hann ók hús-
bíl sem hann
nefndi Rósinante, eftir hrossi Dons
Kíkóta, og ferðafélaginn var púðlu-
hundurinn Charlie. Steinbeck hugð-
ist enduruppgötva Bandaríkin og
kynnast íbúum landins upp á nýtt.
Þetta er hlý, persónuleg og heillandi
frásögn eins af merkustu höfundum
liðinnar aldar, þar sem hann tekst á
við líf sitt, ellina sem sækir á og sam-
félagið sem hann er hluti af.
Ljóðrænt meistaraverk
Hannes Pétursson: Eyjarnar átján
– Dagbók úr Færeyjaferð 1965.
Þessi bók skáldsins Hannesar
Péturssonar er klassík – hefur lengi
verið af mínum eftirlætisbókum. Og
síðan ég las hana, sem var áður en
ég kom í fyrsta skipti til Færeyja,
hafa eyjarnar verið
annað af mínum
eftirlætis löndum
(ef hægt er að tala
um þær sem eitt
land – hitt er Ind-
land). Bókin er
skrifuð af svo fínni
tilfinningu, tilfinningu sem er studd
af mikilli næmi af vinjettum teikn-
arans Svens Havsteen-Mikkelsen,
að lesandinn getur ekki annað en
hrifist með – og langað beint til Fær-
eyja. Sögu eyjanna og upplifunum
sögumanns er fléttað saman á ein-
staklega ljóðrænan og fallegan hátt
– þetta er einfaldlega meistaraverk.
Frægasta Ástralíusagan
Bruce Chatwin: The Songlines
Áður en ég hélt á sínum tíma til
Ástralíu las ég þessa rómuðu bók
Bruce Chatwin (1940-1989), um
stöðu frumbyggja landsins í samtím-
anum og um sönglínurnar sem þeir
lærðu og þuldu til
að geta ratað um
þetta firnastóra
land. Chatwin og
Theroux er eignað
að hafa á áttunda
og níunda áratug
liðinnar aldar end-
urvakið áhuga les-
enda á ferðafrásögnum og Chatwin
er frábær stílisti og heillandi sögu-
maður – þótt í ljós hafi komið síðar,
eftir að hann var látinn úr dul-
arfullum sjúkdómi sem reynist vera
eyðni – að hann hafi iðulega skáldað
þær upplifanir sem hann fullyrti að
væru sannar. En skiptir það máli
þegar listaverkið er vandað? Flestir
Ástralir virðast hafa skoðun á The
Songlines, og eru ekki allir sáttir við
þá mynd sem dregin er upp, en þetta
er einstök og heillandi bók.
Greinar um fólk, staði og
ferðir
Bruce Chatwin: What Am I
Doing Here
Þetta greinasafn er síðasta bókin
sem Chatwin sendi frá sér. Og hún
er í uppáhaldi hjá
þessum skrifara.
Hér eru allrahanda
greinar, mannlýs-
ingar og ferðafrá-
sagnir; hér er
fjallað um myndlist
(Chatwin starfaði
um skeið sem sérfræðingur við upp-
boðshús), úlfadreng í Indlandi, kvik-
myndagerð með Werner Herzog,
fylgst er með Indiru Ghandi í stjórn-
málavafstri, siglt eftir Volgu í Rúss-
landi og gengið í Nepal. Víða er
komið við og alltaf auðnast Chatwin
að koma á óvart með djúpu innsæi
sínu, mannlýsingum og stílfimi.
Vestur-Íslendingur í Kína
Bill Holm: Coming Home Crazy –
An Alphabet of China Essays
Við Íslendingar misstum einn
okkar mætustu og skarpskyggnustu
sona þegar Vestur-Íslenski rithöf-
undurin Bill Holm
(1943-2009) var
bráðkvaddur á
bandarískum flug-
velli; hann sem
hafði ákveðið að
eyða ellinni í Brim-
nesi, húsinu sínu á
Hofsósi. Bill skrifaði frábæra bók
um það, Ísland og okkur Íslendinga,
Windows of Brimnes: An American
in Iceland (2007) og ekki er síður
heilandi hið hjartnæma greinasafn
hans The Heart Can Be Filled
Anywhere on Earth (1996), um ís-
lenska ættingja og vini í Minneota,
Minnesota. En hér er líka óhætt að
mæla með þessum frásögnum frá
þeim misserum er mannvinurinn
Bill réði sig sem enskukennara í
Kína; þær eru hlýlegar, upplýsandi
og umfram allt bráðskemmtilegar.
Um heimshöfin með
allskyns lýð
Gavin Young: Slow Boats to China
Sögur af siglingum eru ekki á
áhugasviði þessa lesara en löng frá-
sögn Young (1928-2001) af ekki síður
langri siglingu með kaupskipi frá
Miðjarðarhafinu yfir á Indlandshaf
og um svæði sjó-
ræningja inn á
Kyrrahaf og alla
leið til Kína, ríghélt
þó athyglinni –
enda bókin verð-
skuldað í fallega
útgefinni röð úr-
valsverka Picador-útgáfunnar um
samtímaklassík í ferðabókmenntum.
Ferðin tók meira en sjö mánuði og
Young sigldi með 23 fleytum – og
ferðafélagarnir og þeir sem hann
hitti á leiðinni og segir frá, mynda
æði furðulegt og óvenjulegt per-
sónugallerí.
Indjáni á hliðarvegum
William Least Heat-Moon: Blue
Highways – A Journey into America
Í einni af eftirlætis ferðafrásögn-
um þess sem hér
skrifar, segir Heat-
Moon (f. 1939), sem
er eins og sjá má af
ættum frumbyggja
Bandaríkjanna, af
ferðalagi sínu um
hliðarvegi þvert yf-
ir þetta víð-
áttumikla land. Hluti af samkennd-
inni kann að vera að báðir erum við
ljósmyndarar að upplagi en skrifum
líka bækur og hann kann listavel að
segja frá, á hógværan og yfirlæt-
islausan hátt, af fólki, stöðum og öðr-
um fyrirbærum sem hann rekst á á
flakki sínu. Heat-Moon lagði upp í
húsbíl, með myndavél og tvær bæk-
ur, Leaves of Grass eftir Walt Whit-
man og Black Elk Speaks eftir John
Neihardt; ekki slæmir ferðafélagar
það og útkoman, byggð á ítarlegri
heimildarvinnu um viðkomustaðina,
eftir því.
Ævintýraflakk ungs manns
Willian Dalrymple: In Xanadu -
A Quest
Skoski rithöfunduinn Dalrymple
(f. 1965) var einungis 22 ára gamall
þegar þessi magnaða og furðu
þroskaða ferðasaga kom út árið
1990. Leiðin liggur frá Landinu
helga, æði erfiðan landveg yfir Íran,
Pakistan og Ind-
land, og þá þvert
yfir Kína norð-
anvert að höll
Kubla Khan. Og
ferðinni er furðu
vel lýst, með vís-
unum í skrif fyrri
ferðahöfunda, og undirbyggð af mik-
illi næmni og skilningi á menningu
hvers þess svæðis sem leiðin liggur
um. Þesi bók markaði upphaf merki-
legs höfundaferils en meðal annarra
bóka höfundarins má nefna City of
Djinns: A Year in Delhi og From the
Holy Mountain: A Journey in the
Shadow of Byzantium. En þetta er
spennadi bók að byrja á; hinar hljóta
að koma á eftir …
Myrkur nútímans í Afríku
Paul Theroux: Dark Star Safari –
Overland from Cairo to Cape Town
Eftir háskólanám starfaði Thero-
ux um nokkurra ára skeið sem kenn-
ari í Afríku, upptendraður af hug-
sjónum, en veruleikinn í þessari
víðáttumiklu álfu reyndist ekki alltaf
fagur. Árið 2002 sendi þessi reynd-
asti ferðahöfundur samtímans, orð-
inn fullorðinn, síðan frá sér þessa
umtöluðu bók,
hvar lýst er ferða-
lagi með allra-
handa far-
artækjum frá
Egyptalandi suður
alla Afríku – og
það er ekki alltaf
björt og upplífgandi mynd sem dreg-
in er upp. Samanber þegar höfundur
segir næsta víst að ef bíll stöðvar
ekki fyrir puttaferðalöngum þá sé
afar líklegt að í honum séu vestrænir
hjálparstarfsmenn – útreiðin sem
slíkir fá er hroðaleg. En það er líka
vonsvikinn Theroux sem lýsir þesari
heimsálfu sem hann dáir; sam-
anburðurinn á því Zimbabwe sem
hann kynntist ungur sem brauð-
körfu Afríku og nútímanum undir
Robert Mugabe er hrollvekjandi. En
þetta er bók sem rígheldur – býður
upp á sófaferðalag af allra bestu
gerð.
NOKKRAR KLASSÍSKAR FERÐAFRÁSAGNIR
Erfitt flakk og
allskyns undur
’… með öllum þessummótsagnakenndu upp-lýsingum er meiri ástæðanú en nokkru sinni fyrr til
að ferðast: að fara nær,
kafa dýpra, að skilja hið
sanna frá blekkingunum.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
MOGGAKLÚBBURINN
Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík
Sími 595-1000, netfang: sala@heimsferdir.is
Opnunartími skrifstofu: mán.-fös. 09.00-17.00
EINKAFERÐ MOGGAKLÚBBSINS
MEÐ HEIMSFERÐUMTIL AGADIR
UPPLIFÐU
STÆRSTI
SÓLARSTRANDARSTAÐUR
Í MAROKKÓAGADIR
Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir,
býður áskrifendum sínum frábært tilboð til
Agadir 7. maí í 12 nætur. Fjölbreytt gisting
í boði á afar hagstæðum kjörum.
Frá kr.
89.900
m/hálfu fæði
Allt að
43.000 kr.
áskrifendaafsláttur
á mann!
Allir sem
bóka Agad
ir
eiga mögu
leika
á að vinna
fría ferð!