Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.05.2016, Blaðsíða 56
SUNNUDAGUR 1. MAÍ 2016
Kíktu við og njó
ttu þess að
skoða úrvalið h
já okkur
Glæsileg lína frá
naver collection í Danmörku
Þar sem hefðir og handverk fara saman
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Við erum stolt af hverju smáatriði
Brotist var inn í útibú Lands-
banka Íslands á Hellissandi á
Snæfellsnesi í apríl 1981. „Þeir
er þar voru að verki höfðu þó
ekkert upp úr krafsinu og kom-
ust ekki i neinar fjárhirslur, en
annar þeirra tapaði á hinn bóg-
inn öðrum skó sínum, er hann
flýtti sér á brott við hávært
undirspil þjófabjöllu i húsinu er
ekki gast að mannaferðum á
þessum tima sólarhrings, en at-
burðurinn átti sér stað laust fyr-
ir klukkan fimm að morgni
sunnudagsins,“ sagði í Morgun-
blaðinu.
Yfirlögregluþjónn í Stykkis-
hólmi sagði að innbrotið væri
varla unnt að nefna bankarán.
Dansleik var nýlega lokið í fé-
lagsheimilinu á Hellissandi, og
voru lögregluþjónar frá Ólafsvík
enn í þorpinu. „Þá gerðist það
að fólk heyrði til þjófabjallna í
Landsbankahúsinu, og var lög-
reglumönnum þegar gert við-
vart. Er þeir komu á staðinn, var
þar hins vegar engan mann að
sjá, en greinilegt var að maður
eða menn höfðu skriðið inn um
glugga einn er þvingaður hafði
verið upp. Skó komumanns
fundu þeir á gólfinu við
gluggann. Skömmu síðar óku
lögreglumenn svo fram á tvo
menn á gangi á þjóðveginum til
Ólafsvíkur, var annar þeirra skó-
laus á öðrum fæti...“ Reyndist
þar vera á ferð „hinn óvenjulegi
viðskiptavinur bankans“.
Að sögn lögreglu var viðkom-
andi miður sín „enda innbrotið
framið í augnabliksvitleysu, í og
með undir leiðsögn Bakkusar
konungs“. Var þeim skólausa
sleppt eftir yfirheyrslu.
GAMLA FRÉTTIN
Tapaði skó á flótta við undirspil
þjófabjöllu Landsbankans
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Á þessu ári eru fimmtíu ár síðan Rík-
isútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar
og á þessum fimmtíu árum hefur það
sýnt ógrynni af efni allsstaðar að af
landinu. Af því tilefni ætlar RÚV að
ráðast í gerð sjónvarpsþáttanna Í 50
ár.
Þættirnir verða níu talsins og
verða sendir út í sumar frá níu vel
völdum stöðum af landinu þar sem
rifjaðar verða upp sögur og svip-
myndir af sjónvarpssögu viðkomandi
landshluta. Umsjónarmenn verða
Gísli Einarsson og Guðrún Gunn-
arsdóttir en dagskrárgerð verður í
höndum Karls Sigtryggssonar.
Á síðustu fimmtíu árum hefur sjón-
varpið átt sinn þátt í að móta ímynd
heilu byggðarlaganna. Sjónvarpið
hefur meðal annars farið með áhorf-
endur á staði sem margir hefðuann-
ars ekki fengið að kynnast og sýnt
þeim eitt og annað sem þeir hefðu að
öðrum kosti farið á mis við.
„Við ætlum að gera út frá níu þétt-
býlisstöðum en leggjum net um land-
ið allt, og miðin,“ segir Gísli.
Guðrún og Gísli óska eftir aðstoð
frá þjóðinni til að gera þættina sem
skemmtilegasta. „Við viljum gjarnan
fá sjónvarpsáhorfendur í lið með okk-
ur við að rifja upp og velja sögur til að
segja og eftirminnilegar svipmyndir
til að sýna. Flestir muna eftir ein-
hverju skemmtilegu, úr sjónvarpinu,
frá sínum heimabæ, heimahéraði eða
landshluta. Margir muna eftir því
þegar einhver þeim nákominn kom
fram í sjónvarpi fyrir árum eða ára-
tugum og fór gjörsamlega á kostum!
Eða kannski ekki alveg. Fólk man
eftir einhverju sem það vill endilega
sjá eða efni sem það vill alls ekki sjá
oftar.“
Söfnun hugmynda fer fram á Face-
book-síðu RÚV þar sem hægt verður
að setja inn ábendingarnar um gam-
alt og gott sjónvarpsefni frá hverjum
stað fyrir sig.
Fyrstu staðirnir, sem kallað verður
eftir ábendingum um, verða Höfn í
Hornafirði (Suðausturland) og Vest-
mannaeyjar. Þátturinn verður á dag-
skrá á sunnudögum og er fyrsti þátt-
urinn á dagskrá 26. júní.
HÉR OG ÞAR Í 50 ÁR
Lumar þú á gullkorni?
Guðrún Gunnarsdóttir verður á
ferðinni um landið í sumar.
Gísli Einarsson og Guðrún Gunnarsdóttir stjórna sjónvarpsþættinum Í 50 ár
á RÚV í sumar. Áhorfendur eru hvattir til að taka þátt í að grafa upp
skemmtilegar sögur og eftirminnilegar svipmyndir af landsbyggðinni.
Gísli Einarsson er vanur að segja
skemmtilegar sögur af landsbyggðinni.
Magnús Ragnarsson,
framkvæmdastjóri hjá Símanum.
Ben Kingsley,
heimsþekktur breskur leikari.
Roger East,
kunnur breskur knattspyrnudómari.