Morgunblaðið - 04.05.2016, Qupperneq 10
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Árið 2014 var kannabisfíkn ástæða
um 37% innlagna á Sjúkrahúsið Vog
sem rekið er af SÁÁ, en þá leituðu
þangað 589 einstaklingar vegna
þessarar fíknar. Um þriðjungur
þeirra voru 30 ára og eldri. Sam-
kvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar WHO er
kannabisneysla Íslendinga meðal
þess mesta sem þekkist. Þórarinn
Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir
að taka eigi slíkum alþjóðasam-
anburði með fyrirvara.
Í skýrslu WHO segir að kannabis
sé það ólöglega fíkniefni sem flestir
jarðarbúar noti. Áætlað er að um 182
milljónir manna neyti efnisins og að
rúmlega 13 milljónir séu háðar því.
Þeir sem nota efnið í læknisfræði-
legum tilgangi eru þarna ekki taldir
með. Í skýrslunni segir enn fremur
að þeim sem þurfi meðhöndlun ým-
issa heilsufarsvandamála sem rekja
megi beint til kannabisnotkunar hafi
fjölgað verulega, einkum í þeim
löndum þar sem tekjur eru háar eða
meðalháar. Þá hafi þeim sem leiti sér
meðferðar við kannabisfíkn fjölgað
mikið undanfarna tvo áratugi.
Ein skýringin sem til er tekin er
að styrkur tetrahýdrókannabinóls,
THC, sem er eitt af virku efnunum í
kannabis, svokallaður kannabínóíði
sem veldur vímueinkennunum, hafi
aukist verulega undanfarið ár. Árið
1980 var styrkur THC í bandarísk-
um kannabisefnum að meðaltali und-
ir 2%, nú er hann allt að 20%.
Dökkbláa Ísland
Arnar Jan Jónsson læknir er einn
af forsvarsmönnum Fræðslufélags
fagfólks um kannabisneyslu. Hann
segir engar rannsóknir hafa verið
gerðar hér á landi um styrkleika
þeirra kannabisefna sem séu í um-
ferð hverju sinni en fjölmargar er-
lendar rannsóknir sýni það sama og
skýrsla WHO.
„Við höfum engin gögn um það en
það er líklegt að sama þróun hafi
orðið hér á landi,“ segir hann.
Arnar segir að erfitt sé að stað-
hæfa um fjölda kannabisneytenda
hér á landi. „Einu opinberu gögnin
sem við erum með eru tölur um þá
sem leita sér aðstoðar, ýmist í með-
ferð eða t.d. á bráðmóttöku geð-
deildar. Þess vegna er erfitt að full-
yrða um hversu margir nota kanna-
bisefni og hvort Íslendingar gera
meira af því en aðrar þjóðir.“
Í skýrslu WHO er birt kort sem
sýnir tíðni kannabisneyslu íbúa á
aldrinum 15-64 ára í einstökum lönd-
um. Löndin fá mismunandi liti eftir
því hvað neyslan er hlutfallslega
mikil. Þau lönd þar sem hún er mest
eru lituð dökkblá, sem þýðir að þar
neyti meira en 8% landsmanna
kannabisefna. Ísland er eitt af dökk-
bláu löndunum, það eina af Norður-
landaríkjunum sem hefur þann lit og
reyndar eitt þriggja Vestur-Evrópu-
landa í þessum hópi; hin tvö eru
Tékkland og Spánn.
Erum vel á pari við aðrar þjóðir
„Gallinn við svona tölur er að þær
eru ekki mjög nákvæmar,“ segir
Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á
Vogi. „Þær byggja á spurninga-
listum sem safnað er saman víða að
og það er misjafnt hvernig þessum
spurningum er svarað. Svo er svar-
hlutfallið oft ekki nógu hátt.“ Þrátt
fyrir þetta segir Þórarinn að þessar
tölur WHO gefi ákveðnar vísbend-
ingar um kannabisneysluna. „Það
má vel hafa þær til hliðsjónar. Þetta
segir okkur þó það að við erum vel á
pari við aðrar þjóðir í kannabis-
neyslu.“
Mikill og flókinn vandi
Þegar tölur SÁÁ eru skoðaðar, en
þær nýjustu er frá árinu 2014, sést
að þeim sem þangað leita í meðferð
við kannabisfíkn hefur fjölgað um-
talsvert á rúmum tveimur áratugum.
Árið 1991 voru þeir um 250 og árið
2014 voru þeir 600.
Þegar hlutfall kannabisfíkla af
sjúklingum á Vogi er skoðað sést
sömuleiðis mikil aukning; árið 1991
voru þeir 16% sjúklinga og 2014 voru
þeir 37%. Árið 2014 var kannabisfíkn
ástæða meðferðar hjá 33% af þeim
körlum sem leituðu sér meðferðar á
Vogi í fyrsta sinn.
Allir sem leita áfengis- eða fíkni-
efnameðferðar á Vogi eða öðrum
meðferðarstöðum SÁÁ fara í grein-
ingu sem að sögn Þórarins byggir á
alþjóðlega greiningartækinu
DSM-5. Það byggir á 11 greining-
arskilyrðum og er vanda fólks skipt í
1., 2. eða 3. stig. Um 95% þeirra sem
eru með kannabisfíkn mælast með
sex eða fleiri af þessum 11 einkenn-
um og eru því á 3. stigi, sem er skil-
greint sem vímuefnavandi á hástigi.
„Þetta getur verið gríðarlega mikill
og flókinn vandi,“ segir Þórarinn.
Fjöldi þeirra sem greindist með kannabisfíkn á Vogi 2014
Eftir aldri og kyni
>20 ára 20-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50 ára og eldri
250
200
150
100
50
0
Hlutfall kannabisfíknar á Vogi 1991-2014
19
9219
91
19
93
19
94
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
40%
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Meðal mestu kannabisþjóða?
Kannabisneysla óvíða meiri en á Íslandi samkvæmt skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
Erfitt að fullyrða um fjölda neytenda 37% sjúklinga á Vogi koma þangað vegna kannabisneyslu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kannabisræktun Kannabisfíkn hefur farið vaxandi, bæði hér og annars
staðar. WHO telur eina ástæðuna fyrir því vera að efnin séu orðin sterkari.
Arnar Jan
Jónsson
Þórarinn
Tyrfingsson
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Taktu
bílinn með
til Færeyja og Danmerkur 2016
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 74.500
Bókaðu
núna!
Bókaðu
snemma til aðtryggja þér pláss.Þegar orðið fullt ísumar ferðir
í sumar.
Arnar hefur m.a. starfað á fíkni-
geðdeild Landspítalans og segir
að margir sem þangað leiti eigi sér
sögu um kannabisnotkun. Margir
þeirra líti þó ekki á efnið sem
fíkniefni, heldur sem tiltölulega
hættulaust efni.
Á dögunum opnaði Fræðslufélag
fagfólks um kannabisneyslu, þar
sem Arnar er einn forsvarsmanna,
vefsíðuna kannabis.is. en henni er
ætlað að skýra frá ýmsum rann-
sóknum sem gerðar hafa verið á
neyslu efnisins „á mannamáli“.
„Efnið á síðunni er byggt á vís-
indarannsóknum, ekki sögum sem
Kalli vinur frænda þíns sagði þér
um hvað kannabis væri skaðlaust,
eða eitthvað álíka,“ segir Arnar.
Hann hefur einnig gert nokkuð
af því að fara í framhaldsskóla og
ræða um áhrif kannabisefna við
ungmenni og segir að gjarnan
skapist áhugaverðar og skemmti-
legar umræður.
„Flestir krakkanna eru mjög vel
meðvitaðir um að þetta getur ver-
ið skaðlegt en í þessu, eins og í
öllu öðru, eru háværar raddir hjá
minnihlutahópum,“ segir Arnar,
sem segist yfirleitt fá eftirfarandi
spurningar: Af hverju er þetta ekki
löglegt? Hver er munurinn á
kannabis og áfengi? „Hvort
tveggja er vímuefni en áhrifin eru
ólík,“ segir Arnar. „Þetta er svolít-
ið eins og að bera saman epli og
appelsínur.“
Ekki það sem Kalli vinur
frænda þíns sagði þér
RANNSÓKNIR Á KANNABISNEYSLU „Á MANNAMÁLI“
AFP
Kannabis Á kannabishátíð í Wash-
ington nýverið var krafist lögleiðingar.