Morgunblaðið - 04.05.2016, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016
Hlökkum til að heyra frá ykkur!
Nolta
Okkar megin áherslur eru:
◆ Liðsheildarþjálfun ◆ Leiðtogahæfni ◆ Stefnumótun og umbótastarf
Sigurjón
Þórðarson
Sími: 893 1808 •
sigurjon.thordarson@nolta.is
Friðfinnur
Hermannsson
Sími: 860 1045 •
fridfinnur.hermannsson@nolta.is
Ráðgjöf og þjálfun nolta.is
Vinnustofur sem styrkja og hreyfa við fólki
Frekari upplýsingar á nolta.is
Nolta er á Facebook
Leiðtoginn á réttum kúrs
Self - Navigation er skemmtileg tveggja daga vinnustofa
þar sem leiðtoginn stillir af hvert hann stefnir og kemur
skipulagi á sín helstu verkefni.
Árni
Sverrisson
Sími: 898 5891 •
arni.sverrisson@nolta.is
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Nýju ljósi var brugðið á aðdraganda
þess að Spkef sparisjóður var stofn-
aður á rústum Sparisjóðsins í Kefla-
vík, þegar málið var rætt á opnum
fundi stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar Alþingis í gær.
Spkef tók yfir eignir og innlán
Sparisjóðsins í Keflavík 22. apríl 2010.
Við það þurfti ríkissjóður að leggja
fram 900 milljónir í stofnfé og svo 20
milljarða þegar SpKef var sameinaður
Landsbankanum 2011.
Fundur nefndarinnar var þrískipt-
ur. Fyrst komu fulltrúar frá Seðla-
bankanum. Síðan komu fulltrúar Fjár-
málaeftirlitsins, FME, og loks voru
fyrrverandi ráðherrar fyrir svörum.
Verður hér sagt frá síðustu lotunni, en
fjallað er um sjónarmið fulltrúa Seðla-
bankans og FME á mbl.is.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður VG, var fjármálaráðherra
þegar Spkef var stofnaður. Hann
sagði margt hefði mátt betur fara.
„Og ég geri ráð fyrir að við getum
flest orðið sammála um að litið í bak-
sýnisspegilinn með þær upplýsingar í
höndum sem við höfum í dag að þá
hefði verið kannski betra að standa
öðruvísi að ýmsu og … horfast í augu
við vanda Sparisjóðs Keflavíkur, að
hann væri í raun óviðráðanlegur …
Það er mat manna strax um haustið
2008, og síðan á útmánuðum 2009, að
staðan sé um það bil sú að það vanti
eitthvað upp á að hann uppfylli kröfur
um eiginfé,“ sagði Steingrímur.
Ætti ekki fyrir skuldum
Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, rifjaði þá upp að
„strax í mars 2009“ hafi verið skipuð
nefnd með fulltrúum Seðlabankans,
fjármálaráðuneytis og FME, sem
lagði til að sparisjóðnum yrði lokað.
Hann væri enda ekki lífvænlegur.
Áður en Spkef var stofnaður hafi nið-
urstaðan verið sú að hann ætti ekki
fyrir skuldum. „Staðan er verri en
samt er tekin ákvörðun um að
[stofna] nýjan sparisjóð og hann tikk-
ar síðan í 11 mánuði, með nýjum inn-
stæðum sem ljóst yrði að yrðu þá
bara tjón ef illa færi.“
Svaraði Steingrímur því þá til að
„ríkur vilji“ hefði staðið til þess að
reyna að ljúka fjárhagslegri endur-
skipulagningu fjármálakerfisins í
heild. „Það var meira að segja ákvæði
um það í samstarfsáætlun við Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn að menn settu
sér tímamörk í því að reyna að hraða
því ferli,“ sagði Steingrímur.
Yrði „móðurstöð“ sparisjóða
Um áramótin 2008 hafi verið talið
að eitthvað vantaði upp á að hlutfall
eiginfjár sparisjóðsins væri 8%.
„Þetta var jú gríðarlega stór spari-
sjóður með víðtækt viðskiptanet, eina
fjármálastofnunin á stórum svæðum í
landinu, og bundnar vissar vonir við
það að hann gæti í fyllingu tímans
orðið einhvers konar móðurstöð fyrir
það sem eftir yrði af sparisjóðunum.
Undirliggjandi allan tímann er yfir-
lýsing ríkisins um að allar innstæður í
íslenskum bönkum og sparisjóðum
verði tryggðar. Það kom aldrei neitt
annað til álita en að vinna samkvæmt
því.“
Síðar á fundinum vék Steingrímur
að endalokum Sparisjóðs Keflavíkur
og stofnun Spkef. Það hafi orðið end-
anlega ljóst í apríl 2010 að tilraunir til
fjárhagslegrar endurskipulagningar
með þátttöku kröfuhafa myndu ekki
ganga eftir. „Það gerist þannig að
hluti erlendu kröfuhafanna hafnar
samkomulaginu,“ sagði Steingrímur
og rifjaði upp að talið var að eigið fé
væri komið undir núll.
„Þannig verður sú viðmiðun til að
það gæti þurft eina 12-13 milljarða,
kannski, til að endurfjármagna spari-
sjóðinn. Það er að segja leggja honum
til nægilega mikið nýtt eigið fé þannig
að hann komist yfir viðmiðunarmörk-
in. Ég held að það breyti síðan mjög
litlu um endanlega útkomu ríkisins að
sparisjóður Spkef varð til og rekinn í
ellefu mánuði. Það eru óverulegar
fjárhæðir sem það breytir,“ sagði
Steingrímur.
Hefði „sáralitlu breytt“
Hann sagði svo að það hefði „sára-
litlu breytt“ ef Spkef hefði orðið
hlutafélag en ekki sparisjóður.
„Ég veit ekki hvernig ríkinu hefði
reitt af með sína ábyrgð á innstæðum
ef önnur leið hefði verið valin og reynt
að fá þá strax einhverja starfandi
fjármálastofnun til að taka við, það
hefði mjög sennilega lent í svipuðum
farvegi … [Í] þessari risavöxnu að-
gerð, sem var að endurreisa allt fjár-
málakerfið á Íslandi, verður ríkið
þarna fyrir ákveðnu áfalli, sem losar
20 milljarða, ef við tökum 19,1 millj-
arð sem gerðardómurinn úrskurðaði
[um verðmæti útlánasafnsins, alls
20,1 ma. með vöxtum] plús 900 millj-
ónirnar í stofnfé sem varð að afskrifa.
En þetta er auðvitað fórnarkostnaður
í risavaxinni heildaraðgerð sem ríkið
kemur mjög vel út úr að lokum. Það
er löngu orðið ljóst sem betur fer, að
þegar upp verður staðið kemur ís-
lenska ríkið mjög vel út úr sinni þátt-
töku í að endurreisa banka- og fjár-
málakerfið í landinu. Í miklum plús,“
sagði Steingrímur.
„Ég held að allir hafi verið að reyna
að gera sitt besta við erfiðar aðstæð-
ur á þessum tíma. [V]ið verðum auð-
vitað að dæma atburðina og ákvarð-
anir út frá því við hvaða aðstæður
þær áttu sér stað. Sem betur fer er
langt um liðið og við erum í ólíkri
stöðu í dag en á þessum dimmu mán-
uðum sem þarna gengu yfir.“
Bjuggu ekki til tjón
Gylfi Magnússon, efnahags- og við-
skiptaráðherra 2009-10 og dósent í
viðskiptafræði við HÍ, vék að þeim
orðum Brynjars að þrátt fyrir dökkt
útlit hafi Spkef lifað í 11 mánuði með
nýjar innstæður með tilheyrandi
tjóni. „Ég vil fyrst byrja á smá leið-
réttingu. Ég veit nú reyndar ekki ná-
kvæmlega hvernig innstæður í þess-
um poka þróuðust þessi misseri. En
ný innlán eftir haustið 2008, eða í
Spkef, bjuggu ekki til neitt tjón
vegna þess að í hvert skipti sem það
kemur króna í banka sem innlán að
þá kemur hún auðvitað bæði eigna-
og skuldamegin. Þannig að eigið fé
bankans rýrnar ekkert við það að fá
ný innlán. Þannig að það varð ekki til
neitt sérstakt tjón vegna þess að inn-
lán kunnu að hafa streymt inn í eða
jafnvel út úr bankanum,“ sagði Gylfi.
Hann sagði sáralítil ný útlán hafa
verið í Spkef. Munur á eignum og for-
gangskröfum hafi fyrst og fremst
stafað af því „hversu slæmar eignir
Spkef fékk í arf frá forveranum“.
Gylfi segir þá upphæð sem féll á
ríkið vegna sjóðsins mega „væntan-
lega rekja … fyrst og fremst til þess
að það var einhver rekstrarkostnaður
á þessum sparisjóði. Einhver útibú og
eitthvert starfsfólk.“
Hefði hugsanlega getað lækkað
Spurði Brynjar þá hvort fjármunir
hefðu ekki tapast.
„Jú, jú, það er örugglega eitthvað
og sá kostnaður lækkar auðvitað þeg-
ar Landsbankinn tekur yfir rekstur
Spkef og fækkar útibúum og segir
upp starfsfólki. Þannig að hugsan-
lega hefði mátt lækka þá upphæð
með því að loka bankanum. En það er
sáralítill hluti af þessum milljörðum
sem við erum að tala um. Við þurfum
að hafa það á hreinu að tjónið er fyrst
og fremst vegna útlána sem voru
mjög vanhugsuð og reyndar einnig
fjárfesting ýmiss konar í hlutabréfum
hjá sparisjóðnum á bóluárunum,“
sagði Gylfi.
Spkef yrði „móðurstöð“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sparisjóður Keflavíkur Endurreisn sjóðsins kostaði yfir 20 milljarða.
Steingrímur J. Sigfússon segir „óverulegar fjárhæðir“ hafa runnið til Spkef
Gylfi Magnússon dósent segir fyrst og fremst um rekstrarkostnað að ræða
Kom ekki til umræðu
» Árni M. Mathiesen, fjár-
málaráðherra 2005-9, minnist
þess ekki að málefni Spari-
sjóðsins í Keflavík, eða annarra
sparisjóða, hafi komið inn á
hans borð fyrir neyðarlögin.
● Orkuveita Reykjavíkur gaf út ný
skuldabréf í vikunni og mun það vera
fyrsta útgáfa félagsins af því tagi frá
efnahagshruni. Tilboð bárust fyrir 3.180
milljónir króna í verðtryggð jafn-
greiðsluskuldabréf í tveimur flokkum.
Ákveðið var að taka tilboðum fyrir
1.038 milljónir króna samtals. Gefin
voru út skuldabréf til átta ára að and-
virði 588 milljónir króna á ávöxt-
unarkröfunni 3,30% og skuldabréf til
30 ára að andvirði 450 milljónir króna á
ávöxtunarkröfunni 3,20%. Útboðið var í
umsjón fjárfestingarbankasviðs Arion
banka.
Orkuveitan sækir inn á
skuldabréfamarkað á ný
Gengisskráning 3. maí 2016
Kaup Sala Mið
DOLLARI 120,69 121,27 120,98
STERLINGSPUND 177,12 177,98 177,55
KANADADOLLARI 95,95 96,51 96,23
DÖNSK KRÓNA 18,772 18,882 18,827
NORSK KRÓNA 15,008 15,096 15,052
SÆNSK KRÓNA 15,196 15,286 15,241
SVISSN. FRANKI 127,41 128,13 127,77
JAPANSKT JEN 1,1409 1,1475 1,1442
SDR 172,16 173,18 172,67
EVRA 139,73 140,51 140,12
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 173,1628
Heimild: Seðlabanki Íslands
Hagnaður Vátryggingafélags Ís-
lands (VÍS) nam 145 milljónum
króna á fyrsta ársfjórðungi, en til
samanburðar var 733 milljóna
króna hagnaður á sama fjórðungi í
fyrra. Munar þar mestu um að
tekjur af fjárfestingarstarfsemi eru
mun minni en í fyrra. Þær námu
435 milljónum, í samanburði við
1,113 milljónir á fyrsta ársfjórðungi
2015.
Samsett hlutfall VÍS var 104,5%,
sem er svipað og á sama ársfjórð-
ungi í fyrra þegar það var 105,2%.
Iðgjöld námu alls 4,3 milljörðum
króna og jukust um tæplega 9% á
milli ára. Tjón á tímabilinu námu
3,4 milljörðum og jukust um 10%
miðað við fyrsta ársfjórðung í fyrra.
Eignir VÍS námu 32,5 milljörðum
króna í lok ársfjórðungsins. Eigin-
fjárhlutfall stóð í 30,2% en það var
39,1% í lok mars í fyrra. VÍS hefur
greitt út arð og keypt eigin hluta-
bréf á undanförnu ári, auk þess sem
félagið gaf út víkjandi skuldabréf í
lok febrúar sem lið í endur-
skipulagningu á fjármagnsskipan
þess.
Stjórnendur vænta þess að ágæt-
ur vöxtur verði í iðgjöldum á þessu
ári og að samsett hlutfall verði
lægra en það var í fyrra.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, for-
stjóri VÍS, segir afkomuna á fyrsta
ársfjórðungi hafa verið undir vænt-
ingum þrátt fyrir ágætan vöxt í inn-
lendum iðgjöldum. „Afkoman litast
af slakri afkomu af skaðatrygginga-
starfsemi en tap er af bæði frjálsum
og lögboðnum ökutækjatryggingum
á tímabilinu.“
Minni fjárfestingartekjur
draga úr hagnaði VÍS
Forstjórinn segir félagið tapa á ökutækjatryggingum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tryggingar Sigrún Ragna segir
afkomuna undir væntingum.
● Öll fyrirtækin á aðallista Kauphall-
arinnar, utan tveggja, hækkuðu í við-
skiptum gærdagsins. Fól það í sér mik-
inn viðsnúning frá viðskiptadögunum á
undan þegar flest fyrirtækin lækkuðu
nokkuð í verði.
Heildarviðskipti með bréf á aðal-
markaði námu tæpum 4,5 milljörðum
króna og hækkaði úrvalsvísitalan um
tæp 1,8%. Í kjölfar viðskipta gærdags-
ins hefur úrvalsvísitalan gefið eftir sem
nemur 1,3% frá áramótum.
Í gær hækkuðu bréf N1 mest allra og
fóru þau upp um 3,9% í tæplega 377
milljóna króna viðskiptum. Þá hækkuðu
bréf fasteignafélaganna Eikar og Regins
um ríflega 2,5%. Mest viðskipti voru
með bréf Icelandair eða ríflega 1,5 millj-
arðar og hækkuðu þau um rúm 2% eftir
að hafa lækkað mikið á föstudag og
mánudag.
Fjarskiptafélögin Síminn og Fjarskipti
höfðu lækkað nokkuð í kjölfar þess að
þau kynntu ársfjórðungstölur sínar í lið-
inni viku. Þau hækkuðu í viðskiptum
gærdagsins. Bréf í Símanum fóru upp
um 2,4% og í Fjarskiptum um 2,1%.
Kauphöllin tekur við sér
eftir miklar lækkanir
STUTTAR FRÉTTIR ...