Morgunblaðið - 04.05.2016, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016
Ármúla 24 • S. 585 2800Opið virka daga 9 -18, laugardaga 11- 16 – www.rafkaup.is
Úrval af
ljósum frá
BELID
Vængir tveggja
indónesískra far-
þegaþotna rák-
ust saman
skömmu áður en
þær áttu að hefja
sig til flugs frá
alþjóðaflugvell-
inum í Djakarta,
höfuðborg
Indónesíu. Að sögn fréttaveitu AFP
slasaðist enginn í óhappinu.
Flugvélarnar tilheyrðu báðar
indónesíska flugfélaginu Lion Air
og voru þær á leiðinni út á flug-
braut þegar vængir þeirra snert-
ust, en óhappið átti sér stað á flug-
vellinum Soekarno-Hatta. Vegna
þessa þurftu vélarnar að fara í
skoðun og voru farþegar þeirra því
sendir með öðrum flugvélum.
Á þessari stundu er ekki vitað af
hverju vélarnar rákust á með þess-
um hætti en að sögn talsmanns
flugfélagsins er málið nú í skoðun.
Tveir mánuðir eru liðnir frá því
að önnur flugvél Lion Air lenti í
svipuðu óhappi. khj@mbl.is
DJAKARTA Í INDÓNESÍU
Tvær vélar Lion Air
ráku vængina
saman fyrir flugtak
Þýskur ríkis-
borgari hefur nú
verið ákærður
fyrir stríðsglæpi
í Sýrlandi, en
hann er sagður
hafa látið taka af
sér ljósmyndir
þar sem hann
sést með nokkur
afskorin mannshöfuð sér við hlið.
Myndunum var síðan dreift á sam-
félagsmiðlinum Facebook.
Maðurinn sem um ræðir, Aria
Ladjedvardi, er 21 árs gamall og af
írönskum uppruna. Árið 2014 fór
hann á vígaslóðir í Sýrlandi þar
sem hann hlaut vopnaþjálfun og
framdi ódæðisverk í nafni Ríkis
íslams. Í október í fyrra var hann
handtekinn í Frankfurt í Þýska-
landi og leit gerð í íbúð hans. Hefur
hann verið í haldi lögreglu síðan.
ÞÝSKALAND
Lét mynda sig með
líkamsleifum fólks
Ashton Carter, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, segir að Atlants-
hafsbandalagið (NATO) muni verja
bandamenn sína gegn „árásar-
hneigð“ Rússa. Lét hann ummælin
falla í ávarpi í þýsku borginni Stutt-
gart er verið var að skipta um yfir-
mann Evrópuherstjórnar NATO.
Að sögn Carters mun NATO
áfram „halda dyrunum opnum fyrir
Rússlandi“ þegar kemur að sam-
vinnu á sviði öryggismála. „En það
er undir Kreml komið að ákveða
það. Við höfum ekki áhuga á köldu,
hvað þá heitu, stríði við Rússland.
Við leitumst ekki eftir því að gera
Rússa að óvinum okkar,“ sagði hann
og hélt áfram: „En höfum það alveg
á hreinu; við munum verja banda-
menn okkar, alþjóðaskipulagið og þá
farsælu framtíð sem það veitir.“
Scaparrotti tekinn við
Nýr yfirmaður Evrópuher-
stjórnar Atlantshafsbandalagsins er
bandaríski hershöfðinginn Curtis
Scaparrotti, sem áður gegndi stöðu
yfirmanns herafla Bandaríkjanna í
Suður-Kóreu. Tekur hann við af
Philip M. Breedlove hershöfðingja,
sem hefur gegnt stöðunni frá því í
maí árið 2013.
Spenna milli Rússlands og NATO
hefur vaxið jafnt og þétt frá því að
Rússar innlimuðu Krímskaga í
austurhluta Úkraínu. Hefur banda-
lagið m.a. komið upp aðstöðu fyrir
hraðsveitir í Austur-Evrópulöndum,
með vopnum og tækjabúnaði sem
þær þurfa til hernaðar. Til skoðunar
er nú að senda þýskar hersveitir til
Litháens til að styrkja enn frekar
varnir NATO í austri. khj@mbl.is
NATO mun verja
sína gegn Rússum
Breedlove hers-
höfðingi hættur í
Evrópustjórninni
AFP
Herveldi Ashton Carter (t.v.) ásamt
yfirmanni herráðs Bandaríkjanna.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Vígamenn Ríkis íslams í Sýrlandi og
stjórn Bashars al-Assad Sýrlands-
forseta hafa undanfarin ár átt í leyni-
legu samstarfi á vígvöllum Sýrlands.
Frá þessu var greint á vefsíðu Sky
News í gær og vísað til gagna sem
fréttastofan hefur undir höndum.
Sky News hefur undanfarna 18
mánuði verið í sambandi við hóp
manna sem eitt sinn tilheyrði víga-
sveitum Ríkis íslams, samtaka íslam-
ista, og hafðist hann þá við í Raqqa,
höfuðvígi samtakanna. Er hópurinn
nú sagður starfa innan landamæra
Tyrklands og aðstoðar þá sem flýja
vilja samtökin.
Skipanir til vígamanna
Fram kemur í frétt Sky News að
ómögulegt sé að sannreyna það sem
stendur í gögnunum, sem sögð eru
vera handskrifaðar skipanir frá höf-
uðstöðvum Ríkis íslams. Þau eru að
vísu sögð koma frá aðila sem áður
hefur veitt sannar upplýsingar.
Í einu þessara bréfa er farið fram
á örugga ferð vöruflutningabíls í
gegnum varðstöðvar vígamanna og
að landsvæðum Sýrlandshers. Þegar
þangað var komið átti ökumaðurinn,
samkvæmt áðurnefndum gögnum,
að skipta á olíu og áburði áður en
snúið var til baka. Eru vöruskipti
sem þessi sögð hafa átt sér stað um
árabil á milli stríðandi fylkinga.
Önnur skipun kveður á um brott-
flutning vopna og birgða frá ákveðnu
svæði því búist var við loftárásum á
það. Skipun þessi var að líkindum
gefin út í nóvember 2013 og sögð
dæmi um þá samvinnu sem uppi er á
milli stjórnarhersins í Sýrlandi og
Ríkis íslams.
Einnig er talað um hina fornu
borg Palmyra í gögnunum, en sam-
kvæmt þeim var liðsmönnum Ríkis
íslams gefin skipun um að hörfa það-
an með öll sín þungavopn áður en
Sýrlandsher tók aftur yfir stjórn
borgarinnar fornu.
Með ríki Evrópu í sigtinu
Að sögn heimildarmanns Sky
News eru vígamenn Ríkis íslams og
hergögn þeirra flutt á milli land-
svæða í samvinnu við hersveitir
Assads forseta og flugher Rússa.
Skjölin eru einnig sögð sýna að
þjálfun vígamanna til árása utan
Sýrlands hafi staðið yfir mun lengur
en talið var, en finna má í gögnunum
skipanir frá því í nóvember 2014 um
að hópar verði sendir utan til árása.
Liðhlaupi samtakanna segir Evrópu
skotmark aðgerðarinnar.
Assad bendlaður við íslamista
Sýrlandsforseti er sagður hafa unnið
með vígasveitum Ríkis íslams um árabil
AFP
Afhjúpaður Sky News hefur undir höndum gögn sem sögð eru sýna fram á
samvinnu á milli hersveita Assads Sýrlandsforseta og Ríkis íslams.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Þýska lögreglan hefur handtekið tvo einstaklinga,
karl og konu, sem grunaðir eru um mannrán,
pyntingar og morð. Þarlendir fjölmiðlar greina frá
þessu og er karlinn sagður heita Wilfried W., 46
ára gamall, og konan Angelika B., 47 ára, en þau
búa í bænum Höxter í norðvesturhluta Þýska-
lands. Fólkið var gift í um 14 ár en skildi 2013.
Er parið sagt hafa lokkað til sín konur með
einkamálaauglýsingum, læst þær inni á heimili
sínu, pyntað þær og myrt. Talið er að fórnarlömb-
in séu minnst tvö talsins en þýska lögreglan úti-
lokar ekki að fleiri morð og ofbeldisverk hafi verið
framin á heimili þeirra í Höxter.
Upp komst um fólkið þegar bifreið þess bilaði
óvænt á götu úti og var þá eitt fórnarlambanna, 41
árs gömul kona, meðferðis. Samkvæmt fréttaveitu
AFP var konan með alvarlega áverka og lést hún á
sjúkrahúsi skömmu eftir komuna þangað. Talið er
að konan hafi þurft að þola pyntingar og önnur of-
beldisverk af hendi hjónanna í um tvo mánuði á
meðan henni var haldið fanginni. Hitt fórnarlamb
þeirra var 33 ára gömul kona og geymdu hjónin lík
hennar í frysti áður en það var bútað niður og
brennt í arni hússins.
Leitað að fleiri fórnarlömbum
AFP hefur eftir saksóknara í málinu að yngra
fórnarlambið hafi látist 1. ágúst 2014 og er bana-
mein þess „veruleg líkamleg misþyrming“. Hin
látna er sögð hafa gifst manninum sem nú er í
haldi lögreglu eftir að sá skildi við konu sína 2013.
„Við erum nú að leita að fleiri fórnarlömbum,“
segir Ralf Östermann, yfirmaður morðdeildar lög-
reglunnar. Karlmaðurinn neitar sök í málinu.
Óhugnaður skekur þýskan bæ
AFP
Hryllingur Lögreglan hefur nú girt húsið af.
Tvennt handtekið vegna hrottafenginna morða Bútuðu niður og brenndu lík