Morgunblaðið - 04.05.2016, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016
✝ Ragnar ÖrnPétursson
fæddist í Reykjavík
8. maí 1954. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja
29. apríl 2016.
Foreldrar hans
eru Pétur Þ. Krist-
jánsson sýningar-
maður, f. 22.9.
1934, d. 8.10. 2007,
og Dúna
Bjarnadóttir sjúkraliði, f. 11.6.
1936. Seinni eiginkona Péturs
er Gunnur Samúelsdóttir, f.
23.11. 1939.
Bræður Ragnars eru: Pétur,
f. 12.11. 1953, Ólafur Bjarni, f.
22.4. 1959, Gunnar, f. 6.4. 1970,
og Samúel Bjarki, f. 4.11. 1976.
Ragnar Örn kvæntist Sigríði
Sigurðardóttur 23.2. 1975. For-
eldrar hennar voru Sigurður R.
Sigurðsson, f. 6.6. 1929, d. 3.10.
2003, og Guðbjörg Óskarsdóttir,
f. 29.5. 1930, d. 17.5. 1994. Börn
Ragnars og Sigríðar eru 1) Guð-
rún Björg verslunarmaður, f.
15.8. 1974, eiginmaður hennar
er Elvar Sigurðsson, f. 14.12.
1972. Synir þeirra eru Elvar
Þór og Jóhann Þór. Sonur Elv-
ars er Davíð Þór. 2) Ragnar
Már Ragnarsson flugmaður, f.
30.12. 1976, unnusta hans er
átta ár sá hann um veitinga-
rekstur í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar. Ragnar Örn starfaði fyr-
ir Barþjónaklúbb Íslands með-
fram störfum sínum í veitinga-
geiranum og var formaður
klúbbsins í nokkur ár. Árið 1995
hætti hann öllum veitinga-
rekstri og snéri sér að sínu
helsta áhugamáli sem voru
íþróttir. Ragnar hafði starfað
sem knattspyrnudómari í efstu
deild auk þess að vera aðstoð-
ardómari í Evrópukeppni
félagsliða. Hann hóf störf á
Íþrótta-og tómstundasviði hjá
Reykjanesbæ. Hann sótti fjölda
námskeiða og lauk diplómanámi
frá Kennaraháskóla Íslands í
tómstunda- og félagsmálafræð-
um. Ragnar Örn starfaði lengi
vel sem formaður Félags
íþrótta-, æskulýðs og tóm-
stundafulltrúa á Íslandi. Hann
var virkur meðlimur í Sjálf-
stæðisflokknum og starfaði
mikið hann í baklandi flokksins
og var m.a formaður fulltrúa-
ráðs.
Ragnar Örn var formaður
Starfsmannafélags Suðurnesja í
14 ár frá 1999-2013 og sat þau
ár einnig í stjórn BSRB. Hann
gekk í raðir Kiwanis-hreyfing-
arinnar 1991 og gegndi þar fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum, þar
á meðal var hann umdæmis-
stjóri hreyfingarnar á Íslandi
og í Færeyjum 2011-2012 og sat
í Evrópustjórn þann tíma
Útför Ragnars Arnar fer
fram frá Keflavíkurkirkju í dag,
4. maí 2016, kl. 13.
Sigrún Helga
Björgvinsdóttir, f.
11.10. 1984. Börn
þeirra eru, Re-
bekka Dagbjört og
Helgi Már. 3) Lauf-
ey skólaliði, f. 19.9.
1980, sambýlis-
maður hennar er
Guðjón S. Ingva-
son, f. 5.2. 1971.
Dóttir þeirra er El-
ín Sigurlaug. Sonur
Laufeyjar er Ragnar Örn. Fyrir
á Guðjón fjögur börn en eitt var
andvana fætt. barnabörnin eru
tvö. 4) Bjarni verkstjóri, f. 19.9.
1980, unnusta hans er Ástrún
Sigurbjörnsdóttir, f. 24.3. 1970.
Börn Bjarna eru Stefán Ari,
Emelía Bára, Birgitta Sól. Synir
Ástrúnar eru Arnar Már og Elv-
ar Þór.
Ragnar Örn ólst upp í Laug-
arneshverfinu. Árið 1971 hóf
hann nám í framreiðslu á Hótel
Borg og hlaut meistararéttindi
árið 1977. Hann starfaði á Hótel
Sögu og síðar í Snorrabæ.
Ragnar hóf svo störf á Ríkis-
útvarpinu, fyrst í hlutastarfi og
svo síðar í fullu starfi. Hann
starfaði hjá RÚV til 1984 er
hann flutti til Keflavíkur og hóf
veitingarekstur, fyrst í KK-
salnum, síðar í Glaumbergi og í
Elsku, hjartans, ástin mín.
Þetta er það erfiðasta sem ég
hef gert. Hvernig á ég að halda
áfram án þín? Við ætluðum að
eldast saman. Það var mikið
áfall þegar þú hættir í vinnunni,
sem var þér allt. Við tókum á
því saman þó erfitt væri. Svo
kom enn stærra áfall þegar þú
greinist með þennan óvæga og
illgjarna sjúkdóm sem hafði sig-
ur að lokum. Við verðum bara
að fresta því sem við ætluðum
að gera saman þar til við sam-
einumst á ný.
Ferðast, fara á íþróttaleiki,
vera með börnum og barna-
börnum var okkar yndi og ég
mun halda áfram og heiðra þig
þannig. Ég veit að þú verður
með mér.
Hvíl í friði, elsku ástin mín,
þar til við hittumst á ný. Þín að
eilífu,
Sigríður (Sigga).
Elsku pabbi minn.
Mikið er erfitt að setjast nið-
ur og skrifa til þín þessi orð. Að
hugsa til þess að þú sért farinn
er of erfitt. Þú varst mín stoð
og stytta, minn klettur. Ég gat
alltaf leitað til þín og þú varst
alltaf til staðar fyrir mig og
börnin mín. Ég er svo þakklát
fyrir kvöldstundina sem við átt-
um saman um daginn, þegar við
vorum að ræða hugmyndir að
fermingarveislu Elvars, þó hún
væri ekki fyrr en á næsta ári.
Minningarnar eru óteljandi.
Þú varst mín fyrirmynd í einu
og öllu. Þú varst hugmyndarík-
ur, skipulagður, traustur vinur
og góður pabbi og afi og alltaf
var stutt í húmorinn. Ég mun
ávallt varðveita þig í hjarta
mínu. Elsku pabbi, hvað ég
sakna þín mikið.
Við munum hlúa að hvor öðru
og sérstaklega mömmu. Ég
mun vera dugleg að tala við
börnin mín og halda minningu
þinni á lofti.
Nú ertu kominn á annan stað
og ég veit að þú gerir hann að
þínum.
Elsku pabbi, hvíl í friði. Þín
dóttir,
Guðrún Björg.
Elsku besti pabbi minn.
Það er ansi sárt að hugsa til
þess að nú sértu farinn frá mér
allt of snemma. Það er erfitt
fyrir svona mikla pabbastelpu
að geta ekki hringt í þig þegar
eitthvað er að eða þegar mig
vantaði að vita eitthvað. Alltaf
gat ég leitað til þín með allt. Þú
varst alltaf stoð mín og stytta,
sérstaklega þegar litli drengur-
inn minn fæddist og var skírður
í höfuðið á þér. Ég er svo þakk-
lát fyrir allar stundirnar sem
við áttum saman, sérstaklega
þann tíma sem við tvö áttum
saman núna á síðustu mánuðum
og vikum.
Ég veit ekki hvernig ég á að
halda áfram án þín. Ég á svo
margar góðar minningar um þig
sem ég ætla að varðveita vel í
hjarta mínu.
Elsku pabbi, við munum
hugsa vel um mömmu og ég
verð dugleg að tala um þig við
börnin mín og við erum þakklát
fyrir þann tíma sem við áttum
með þér.
Elsku pabbi, hvíl í friði, ég
elska þig. Þín,
Laufey.
Elsku pabbi minn.
Þetta eru skrýtnir tímar, að
sitja hér og skrifa til þín.
Hvernig gerir maður það?
Mig langar að segja þér svo
margt, mig langar að segja þér
hversu mikið ég elska þig og
sakna þín. Minningarnar
streyma til mín og auðvitað
stendur upp úr okkar sameig-
inlega ástríða sem var fótbolti
og þá einna helst áhugi okkar á
Man. Utd. Alltaf hlakkaði ég til
að koma og horfa á leiki með
þér og það besta var að við vor-
um í sama liði.
Elsku pabbi, takk fyrir allt
og takk fyrir að vera pabbi
minn.
Þú munt alltaf vera hjá mér
og ég er svo þakklátur að börn-
in mín fengu að eiga svona góð-
an afa þó að það hafi verið allt
of stutt.
Megi Guð vernda þig.
Þinn sonur,
Bjarni.
Elsku pabbi.
Það er skrítin tilfinning að
sitja hér við tölvuna og skrifa
niður þessi orð. Sérstaklega í
ljósi þess að þegar maður var
að rita niður hina ýmsu texta
var ég með þig á línunni til að
veita ráðleggingar. Tilhugsunin
um að geta ekki hringt í þig oft-
ar til að ræða um daginn og
veginn, sérstaklega fótbolta, er
þyngri en orð fá lýst. Í byrjun
desember var ég staddur í
Þýskalandi og hringdi í þig því
ég vildi bjóða þér og mömmu í
2ja daga jólaferð til Þýskalands.
Þá sagðir þú mér að læknirinn
vildi fá þig á fund vegna ein-
kenna sem þú hafðir fundið fyr-
ir og þú sagðir að þú værir skít-
hræddur um að þetta væri
krabbi. Þú hafðir því miður rétt
fyrir þér og voru næstu fimm
mánuðir okkur erfiðir. Ávallt
varst þú þó ákveðinn í að vinna
slaginn og alveg fram undir síð-
asta þá ætlaðir þú að rísa upp.
En áþessari baráttu var þér
ekki ætlað að sigrast.
En í stað þess að dvelja við
það sem mér þykir vera svo
ósanngjarnt og finna fyrir reiði
þá ætla ég frekar að dvelja við
allar góðu minningarnar sem ég
á með þér; allar utanlandsferð-
irnar okkar, útilegurnar í Galta-
læk sem við fórum í með staff-
inu í Glaumbergi og allir
fótboltaleikirnir sem við horfð-
um á saman. Góðu minningarn-
ar sem ég á með þér eru svo
margar að ég þyrfti að gefa út
sérblað með þeim og þér þætti
nú ekki leiðinlegt að ritstýra
því. En fyrst og síðast mun ég
muna eftir hversu gott það var
að leita til þín með hvað sem
var og það sem þú hefur kennt
mér er að það eru til lausnir á
öllum vandamálum; verkefni
eru til að leysa þau. Þetta hug-
arfar mun ég hafa að leiðarljósi
um ókomna tíð.
Ávallt hvattir þú mig áfram í
öllu því sem ég tók mér fyrir
hendur og alveg sama hversu
mikið gekk á og brekkan var
brött þá var aldrei að finna ann-
að en hvatningu frá þér og það
er það sem ég mun tileinka mér
gagnvart mínum börnum. En
elsku pabbi, kallið þitt kom
miklu fyrr en við vildum og trúi
ég og treysti að krafta þinna,
útsjónarsemi, röggsemi og
skipulagni sé meiri þörf á ann-
ars staðar. Ég lofa að við syst-
kinin munum hlúa að mömmu
og hvert að öðru og sjá til þess
að barnabörnin þín muni heyra
allar skemmtilegu sögurnar um
þig og hversu orðheppinn og
mikill húmoristi þú varst. Elsku
pabbi, farðu vel með þig hvar
sem þú ert. Sjáumst síðar.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
( Bubbi Mothens)
Þinn sonur
Ragnar Már.
Elsku bróðir, ekki átti ég von
á því að 14. nóvember síðastlið-
inn yrði síðasti bræðrahitting-
urinn með þér. Við áttum ynd-
islega stund þessa helgi,
jólahlaðborð í Grímsborgum og
notalega næturstund í heita
pottinum uppi í bústað.
Minningarnar hlaðast upp og
mig langar að segja þér svo
margt, en ég kem því ekki frá
mér. Hjartað slær svo hratt og
augun fyllast af tárum er ég
hugsa til þín. Minningarnar
geymi ég í hjarta mínu þar til
við hittumst á ný.
Takk fyrir allt, elsku bróðir,
og minn besti vinur.
Þinn bróðir, hálfbróðir,
Pétur.
Lát minninganna mildu blóm
mýkja og græða sárin,
en ljúfra tóna enduróm
ylja og þerra tárin.
Við skulum horfa á vorsins hönd
vetrar bræða drómann,
knýta lífsins kærleiksbönd
og kveikja jarðarblómann.
Við skulum hlusta á ástaróð,
allra vorsins gesta,
er þeir syngja lífsins ljóð
og ljúfar ástir festa.
Við skulum láta vorsins yl
vekja hjartans gleði
og gera öllum gæðum skil,
sem gæfan okkur léði.
Guð gefi ykkur góða nótt
Guð í himnaríki,
svo þið getið sofið rótt
sorgir burtu víki.
(Höf. Ágúst Böðvarsson)
Elsku Sigga og fjölskylda, við
sendum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur og þökkum yndis-
lega samfylgd með elsku Ragga
frænda. Það er dýrmætt að hafa
ræktað tengslin frá barnæsku
og munum við hjónin varðveita
góðar stundir og rækta frænd-
garðinn áfram í hans anda.
Megi allar góðar vættir fylgja
ykkur og minningu Ragga okk-
ar.
Kærleikskveðjur,
Kristjana Ragnarsdóttir,
Örn Ingi og fjölskyldan öll.
Kæri frændi.
Það voru ógnvænleg tíðindi
sem við fengum í vetur um að
þú hefðir greinst með alvarleg-
an sjúkdóm. Þú, minn yndislegi
frændi og jafnaldri sem ég
þekkti svo vel og hafði fylgst
með allt mitt líf skyldir vera
orðinn svona veikur var gríð-
arlegt áfall.
Við frændurnir vorum ekki
háir í loftinu þegar þú varst að
kenna mér að tefla á fína tafl-
borðinu heima hjá ykkur á
Rauðalæknum. Strax þá tengd-
ust við vinaböndum sem héldu
alla tíð.
Á unglingsárunum varst þú
oft hjá okkur á Nesinu og
kynntist þar hressum krökkum.
Eitt sumarið tókum við að okk-
ur að þjálfa saman 5. flokk í
Gróttu í fótbolta. Við vorum nú
engir Alex Ferguson eða Jur-
gen Klopp en við höfðum af-
skaplega gaman af þessu og
nutum þess innilega. Þú varst
reyndar alltaf mikill áhugamað-
ur um íþróttir og áttir eftir að
vinna að alls kyns málum sem
tengdust þeim.
Það var líka alltaf gott að
geta hringt í þig, fengið góð ráð
eða bara spjallað um það sem
við vorum að fást við þá stund-
ina. Það var vinnan, fjölskyldan,
pólitíkin eða áhugamálin sem
við ræddum um á okkar vina-
legu nótum. Við höfðum báðir
afskaplega gaman af því að
renna fyrir lax og gátum talað
um laxveiði tímunum saman.
Opnunarferðin hjá ykkur félög-
unum í Miðfjarðará var alltaf
mikið tilhlökkunarefni hjá þér.
Við töluðum oft um að skella
okkur saman í góða veiðiferð en
af því varð reyndar ekki, því
miður, enda fórstu þú allt of
fljótt og óvænt.
Það var mikil gæfa hjá þér að
kynnast henni Siggu þinni og
eignast með henni ykkar glæsi-
legu fjölskyldu. Þú varst líka
mikill hvatamaður í því að
styrkja ættartengslin og leiða
vinnuna í því að koma okkur í
„stórfjölskyldunni“ saman.
Mjög eftirminnileg eru ættar-
mótin sem við héldum á Borg í
Grímsnesi þar sem ættingjar og
fjölskyldur pabba míns og
mömmu þinnar komu saman og
skemmtu sér. Þar náðum við að
kynnast afar vel og njóta þess
að vera saman. Þá var líka frá-
bær hugmyndin hjá okkur
frændsystkinunum, mér, þér,
Kiddý systur og Óla, bróður
þínum, ásamt mökum okkar að
fara að hittast reglulega til
skiptis hvert hjá öðru og borða
saman. Þar gátum við sannar-
lega skemmt okkur saman og
hlegið mikið yfir ýmsu sem upp
hafði komið í gegnum tíðina og
tengdist okkur. Þessi kvöld
urðu síðan kveikjan að því að
við ákváðum að fara saman í ut-
anlandsferð í tengslum við sex-
tíu ára afmæli okkar frænd-
anna. Þetta var ógleymanleg
ferð til Flórída þar sem farið
var til Key West, Fort Lauder-
dale og Orlando, skroppið í sjó-
stangaveiði og fleira, en topp-
urinn var þó vikusigling um
karabísku eyjarnar á einu
stærsta skemmtiferðaskipi í
heimi.
Kæri Raggi frændi, það eru
góðar minningar um ljúfan og
góðan dreng sem lifa. En elsku
Sigga, Dúna, Óli og fjölskyldur,
við Ragna og okkar börn send-
um ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Bjarni Ómar Ragnarsson.
Við andlát Ragnars Arnar
Péturssonar hefur orðið mikill
missir hjá fjölskyldu, ættingj-
um, vinum, bæjarbúum Reykja-
nesbæjar, ásamt fjölmörgu fólki
um land allt sem hann þekktu
af leik eða starfi. Maður á erfitt
með að trúa að þessi sterki per-
sónuleiki sé fallinn frá sem sýn-
ir að það er ljóst að enginn veit
hver er næstur í röðinni til
himna. Sendi mína innstu sam-
úðarkveðju til allra aðstand-
enda.
Við Ragnar kynntumst fyrir
rúmum þrjátíu árum og mynd-
uðust strax sterk vinabönd á
milli okkar þrátt fyrir að vera
frekar ólíkir að mörgu leyti en
eitthvað sérstakt varð til þess
að aldrei kom brot í vinskapinn.
Að spjalla við Ragnar var auð-
velt þar sem hann fylgist ávallt
vel með öllu í þjóðfélaginu og
hafði yfir að búa sérstakri hæfni
til að segja frá og ekki sakaði að
hann hafði nöfn allra sem komu
við sögu á hreinu,enda var fólk
mikilvægt í hans augum, enda
vinamargur.
Þegar Ragnar sagði frá þá
var það gert með nákvæmni og
engu sleppt. Ef hann hafði farið
á mannamót, þar sem boðið var
upp á mat og drykk og margt
var um manninn, þá byrjaði
hann á að segja að tekið hefði
verið á móti þeim hjónunum
með freyðivíni í fordrykk og
þeim síðan vísað til borðs og
þar sátu … og síðan var boðið
upp á hvítt og rautt með gljáðri
nautasteik sem fylgdi … og síð-
an var boðið upp á kaffi og
koníak … og … dansað og hleg-
ið … og hitti þennan og annan
… síðan einhverjar tuttugu
mínútur í viðbót um viðburði
kvöldsins.
Ég hefði sagt að mikið hefði
verið af fólki og það var naut í
matinn og látið þar við sitja.
Ragnar var rökfastur maður
með eindæmum, sem kom hon-
um oftar en ekki til góða þrátt
fyrir að ekki hafi allir verið hon-
um sammála á ákveðnum stund-
um. En þegar fram liðu tímar
sáu margir, sem ekki höfðu
keypt hans rök í fyrstu, að hann
hafði haft rétt fyrir sér eða í
versta falli að betra hefði verið
að fara þá leið sem hann hafði
mælt fyrir. Einn af kostum
hans var hversu góður stjórn-
andi hann var í smáum sem
stærri verkefnum og einstak-
lega fljótur að fá fólk til að gefa
allt sem það átti til í verkin og
vinna þau sem þau væru þeirra
eigin. Þetta gerði hann með
framkomu sinni og þeim per-
sónutöfrum sem hann bjó yfir
sem fyllti fólk af eldmóði í
kringum hann.
Ragnar var aðfluttur
Reykjanesbæingur en það tók
hann stuttan tíma að líta á sig
sem góðan Suðurnesjamann og
fór hann fljótlega að sýna það í
verki. Hann byrjaði á sínum
fyrstu árum að hafa afskipti af
bæjarmálum þar sem honum
var ávallt hugfast að vinna í
þágu íþróttamála. Fáir einstak-
lingar hafa komið að eins mörg-
um þáttaskilum í íþróttamálum
í Reykjanesbæ og lagt eins mik-
inn metnað og hugsjón í að gera
umgjörð íþróttamála eins góða
og kostur var hverju sinni.
Um mann eins og Ragnar eru
til ótal skemmtilegar sögur og
viðburðir sem hann tengdist um
sína ævi, en þær verða að bíða
betri tíma en verða örugglega
rifjaðar upp hjá fjölskyldu og
vinum um ókomin ár.
Ragnar var sannur vinur í
raun og þeirra stunda sem við
áttum saman mun ég sakna
mikið.
Guð blessi þig, kæri vinur,
Elvar Gottskálksson.
Hann Raggi okkar kvaddi
snögglega í þetta sinn. Það eru
sérstök forréttindi að fá að hafa
kynnst svona góðum dreng og
hafa haft hann í fjölskyldunni.
Heimsóknir þeirra Siggu og
Ragga til okkar í Hollandi voru
margar og alltaf jafn notalegar
og skemmtilegar.
Þar sem fótbolti var eitt af
mörgum áhugamálum Ragga
mætti hann fyrir nokkrum árum
með synina tvo og tengdason til
að fara á fótboltaleik íslenska
landsliðsins í Hollandi með okk-
ur. Þá var kátt í höllinni og mun
sú ferð seint líða úr minni. Í
sumar átti að endurtaka svona
ferð til Frakklands en hún mun
ekki verða söm án Ragga.
Alltaf var Raggi mættur
fyrstur upp á flugvöll til að taka
a móti okkur, þegar við komum
til landsins og keyrt var beint í
veislukaffi til Siggu.
Seint verður þökkuð hjálp-
semi Ragga og notalegheit við
okkur og strákana okkar.
Þín verður sárt saknað, elsku
Raggi, og erfitt verður að fylla í
það skarð sem þú skilur eftir.
Mörgu og góðu minningarnar
um þig tekur enginn frá okkur.
Missir og söknuður fjölskyld-
unnar er mikill og óskum við
þeim öllum styrks á þeim erfiðu
tímum sem framundan eru.
Edda, Óskar, Sigurður,
Óli og Ásgeir, Hollandi.
Ragnar Örn varð landsþekkt-
ur sem íþróttafréttaritari, en
sterk og hljómmikil röddin var
kunnugleg þjóðinni sem fylgdist
spennt með íþróttalýsingum í
útvarpi. Hann talaði kjark í
hlustendur í lýsingum sínum og
þegar hann lýsti landsleikjum
landsliðsins í fótbolta hafði mað-
ur það á tilfinningunni að þessi
kraftmikla rödd gæti breytt
gangi leiksins. Tvö núll undir,
en samt blés Ragnar Örn von í
bjóst landsmanna á öldum ljós-
vakans og maður trúði því að
Ragnar Örn
Pétursson