Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 35
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016
Þórður fæddist á Kirkjubóli íHvítársíðu 4.5. 1897. Foreldrarhans voru Eyjólfur Andrésson,
bóndi á Kirkjubóli, og k.h., Guðrún
Brynjólfsdóttir húsfreyja.
Eyjólfur var sonur Andrésar
Magnússonar, hreppstjóra í Syðra-
Langholti í Hrunamannahreppi, af
Reykjaætt, og Katrínar Eyjólfsdóttur,
en Guðrún var dóttir Brynjólfs Stef-
ánssonar, hreppstjóra í Eystri- og
Vestri-Kirkjubæ og á Selalæk á Rang-
árvöllum, og k.h., Vigdísar Árnadóttur
húsfreyju.
Andrés var sonur Magnúsar
Andréssonar, hreppstjóra og alþm. í
Syðra-Langholti. Andrés var bróðir
Helga í Birtingaholti, föður Ágústs,
alþm. í Birtingaholti. Eyjólfur var
bróðir Katrínar, ömmu Guðmundar Í.
Guðmundssonar ráðherra, og bróðir
Magnúsar, prófasts og alþm. á Gils-
bakka, föður Péturs ráðherra. Bróðir
Þórðar Eyjólfssonar var Andrés,
alþm. í Síðumúla.
Eiginkona Þórðar var Halldóra
Magnúsdóttir húsfreyja og eignuðust
þau þrjú börn. Magnús, framkvæmda-
stjóra NATÓ á Íslandi, föður Kjartans
borgarfulltrúa og Andrésar blaða-
manns; Ragnheiður, lengi fulltrúi hjá
RÚV, móðir Láru Magnúsdóttur dr. í
sagnfræði, og Guðrúnu, kennara í
Reykjavík, móður Þórðar Þórarins-
sonar, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins.
Þórður lauk stúdentsprófi frá MR
1920, embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1924, stundaði framhaldsnám í lög-
fræði í Berlín 1928-29 og í Kaup-
mannahöfn 1929 og lauk doktorsprófi
frá HÍ 1934.
Þórður var fulltrúi hjá bæjarfóget-
anum í Reykjavík 1924-28 og kenndi
jafnframt við Verslunarskóla Íslands,
sinnti ýmsum lögfræðistorfum í
Reykjavík 1930-33, var skipaður
lagaprófessor við HÍ 1934 og var
hæstaréttardómari 1935-66.
Þórður var formaður yfirskatta-
nefndar Reykjavíkur 1932-35, formað-
ur Sakfræðingafélags Íslands og sat í
ýmsum opinberum nefndum auk þess
sem hann var mikilsvirkur fræðimað-
ur á sviði lögfræði.
Þórður lést 27.7. 1975.
Merkir Íslendingar
Þórður Eyjólfsson
í þróun sjávarorkutækni hérlendis.
Sjávarorka er þó ein umfangsmesta
orkuauðlind landsins, sú eina sem er
fyllilega fyrirsjáanleg og unnt er að
nýta án nokkurra þekktra umhverfis-
áhrifa.
Verkefnið hefur notið stuðnings
Tækniþróunarsjóðs en stuðningur við
nýsköpun er því miður mjög brota-
kenndur. Á þeim sviðum erum við
meðal vanþróuðustu ríkja. Stjórnvöld
undirrita t.d. Parísarsáttmálann með
annarri hendi en eyðileggja Orkusjóð
með hinni. Ég held að nú sé enginn
hverfill nær því marki að geta nýtt
orku annesjarasta á hagkvæman hátt.
Þar eigum við mikil sóknarfæri.“
Valorka hlaut m.a. gullverðlaun
IFIA, Alþjóðasamtaka hugvits-
manna, árið 2011. Margir hafa lagt
verkefninu lið og nýlega var efnt til
samstarfs við erlenda aðila. Fyrstu
sjóprófanir sjávarvirkjana hófust í
Hornafirði árið 2013 og er fyr-
irhugað að halda áfram í sumar:
„Hverflaþróun er tímafrek, en sá
tími nálgast að umhverfisvæn orka
sjávar verður einn af okkar mik-
ilvægustu orkugjöfum.“
Valdimar hefur verið formaður
Samtaka frumkvöðla og hugvits-
manna um nokkurra ára skeið;
hvatamaður og formaður samtaka
um stofnun tæknimiðstöðvar og hef-
ur setið í stjórnum félaga á sviði
menntunar og nýsköpunar.
Valdimar les mikið, grúskar, fer í
gönguferðir og sígur í björg. Hann er
nú að ljúka upphleðslu á elsta húsi
landsins til atvinnunota, hesthúsinu á
Hólum í Kollsvík, steinhlöðnu torf-
húsi með helluþaki sem var byggt um
1650. Hann grúskar í sögu og minjum
í Kollsvík og semur orðasafn með sér-
kennum málfars þar vestra. Í safninu
eru þegar skýrð um 25 þúsund orð og
orðtök, en af þeim eru um 3 þúsund
óskráð í Orðabók HÍ. Þá hefur hann
sett fram tilgátu um tilurð frostgíga,
sem eru algengir kringum Kollsvík
og nágrenni. Þetta náttúrufyrirbæri
hefur ekkert verið rannsakað hér og
lítið annars staðar.
Fjölskylda
Eiginkona Valdimars er Guðbjörg
Sigurðardóttir, f. í Djúpuvík á
Ströndum 15.10. 1953, húsfreyja.
Foreldrar hennar voru Sigurður
Pétursson, f. 6.3. 1912, d. 8.6. 1972, út-
gerðarmaður frá Bolungarvík, og Ína
Jensen, f. 2.10. 1911, d. 17.2. 1997,
húsfreyja frá Árneshreppi. Þau
bjuggu um tíma á Kúvíkum og
Djúpuvík en síðan í Reykjavík. Guð-
björg var áður gift Eyvindi Jóhanns-
syni og á með honum tvö börn.
Valdimar var áður í sambúð með
Sigríði Sigurðardóttur frá Steinmóð-
arbæ, f. 14.2. 1945, d. 18.5. 1996.
Stjúpbörn Valdimars eru Jóhann
Eyvindsson, f. 14.12. 1974, kennari
hjá Slysavarnaskóla sjómanna m.m.,
kvæntur Fanny Tryggvadóttur söng-
konu og eru börn Jóhanns Evindur, f.
1995, Rúnar Már, f. 1998, Gabríel Elí,
f. 2000, og Rakel Lilja, f. 2003, og Jón-
ína Eyvindsdóttir, f. 22.1. 1978, forn-
leifafræðingur, gift Eiríki Stefáni
Einarssyni lögregluþjóni og eru börn
þeirra Sigurbjörg Sara, f. 2009, og
Valdimar Einar, f. 2014.
Bræður Valdimars eru Guðbjartur
Össurarson, f. 16.2. 1954, rekur bók-
haldsstofu á Hornafirði; Hilmar Öss-
urarson, f. 2.6. 1960, fyrrv. bóndi í
Kollsvík, nú fjárhirðir í Húsdýragarð-
inum í Reykjavík; Egill Össurarson, f.
16.4. 1964, starfsmaður Fiskmark-
aðar Patreksfjarðar, og Kári Öss-
urarson, f. 7.4. 1969, rafeindavirki á
Patreksfirði.
Foreldrar Valdimars: Össur Guð-
bjartsson, f. 19.2. 1927, d. 30.4. 1999,
bóndi á Láganúpi og oddviti Rauða-
sandshrepps, og Sigríður Guðbjarts-
dóttir, f. 5.8. 1930, á Lambavatni, hús-
freyja og bóndi á Láganúpi, þekkt
fyrir listaverk sín, ekki síst málun á
steinhellur.
Úr frændgarði Valdimars Össurarsonar
Valdimar
Össurarson
Guðbjörg Halldórsdóttir
húsfr. á Grundum
Halldóra Kristjánsdóttir
b. og húsfr. á Lambavatni
Guðbjartur Gísli Egilsson
bóndi og þjóðhagasmiður
Lambavatni á Rauðasandi
Sigríður Guðbjartsdóttir
bóndi og listakona á
Láganúpi
Rebekka Gísladóttir
húsfr. á Lambavatni
Egill Gunnlaugsson
b. á Lambavatni
Guðbjörg Ólína
Guðbjartsdóttir
húsfr. í Kollsvík
Halldóra Guðbjörg Torfadóttir
húsfr. á Lambavatni
Magnús Torfi
Ólafsson ráðherra
Anna Guðrún
Torfadóttir
húsfr. í Stakkadal
Samúel Torfason
framkvæmdastj. í Rvík
Ólafur
Magnússon
b. á Hnjóti
Torfi Ólafsson
form.
Kaþólskra
leikmanna
Ásbjörn Jónsson
verslunarm. og þekktur bridsleikari
Árni Samúels-
son bíóforstjóri
Egill Ólafsson
safnvörður
og flugvallar-
stj. á Hnjóti
Ólafur Torfason
kvikmynda-
gagnrýnandi
Jón
Ásbjörnsson
fiskútflytjandi
Sveinn Ólafsson
myndskeri
Anna Guðrún Jónsdóttir
húsfr. á Hnjóti og Láganúpi
Magnús
Árnason
b. á Hnjóti í
Örlygshöfn
Hildur Magnúsdóttir
b. og húsfr. í Tröð og Láganúpi
Guðbjartur Guðbjartsson
b. og form. í Tröð og síðar á Láganúpi
Össur Guðbjartsson
oddviti á Láganúpi í Kollsvík
Guðrún A. M. Halldórsdóttir
húsfr. í Kollsvík
Guðbjartur Ólafsson
b. í Kollsvík í Rauðasands-
hreppi, af Kollsvíkurætt
Kristján Ásbjörnsson
b. á Grundum í Kollsvík
Ástríður Ásbjörnsdóttir
húsfr. á Deildará í Múlasveit
95 ára
Ragnheiður Pálsdóttir
90 ára
Elín Guðjónsdóttir
Ólína Sæmundsdóttir
85 ára
Óskar Sigurðsson
Pálmi Finnbogason
Steinþóra Jóhannesdóttir
80 ára
Elsa Böðvarsdóttir
Gerður Þorsteinsdóttir
Kristbjörg Guðmundsdóttir
Unnur Jónsdóttir
75 ára
Þorkell Erlingsson
Þórdís Óskarsdóttir
Þórólfur Jónsson
70 ára
Ástþór Ragnarsson
Björgvin Víglundsson
Hafsteinn Kristinsson
Kristinn G. Garðarsson
Ólína Eygló Ólafsdóttir
Rafn Sævar Heiðmundsson
Ægir Geirdal Gíslason
60 ára
Ari Guðmundsson
Ásgeir Bjarnason
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Dóra Axelsdóttir
Edda Stefánsdóttir
Erla Lind Þorvaldsdóttir
Frímann Sigurnýasson
Guðni Þór Ingvarsson
Gunnar Sigurðsson
Hallgrímur Arnalds
Reynir Einarsson
Sólrún Elídóttir
Valdimar Össurarson
50 ára
Carmen Valencia Palmero
Guðmundur Guðlaugur
Gunnarsson
Hólmfríður Birgisdóttir
Hulda Ingvadóttir
Margrét Traustadóttir
Sólveig Sigríður
Einarsdóttir
40 ára
Arna Friðriksdóttir
Bjarki Þór Eliasen
Bryndís Þorkelsdóttir
Guðbjörg Torfadóttir
Hafliði Þorkell
Rúnarsson
Hildur Brynja
Sigurðardóttir
Ingólfur Örn Ingvason
Lilja Debóra Ólafsdóttir
Tomasz Piotr Rozanski
30 ára
Anna Björg Helgadóttir
Arnar Logi Kristinsson
Atli Hilmar Skúlason
Inga Ósk Áslaugsdóttir
Joao Filipe Vieira
Kristján Einarsson
Kristján Grímur
Hermannsson
Óskar Fannar
Guðmundsson
Tadas Nogaitis
Til hamingju með daginn
30 ára Arnar Logi ólst
upp í Reykjavík, býr í Vog-
unum og er starfsmaður
hjá Securitas.
Maki: Hildigunnur Jón-
asdóttir, f. 1987, lögfræð-
ingur.
Sonur: Tristan Logi, f.
2009.
Foreldrar: Díana Vera
Jónsdóttir, f. 1957, hár-
greiðslumeistari, og Krist-
inn Svansson, f. 1955, d.
1994, vörubifreiðarstjóri
og verktaki.
Arnar Logi
Kristinsson
40 ára Lilja býr á Ísafirði,
stundar nám í leikskóla-
fræði við HÍ og starfar við
leikskóla.
Maki: Sæmundur Guð-
mundsson, f. 1977,
mjólkurbílstjóri.
Börn: Jakob Fannar, f.
1996; Katla María Magda-
lena, f. 2003, og Tómas
Geiri, f. 2006.
Foreldrar: Ólafur Vil-
hjálmsson, f. 1927, d.
2015, og Helga Kristjáns-
dóttir, f. 1939, d. 2008.
Lilja D.
Ólafsdóttir
40 ára Hildur ólst upp í
Sandgerði og Hafnarfirði,
býr í Hafnafirði og er
hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðir.
Maki: Erlendur G. Guð-
mundsson, f. 1976, starf-
maður hjá Metal ehf.
Börn: Emil Snær, f. 2005;
Ívar Elí, f. 2008, og Íris
Embla, f. 2011.
Foreldrar: Sigríður Á.
Árnadóttir, f. 1950, og
Sigurður G. Guðjónsson,
f. 1949, d. 1996.
Hildur Brynja
Sigurðardóttir
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Frá
morgni
líkama
og sál
fyrir alla
fjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir
líkama
Laugarnar í Reykjavík