Morgunblaðið - 04.05.2016, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Persóna, sýning Íslenska dans-
flokksins, verður frumsýnd í kvöld
kl. 20 á Nýja sviði Borgarleikhúss-
ins þar sem tvö
ný dansverk eft-
ir þrjá íslenska
danshöfunda
verða frumflutt.
Þetta eru verkin
„Neon“ eftir
Hannes Þór Eg-
ilsson og „What
a feeling“ eftir
Höllu Ólafsdótt-
ur og Lovísu
Ósk Gunnars-
dóttur.
„Neon“ er
frumraun Hann-
esar Þórs sem
danshöfundar.
„Ég vildi gera
verk sem væri
„púra“ dansverk.
Þetta er ab-
strakt. Það er
engin saga. Eng-
in rannsóknar-
vinna,“ segir
Hannes Þór um
verkið „Neon“.
„Ég hef verið að
leita að mínum
hreyfistíl. Mig
langar að fólk
geti þekkt stílinn
minn um leið og
það sér dans-
sporin eins og
t.d. í tónlist, þá
þekkir fólk höfund tónlistarinnar
um leið og það heyrir hana,“ segir
Hannes Þór.
Ákveðinn hreyfistíll
Honum fannst ákveðinn stíll
myndast í lokin þegar verkið hafði
tekið á sig mynd. Afraksturinn
kom honum skemmtilega á óvart
því hann renndi blint í sjóinn.
Hann leitaði jafnframt eftir stíl og
hreyfingum sem áhorfendum þætti
gaman að horfa á og væri bæði
fyrir augu og eyru. Í þessu sam-
hengi bendir hann á að dansverk-
um hætti til að miðla tiltekinni
sögu þar sem ekki er lagt eins
mikið upp úr danssporum.
Í „Neon“ er hvert spor gaum-
gæfilega valið og áhersla lögð á
mikilvægi hverrar einstakrar
hreyfingar.
Hannes hóf æfingaferlið fyrir
verkið með óskrifað blað og samdi
allar hreyfingar verksins í æfinga-
stúdíói Íslenska dansflokksins með
dönsurunum. Hann er ánægður
með frumraunina og segir margt
hafi farið fram úr hans björtustu
vonum.
Sólódans á stöllunum
Sólódans varð fyrir valinu hjá
danshöfundunum þeim Höllu
Ólafsdóttur og Lovísu Ósk Gunn-
arsdóttur í „What a feeling“.
„Okkur langaði að skoða aðferðina
við að búa til dans. Gera sköpunar-
ferlið gegnsætt. Það er algengt í
dag að danshöfundur komi inn með
hugmynd og vinnur svo náið með
dönsurunum. Oft upp að því marki
að höfundarétturinn er kominn á
grátt svæði,“ segir Lovísa Ósk.
Halla tekur undir og bætir við:
„Og líka að skoða hlutverk dans-
arans sem höfundar.“ Í þessu sam-
hengi bendir Lovísa á að þær leggi
áherslu á að draga fram ein-
staklinginn í sköpunarferlinu. „Oft
á tíðum þegar maður er í hópverk-
efnum þar sem listrænt framlag
manns er mikið sjá áhorfendur
nafnlausa heild þegar dansararnir
standa á sviðinu. Okkur langaði að
grafa ofan í þetta allt saman,“ seg-
ir Lovísa.
Til þess að ná þessu fram skrif-
uðu danshöfundarnir dönsurunum
bréf. Í bréfinu útskýrðu þær
hvernig þær vildu skapa uppá-
haldsdansinn þeirra og lögðu fyrir
dansarana rúmlega 30 spurningar
til að komast nær uppáhalds-
dansinum.
Verkefnið snýst einnig um að
sameina hið talaða orð og tungu-
mál dansins. „Við höfum svo mik-
inn áhuga á því sem er til hliðar
við sjálfan dansinn. Hvaða orð við
notum og hugtök,“ segir Halla.
Þegar þær voru búnar að vinna
úr spurningalistunum lögðu þær
verkefni eða tiltekna formúlu fyrir
dansarana til að setja verkefnin
inn í. Eftir það fór boltinn að rúlla
og skiptust dansarar og höfundar
á hugmyndum. „Við vildum að
dansararnir héldu sérstöðu sinni,“
segir Halla.
Þeim finnst hugmyndin um
frumleika vera ofmetin í nútíma-
samfélagi. Í listsköpun sinni að
þessu sinni kjósa þær frekar að
taka efni sem er til og setja það
saman á annan og nýjan hátt í von
um að hið einstaka brjótist fram.
Rýnt í höfundarétt í danssköpun
Persóna, sýning Íslenska dansflokksins, frumsýnd í kvöld Tvö ný íslensk verk frumflutt
Neon er frumraun Hannesar Þórs Egilssonar „Skoða hlutverk dansarans sem höfundar“
Ljósmyndir/Jónatan Garðarsson
Neon „Mig langar að fólk geti þekkt stílinn minn um leið og það sér danssporin,“ segir Hannes Þór Egilsson.
What a feeling Einar Aas Nikkerud í sólóinu sínu í What a feeling.
Hannes Þór
Egilsson
Lovísa Ósk
Gunnarsdóttir
Halla
Ólafsdóttir
Benedikt Hjartarson, prófessor í
almennri bókmenntafræði við Há-
skóla Íslands, flytur hádegisfyrir-
lestur um Listvinafélag Íslands í
lestrarsal Safnahússins við
Hverfisgötu í dag kl. 12-13. Í ár
eru liðin 100 ár frá því að List-
vinafélag Íslands var stofnað í
Reykjavík. Af því tilefni efndi
Listfræðafélag Íslands í vor til
hádegisfyrirlestra um Listvina-
félagið og efni tengd því.
Erindi Benedikts ber titilinn
Fyrsta almenna listasýningin 1919:
Um Listvinafélagið og mótun ís-
lenskrar fagurmenningar, og er
jafnframt fjórði og síðasti fyrir-
lesturinn.
Í erindinu verður fjallað um
fyrstu árin í starfsemi Listvina-
félagsins og leitast við að setja
þau í hugmynda- og menningar-
sögulegt samhengi.
Í forgrunni verður fyrsta al-
menna íslenska listasýningin árið
1919 og þær hræringar sem
greina má í íslensku menningarlífi
á þeim tíma. Á árunum 1919 og
1920 rata nýjar og framsæknar
listhreyfingar í Evrópu, á borð við
fútúrisma, dadaisma og kúbisma,
af krafti inn í íslenska menningar-
umræðu og gegna mikilvægu hlut-
verki við mótun hugmyndarinnar
um íslenska nútímalist.
Fyrirlesarar eru félagsmenn
Listfræðafélags Íslands og eru all-
ir velkomnir.
List Benedikt Hjartarson heldur erindi í dag um Listvinafélag Íslands.
Rætt um fyrstu ár
Listvinafélagsins
Síðumúla 11 - Sími 568-6899 - Opið virka daga: 8 til 18; Laugardaga 10 til 14 - www.vfs.is
32.900
Verð
Milwaukee Hleðsluborvél
Borvél frá Milwaukee M12.
Átak 30Nm, kemur með 2x2,0 Ah
rafhlöðum og hleðslutæki.
MW 4933441915
74.900
Verð
Milwaukee borvélasett
Borvél M18 og M12 saman í pakka.
Með fylgja 2x4,0 Ah, 1x2,0Ah rafhlöður
og hleðslutæki.
MW 4933451017
Milwaukee hitajakki Camo
Vandaður hitajakki sem gengur
fyrir M12 rafhlöðum, 3 hitastillingar.
Kemur án rafhlaðna og hleðslutækis.
Til í stærðum M, L, XL
19.990
Verð
Herslulykill 2130XP
Léttur herslulykill frá Ingersoll Rand
Hersla: 34-474 Nm
Losun: 816 Nm
IR 80136112
36.900
Verð