Morgunblaðið - 04.05.2016, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2016
Svissneski hönn-
uðurinn Niklaus
Troxler flytur
fyrirlestur í sal
Arion banka í
dag, miðviku-
dag, kl. 17.30.
Fjallar hann þar
um hönn-
unarverk sín.
Troxler hefur
meðal annars hannað fjölda vegg-
spjalda fyrir djasstónleika og
djasshátíðir, leikhús og alls kyns
tónleika auk verkefna sem tengj-
ast stjórnmálum og umhverfi.
Troxler hefur rekið eigið hönn-
unarstúdíó í París síðan 1973.
Niklaus Troxler
fjallar um hönnun
Niklaus Troxler
Ný og glæsileg safnbygging sam-
tímalistasafns San Francisco-borgar
í Bandaríkjunum, San Francisco
Museum of Modern Art (SFMoMA),
hefur vakið mikla athygli. Hvít sjö
hæða byggingin, sem mörgum þykir
minna á rjómatertu, er hönnuð af
norsku arkitektunum í Snøhetta
sem hafa hannað menningarhús víða
um lönd eftir að óperuhús þeirra í
Ósló sló í gegn. Arkitektarnir segj-
ast hafa horft til báranna á San
Francisco-flóanum þegar þeir hönn-
uðu ytra byrði hússins.
Safnið verður opnað 14. maí næst-
komandi í þessum nýju salar-
kynnum, sem leggjast við eldri safn-
byggingu og meira en þrefalda
sýningarrýmið. Blaðamenn hafa
fengið að skoða safnið síðustu daga
og hefur það hlotið mikið lof fyrir
hönnunina, sem þykir styðja af-
burðavel við listaverkin. Þá hefur
fjöldi nýrra verka í safneigninni vak-
ið verðskuldaða athygli. Fyrir vikið
þykir SFMoMA blanda sér í keppn-
ina við MoMA í New York og Getty-
safnið í Los Angeles um ferskasta
og forvitnilegasta samtímasafn
Bandaríkjanna – auk þess sem þar
er nú meira pláss fyrir samtímalist
en í hinum söfnunum. Og talið er
víst að listunnendur alls staðar að
flykkist til borgarinar að skoða.
1.100 verk Fisher-hjónanna
Um 3.000 ný listaverk munu hafa
bæst í safneign SFMoMA, en þar
vekur hvað mesta athygli lán til
hundrað ára á um 1.100 verkum úr
eigu Fisher-hjónanna, stofnenda
GAP-fatakeðjunnar, sem hafa verið
einhverjir mikilvirkustu safnarar
samtímalistar undanfarna áratugi.
Hingað til hafa verkin aðeins verið
sýnileg starfsmönnum GAP í höf-
uðstöðvunum í San Francisco en
langtímalán safnsins á verkum
þeirra þykir gjörbreyta safneigninni
og var meginástæða þess að ráðist
var í að stækka safnið. Einkum er
um verk eftir bandaríska og þýska
listamenn að ræða. Þar á meðal má
nefna nær 130 verk eftir Sol LeWitt,
45 eftir Alexander Calder, 41 eftir
Ellsworth Kelly og 24 eftir Gerhard
Richter. Sumir salir safnsins hafa
verið hannaðir sérstaklega fyrir
verk úr safni Fisher-hjónanna, til að
mynda átthyrnt herbergi fyrir sjö
málverk eftir Agnesi Martin sem
þykir minna á kapellu.
Ljósmyndir og innsetningar
Í SFMoMA er nú meira rými lagt
undir ljósmyndalist en í öðrum
bandarískum söfnum, þar er sérstök
deild fyrir teikningar og stórt verk-
stæði fyrir forverði. Þá er anddyri
nýju safnbyggingarinnar, sem opið
er öllum endurgjaldslaust, lagt und-
ir stórar innsetningar. Nú er þar
213 tonna stálskúlptúr eftir Richard
Serra, úr safni Fisher-hjónanna, en
Serra er höfundur Áfanga í Viðey,
verks sem hann gaf Íslendingum.
Stjórnendur SFMoMA segjast
meðvitaðir um að meirihluti verk-
anna í Fisher-safninu sé eftir hvíta
karlmenn og hafa þeir reynt að
bæta úr því með því að kaupa og
þiggja að gjöf verk eftir konur og
listamenn víðs vegar að úr heim-
inum, auk þess sem safnað hefur
verið verkum eftir bestu fulltrúa
heimamanna og athyglisverða unga
listamenn.
Stærsta samtímalistasafnið
Samtímalistasafn San Francisco opnað í nýrri safnbyggingu sem Snøhetta
hannaði Rómað listaverkasafn stofnenda GAP fengið að láni til 100 ára
AFP
Listaverk Á svölum utan á hinni nýju safnbyggingu í San Francisco. Arkitektarnir höfðu bárurnar á flóanum í
huga þegar þeir hönnuðu ytra byrði hússins. Í safninu er fjórðungi meira sýningarrými en í MoMA í New York.
Fjölbreytilegt Gagnrýnendur hrósa því hve vel verkin sitja í nýjum sölum.
Veggteikning Gestur í einum salanna með verkum eftir Sol LeWitt.
Hiphop-söngleikurinn Hamilton,
sem fjallar um landsfeður Banda-
ríkjanna, er tilnefndur til 16 Tony-
verðlauna. Aldrei áður hefur einn
söngleikur hlotið jafnmargar til-
nefningar. Söngleikurinn er þegar
orðinn sá mest sótti á Broadway í
áraraðir. Gagnrýnendur og áhorf-
endur hafa lofað sýninguna í há-
stert og uppselt er á allar sýningar.
New York Times segir leikverkið
ná þeirri sérstöðu að teygja sig
rækilega inn í dægurmenninguna.
Höfundur sýningarinnar er Lin-
Manuel Miranda en hann er marg-
verðlaunaður og hefur m.a. hlotið
Pulitzer-verðlaunin.
Áhugi á öllu sem tengist sýning-
unni er mikill. Hann sést glögglega
m.a. á samfélagsmiðlum, sjón-
varpsþáttum, lögum úr söng-
leiknum og bókum um það sem
gerist bak við tjöldin, svo fátt eitt
sé nefnt. Talið er víst að gríðarlega
margir horfi á Tony-verðlaunahá-
tíðina sjálfa.
Söngleikirnir Billy Elliot (2009)
og The Producers (2001) voru báð-
ir tilnefndir til 15 Tony-verðlauna
hvor. Söngleikurinn The Produ-
cers hlaut alls 12 Tony-verðlaun
það árið og er jafnframt sá söng-
leikur sem hefur hlotið flest verð-
laun. Það verður fróðlegt að sjá
hvort Hamilton jafni metið þegar
verðlaunin verða veitt 12. júní.
16 tilnefningar Hip-hop-söngleikurinn hlýtur 16 tilnefningar.
Flestar tilnefningar í sögu
Tony-verðlaunanna
CAPTAIN AMERICA 3D 6, 9
CAPTAIN AMERICA 10:25
RATCHET & CLANK 5:50 ÍSL.TAL
HUNTSMAN: WINTERS WAR 10:10
THE BOSS 5:50, 8
MAÐUR SEM HEITIR OVE 8
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar