Morgunblaðið - 04.05.2016, Síða 44
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 125. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Hver er þessi Guðni Th.?
2. Gagnrýnir hamingjuóskir Sigmundar
3. Rikka lenti í hjólreiðaslysi á Spáni
4. „Hún vissi að hún færi snemma …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Stefán S. Stefánsson, saxófónleik-
ari og djasstónskáld, stjórnar djass-
hljómsveit Winnipeg-borgar í Kanada
á tónleikum á sunnudaginn kemur.
Sveitin flytur þá stórsveitarsvítu
Stefáns, Íslendingur í Alhambrahöll,
en fyrir hana hreppti Stefán íslensku
tónlistarverðlaunin í fyrra í flokki
djasstónlistar. Undir stjórn Stefáns
mun stórsveitin einnig leika vinsæl
og þekkt sönglög sem söngkonan
Stacey Natrass flytur, en hún nýtur
mikilla vinsælda í Winnipeg og er
þekkt fyrir að syngja kanadíska þjóð-
sönginn ítrekað á úrslitaleikjum í
ísknattleik þar í landi.
Morgunblaðið/Einar Falur
Stefán stjórnar svítu
sinni í Kanada
Á útskrifartón-
leikum Heklu
Magnúsdóttur í
menningarhúsinu
Mengi í kvöld kl.
21 mun hljóma
verk sem hún hef-
ur samið fyrir hið
óvenjulega hljóð-
færi þeramín.
Hekla er að út-
skrifast af nýmiðlabraut í tónlistar-
deild Listaháskóla Íslands. Hún er
sjálflærð á þeramín og hefur tekist á
við að kanna mismunandi möguleika
þessa syngjandi rafhljóðfæris og hef-
ur samið fyrir það ólík verk. Á tón-
leikunum hljómar verkið „>2 en
<30“, en það samdi Hekla fyrir tvö
eða fleiri þeramín en þó færri en 30.
Hún flytur verkið ásamt Jesper Ped-
ersen og blandast raddirnar sem þau
framkalla kór af þeramíndróni og
þeramínfuglum.
Hekla flytur tónverk
sitt fyrir þeramín
Á fimmtudag og föstudag Norðan 8–15 m/s með rigningu,
slyddu eða snjókomu, en úrkomulítið sunnantil á landinu. Hiti 0 til
10 stig, hlýjast syðst.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustanátt, 2-12 m/s, og dálítil rigning
eða slydda norðvestantil. Norðan 10-15 m/s síðdegis og rigning
eða slydda, einkum eystra, en þurrt suðvestantil. Hiti 0 til 10 stig.
VEÐUR
Viðar Örn Kjartansson var
fyrsti maður í lið vikunnar
sem birtist í íþróttablaði
Morgunblaðsins í dag, en
þetta er í fimmtánda sinn
sem blaðið birtir úrvalslið
íslenskra knattspyrnukarla,
hvar sem þeir spila í heim-
inum, á þessu ári. Viðar
skoraði þrennu fyrir Malmö
í sænsku úrvalsdeildinni
og var fyrstur Íslend-
inga til að afreka það
á þessu ári. »1
Viðar Örn fyrstur
með þrennu í ár
Afturelding leikur til úrslita um Ís-
landsmeistaratitil karla í handbolta,
annað árið í röð, eftir að hafa slegið
út bikarmeistara Vals í fimm leikja
undanúrslitaeinvígi.
Framlengja þurfti
dramatískan
oddaleik liðanna á
Hlíðarenda í gær-
kvöld. »2
Afturelding aftur í úrslit
eftir mikla dramatík
Þrír leikmenn úr ÍBV eru í úrvalsliði 1.
umferðar Pepsi-deildar karla í knatt-
spyrnu sem Morgunblaðið hefur val-
ið, en Eyjamenn hófu Íslandsmótið á
4:0-sigri á ÍA. Sá leikmaður sem
Morgunblaðið varpar ljósi á að þessu
sinni er Aron Bjarnason. Samherji
hans hjá ÍBV og áður Fram segist
strax hafa séð að hann væri með
„dúndurhæfileika“. »2
Þrír Eyjamenn í fyrsta
úrvalsliði sumarsins
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Bræður munu berjast sagði í Völu-
spá og sú verður raunin í kvöld þeg-
ar bræðurnir Arnar Gunnarsson og
Stefán Árnason, þjálfarar hand-
knattleiksliða Fjölnis og Selfoss,
stýra liðum sínum í oddaleik úrslita
1. deildar. Hvort lið hefur unnið tvo
leiki og mun sigurvegari viðureign-
arinnar fara upp í efstu deild á
næstu leiktíð. Stefán og Arnar eru
sammæðra, en faðir Stefáns og upp-
eldisfaðir Arnars er Árni Jakob
Stefánsson, sem er mörgum hand-
boltaunnendum kunnur enda þraut-
reyndur þjálfari.
Arnar er 38 ára en Stefán þrítug-
ur. „Ég ólst upp sem krakki með
Árna á Akureyri og fór með honum
á allar æfingar og upplifði hans fót-
bolta- og handboltaár sem þjálfari
og svo þegar ég gat ekki spilað leng-
ur var annaðhvort að fara að gera
eitthvað annað eða fara að þjálfa,“
segir Arnar. Hann segir að sam-
skipti þeirra séu í lágmarki meðan á
rimmunni standi. „Samskiptin eru
bara núll,“ segir Arnar. Hann segir
hins vegar að alla jafna spjalli þeir
mikið saman um handbolta. Hann
viðurkennir að nokkur rígur sé á
milli þeirra bræðra þessa dagana.
„Annað væri óeðlilegt,“ segir Arnar.
Hafa ekkert um að ræða
Fjölnir og Selfoss munu mætast í
níunda skiptið á tímabilinu í kvöld.
Hafa Fjölnismenn sigrað sex sinn-
um en Selfyssingar unnið síðustu
tvo leiki. Aðspurður segir hann að
stöku sinnum hafi kastast í kekki á
milli þeirra bræðra meðan á leikjum
standi. „Bara einhverjar smávægi-
legar glósur. Ég er reyndar eigin-
lega aldrei að atast eitthvað út í and-
stæðinginn,“ segir Arnar í gaman-
sömum tón.
Stefán viðurkennir að sérstakt sé
að mæta bróður sínum. „Þetta er
svolítið öðruvísi en að mæta öðrum
þjálfurum þó að maður reyni að
halda undirbúningi eins og venju-
lega,“ segir Stefán. Hann segir að
þeir bræður hafi stúderað íþróttina í
sameiningu í gegnum árin og fyrir
vikið sé margt líkt í leikstíl liðanna.
„Núna eru samskipti okkar bræðra í
lágmarki. Enda veit ég ekki um
hvað við ættum að ræða þegar svona
stutt er á milli leikja,“ segir Stefán
og hlær.
Ólíkt Arnari spilaði Stefán aldrei í
meistaraflokki í handbolta. Segist
hann hafa ákveðið snemma að þjálf-
un ætti betur við hann.
„Maður var búinn að fylgjast með
gamla manninum lengi og ég áttaði
mig snemma á því að þjálfun ætti
betur við mig. Því fór ég fyrr í þjálf-
unina á meðan Arnar spilaði lengi
og var hörkuleikmaður,“ segir
Stefán.
Bræðrabylta á hliðarlínunni
Stefán og Arn-
ar mætast í úr-
slitarimmu
Feðgar Arnar Gunnarsson og Stefán Árnason með föður sinn og uppeldisföður á milli sín, Árna J. Stefánsson.
Árni Stefánsson, faðir Gunnars og
Stefáns, starfaði lengi við hand-
knattleiksþjálfun og og var m.a.
aðstoðarþjálfari Alfreðs Gísla-
sonar árið 1997 þegar KA varð Ís-
landsmeistari í fyrsta sinn. Þá var
hann um hríð fyrirliði knattspyrnu-
liðs Þórs á Akureyri. Hann segir að
strákarnir hafi báðir fengið
íþróttauppeldi og að þeir hafi verið
með honum í handboltahúsum um
hvippinn og hvappinn á sínum
yngri árum. „Ég er fyrst og fremst
ótrúlega stoltur af þeim. En það
verður að viðurkennast að það er
sérstök tilfinning og gríðarlega
erfitt að þurfa að sitja í miðjunni
og helst þegja á meðan leikurinn
er í gangi. Þeir sem mig þekkja
vita að ég er þekktur fyrir að láta
vel í mér heyra þegar svo ber
undir,“ segir Árni. Hann segist
ræða stuttlega við strákana eftir
leiki en lítið þess á milli. „Þetta er
náttúrulega bara eins og stríð
núna,“ segir Árni, sem á þó von á
því að menn verði búnir að slíðra
sverðin yfir aðfangadagssteikinni.
„Ótrúlega stoltur af þeim“
Á ERFITT MEÐ AÐ SITJA KYRR OG ÞEGJA Á LEIKJUNUM