Morgunblaðið - 03.06.2016, Side 1
F Ö S T U D A G U R 3. J Ú N Í 2 0 1 6
Stofnað 1913 128. tölublað 104. árgangur
STYTTU FERÐALAGIÐ
LENGDU FESTIVALIÐ
SUMARHÁTÍÐIR 2016 FLUGFELAG.IS
IS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
FL
U
80
10
4
06
/1
6
Vertu tímanlega og bókaðu flugið núna á FLUGFELAG.IS
FORSETA-
KOSNINGAR
VIÐTÖL | 48-66
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Guðni Th. Jóhannesson nýtur
stuðnings 54,8% aðspurðra í nýrri
könnun Félagsvísindastofnunar
Háskóla Íslands fyrir Morgunblað-
ið á fylgi við frambjóðendur til
embættis forseta Íslands. Davíð
Oddsson nýtur stuðnings 19,7% að-
spurðra, Andri Snær Magnason,
12,3% og Halla Tómasdóttir 9,5%.
Aðrir frambjóðendur mælast með
undir 2% fylgi.
Halla Tómasdóttir bætir við sig
mestu fylgi frá síðustu könnun Fé-
lagsvísindastofnunar sem birtist
14. maí. Þá mældist hún með 1,5%
fylgi og hefur því bætt við sig um 8
prósentustigum miðað við síðustu
könnun. Guðni Th. Jóhannesson
tapar hins vegar mestu eða rúmum
tólf prósentustigum, en hann
mældist með um 67,1% fylgi í
könnuninni sem Félagsvísinda-
stofnun gerði 12. og 13. maí sl.
Stuðningur við Andra Snæ
Magnason eykst um 4,5 prósentu-
stig og fylgi Davíðs Oddssonar
hefur aukist um 2,3 prósentustig
frá seinustu könnun.
Könnunin var gerð 1. og 2. júní
og náði til 2.000 manns í netpanel
Félagsvísindastofnunar, sem vald-
ir voru með handahófskenndu úr-
taki fólks yfir 18 ára aldri á land-
inu öllu. Alls svöruðu 893
könnuninni og er brúttó svarhlut-
fallið því 45%.
Guðni missir fylgi
Halla Tómasdóttir bætir við sig um átta prósentustigum
milli kannana Davíð mælist með 19,7% og Andri Snær 12,3%
MSveiflur í fylgi við … »18
Kosningar »6, 30
Ný fylgiskönnun
» Nokkrar sveiflur eru í fylgi
við frambjóðendur.
» Guðni mælist með stuðning
rúmlega helmings í könnuninni
en tapar engu að síður miklu
fylgi frá síðustu könnun.
» Davíð, Andri Snær og Halla
bæta við sig fylgi milli kannana.
Vatnajökull kemur allvel undan vetri, að sögn Finns Páls-
sonar, verkefnastjóra í jöklarannsóknum hjá Háskóla Íslands.
angur ásamt hópi vísindamanna til að rannsaka jökulinn bet-
ur. „Sagan er svo ekki öll sögð fyrr en sumrinu lýkur.“
„Snjóalög eru svipuð og hefur verið síðustu fimmtán árin að
meðaltali,“ segir Finnur, en í dag leggur hann af stað í leið-
Vetur konungur færir Vatnajökul í mjúkar hendur sumars á ný
Morgunblaðið/RAX
19% íslenskra stúlkna og 12%
pilta í framhaldsskólum hafa skað-
að sjálf sig einu sinni eða oftar og
rúm 42% stúlkna og 29% pilta sem
stunda nám í framhaldsskólum hafa
einu sinni eða oftar hugleitt sjálfs-
skaðandi hegðun. Þetta sýnir rann-
sókn Rannsóknar & greiningar,
sem gerð var meðal framhalds-
skólanemenda. »46
Sjálfsskaðandi
hegðun er algeng
„Við teljum þetta alls ekki æski-
legt því prófið var fært fram svo
nemendur hefðu 10. bekkinn til að
ná markmiðum sínum. Þegar prófið
er svo fært aftur til loka 10. bekkj-
ar, eins og hér er gert ráð fyrir, þá
er ekki verið að vinna með hags-
muni nemenda að leiðarljósi.“
Þetta segir Guðbjörg Ragnars-
dóttir, varaformaður Félags grunn-
skólakennara, og vísar í máli sínu
til fyrirhugaðra breytinga á fram-
kvæmd samræmdra prófa, en ár-
gangur 2001 mun einn árganga
þurfa að þreyta prófin við lok 10.
bekkjar í stað 9. bekkjar. »4
Ekki með hagsmuni
nema að leiðarljósi
Morgunblaðið/Eyþór
Próf Breytingarnar eru gagnrýndar mjög.
Vinna við undirbúning friðlýsingar
Látrabjargs og nágrennis hefur
verið sett á ís. Ekki hefur tekist að
ná samstöðu meðal landeigenda.
Umhverfisstofnun mun vera með
lágmarksstarfsemi þar í sumar.
Sigrún Ágústsdóttir sviðsstjóri seg-
ir að hætta sé á skemmdum af völd-
um stjórnlausrar umferðar ferða-
fólks og minni möguleikar á að
huga að öryggi fólks. »4
Ósamstaða um frið-
lýsingu Látrabjargs