Morgunblaðið - 03.06.2016, Blaðsíða 20
EM Í FÓTBOLTA KARLA20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Savoy model V458
L 179 cm leður ct.15. Verð 445.000,-
L 223 cm leður ct.15. Verð 495.000,-
Italia
Jóhann Berg Guðmundsson spilaði
tölvuleikinn Counter Strike 1.6
grimmt í tvö ár. Hann prófaði leik-
inn að nýju fyrir skemmstu en var
„ryðgaður“ að eigin sögn. Counter
Strike er fyrstu persónu skotleikur
og einn vinsælasti tölvuleikur sam-
tímans. „Ég var orðinn frekar
grimmur að spila og var bara
þokkalegur. En þegar við fluttum
til Englands var nettengingin svo
léleg að einn daginn kom ég fram
og sagði við mömmu að nú væri
músin farin á hilluna. Hún var mjög
ánægð með þá ákvörðun. Eftir það
var fótboltinn í fyrsta sæti hjá mér.
Ég var búinn að spila grimmt í tvö
ár og þetta var svolítið farið að
bitna á fótboltanum þannig að ég er
mjög feginn að músin hafi farið upp
í hillu.“ Jóhann fylgdist með ís-
lenska landsliðinu í Counter Strike
keppa á Evrópumótinu sem fram
fór fyrir skemmstu. „Þá kíkti ég á
þá og þeir eru miklu betri en ég var
nokkurn tímann. Í dag er þetta orð-
ið mjög stór sena og miklir pen-
ingar komnir í spilin en ég er feg-
inn að hafa valið fótboltann,“ segir
Jóhann Berg. benedikt@mbl.is
Morgunblaðið/Ófeigur
Efnilegur Jóhann Berg hefði getað náð langt í sýndarveruleikanum.
Feginn að músin
fór á hilluna
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður
og leikmaður Udinese á Ítalíu, flyt-
ur inn rauðvín frá Allegrini-
fjölskyldunni í Valpolicella-dalnum
sem er skammt frá Verona, en
Emil spilaði lengi með Hellas
Verona. Vínið er nú fáanlegt í vín-
búðum ÁTVR og þekkist á Alle-
grini-merkingunni. „Ég kynntist
þessum heimi í raun alveg óvart.
Einu sinni var ég með fólk í heim-
sókn hjá mér og við fórum í vín-
smökkum á Allegrini-búgarðinn.
Sonur eigandans var þar og hann
er mikill stuðningsmaður Hellas
Verona. Út frá því byrjaði boltinn
að rúlla og vinskapur okkar varð
meiri og meiri. Ég var oft að hugsa
um hvað það væri skemmtilegt að
flytja rauðvínið hans inn til Íslands
en vissi ekkert hvernig ætti að
gera það og hvernig ég ætti að
haga mér. Svo fékk ég símtal einn
daginn frá Ágústi Reynissyni, sem
á helminginn í Fisk- og Grillmark-
aðnum, því þau langaði að prófa að
flytja inn sitt eigið vín. Þá var ég
kominn með réttu flöskuna og
þetta hefur undið upp á sig,“ segir
Emil.
Valpolicella-dalurinn er að hans
sögn þekktur í vínheimum, en um
200 vínfyrirtæki eru í dalnum. Þar
stendur Allegrini-vínekran fram-
arlega með fjölmörg verðlaun og
viðurkenningar.
Að sögn Emils kom Francisco
Allegrini, sonur eigandans, hingað
til lands fyrir skömmu og lét vel af
dvölinni. „Honum leist vel á land
og þjóð,“ segir Emil.
Morgunblaðið/Golli
Áfram Ísland Eftir aðeins 11 daga verður flautað til leiks Íslands og Portúgal á Evrópumótinu í fótbolta. Strákarnir okkar eru ekki bara fótboltamenn með engin áhugamál.
Flytur inn rauðvín frá
Valpolicella-dalnum
Emil Hallfreðsson er kominn í innflutning á rauðvínum
AFP
Gegn þeim besta Emil spilaði leik gegn Diego Maradona árið 2014.
Húðflúr landsliðsfyrirliðans, Arons
Einars Gunnarssonar, hafa vakið
mikla athygli en þar kennir ýmissa
grasa. Nýverið fékk hann sér póst-
númerið 603 á
handarbakið,
Glerána þar fyrir
ofan og svo Gler-
árkirkju. „Þetta
er bara til að
halda í heima-
hagana. Ég er
stoltur Akureyr-
ingur, hef alltaf
kynnt mig sem
Akureyring og
það er líka mikil-
vægt að muna hvaðan maður er og
hvað ól mann upp,“ segir Aron Ein-
ar, sem ólst upp steinsnar frá Gler-
ánni sem rennur myndrænt á milli
póstnúmersins og kirkjunnar. „Ég
ætlaði alltaf að fá svona húðflúr en
það var alltaf spurning um hvar,
hvernig og hvenær, sérstaklega
þegar maður er byrjaður á þessu.
Það er maður úti sem ég hef farið
til sem gerir flúrin en ég hanna
flúrin. Eða ég setti þetta svona upp.
Þetta er bara mín hugmynd, það er
ekki eins og ég hafi teiknað þetta,“
segir hann og hlær. Aron náði ný-
verið að skjótast norður yfir heiðar
og kíkja á herrakvöld Þórs og hitta
æskufélagana sína. „Það var gott
að komast norður og nauðsynlegt
eiginlega. Sérstaklega af því að
maður sér fram á að komast ekki
aftur heim fyrr en eftir EM. Maður
veit alltaf hvar maður hefur æsku-
félagana og þeir styðja mann heils-
hugar.“ benedikt@mbl.is
Með heimahagana
á handarbakinu
Fyrirliðinn er stoltur Akureyringur
Morgunblaðið/Ófeigur
603 Aron skartar fjölmörgum húð-
flúrum, m.a. af heimahögunum.
Aron Einar
Gunnarsson