Morgunblaðið - 03.06.2016, Síða 32

Morgunblaðið - 03.06.2016, Síða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016 „Framkvæmdir á Hólum vegna landsmótsins eru talsverður biti og kostn- aður við alla þessa uppbyggingu verður um 120 milljónir króna. Þar af leggur ríkið til um 100 milljónir en bilið brúar sveitarfélagið Skagafjörður að stærstum hluta, en framlag þeirra og þátttaka í þessu verkefni hefur verið ómetanleg.“ segir Áskell Heiðar. Hann segist þess fullviss að lands- mót muni gera mikið fyrir Skagafjörð og segir skoðun sína þá að Hólar í Hjaltadal séu glæsilegur staður fyrir landsmót, bæði er náttúrufegurðin mikil, aðstaðan frábær og auk þess sem mótshaldið styðji vel við hesta- fræðideild Háskólans á Hólum. Inn og út úr dalnum „Einn af kostunum við Hóla er síðan sá að mótið verður á litlu og afmörk- uðu svæði. Aðeins stuttur spölur er frá tjaldsvæðum að keppnisvöllum, sem er til þæginda fyrir mótsgesti,“ segir Áskell Heiðar. Hann bætir við að eitt af stóru verkefnunum viðvíkjandi mótið á Hólum sé að tryggja greitt flæði umferðar sem verði beint í tvær áttir í dalnum; það er inn og út. Til að jafna álagið í mótslok verði keppni lokið á laugardagskvöld og þá strax muni væntanlega einhverjir halda heim á leið. Vilji fólk bíða mestu umferðina af sér verði fræðandi hestadagskrá á Hólum allan sunnudaginn og er slíkt nýmæli í landsmótshaldi. Stórt mót á litlu svæði FRAMKVÆMDIR Á HÓLUM FYRIR 120 MILLJÓNIR KRÓNA Hólar Hestamennska er ein af kjarnagreinum í starfi Hólaskóla í Hjaltadal. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Um 4.000 aðgöngumiðar hafa þegar verið seldir að Landsmóti hestamanna sem haldið verður á Hólum í Hjaltadal dagana 27. júní til 3. júlí næstkomandi. Ætla má að það sé um helming- ur, en sé mið tekið af reynslu fyrri ára má vænta á bilinu 8.000 til 10.000 gesta á mótið. „Þetta hefur allt gengið vel, bæði framkvæmdir á Hólum og undirbúningur sjálfs mótsins,“ seg- ir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmda- stjóri mótsins. Landsmót hestamanna eru skemmtileg deigla þar sem fólk víða að úr veröldinni mætist til að fylgjast með frænkum knöpum og fákum. Framfarir í hestamennsku, reiðmennsku jafnt sem ræktun, eru miklar og þykja kunnugir greina mun milli landsmóta, sem haldin eru á tveggja ára fresti. Að þessu sinni verða um 700 hross á landsmótinu, það er í keppni, kynbóta- sýningum og sýningaratriðum. Áhugi, þekking og reynsla „Úrtökur og kynbótasýningar eru komnar aðeins af stað, en þetta gerist annars af mestum þunga í fyrri hluta júnímánaðar og skráning liggur fyrir um miðjan mánuð. Þá smellur þetta allt saman,“ segir Áskell Heiðar. Hann undir- strikar að landsmótshaldið sé samstarfsverk- efni hundraða manna. Hver og einn leggi sitt af mörkum til þess, eftir því hvar áhugi, þekking og reynsla viðkomandi liggur. Sumir sinni framkvæmdum á mótsstað, aðrir tæknimálum, margir sinni gæslu á mótsstað, aðrir við keppn- ishaldið sjálf og svo framvegis. „Þó ég hafi lengi búið í Skagafirði, þar sem áhugi á hestamennsku er mikill, er ég ekki í hestamennsku, hef þó fylgst með og komið að skipulagi landsmóta áður,“ segir Áskell Heiðar. „Menning í kringum þetta mótahald er skemmtileg. Það er mikill þekking og reynsla til í kringum þau og margar skemmtilegar hefð- ir, en fyrst og fremst er margtskemmtilegt fólk sem gaman er að kynnast og vinna með.“ Aðstaðan nýtist til framtíðar Það var um mitt síðasta sumar sem Áskell Heiðar var ráðinn framkvæmdastjóri lands- mótsins. Þá hafði stjórn mótsins ákveðið að mótið skyldi vera á Hólum, en áður hafði verið nokkur rekistefna um staðarákvörðun. Þegar hún lá fyrir var hafist handa um undirbúning framkvæmda á Hólum, svo sem að útbúa áhorf- endasvæði og aðstöðu fyrir tjöld, fellihýsi og slíkt. Þegar eru hins vegar fyrir á Hólum góðir keppnisvellir og ýmis önnur aðstaða, svo sem reiðhallir og hesthús, sem byggð hafa verið upp í tengslum við starfsemi Hólaskóla og nýtt verða á landsmótinu. Aðstaðan sem nú er verið að útbúa nýtist síðan skólanum og starfsemi sem honum tengist þá til framtíðar, eftir að móti lýkur. Mótshaldið er skemmtileg menning  Landsmót hestamanna á Hólum í Hjaltadal er framundan  Miklar framkvæmdir á Hólum í Hjaltadal  Vænta 700 hrossa og 10.000 gesta  Verður dagana 27. júní til 3. júlí næstkomandi Morgunblaðið/Ómar Fánareið Landsmótum hestamanna fylgir stemning þar sem þjóðleg gildi eru í heiðri höfð, jafnvel þótt mótin séu orðin mjög alþjóðlegt. Sprett úr spori í á landsmóti á Hellu fyrir nokkrum árum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Undirbúningur Þekking og reynsla, segir Áskell Heiðar Ásgeirsson framkvæmdastjóri. Baðaðu þig í gæðunum Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.