Morgunblaðið - 03.06.2016, Side 36
Ljósmynd/Hrafnhildur Reynisdóttir
Hrútey í Mjóafirði Æðarbóndi vill að áningarstaðnum verði lokað.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lögreglunni á Vestfjörðum hefur
borist skrifleg kvörtun vegna áning-
arstaðar sem Vegagerðin útbjó í
Hrútey í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi.
Að sögn fulltrúa hjá embætti lög-
reglustjórans á Vestfjörðum er verið
að athuga hvort kvörtunin teljist vera
lögreglumál eða ekki.
Reynir Bergsveinsson, eigandi
Hrúteyjar að undanskildu vegstæð-
inu, lagði kæruna fram. Hann hefur
annast æðarvarp í eynni frá því löngu
áður en Djúpvegurinn var lagður þar
yfir og eyjan tengd við land. Brúin var
opnuð 2009. Reynir segir að eyjan
hafi verið einstakt griðland fugla áður
en vegurinn kom. Hann sagði að þeg-
ar vegarlagningin var undirbúin hefði
aldrei verið minnst á að í eynni yrði
áningarstaður fyrir ferðamenn.
„Ég vil áningarstaðinn afdráttar-
laust burt úr eynni. Það eru áningar-
staðir um allt land en það er ógætilegt
að setja slíkan stað niður í miðri
fuglaparadís,“ sagði Reynir. „Það var
tæplega hægt að velja óheppilegri
stað fyrir áningarstað en þennan, eins
og náttúrufræðingur einn sagði við
mig.“
Reynir kvaðst hafa samþykkt fyrir
sitt leyti að gerður yrði áningarstaður
á austurbakka fjarðarins handan við
brúna. Fólk geti alveg notið þess að
horfa þaðan á fuglalífið í eynni enda
er sundið ekki nema 100 metra breitt.
Hann segir að nú stoppi margir bílar
á hverjum degi í Hrútey. Dæmi eru
um að flutningabílstjórar hafi þar
vagnaskipti og eins er algengt að
gistibílar hafi þar viðdvöl.
„Þegar ég er í eynni kúka ekki
margir ferðamenn á svæðinu, þeir
gera það hinum megin við brúna og
verði þeim að góðu,“ sagði Reynir.
Hann sagði að salernispappír og alls
konar matarumbúðir væru samt um
allt í kringum áningarstaðinn. Þar er
ekkert sorpílát.
„Þessi áningarstaður er notaður al-
veg án tillits til náttúrunnar, hvort
sem er varptími eða annar árstími,“
sagði Reynir. Fólk sem ferðast með
hunda sleppir þeim gjarnan lausum
og leyfir þeim að hlaupa frjálsum, að
sögn Reynis. Stöðug umferð fólks
veldur því að fuglarnir fælast af
hreiðrunum oft á dag og þeir við-
kvæmustu hætta við varp eða álegu.
Þetta tefur æðarvarpið eða spillir því.
Eftir að brúin kom á vargur greiða
leið út í eyna. Minkabani kom í vor og
lagði að velli tvær minkafjölskyldur.
Nú er sú þriðja komin í eyna. Einnig
veiddi Reynir tvær tófur í eynni í vor.
Fjórar aðrar eru í grennd og verður
stundum vart við þær. „Okkur virðist
að þær hafi ekki komið fram enda er
búið að girða varpið af með rækju-
trolli,“ sagði Reynir.
Vill fá áningar-
staðinn burt
Slæm umgengni ferðafólks í Hrútey
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
Bjarni Steinar Ottósson
bso@mbl.is
Umsóknum sem berast á borð Um-
boðsmanns skuldara hefur fjölgað
talsvert milli ára. Fyrstu fimm mán-
uði ársins í ár bárust 55% fleiri um-
sóknir um greiðsluaðlögun og 86%
fleiri umsóknir um fjárhagsaðstoð
vegna skipta-
kostnaðar. Um-
sóknum alls fjölg-
aði milli sömu
tímabila um 29%.
„Það er nóg að
gera hjá okkur,“
segir Ásta Sigrún
Helgadóttir, um-
boðsmaður skuld-
ara. Þrátt fyrir að
efnahagsaðstæð-
ur á Íslandi hafi
breyst talsvert til hins betra á síðustu
árum er enn stöðug eftirspurn eftir
þjónustu embættis hennar. „Það eru
umsóknir um úrræði að berast í
hverjum mánuði. Árið 2011 var það
stærsta hjá okkur en t.d. í júní það ár
bárust um 800 umsóknir um greiðslu-
aðlögun einungis.“ Til samanburðar
bárust 36 umsóknir um greiðsluað-
lögun í maí sl.
Leigjendur enn áberandi
Samhliða því að lengra líður frá
bankahruni og þeim skörpu breyting-
um sem urðu á húsnæðislánasafni Ís-
lendinga hefur mikil breyting orðið á
húseignum umsækjenda líkt og kom
fram í Morgunblaðinu í janúar.
Árið 2010 voru 63% umsækjenda
um greiðsluaðlögun í eigin húsnæði
og 27% á leigumarkaði en árið 2015
höfðu hlutföllin snúist við. Þá voru
29% í eigin fasteign og 51% á leigu-
markaði. Segir Ásta þessa þróun hafa
haldið áfram það sem af er þessu ári.
„Það sem við erum að sjá er fólk sem
er að koma aftur til okkar, sem hefur
misst eign sína eða selt og er að sækja
aftur um greiðsluaðlögun eða önnur
úrræði og það er áhyggjuefni,“ segir
hún.
Úrræði embættisins vegna skipta-
kostnaðar tekur til þess trygginga-
fjár, 250.000 kr., sem einstaklingar
þurfa að reiða fram þegar þeir sækja
af eigin frumkvæði um að bú þeirra
sé tekið til gjaldþrotaskipta. Fyrst
þarf fólk þó að hafa leitað annarra úr-
ræða vegna greiðsluvanda.
„Þessi þróun er eitthvað sem ég og
mitt embætti höfum áhuga á að skoða
nánar: Hvað er hægt að gera betur til
að úrræðin virki og til að hjálpa fólki
úr greiðsluvanda til framtíðar?“ Sér-
staklega nefnir Ásta bætt fjármála-
læsi sem dæmi um átak sem gert
gæti gagn.
Mætti tengjast félagsþjónustu
Umsækjendur hjá stofnuninni
spanna alla flóruna en upp á síðkastið
hefur borið meira á umsækjendum
sem þarfnast mikils stuðnings. Ásta
segir fullt tilefni í ljósi þess til að
styrkja tengsl umboðsmanns og fé-
lagsþjónustunnar en viðræður hafa
t.d. farið fram við Reykjavíkurborg
um það. „Það er að myndast ákveðin
hringrás, líkt og hjá Ráðgjafarstofu
heimilanna á sínum tíma sem hafði
sterk tengsl við félagsþjónustuna, en
þá voru ekki til lagaleg úrræði eins og
t.d. greiðsluaðlögun.“
Ásta segir greiningu á eðli skulda
sem knýi fólk til þess að sækja í úr-
ræði embættisins ekki liggja fyrir.
Slíkt væri þó forvitnilegt að sjá í
framtíðinni. „En við erum að sjá hóp
sem er með neikvæða greiðslugetu
þegar tekið er mið af launum fólks og
framfærsluviðmiði. Hjá þessum hóp
náum við oft mjög góðum samningum
um greiðsluaðlögun og samningurinn
er þá þannig að það er algjör eftirgjöf
strax við undirritun hans.“
Þegar mest lét voru starfsmenn
embættisins um hundrað en eru nú
26. Mikil reynsla hefur safnast upp
hjá embættinu á þessum tíma og seg-
ir Ásta mikilvægt að nýta þá þekk-
ingu og reynslu úti í samfélaginu.
Fleiri leita til Um-
boðsmanns skuldara
Umsóknum um greiðsluaðlögun og skiptakostnað fjölgar
Fjöldi umsókna hjá umboðsmanni skuldara
Alls
107
117
128
113
128
99
109
94
106
83
112
96
81
91
108
97
83
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Jan. 2016
Desember
Nóvember
Október
September
Ágúst
Júlí
Júní
Maí
Apríl
Mars
Febrúar
Jan. 2015
Heimild: Umboðsmaður skuldara
Ráðgjöf Greiðsluaðlögun Fjárhagsaðst. v/skiptakostnaðar Erindi
0 20 40 60 80 100 120 140
9
10
12
14
5
7
6
13
7
13
5
9
14
23
9
10
4
21
36
27
22
15
21
23
16
20
17
10
14
8
7
19
10
21
36
26
42
25
24
22
20
20
20
12
14
28
19
18
18
22
22
41
45
55
54
75
51
59
52
53
47
75
49
45
52
48
56
30
Ásta Sigrún
Helgadóttir
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu
fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga
og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt
strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?
Knattspyrnufélagið
Víkingur
Aðalfundur
Knattspyrnufélagsins Víkings
verður haldinn í Víkinni föstudaginn
10. júní kl. 17.30
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Aðalstjórn
Hæstiréttur staðfesti í gær farbann
yfir manni sem átti aðild að stór-
felldu fíkniefnalagabroti þegar flutt
voru inn samtals 19,4 kíló af amfeta-
míni og 2,6 kíló af kókaíni frá Hol-
landi. Manninum er gert að sæta far-
banni þar til dómur fellur í máli hans
en í síðasta lagi til þriðjudagsins 28.
júní. Fjórir karlmenn voru ákærðir
fyrir aðild sína að málinu. Einn
þeirra ók bíl frá Hollandi til Dan-
merkur þaðan sem hann tók Nor-
rænu til Seyðisfjarðar í september
sl. Fíkniefni voru falin í sérútbúnum
geymsluhólfum. Bíllinn var skilinn
eftir í skammtímabílastæði við
Keflavíkurflugvöll og þremur dög-
um síðar komu tveir menn með flugi
til Keflavíkur og ók annar þeirra
bílnum til Reykjavíkur.
Í farbanni eftir stórfellt fíkniefnasmygl