Morgunblaðið - 03.06.2016, Blaðsíða 37
FRÉTTIR 37Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
16
22
01
bmvalla.is
LANDSINSMESTA
ÚRVALAFHELLUM
OGGARÐEININGUM
Þú getur treyst á gæðin og reynslumiklir
sölumenn okkar aðstoða með ánægju
í síma 412 5050 eða á sala@bmvalla.is
Pantaðu tíma í ráðgjöf hjá landslagsarkitektum okkar, sem gefa
góð ráð við útfærslu hugmynda og veita aðstoð við efnisval.
Hentar sérstaklega vel á verandir og
palla. Hellurnar eru með áferð sem
setur skemmtilegan svip á lögnina.
Tvinnar saman stílhreinar útlínur
og fjölbreytta litamöguleika þar sem
hver hella er tilbrigði við sama stef.
Arena VerandaFrí ráðgjöf í júní
Tekjur ríkisins vegna opinberra
gjalda á álver á árunum 2009-2015
voru rúmlega 21,4 milljarðar á
föstu verðlagi. Þetta kom fram í
svari við fyrirspurn Katrínar Jak-
obsdóttur, formanns Vinstri
grænna, á Alþingi til fjármála- og
efnhagsráðuneytisins.
Opinber gjöld greidd af álfyrir-
tækjum breyttust töluvert milli
ára. Lægst námu greiðslur op-
inberra gjalda alls 1.250 millj. kr.
árið 2010 og hæst 4.854 millj. kr.
árið 2011. Á bak við þessa tölu er
tekjuskattur álfyrirtækja, trygg-
ingagjald og útvarpsgjald. Fyr-
irspurnin var í fimm liðum og með-
al annars var óskað eftir
upplýsingum um arðgreiðslur fyr-
irtækjanna en ekki var hægt að
verða við þeirri ósk þar sem fram
kom í svörum Seðlabanka að bank-
inn væri háður þagnarskyldu.
Þau álfyrirtæki sem greiddu
opinber gjöld á tímabilinu 2009-
2015 eru eftirfarandi: Alcoa á Ís-
landi ehf., Alcoa Fjarðaál sf.,
Becromal Iceland ehf., Norðurál
ehf., Norðurál Grundartangi ehf.,
Norðurál Helguvík ehf., Norðurál
Helguvík sf. og Rio Tinto Alcan á
Íslandi hf.
Fyrirtækin greiddu opinber
gjöld allt tímabilið að frátöldu
Norðuráli Helguvík sf. sem var af-
skráð í upphafi tímabilsins og
greiddi því aðeins gjöld árið 2009
að því er fram kemur í svari við
fyrirspurninni. vidar@mbl.is
Rúmlega 21
milljarður
á sjö árum
Álfyrirtækin
greiddu mest 2011
Morgunblaðið/Golli
Kerskáli Álverin skiluðu rúmlega
21,4 milljörðum króna í þjóðarbúið.
Bjarni Steinar Ottósson
bso@mbl.is
Skeljungur áformar byggingu íbúð-
ar- og verslunarhúss á Austur-
strönd á Seltjarnarnesi þar sem
bensínstöð hefur staðið áratugum
saman en hýsir nú kökugerð auk
sjálfvirkra bensíndælna.
Áður en af því gæti orðið þarf
Seltjarnarnesbær að samþykkja
bæði nýtt deiliskipulag og breyt-
ingu á lóðarleigusamningi Skelj-
ungs, sem hefur lóðina á leigu und-
ir fyrrnefnda bensínstöð. Viðræður
hafa staðið yfir milli Skeljungs og
Seltjarnarnesbæjar um nýtingu lóð-
arinnar í nokkurn tíma.
Deiliskipulagið í vinnslu
Bærinn er nú í skipulagsvinnu
fyrir svokallaðan miðbæ – Eið-
istorg, Austurströnd og lóð handan
við Eiðistorg við Nesveg þar sem
eru bílastæði og leikskólar.
Bjarni Torfi Álfþórsson, formað-
ur skipulags- og umferðarnefndar
Seltjarnarness segir það eiga eftir
að koma í ljós hversu lágstemmd
byggð á þessu svæði muni þurfa að
vera. Hún yrði enda staðsett fyrir
framan núverandi byggð á Austur-
strönd. Talsvert er þó í land með að
nýtt deiliskipulag geti tekið gildi.
„Það er hópur að vinna forsögn fyr-
ir deiliskipulagið. Ég reikna með að
hann skili af sér fyrir sumarleyfi og
vísi til bæjarstjórnar. Í framhaldi af
því mun skipulagsnefnd vinna deili-
skipulag byggt á þessari forsögn
sennilega hinum megin við sum-
arfrí,“ segir Bjarni.
Blokk í stað bensínstöðvar
Morgunblaðið/Ómar
Austurströnd Á lóðinni er nú bílaplan, bensíndælur og kökugerð.
Skeljungur áformar íbúðarhús á Austurströnd
Hlutfall þeirra sem nota hjálm á
hjóli stendur nær í stað á milli ára en
88% þeirra sem fóru fram hjá telj-
urum VÍS í maí á þessu ári voru með
hjálm. Í fyrra var hlutfallið 87%.
Þetta er fimmta árið í röð sem VÍS
gerir slíka könnun en í þeirri fyrstu
voru 74% með hjálm.
Notkun hjálma minnkar töluvert
eftir því sem nær dregur miðbænum
en þar notuðu einungis sex af hverj-
um tíu hjálm.
88% segjast
nota hjálm við
hjólreiðar