Morgunblaðið - 03.06.2016, Page 44
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Rúmlega 90.000 her- og lögreglu-
mönnum og öryggisvörðum frá
einkafyrirtækjum er ætlað að
tryggja öryggi Evrópumótsins í
knattspyrnu karla (Euro 2016)
sem hefst í Frakklandi föstudag-
inn í næstu viku, 10. júní, og lýkur
með úrslitaleik um Evróputitil
landsliða þann 10. júlí. Mótinu
þykir ekki einvörðungu stafa ógn
af hryðjuverkahættunni og verk-
fallsaðgerðum heldur eru einnig
uppi efasemdir um öryggi leik-
vanganna tíu sem leikið verður á
víða um land.
Hvað sem þessu líður segir inn-
anríkisráðherrann Bernard Caze-
neuve að ekkert muni koma í veg
fyrir að landsmenn og gestir
þeirra geti lifað eðlilegu lífi meðan
á EM stendur. Reiðir hann sig á
að mestu öryggisráðstafanir í
Frakklandi á friðartímum gangi
upp og stemmi stigu við bæði ógn
af hryðjuverkum og verkföllum.
Stórmót sem EM kalla á gríð-
arlegan viðbúnað.
Í öryggissveitum Euro 2016
verða rúmlega 77.000 liðsmenn
borgaralegu lögreglunnar og her-
lögreglunnar, flestir ef ekki allir
með alvæpni. Einnig 13.000 örygg-
isverðir sem ráðnir eru frá
einkafyrirtækjum, og loks stór
hluti 10.000 hermanna sem þegar
eru á götum borga og bæja vegna
viðbúnaðar gegn hryðjuverka-
starfsemi. Þá munu um 1.000 sjálf-
boðaliðar sinna skyndihjálp á leik-
vöngum Euro 2016. Hverju
þátttökuliði mótsins fylgja síðan
sex lögreglumenn að staðaldri frá
morgni til kvölds.
„Frakkland verður að lifa eins
og verið hefur. Enginn mun koma
í veg fyrir það, allra síst hryðju-
verkamenn, að við lifum eðlilegu
lífi og höldum hátt á lofti gildum
bræðralags og samkenndar
íþróttanna,“ sagði Cazeneuve er
áformin um öryggisvörslu vegna
knattspyrnumótsins voru kynnt.
Hann segir að engar aðgerðir geti
með öllu upprætt hættur.
Bækistöðvar liða víggirtar
Á götum úti hafa laganna verðir
og hermenn í krafti neyðarlaga
ýmis úrræði. Meðal annars geta
þeir stungið einstaklingum sem
taldir eru ógn við öryggi og lög og
reglu í stofufangelsi. Lögin, sem
nýlega voru framlengd þriðja
sinni, leyfa einnig strangara landa-
mæraeftirlit og bann við samkund-
um á almannafæri.
Verulegur viðbúnaður verður
viðhafður af hálfu lögreglu við hót-
el og æfingavelli allra liðanna 24
sem þátt taka í EM. Auk þess
munu hverju liði fyrir sig tengjast
19 liðsmenn sérsveita frönsku lög-
reglunnar sem sérhæfðar eru í
gagnhryðjuverkastarfsemi og til
að takast á við gíslatökur. Hvers
konar flug yfir æfingasvæðum lið-
anna verður bannað. Í stuttu máli
verða hótelin og æfingasvæði lið-
anna eins og virki vegna viðveru
öryggissveita og ráðstafana sem
þar verða viðhafðar meðan á Euro
2016 stendur.
Sprengjutilræði sem beint var
gegn Stade de France í hryðju-
verkaárásunum í París í nóvember
síðastliðnum staðfestu að hryðju-
verkasveitum Ríkis íslams, Isis, er
ekkert heilagt. Þótt tilræðin hafi
misheppnast var fótboltinn ekki
lengur óhultur, hann var nýtt skot-
mark í stríði þess við Vesturlönd.
Gríðarlegt eftirlit
Til að tryggja öryggi áhorfenda,
leikmanna og mannvirkja munu
öryggisverðir framkvæma stranga
líkamsleit á gestum mótsins og
skoða skilríki þeirra. Hafi þeir
með sér stórar töskur mega þeir
búast við að þær verði gerðar upp-
tækar og þeir sjái þær aldrei aft-
ur. Við þessi störf og aðrar örygg-
isráðstafanir munu sveitirnar
meðal annars beita drónum sem
suða munu yfir hausamótum búnir
alsjáandi myndavélum sem senda
gögn beint í skjái sérfræðinga.
Þeirra verk verður að greina stöð-
una á grundvelli myndanna og
fylgjast með því að allt gangi eðli-
lega fyrir sig.
Sérstakt auga verður viðhaft
með flugi „óvinveittra“ dróna sem
jafnvel er talið að illvirkjar gætu
hugsanlega reynt að brúka til eit-
urárása á leikvanga EM. Verður
lögreglan vígbúin til að takast á
við og afstýra flugi slíkra flygilda.
Vart þarf að taka fram að flug-
banni hefur verið lýst yfir og í
grennd allra leikvanganna tíu sem
keppt verður á. Vonast er til þess
að hemja megi hættur það mikið
að ekki þurfi að koma til þess að
fresta þurfi leikjum eða láta þá
fara fram fyrir luktum dyrum.
Freistandi skotmörk
Fátt hefur verið jafn mikið und-
ir smásjá lögreglunnar frá hryðju-
verkunum í París í nóvember og
svonefnd „aðdáendasvæði“ í EM-
borgum. Kröfum um að hætta við
að reisa þar risaskjái svo fólk gæti
horft þar á leiki var hafnað. Í stað-
inn hefur öryggi við þessi afmörk-
uðu svæði verið stóraukið.
Kostnaður vegna þessa mán-
uðinn sem mótið stendur nemur
jafnvirði 3,5 milljarða króna. Fyrr-
verandi yfirmaður í frönsku lög-
reglunni, Frédéric Péchenard, er
efins um þessi svæði og segir að
skikinn sem afmarkaður er við
Eiffel-turninn og rúma mun hátt í
100.000 manns í einu gæti orðið
freistandi fyrir hryðjuverkamenn
sem hyggi á fjöldamorð. Mótrökin
við því, segja aðrir, er að auðveld-
ara er að tryggja öryggi stórs
hóps á einu afmörkuðu aðdáenda-
svæði en dreifðs mannfjölda um
alla borg. Þess vegna hefur verið
varað við því að setja upp skjái á
öðrum svæðum með miklu minni
vernd en hinum afmörkuðu svæð-
um þar sem um 400 vopnaðir
öryggisverðir frá einkafyrir-
tækjum auk fjölmennra sveita
þungvopnaðra lögreglumanna
gæta öryggis.
Við komuna inn á aðdáenda-
svæðin ganga menn gegnum
málmleitartæki vegna vopnaleitar.
Þau verða rammgirt
öryggismyndavélum og sveitir leit-
arhunda munu spóka sig þar um
völlu. Fólk með stórar handtöskur
fær ekki að koma inn, en alls er
búist við sjö milljón gestum á
þessi svæði mótsdagana.
Tilræðin í Brussel í mars og
brotlending farþegaþotu EgyptAir
nýverið hafa ýtt undir þá skoðun
að leikvangar Euro 2016 verði ekki
einu skotmörk hryðjuverkamanna
meðan á EM í fótbolta stendur.
Vopnaðir her- og lögreglumenn
eru algeng sjón á helstu flugvöll-
um og lestarstöðvum Frakklands
undanfarið rúmt ár og verður svo
áfram. Eftirlit þeirra, m.a. skoðun
skilríkja, sem áður heyrði til und-
antekninga, er orðin rútína.
Götótt skipulag
Allt þetta minnir Frakka á
hryðjuverkin miklu sem framin
voru í París í janúar og nóvember
í fyrra og kostuðu á annað hundr-
að manns lífið. Í millitíðinni hafa
sérstök neyðarlög verið í gildi og
viðbúnaður gegn hryðjuverka-
starfsemi stórefldur. Er úrslita-
leikurinn í frönsku bikarkeppninni
fór fram 21. maí á þjóðarleikvang-
inum Stade de France í norður-
jaðri Parísar prufukeyrði lögregl-
an öryggisskipulag sitt fyrir EM.
Niðurstaðan var að það hefði
verið býsna gloppótt, það hefði
brugðist og sú sýn sem við blasti
ekki verið sérlega uppörvandi fyrir
þær 2,5 milljónir áhorfenda sem
keypt hafa sig inn á leiki Euro
2016. Þrátt fyrir líkamsleit og stíft
eftirlit hafi áhorfendum tekist að
hafa púðurkerlingar, reyk-
sprengjur og önnur hættuleg tól
með sér inn á völlinn. Sömuleiðis
reyndist skipulag aðstreymis
áhorfenda misheppnað, en gestum
var stefnt að örfáum hliðum leik-
vangsins í stað fjölda hliða eins og
venjan er. Vegna tafsams eftirlits í
hliðunum safnaðist þar saman mik-
ill mannfjöldi er hefði getað verið
auðveld bráð hermdarverkamanna.
Sömuleiðis hefði verið veruleg
hætta á að fólk myndi troðast und-
ir hefði hreyfing komist á hópinn
ef þolinmæði hans brysti, að mati
lögreglunnar, sem boðar endur-
skoðun og skilvirkara skipulag
þegar á hólminn verður komið frá
og með 10. júní.
Verkföll ný ógn
Önnur og mun áþreifanlegri ógn
sem blasir við Euro 2016 er verk-
fallsaðgerðir launþegasamtakanna
CGT. Þótt aðeins rúmlega 2%
franskra launþega séu innan sam-
takanna hefur þeim tekist með
skyndiverkföllum og umsátri, um
meðal annars olíuhreinsi- og
birgðastöðvar, að raska daglegu
lífi Frakka mjög síðustu vikur og
mánuði. Þær aðgerðir hafa ásamt
hryðjuverkaógninni leitt til hruns í
straumi ferðamanna til París.
Þykir ástandið í Frakklandi
jaðra við félagslega upplausn, en
mikill hiti hefur verið í deilum og
mótmæli verið ofbeldisfull. Þar
hefur meðal annars verið tekist á
um breytingar á vinnulöggjöfinni,
sem ríkisstjórn sósíalista segir að
séu óhjákvæmilegar eigi að koma
frönsku efnahagslífi á lappir og
minnka atvinnuleysi. Lögin draga
úr áhrifum stéttarfélaganna innan
fyrirtækja. Það segir CGT óvið-
unandi og kveðst ekki koma að
samningaborði fyrr en nýju lögin
hafi verið afturkölluð.
Valkostur að banna aðgerðir
Forsvarsmenn Sósíalistaflokks-
ins og ríkisstjórnarinnar hafa
keppst við að segja að verkalýðs-
hreyfingin muni ekki trufla EM í
knattspyrnu þótt þau hafi boðað
víðtækari aðgerðir gegn lestar- og
flugsamgöngum í þessari viku,
þeirri næstu og jafnvel lengra
fram í júní. Og þau hafa látið í
veðri vaka að verkfallsaðgerðum
verði haldið áfram eftir að mótið
hefst. Óttast er að slíkt muni grafa
verulega undan öryggisviðbúnaði
vegna mótsins. „Það verður engin
röskun á lestarferðum meðan á
Euro 2016 stendur, engin verk-
föll,“ sagði Jean-Christophe
Cambadélis, framkvæmdastjóri
flokksins, um nýliðna helgi. „Stétt-
arfélögunum skjátlast haldi þau
virkilega að þau geti tekið Frakk-
land í gíslingu,“ bætti hann við.
Borgarstjórinn í Bordeaux, sem
verður meðal gestgjafaborga móts-
ins, er á annarri skoðun. Honum
sýnist stéttarfélögin vera að grafa
frekari skotgrafir og herða aðgerð-
ir.
Þrátt fyrir hinn mikla viðbúnað í
EM-borgum og miklar njósnir og
forvarnaraðgerðir gegn hryðju-
verkastarfsemi gefur innanríkis-
ráðherrann Bernard Cazeneuve til
kynna að engar vísbendingar séu
um sérstakar hættur gagnvart ein-
stökum þátttökuliðum, leikmönn-
um, leikjum eða aðdáendasvæðum.
Hann segist ekki útiloka þann
möguleika að verkfallsmótmæli
verði bönnuð með tilskipun vegna
upplausnarástandsins af völdum
deilunnar um vinnulöggjöfina. „Sá
valkostur er fyrir hendi takist ekki
að halda uppi röð og reglu með
þeim fjölmennu sveitum sem gæta
munu öryggis vegna Evrópumóts-
ins í knattspyrnu.“
90 þúsund manna öryggis-
sveit verður á vaktinni á EM
EM í knattspyrnu að hefjast í Frakklandi Víðtækar öryggisráðstafanir vegna hryðjuverkaógnar
AFP
Verkföll Starfsfólk SNCF, sem er ríkislestafélag Frakklands, safnaðist saman við lestarstöðina í Lyon til að mót-
mæla óvinsælum fyrirætlunum stjórnvalda um breytingar á vinnulöggjöf í landinu. Búist er við hrinu verkfalla.
. . . 20 - 30 - 40 - 50 - 60 - 70 - 80 - 90 - 100 . . .
Átt þú stórafmæli á árinu 2016?
Hótel Rangá býður öllum sem eiga
stórafmæli á árinu einstakt afmælistilboð.
Gisting fyrir tvo á aðeins 2016 krónur
á sjálfan afmælisdaginn ef haldið er upp
á afmælið með kvöldverði á veitingastað
hótelsins.
Nánari upplýsingar á
www.hotelranga.is/storafmaeli