Morgunblaðið - 03.06.2016, Page 47
47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
Fyrir ári fór fram
rannsókn á máli Jóns
Hreggviðssonar, þar
sem Jón var spurður
um kaup hans á banka.
Það var Arnas Arnæus
sem spurði. Eftirfar-
andi var skráð:
„Ég heyri sagt að þú
hafir keypt banka Jón
Hreggviðsson, sagði
Arnas Arnæus. Er það
rétt?“ Jón Hreggviðsson hófst í sæti
sínu og ansaði:
„Hef ég keypt banka eða hef ég
ekki keypt banka? Hver hefur keypt
banka og hver hefur ekki keypt
banka? Hvenær kaupir maður banka
og hvenær kaupir maður ekki banka?
Fari í helvíti sem ég keypti banka. Og
þó.“
Jóni Hreggviðssyni fannst í raun
að hann hefði aldrei keypt banka. Það
hafa engar vísbendingar fundist um
að Jón Hreggviðsson hafi keypt
banka. Nú stígur Lögmaður Eydalín
fram og telur sig hafa vísbendingar
um meint kaup Jóns Hreggviðssonar
á banka, að ekki hafi verið sem sýnd-
ist.
Það var meginforsenda fyrir sölu
Búnaðabanka Íslands hf. árið 2003 að
með nýjum eiganda kæmi erlend
samkeppni á íslenskan fjármála-
markað. Það varð brátt deginum ljós-
ara að með sölu á hlut ríkisins kom
ekki erlend samkeppni á íslenskan
fjármálamarkað. Hinn 70 ára gamli
og íhaldssami Búnaðarbanki rann inn
í lítið verðbréfafyrirtæki sem hét
Kaupþing hf. Þekkingu
og reynslu starfsmanna
Búnaðarbanka var fljót-
lega ýtt út úr hinu sam-
einaða fyrirtæki. Í stað
reynslu komu nýfundn-
ir snillingar. En eins og
Jón sagði eitt sinn; vont
var ranglæti gömlu
mannanna en verra var
þó réttlæti nýju
snillinganna. Í höndum
hinna nýju snillinga fór
heilt fjármálakerfi lóð-
rétt í gjaldþrot. Vissu-
lega er erfitt að vera manneskja, sér-
staklega þó bankastjóri. Sannir
listamenn og bankastjórar vanda
smáatriðin; allt hitt gerir sig sjálft.
Áleitin spurning um
íslenskan fjármálamarkað
Sá er heldur hér á penna hefur um
langt árabil velt fyrir sér hví erlendir
bankar hafa ekki sett upp dóttur-
fyrirtæki eða útibú á Íslandi. Í um
það bil 40 ár hefur þessi spurning leit-
að á höfund. Og höfundur hefur spurt
erlenda bankamenn þessarar spurn-
ingar. Ástæða þess að spurt er er sú
að innlendir neytendur hafa óskað
eftir svipuðum kjörum á lán sín og er-
lendir neytendur. Á það sérstaklega
við um lán til kaupa á þaki yfir höf-
uðið. Sérstaklega hefur verið kvartað
undan svokallaðri „verðtryggingu“,
sem gerir ekki annað en að jafna
greiðslubyrði lántaka á lánstíma þeg-
ar verðbólga er óhófleg, eins og í ís-
lenskum reynsluheimi.
Hafa ýmsar hetjur komið fram og
mælt stórt. En það er misskilningur
að hetjuskapur eigi nokkuð skylt við
þann málstað sem barist er fyrir.
Það sem helst er leitað eftir er lágir
vextir, en forsendur lágra vaxta er lít-
il verðbólga, stöðugleiki í efnahags-
málum og lítill vaxtamunur, en vaxta-
munur í lánastofnunum endurspeglar
hagkvæmni í rekstri þeirra, það sem
viðskiptamenn banka þurfa að greiða
fyrir miðlun fjármagns.
Svör erlendra banka
Það er alltaf fróðlegt að ræða við
erlenda bankamenn. Fyrstu alvöru
samtöl þess er hér ritar við erlenda
bankamenn voru fyrir 36 árum. Það
voru fulltrúar Hambros Bank. Ham-
bros var traustur bakhjarl Íslands í
áratugi og hélt Íslandi í sambandi við
umheiminn frá 1920 til vorra daga.
Íslenskir bankastjórar voru í miklu
og góðu sambandi við bankastjóra
Hambros Bank en á meðan banka-
stjórarnir ræddu saman sat íslenski
fjármálaráðherrann frammi á gangi
og beið átekta um málaleitan.
Svör erlendra bankamanna um Ís-
landsviðskipti hafa ávallt verið á einn
veg. Erlendir bankar hafa þau við-
skipti sem þeir óska eftir og telja sig
hafa ábata af. Vissulega hafa banka-
mennirnir bent á að viðskipti með ís-
lenska krónu mengi aðeins reikning
bankans.
Erlendir bankar velja sér trausta
og stóra viðskiptavini, hvort heldur
sem um er að ræða lántaka eða lán-
veitendur. Á Íslandi eru til traustir
viðskiptamenn, skilamenn.
Hvað segja ársskýrsl-
ur um vexti?
Það má lesa ársskýrslur margra ís-
lenskra fyrirtækja og skoða lán og
kjör á lánum. Eitt er það fyrirtæki
sem hefur leitað á erlenda fjármála-
markaði án þess að hafa meginhluta
tekna sinna í erlendri mynt. Það er
Orkuveita Reykjavíkur. Orkuveitan
er með traustan viðskiptamannahóp
þó að ekki sé hópurinn erlendur.
Orkuveitan skuldaði í vaxtaberandi
skuldum 165,6 milljarða í árslok 2015.
Af þeim skuldum voru 121,5 millj-
arðar í erlendum lánum. Meðalvextir
þeirra lána voru 0,97% í árslok 2015,
að viðbættum gengisbreytingum.
Lokagjalddagar þessara lána eru á
árunum 2025-2038. Innlend lán,
„verðtryggð“ og „óverðtryggð“, hvað
sem það nú þýðir, voru samtals 44,1
milljarður. Meðalvextir þeirra lána
voru 5,71% að meðtöldum verðbót-
um.
Í samanburði á þessum lánum þarf
að bera saman innlenda verðbólgu og
erlenda gengisáhættu og vaxtaá-
hættu. Það kann að vera að gengis-
áhættan sé sveiflukenndari en inn-
lendar verðlagsbreytingar. Um
framtíðina er lítið hægt að segja en
það er hægt að horfa til baka og
reikna út ávöxtun innlendra og er-
lendra lána; það er að reikna „ávöxt-
un“ hvers láns miðað við að það verði
greitt upp í dag.
Fróður maður hefur sagt mér að
erlent lán frá aðeins einu lántökuári,
þ.e. frá 2000, til þessa árs sé óhag-
stæðara en innlent lán á innlendum
kjörum yfir mismunandi lánstíma.
Gjaldeyrishöft og ógn
Innlendur fjármálamarkaður hef-
ur verið verndaður frá erlendri sam-
keppni, ef frá eru taldar lántökur
stærri og betur megandi fyrirtækja.
Með beinum erlendum lántökum
koma fyrirtæki sér undan 0,376%
skatti á fjármálafyrirtæki, en sá
skattur var samþykktur í hópefli
þingmanna með atkvæðum 57 gegn 1.
Á sama veg koma neytendur, sem
eiga milliliðalaus viðskipti við lífeyris-
sjóði, sér undan sama skatti. Það er
ekki náttúrulögmál að taka lán hjá
banka.
Gjaldeyrishöft verða afnumin,
hugsanlega í áföngum, enda frjálst
flæði fjármagns einn hluti og for-
senda EES-samnings. Þá á almenn-
ingur kost á að velja sér viðskipta-
banka utanlands. Það er ekkert
náttúrulögmál að viðskiptabankinn
þurfi að vera í heimagarðinum. Ekki
verður séð að íslenskar fjármála-
stofnanir né heldur meginhluti þeirra
þingmanna sem nú sitja á Alþingi
með greinarhöfundi hafi áhyggjur af
þessum nálæga veruleika. Á Alþingi
koma enn fram þau viðhorf að innlán
njóti helst til of mikillar verndar.
Að ekki sé talað um að ákvæði
neyðarlaga um forgang innlána í
kröfuröð hafi verið of vegleg fyrir
innistæðueigendur. Kannski byrjar
maðurinn fyrst að vera til þegar búið
er að taka allt af honum.
Eftir Vilhjálm
Bjarnason »Erlendir bankar
velja sér trausta og
stóra viðskiptavini,
hvort heldur sem um
lántaka eða lánveit-
endur er að ræða.
Vilhjálmur Bjarnason
Höfundur er alþingismaður.
Erlend samkeppni á íslenskum fjármálamarkaði
Sköpun Spilandi reiðhjól, risavaxinn kristall og stjarnfræðilegar furðuverur voru sköpunarverk í Biophilia-menntaverkefninu sem sjá mátti á uppskeruhátíð verkefnisins í Ráðhúsinu í gær.
Eggert