Morgunblaðið - 03.06.2016, Síða 58

Morgunblaðið - 03.06.2016, Síða 58
Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is G uðni Th. Jóhannesson sagnfræðing- ur hefur átt velgengni að fagna í skoðanakönnunum eftir að hann til- kynnti um forsetaframboð sitt. Stuðningurinn við hann hefur verið svo mik- ill og afgerandi að það liggur beinast við að hefja samtalið við hann með því að spyrja hvort hann sé farinn að máta sig við emb- ættið á Bessastöðum. En Guðni er hógværðin uppmáluð eins og fyrri daginn og minnir á að hann komi úr mikill íþróttafjölskyldu, bróðir handbolta- stjörnunnar Patreks Jóhannessonar. „Þó að maður hafi forystu í hálfleik getur margt breyst fram að leikslokum,“ svarar hann og kveðst bara halda sínu striki fram á kjör- dag. „En auðvitað býður maður sig ekki fram til forseta nema hafa ákveðnar hugmyndir um hvernig embættinu skuli gegnt,“ bætir hann við. „Mér finnst að forseti eigi að vera sameiningarafl, standa utan flokka og fylk- inga. Hann á að vera bjartsýnn fyrir hönd þjóðarinnar, má ekki hafa allt á hornum sér, en um leið þarf hann samt að vera raunsær og jarðbundinn. Hann á að vera stoltur af sögu lands og þjóðar en ekki drambsamur. Hann á að hjálpa til í samfélagsumræðunni, vera nokkurs konar málsvari hinnar mál- efnalegu umræðu, sjá til þess að öll sjón- armið heyrist og láta fólkið í landinu finna að hann sé ekki í liði með einum á móti öðr- um.“ Guðni segir að þannig verði forseti nauð- synleg viðbót við átakavettvanginn Alþingi þar sem menn skiptist á skoðunum og leiði mál til lykta. „Svo getur verið að forseti þurfi að skerast í leikinn eins og dæmin sanna.“ Forseti með skoðanir Blaðamaður rifjar upp að þegar fráfarandi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, fór í opin- bera heimsókn á heimaslóðir á Vestfjörðum stuttu eftir fyrstu embættistökuna 1996 hafi hann haft orð á slæmu ástandi vega í fjórð- ungnum. Ýmsum fannst þá að forseti ætti ekki að skipta sér af slíkum hlutum. Hvar dregur Guðni mörkin? „Afi minn, Sæmundur, fæddist á Krossi á Barðaströnd. Nái ég kjöri mun leið mín áreiðanlega liggja á þessar sömu slóðir,“ svarar Guðni. „Vonandi hefur ástand veg- anna batnað frá þessum tíma en séu þeir enn slæmir er það eðlilegt að forseti veki at- hygli á því. En það er rétt að hafa í huga að á þessum tíma var Ólafur Ragnar nýstiginn úr heimi stjórnmálanna og margir voru enn vígamóðir eftir kosningarnar. Ég kem ekki úr þeim heimi og nái ég kjöri myndi mér, held ég, frekar fyrirgefast að benda á slæmt ástand vega ef svo ber undir,“ segir Guðni. Orð Ara fróða að leiðarljósi Guðni hefur verið gagnrýndur fyrir að vera ekki nógu „þjóðernislegur“ í afstöðu sinni til ýmissa atburða Íslandssögunnar. „Ég hef verið gagnrýninn á sýn Ólafs Ragn- ars á sögu landsins og sögulegan arf í að- draganda hrunsins, því þá misstum við fót- anna,“ svarar hann. „Það voru of margir sem höfðu ekki í heiðri orð Ara fróða að hafa það sem sannara reynist og gleymdu jafnvel líka orðum Snorra Sturlusonar að of- lof væri háð. En ég hef oft sagt við kollega mína í sagnfræðistétt að þeir skilji ekki samfélagið nema þeir fari á handboltaleik í troðfullri Laugardagshöll, syngi þjóðsönginn og hvetji Ísland til dáða.“ Guðni segir að forsetinn eigi að þekkja sögu Íslendinga og vera stoltur af henni. „En um þjóðir gildir það sama og um ein- staklinga, að við eigum að hafa sjálfstraust en vera um leið auðmjúk og aldrei dramb- söm. Þegar við höldum á lofti okkar eigin verðleikum eigum við ekki að gera það á kostnað annarra. Við eigum að segja söguna án þess að misnota hana jafnvel í þágu stundarhagsmuna hverju sinni. Og við eigum ekki að falla í þá freistni að segja beinlínis ósatt.“ Og nú kemur sagnfræðingurinn held- ur betur upp í frambjóðandanum: „Tökum sem dæmi seinni heimsstyrjöldina. Við Ís- lendingar færðum þar fórnir eins og aðrir, sjómenn létu lífið við að færa björg í bú, en hlutfallslega misstum við ekki eins marga og Bretar eins og sumir virðast telja nú um stundir, heldur eins marga og Bandaríkja- menn. Þarna er einföld staðreynd sem heiðarlegir og sanngjarnir menn hljóta að sjá að betra er að hafa rétta en ranga. Hafa skal það sem sannara reynist. Með því að benda á þetta er maður sannarlega ekki að gera lítið úr þeim sem lögðu líf sitt í hættu. Afar mínir, til dæmis, sigldu báðir á þessum árum. Amma Sigurveig sagði mér oft hversu stingandi ótti það hefði verið að kveðja afa Sæmund og vita ekkert um afdrif hans vik- um saman. Afi Guðni, sem ég er skírður í höfuðið á, mátti saklaus sæta barsmíðum og pyntingum Breta hér á Kirkjusandi og svo í fangelsi í Bretlandi, uns sakleysi hans var sannað. Hann var gerbreyttur maður eftir þessa reynslu, glaður maður varð dulur. Þór Whitehead hefur rakið þessa sögu í einni bóka sinna. Þannig að ég þekki það vel úr eigin fjölskyldu hvaða fórnir Íslendingar færðu í stríðinu. En staðreyndir verður maður að virða og halda á lofti.“ Vill halda í Fálkaorðuna Talið berst að formfestunni og hefðunum sem einkenna forsetaembættið. „Amma Sigurveig fékk Fálkaorðuna á gamals aldri fyrir vel unnin störf á sviði menntunar og kvenréttinda. Mér finnst að við eigum að veita orðuna fyrir vel unnin störf í þágu lands og þjóðar; ef drýgð er hetjudáð, mannslífum bjargað og góðu kom- ið til leiðar. Svo er hennar einnig þörf í ver- öld diplómata og embættismanna vegna samskipta við aðrar þjóðir. Ég sé ekki fyrir mér neinar breytingar á þessu sviði,“ segir Guðni. Hann minnir á að fyrri forsetar hafi mótað embættið. „Við höfum verið heppin með forseta, þótt auðvitað verði öllum á mis- tök í starfi. Embættið hefur á sér virðingar- blæ en er um leið alþýðlegt. Það eru ekki háir virkisveggir utan um Bessastaði. For- seti Íslands hefur getað farið á meðal fólks. Ásgeir fór í laugarnar, Kristján Eldjárn á fundi fræðimanna, Vigdís stoppaði á Álfta- nesveginum og tók skólafólk á leið í bæinn upp í, Ólafur Ragnar fór á vídeóleigur og valdi spólur fyrir sig og Dorrit. Þannig á þetta að vera. Forseti á að vera á meðal fólksins en um leið á hann að vita alla daga að hann gegnir virðingarmesta embætti landsins.“ Valdið til fólksins Stjórnarskrána ber oft á góma í kosninga- baráttunni. Vill Guðni breyta henni? „Við eigum að auka beint lýðræði. Það gerum við með því að setja í stjórnarskrá ákvæði um rétt tiltekins fjölda kjósenda til að krefjast þjóðaratkvæðis um lög frá Al- þingi. Þannig virkjum við þennan rétt fólks- ins án þess að atbeina forseta þurfi til,“ svarar hann. En Guðni telur að forseti eigi áfram að hafa synjunarvald. „Sú staða getur komið upp að forseti vilji ekki undirrita lög sannfæringar sinnar vegna, og standi þá og falli með þeirri sannfæringu. Það geta líka komið upp algjörlega ófyrirséðar kring- umstæður í þjóðfélaginu, þá þarf neyðar- hemill að vera til staðar.“ Guðni minnir á að allt frá því að stjórnar- skráin var sett við stofnun lýðveldis 1944 hafi það verið útbreidd skoðun að skýra þurfi betur ákvæði hennar um völd og verk- svið forseta Íslands. „Þessi kafli stjórnar- skrárinnar ber þess merki að vera saminn þegar valdamikill konungur réð ríkjum. Í orði kveðnu eru forseta þar færð mikil völd en síðan eru þau tekin aftur í öðrum grein- um sem eru yngri. Þetta er ekki nógu skýrt og allir sem áttu þátt í að semja stjórnar- skrána við undirbúning lýðveldisstofnunar vissu að það þyrfti síðar að bæta úr þessu. Þess vegna kvartaði Sveinn Björnsson for- seti yfir því 1949, fimm árum eftir stofnun lýðveldis, að því miður væri ekki búið að endurskoða stjórnarskrána. En það er þann- ig í stjórnskipan okkar að rétturinn til að breyta stjórnarskránni liggur hjá þjóðinni og þeim fulltrúum sem hún kýs á þing. Vilji menn breyta stjórnarskrá sýna þeir það í verki með því að kjósa fulltrúa á þing sem framkvæma þann vilja. Stjórnarskrá Íslands er ekki breytt á Bessastöðum.“ Að eiga traust forseta Ekki er lengur um það deilt að forseti hafi synjunarvald gagnvart lögum frá Al- þingi, enda hefur því þrívegis verið beitt af fráfarandi forseta. Við hvaða aðstæður sér Guðni fyrir sér að þessu valdi verði beitt að óbreyttri stjórnarskrá? „Það þurfa að vera uppi afskaplega veiga- mikil mál til að það gerist,“ svarar hann. „Fulltrúar almennings arkandi til Bessa- staða með blys í annarri hendi og bænaskrá í hinni, eins og ég orðaði það einu sinni, greinileg merki þess að tugþúsundir kjós- enda vilji fá að eiga síðasta orðið um lög frá Alþingi. Þetta eru forsendurnar og enn fremur sú staða, ef ég ætti í hlut, að ég gæti alls ekki sannfæringar minnar vegna und- irritað einhver lög. Mér kemur þá í hug sama dæmi og Vigdís Finnbogadóttir nefndi á sínum tíma. Ég gæti ekki undir neinum kringumstæðum samþykkt lög um dauða- refsingar. Þjóðin yrði að hafa síðasta orðið.“ Forseti Íslands hefur oft þurft að láta til sín taka við myndun ríkisstjórna. Um það segir Guðni: „Við stjórnarmyndanir tel ég brýnt að forseti láti alla njóta sannmælis. Hann má ekki eiga sér óskastjórn eða stefna að því að einn flokkur eða fleiri komist ekki í stjórn. Sömuleiðis þurfi stjórnmálaleiðtog- arnir að finna að þeir eigi traust forseta og geti rætt við hann í fullkomnum trúnaði. Annars ríkir tortryggni þar sem síst skyldi.“ Guðni Th. Jóhannesson Stjórnarskrá ekki breytt á Bessastöðum Morgunblaðið/Eggert Íþróttahús MR Íþróttahús Menntaskólans í Reykjavík er Guðna kært. Þar kenndi faðir hans heit- inn um árabil og ófáum stundum varði Guðni þar sjálfur á skólaárunum 58 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016 FORSETAKOSNINGAR 2016 Fæðingardagur 26. júní 1968. Fjölskylduhagir Kvæntur Elizu Reid. Þau eiga saman fjögur börn. Guðni á dóttur með fyrri eiginkonu sinni, Elínu Haralds- dóttur. Menntun BA-próf í sögu og stjórn- málafræði frá Warwick-háskóla á Englandi, MA í sagnfræði frá HÍ, MSt í sagnfræði frá Oxford og doktorspróf frá Queen Mary, Uni- versity of London. Starf Dósent í sagnfræði við Háskóla Ís- lands.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.