Morgunblaðið - 03.06.2016, Side 66
FORSETAKOSNINGAR 201666
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2016
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
B
arátta Sturlu Jónssonar við lánastofn-
anir og dómstóla til að verja heimili
sitt átti stóran þátt í því að hann
ákvað að gefa kost á sér til embættis
forseta Íslands.
„Ég lærði mikið af þeirri baráttu og fór að
hugsa um forsetaframboð í janúar síðastliðn-
um,“ sagði Sturla. „Það gekk ótrúlega vel að
safna meðmælendum með framboðinu. Ég
fékk 3.000 undirskriftir á 21 degi og gaf fyrst
út að ég ætlaði í framboð þegar undirskrift-
irnar voru komnar,“ sagði hann.
Sturla fór að vinna að loknum grunnskóla,
aðeins 15 ára gamall. Áður hafði hann verið í
sveit á sumrin. Hann hefur um ævina stundað
sjómennsku, akstur, unnið á jarðvinnuvélum,
við húsasmíðar, bílaviðgerðir, bílasmíði og
stundaði sjálfstæðan atvinnurekstur frá 1998
til 2008. Eftir hrun flutti hann um tíma til
Noregs og stundaði þar vinnu. Sturla sneri
aftur heim 2010 og hefur síðan tekið þátt í
baráttu fólks sem fór illa út úr hruninu. Hann
kvaðst hafa komist að þeirri niðurstöðu í bar-
áttu sinni við kerfið að almenn mannréttindi
væru ekki virt hér á landi. Sturla nefndi til
dæmis lánasamninga sem fólk undirritaði.
„Það er ritað með smáu letri í alla lánasamn-
inga að það má taka allt af þér án dóms, sátt-
ar eða fjárnáms. Þú færð ekki að leita til dóm-
stóla. Samt stendur í stjórnarskránni að allir
eigi rétt á að leita til óvilhalls dómstóls,“ sagði
Sturla. „Þetta vita þeir í bankanum, hjá sýslu-
manni og í dómskerfinu en eru tilbúnir að
brjóta stjórnarskrána.“
Vill verða forseti til að
tala máli fólksins
Sturla kvaðst hafa átt sex fundi með Ólafi
Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og líka
átt mikil samskipti við stjórnsýsluna eftir að
hann fór að taka á sínum málum árið 2011.
„Viðmótið í kerfinu er alltaf: Gangi þér vel!
En það þorir enginn að standa upp fyrir okk-
ur,“ sagði Sturla. Hann sagði að fólk tæki
mark á orðum forseta Íslands og þess vegna
vildi hann komast í embættið – til að tala máli
fólksins.
Sturla kvaðst vilja nota þekkinguna sem
hann hefði aflað sér á réttindum sem fólki
væru tryggð í stjórnarskránni og koma henni
á framfæri, almenningi til góða. Fólk tryði því
almennt að það byggi í réttlátu samfélagi
þangað til það „lenti í hakkavél kerfisins“,
eins og Sturla orðaði það. „Það hafa margir
flúið land út af þeirri vél,“ sagði Sturla.
Það á að hlýða stjórnarskránni
Varðandi sýn sína á embætti forseta Ís-
lands sagði Sturla að forsetinn hefði ákveðnar
starfsskyldur samkvæmt stjórnarskrá. „Ég
vil axla þær skyldur samkvæmt orðanna
hljóðan,“ sagði Sturla. „Í 13. grein stjórn-
arskrárinnar segir að forseti láti ráðherra
framkvæma vald sitt. Ég var hjá laganemum í
Háskólanum í Reykjavík um daginn og spurði
þá hvort forsetinn færi ekki út fyrir valdsvið
sitt þegar hann léti einstakling sem ekki væri
ráðherra hafa umboð til að mynda ríkisstjórn?
Það kom aðeins kurr í salinn.
Í 15. grein stjórnarskrárinnar segir að for-
setinn skipi ráðherra og leysi þá frá störfum.
„Hann ákveður tölu þeirra og skiptir störfum
með þeim.“ Það er ekki kveðið á um að ráð-
herra skipi ráðherrana,“ sagði Sturla. Sem
forseti kvaðst hann ekki myndu álíta sig hafa
vald til að fara út fyrir stjórnarskrána. Hann
myndi því skipa ráðherra sjálfur samkvæmt
15. grein stjórnarskrárinnar. Sturla myndi
vilja aðskilja löggjafarvaldið (alþingismenn)
og framkvæmdavaldið og skipa ráðherra sem
ekki sætu á Alþingi. Hann myndi því skipa
utanþingsstjórn.
„Forsetinn og Alþingi fara saman með lög-
gjafarvaldið, samkvæmt 2. grein stjórnar-
skrárinnar, en forseti og önnur stjórnvöld
fara með framkvæmdarvaldið. Löggjafar-
valdið á að setja forsetanum og framkvæmda-
valdinu reglur til að fara eftir. Í dag er það
framkvæmdarvaldið sem í raun stýrir löggjaf-
arvaldinu,“ sagði Sturla.
Á þá ekki að ríkja hér þingræði? „Við finn-
um ekki orðið þingræði í stjórnarskránni,“
svaraði Sturla. Ríkisvaldið væri þrískipt sam-
kvæmt stjórnarskránni í löggjafarvald, fram-
kvæmdarvald og dómsvald. Það stemmdi illa
við stjórnarskrána þegar framkvæmdarvaldið
sé hluti af löggjafarvaldinu.
„Löggjafarvaldið og framkvæmdarvaldið er
bara aðskilið að hluta til í dag. Ólöf Nordal
innanríkisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir
utanríkisráðherra eru ekki alþingismenn.
Hvers vegna aðskiljum við þetta ekki alla
leið?“ spurði Sturla.
Forsetinn er málsvari fólksins
En á forseti Íslands að lýsa afstöðu sinni til
málefna sem ber hátt í þjóðfélagsumræðunni
eða á Alþingi á hverjum tíma? „Forsetinn er
kosinn af fólkinu. Ég held að fólkið sé ekki að
kjósa sér forseta til að vera múlbundinn á
Bessastöðum heldur sé það að kjósa sér mál-
svara. Það að kjósa 63 fulltrúa á Alþingi og
láta þá fá öll völd eftirlitslaust getur hreinlega
stefnt samfélaginu í voða. Mér finnst það líkt
og að skipstjóri ráði áhöfn á bát og sendi hana
svo út á sjó en sé sjálfur í landi.“ Finnst
Sturlu það hafa gerst í sögu þjóðarinnar?
„Já, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi for-
seti, fékk til dæmis 32.000 handskrifaðar
undirskriftir þar sem hún var beðin að setja
EES-samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hún ákvað að gera það ekki og það finnst mér
ekki gott mál,“ sagði Sturla.
Hann kvaðst telja að kjósa ætti um fleiri
mál, sem vörðuðu þjóðarhag, í þjóðarat-
kvæðagreiðslum en nú væri gert. „Ég hef gef-
ið það út að fái ég 25.000 handskrifaðar undir-
skriftir muni það mál fara í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Við tölum mikið um
beint lýðræði og mér finnst að þjóðin eigi að
taka ákvarðanir um mikið af sínum málum
beint,“ sagði Sturla. Hann hefur lesið stjórn-
arskrána í þaula og kynnt sér hana vel. Finnst
honum að endurskoða þurfi ákvæði stjórn-
arskrárinnar um hlutverk og vald forseta Ís-
lands?
Væri til í að breyta tvennu
„Ég væri til í að breyta tvennu,“ sagði
Sturla. „Mér finnst að bæta megi ákvæði inn í
26. greinina [um staðfestingu eða synjun for-
setans á frumvörpum frá Alþingi] um að óski
ákveðið hlutfall kosningabærra manna, svona
12-15%, eftir þjóðaratkvæðagreiðslu verði for-
setinn að verða við því. Þrátt fyrir það má
ekki taka frá forsetanum það vald að vísa
sjálfur málum til þjóðarinnar,“ sagði Sturla.
„Auk þess finnst mér að það þurfi að vera al-
veg skýrt í stjórnarskránni að framkvæmdar-
valdið megi ekki vera hluti af löggjafarvald-
inu. Þingmenn megi ekki jafnframt vera
ráðherrar. Samkvæmt 51. grein stjórnar-
skrárinnar eiga ráðherrar sæti á Alþingi og
mega taka þar þátt í umræðum, en hafa ekki
atkvæðisrétt nema þeir séu líka alþingis-
menn.“
Sturla telur að slæm reynsla sé af því að al-
þingismenn séu jafnframt ráðherrar. Hann
telur eina afleiðingu þess vera þá að mikið
hafi verið selt af ríkiseigum, þ.e. eignum al-
mennings, með miklu tapi fyrir samfélagið.
Sturla nefndi til dæmis Símann og svo Áburð-
arverksmiðjuna og Sementsverksmiðjuna.
„Fyrirtæki sem sköpuðu okkur verðmæti án
þess að við þyrftum að leggja mikinn gjald-
eyri í að reka þau. Nú flytjum við það inn sem
þau framleiddu,“ sagði Sturla. Hann kvaðst
ekki vera hlynntur ríkisrekstri í sjálfu sér en
vilja hafa hér rekstur sem sparaði okkur
gjaldeyri og skapaði vinnu hér á landi, hvort
sem væri einka- eða opinber rekstur.
Lög eru ekki æðri en stjórnarskráin
Hvað ástæður aðrar en undirskriftir 12-
15% kosningabærra manna þyrfti til þess að
Sturla beitti synjunarvaldi forseta?
„Í nauðungarsölulögum er t.d. ákvæði sem
heimilar kröfuhöfum að hafna því að þú getir
leitað réttar þíns fyrir dómstólum. Það eru
fleiri lög sem að mínu mati stangast á við
stjórnarskrána og Mannréttindasáttmála
Sameinuðu þjóðanna og Mannréttinda-
sáttmála Evrópu. Ef ég sæi eitthvað slíkt í
lagasetningu myndi ég hafna því að undira
slík lög,“ sagði Sturla. „Forsetinn þarf að
gæta að stjórnarskrárvörðum rétti fólksins.
Lög eru ekki rétthærri en stjórnarskrá.“
Hann nefndi einnig kvótakerfið sem dæmi.
„Stjórnarskráin segir að öllum sé frjálst að
stunda þá atvinnu sem þeir kjósa. Því frelsi
má setja skorður ef almannahagsmunir krefj-
ast þess. Það geta nú ekki verið almannahags-
munir ef bara tíu fjölskyldur fá að fiska í
kringum landið! Einn sjómaður á fimm tonna
báti ógnar varla almannahagsmunum,“ sagði
Sturla.
Vantar fræðslu um stjórnarskrána
Sturla vill að kennt sé um stjórnarskrána á
öllum skólastigum. Slík kennsla geti byrjað
þegar á leikskólastigi.
„Það væri hægt að byrja í leikskólunum á
krakkadögum. Nú fær eitt barnið að ráða
hver leggur diskana á borð og hver hnífapör-
in. Í staðinn gæti eitt barnið fengið að vera
forseti og gæti skipað ráðherra til að setja
diskana á borðið eða hnífapörin. Í grunnskóla
mætti lesa stjórnarskrána með börnunum.
Við lok grunnskólagöngunnar væru börnin
farin að skynja hvað felst í henni. Svo mætti
bæta við kennsluna í framhaldsskóla. Nú
stökkva börnin úr skóla út í lífið en hafa ekki
hugmynd um þau réttindi sem þau njóta.“
Sturla nefndi stöðu bandarísku stjórnar-
skrárinnar í hugum Bandaríkjamanna. „Þar
er stjórnarskráin heilög. Mönnum dettur ekki
í hug að hrófla við henni. Hins vegar setja
þeir viðauka við stjórnarskrána en þeir mega
ekki brjóta í bága við sjálfa stjórnarskrána.“
Sturla telur að lagfæra þurfi nokkur ákvæði
lýðveldisstjórnarskrárinnar en að flestu leyti
tryggi hún okkur þau réttindi sem við þurf-
um, svo lengi sem við förum eftir henni.
„Það brýtur t.d. í bága við stjórnarskrána
að rukka sjúklinga um lyf eða sjúkrahúslegu.
Í 65. grein segir að allir skuli vera jafnir fyrir
lögum, meðal annars óháð efnahag. Í 76.
greininni segir að öllum sem þess þurfi skuli
vera tryggður réttur í lögum til aðstoðar
vegna sjúkleika, örorku eða elli o.s.frv. Sam-
kvæmt þessu á að vera tryggt á fjárlögum að
við höfum aðgang að þessu. Stjórnarskráin er
kjölfestan í samfélagi okkar. Ef við getum
ekki virt hana, hvers virði er þá samfélagið?“
Sturla Jónsson
Stjórnarskráin kjölfesta samfélagsins
Morgunblaðið/RAX
Hæstiréttur
„Stjórnarskrárvarinn
réttur hefur oft verið
brotinn á okkur.“
Nafn Sturla Jónsson.
Fæddur 4. nóvember 1966.
Fjölskylduhagir Kvæntur Aldísi Ernu Helga-
dóttur. Þau eiga þrjá syni.
Menntun Grunnskólapróf. 30 tonna skip-
stjórnarréttindi, vinnuvélapróf, meirapróf
og sjálfsmenntun í lögfræði.
Starf Forsetaframbjóðandi.