Morgunblaðið - 16.06.2016, Síða 24

Morgunblaðið - 16.06.2016, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 2016 ✝ Stefán Val-mundsson fæddist á Selfossi 1. júní 1984. Hann lést á Landspítal- anum 3. júní 2016. Foreldrar Stef- áns eru Margrét Teitsdóttir, f. 30.6. 1954, sambýlis- maður hennar er Þór Fannar Ólafs- son, f. 31.8. 1953, og Valmundur Gíslason, f. 8.7. 1953, sambýliskona hans er Helga Matthíasdóttir, f. 18.3. 1954. Systkini Stefáns eru: Gísli, f. 12.2. 1975, Teitur Ingi, f. 11.6. 1978, og Kristrún Ósk, f. 5.4. 1986. Eiginkona Teits Inga er Rúna Guðmundsdóttir, f. 4.12. 1980, og eiga þau fjögur börn. Sambýlismaður Krist- rúnar Óskar er Ari Logason, f. 24.5. 1985. Stefán ólst upp á Flagbjarnarholti í Landsveit. Eftir grunnskólanám á Lauga- landi í Holtum gekk Stefán í Menntaskólann við Hamrahlíð og lauk þaðan stúdents- prófi árið 2004 og síðar lauk hann B.A.-námi í sagn- fræði frá Háskóla Íslands árið 2009. Stefán lærði svo hljóðtækni og upp- tökustjórnun. Stef- án rak söluturninn Skara á Sel- tjarnarnesi árin 2011 og 2012. Síðastliðin tvö ár starfaði Stef- án í Leikskólanum Miðborg í Reykjavík og stundaði jafn- framt MEd-nám við Háskóla Ís- lands. Tónlist átti hug hans og hjarta. Á menntaskólaárunum söng hann í Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og síðar var hann einn af meðlimum hljóm- sveitarinnar Þausk. Útför Stefáns fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 16. júní 2016, og hefst athöfnin kl. 15. Okkar kæri Stefán var tekinn frá okkur allt of snemma. Hjartahlýrri mann er ekki hægt að hugsa sér. Jafnaðargeðið svo mikið að ég man ekki eftir því að hann hafi nokkurn tíma skipt skapi. Þolinmæðin, sérstaklega gagnvart börnum, virtist enda- laus og börn hændust strax að honum. Nægjusemin slík að maður átti stundum ekki til orð. Alltaf skyldu þarfir annarra ganga fyrir hans þörfum. Ef ein- hver bað Stefán um hjálp var hann mættur án þess aðætlast til nokkurs í staðinn. Stefáni leið vel í skóla og ef við systkinin skildum hann rétt vildi hann helst vera í skóla eins lengi og hugsanlegt væri. Eftir að grunnskóla lauk fór hann í Menntaskólinn við Hamrahlíð og lauk síðan sagnfræðinámi frá Háskóla Íslands. Eftir háskólann lærði Stefán hljóðtækni og upp- tökustjórnun. Á kvöldin dundaði hann við tölvuforritun og reyndi að læra sem mest um það af sjálfsdáðum. Eftir að systir okk- ar fékk hann til að fylla í skarðið í leikskólanum þar sem hún starfaði varð ekki aftur snúið. Börn eru hjartahrein og alger- lega fordómalaus. Þannig var Stefán líka og þarna leið honum greinilega vel. Hann var búinn að finna sína fjöl. Stefáni líkaði svo vel að starfa í leikskóla að hann hóf meistaranám í leik- skólakennarafræðum við Há- skólann á Akureyri og síðar Há- skóla Íslands meðfram vinnunni. Því miður fékk Stefán ekki tæki- færi til að ljúka því námi. Tónlist spilaði stórt hlutverk í lífi Stefáns. Hann byrjaði ungur að læra á gítar og var í Kór Menntaskólans við Hamrahlíð þegar hann var þar. Hljómsveit- astússið byrjaði líka fljótlega og var hann í hljómsveitinni Þausk núna síðustu árin. Þeir gáfu út eina plötu og voru langt komnir með þá næstu. Ég hlakka mikið til að heyra hana þó ég hafi heyrt flest ef ekki öll lögin á tónleikum. Ég á margar góðar minningar um Stefán. Hann fékk ljúf- mennsku í vöggugjöf og hún fylgdi honum alla tíð. Hann hugsaði vel um alla og vildi öllum vel. Stefán var óhræddur við að prófa nýja hluti. Hann ferðaðist talsvert, var nokkuð mikið í Dan- mörku, fór til Kúbu og fleira mætti telja. Eftir háskólanámið langaði hann að reka sitt eigið fyrirtæki og þá lét hann vaða í það. Hann hóf rekstur söluturns við sundlaugina á Seltjarnarnesi og stóð þar alla daga í rúmt ár. Ég fór margar ferðir til hans í hádeginu með vinnufélagana til að fá hjá honum borgara og franskar, sem hvergi voru betri. Stefán hefði getað gert allt sem honum datt í hug. Hann hafði vilja til að læra og þolin- mæði til að takast á við nýja hluti. Einhverra hluta vegna sem enginn skilur fékk hann ekki tækifæri til þess og við sem eftir sitjum reynum að hugga hvert annað í sorginni. Ég vil að lokum færa þakkir til starfsfólks Bráða- og slysamóttökunnar og Gjörgæslu- deildarinnar við Hringbraut sem ég veit að gerði allt sem í þess valdi stóð til að bjarga honum. Þetta virðist því miður hafa verið hans tími og því ekkert hægt að gera. Hvíldu í friði, kæri bróðir. Teitur Ingi. 5. apríl árið 1986 var dagurinn sem við hittumst fyrst. Ég get ekki sagt að ég muni mikið eftir því, reyndar bara ekki neitt en þetta er dagurinn sem ég fæðist og ég þekki ekkert annað en að þú sért í lífi mínu. Minningarnar eru margar og ég á erfitt með að trúa því að við eigum ekki eftir að búa til fleiri. Mér hefur oft fundist ég hafa þurft að útskýra fyrir fólki að við værum í raun eins góðir vinir og við vorum, vegna þess hve ólík við höfum alltaf verið. Þú svona mikill ljúflingur og ég svona mik- il skvetta. En þú leyndir á þér og gast alveg prakkarast með mér þó svo að þú passaðir vel upp á að ég færi mér ekki að voða. Kannski gastu falið þig á bak við mig því enginn trúði neinu slæmu upp á þig og oftast fékk ég mestu skammirnar fyrir að draga þig út í þessa vitleysu. Ég man þegar þú fannst leið til að sleppa við að bursta tennurnar á kvöldin og kenndir mér. Kúnstin var að bleyta tannburstann og borða svo smávegis af tann- kremi. Þetta fannst mér góð hugmynd og gerði eins og þú. Þegar við vorum svo komin upp í rúm og biðum eftir því að kvöld- sagan yrði lesin fyrir okkur komst upp um mig. Í refsingu átti ég ekki að fá kvöldsöguna og var send upp í mitt rúm á meðan lesið var fyrir þig. Ég grenjaði eins og stunginn grís, þetta var svo ósanngjarnt. Þegar búið var að lesa fyrir þig og breiða yfir okkur bæði, kallaðir þú á mig inn í herbergi til þín. Ég skreið upp í til þín og þú last fyrir mig alla söguna og sýndir mér hverja mynd. Þegar ég hugsa til baka hefur samvera okkar alltaf verið svo sjálfsögð og þægileg. Mér fannst aldrei neitt athugavert við það þegar við eyddum áramótunum saman, bara við tvö heima hjá þér. Við elduðum saman, horfð- um á Skaupið og röltum síðan upp í Öskjuhlíð með freyðivín til að horfa á flugeldana og skál- uðum. Eins fannst mér ég aldrei þurfa að laga til heima ef þú kíktir í kaffi, ég hafði ekkert að fela fyrir þér og þú dæmdir mig aldrei eða nokkurn mann ef út í það er farið Þú kenndir mér svo ótal margt og hvað mér fannst gam- an að tala við þig um heima og geima því þú hafðir skoðanir á öllu án þess þó að þröngva þeim upp á aðra. Ég hvatti þig lengi til þess að fá þér vinnu á leikskóla vegna þess hvað þú varst mikil barnasuga og hafðir lúmskt gaman af börnum. Og það sem ég var glöð þegar þú fékkst vinnu á leikskólanum mínum. Fjölskyldumeðlimum fannst við ekkert alltaf skemmtileg í boðum þar sem við ræddum alltaf mikið um leikskólamál en loksins gat ég farið að kenna þér eitthvað og þú leitað ráða hjá mér. Það sem ég á eftir að sakna þín mikið, bróðir minn, sam- starfsfélagi og minn besti vinur. Höggið er þungt og ég get ekki ímyndað mér lífið án þín. Ég hélt við yrðum alltaf saman og hefð- um allan tímann í heiminum en alltaf kemur það eins mikið á óvart hvað lífið er ósanngjarnt. Við höfum aldrei getað kvaðst og mig langar alls ekki til að byrja á því núna. Ég hlakka til að sjá þig seinna og ég veit að þú verður fyrstur til að taka á móti mér á nýjum stað þegar þar að kemur. Minning þín mun lifa. Þín litla systir, Kristrún Ósk. Í dag er mikill sorgardagur þegar ég fylgi Stefáni mági mín- um síðasta spölinn. Síðustu dag- ar hafa verið þungbærir og ein- staklega erfiðir enda ætlar sér enginn að standa í þeim sporum að kveðja ungan ástvin í blóma lífsins. Stefáni kynntist ég fyrir 20 árum þegar við Teitur Ingi, eldri bróðir hans, urðum par. Þá var Stefán 12 ára, hæglátur og feim- inn en svo einstaklega ljúfur og sætur. Síðan varð hann að ung- um manni með ákveðnar skoð- anir, svo réttsýnn, nægjusamur og einstaklega hjálpfús. Á þessum 20 árum urðu til margar góðar minningar. Ótal ferðir í sveitina, allar veiðivatna- ferðinar og svo mætti lengi telja. Ein af mínum skemmtilegustu minningum er þegar hljómsveit- in Skunk Anansie kom til lands- ins og ég fékk að fylgja 13 ára unglingnum að berja augum hljómsveitina sem þá var í uppá- haldi. Seinna áttum við eftir að fara á rokkfestival í Bretlandi þar sem ég kynntist alveg nýrri hlið á Stefáni. Þar var hann í ess- inu sín enda tónlist hans ær og kýr. Sú minning sem mér þykir samt hvað vænst um er þegar hann fékk frumburðinn minn og fyrsta systkinabarn sitt í hend- urnar. Gleðin og risastóra brosið sem færðist yfir andlitið er greypt mér í minni. Vinskapur- inn sem átti eftir að myndast með þeim frændum var einstak- ur og þolinmæðin sem hann sýndi litla frænda var engri lík. Betri fyrirmynd fyrir börnin mín er vart hægt að finna. Það nístir hjarta mitt að nýfædd dóttir mín fái ekki að kynnast Stebba frænda sem systkini hennar höfðu svo mikið dálæti á. Á svona stundum finnst manni lífið ósanngjarnara en orð fá lýst en sem betur fer eru yndislegu minningarnar margar og eiga þær eftir að hlýja okkur fjöl- skyldunni um ókomin ár. Það hefur verið mér mikill heiður að fá að fylgja þér þessi 20 ár, elsku Stefán minn. Þangað til við sjáumst á ný, „farvel“. Þín mágkona, Rúna. Elsku Stebbi, elsku vinur, aldrei bjóst ég við því að ég væri að skrifa minning- argrein um þig hér og nú. Fyrir aðeins nokkrum dögum síðan vorum við að spjalla saman og skipuleggja bíóferð á Warcraft- myndina. Ég hlakkaði mikið til að hitta þig og restina af strák- unum, sérstaklega þar sem það var svo stutt í EM í fótbolta. Hverjir ætli hreppi titilinn í ár? Hvað ætli Ísland komist langt? Við gátum spjallað endalaust um fótbolta og vorum gjarnan með skiptar skoðanir um ágæti lið- anna. Þú hafðir mikinn áhuga á að fylgjast með smáþjóðum og minna þekktum landsliðum á stórmótum. Þú hélst með þínu eigin liði en fylgdir ekki straumnum bara til þess að falla inn í hópinn. Við kynntumst árið 2005 þeg- ar við vorum báðir á fyrsta ári í BA í sagnfræði við Háskóla Ís- lands. Við urðum fljótt góðir vin- ir og myndaðist nýr vinahópur, sagnfræðihópurinn, sem hefur svo haldið vinskapnum í gegnum árin og höfum við skapað margar góðar minningar saman. Mér þykir óskaplega vænt um öll þau skipti sem við settumst niður, fengum okkur bjór og ræddum um pólitík, trúmál, heimspeki og tónlist. Þú varst eins og botnlaus brunnur af fróðleik varðandi tón- list. Fræddir mig um gamla meistara og tónlistarstefnur sem ég þekkti lítið til. Þessi ást þín á tónlist átti eftir að skína í gegn á komandi árum; þú skrifaðir loka- ritgerð um hljóðfæri á Íslandi, bauðst upp á bestu tónlistina á samkomum, spilaðir í hljómsveit og síðast en ekki síst gafst mér og Erlu þá gjöf að spila á gítar í brúðkaupinu okkar. Þú varst traustur vinur sem hægt var að tala við um allt, heima og geima. Ég treysti þér og bar mikla virðingu fyrir þér. Þú varst góður, raunsær og já- kvæður maður sem hafðir góð áhrif á mig og aðra í kringum þig með húmor og lífsspeki að leið- arljósi. Ég sakna þín alveg ótrúlega mikið Stebbi, svo mikið að ég fæ því ekki lýst með orðum. Sama hverju við trúum um framhaldið, þá vonast ég svo innilega til að við eigum eftir að hittast aftur. Tökum upp þráðinn. Horfum á Warcraft. Dáumst að smáþjóð- unum á EM. Ég skal splæsa í bjór og þú reddar tónlistinni. Knús til þín, kæri vinur. Þinn vinur, Bjarki Þór. Stefán Valmundsson  Fleiri minningargreinar um Stefán Valmundsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bátar Seglskúta TUR 84 Skútan er úr trefjaplasti, byggð 1984 í Hafnarfirði, 28 feta löng (8,4 metrar), 2,6 metra breið. Vel við haldið. Með haffærisskírteini. Nýtt stórsegl, stór nýleg rúllufokka Furlex og nokkur aukasegl. Ný talstöð Standard Horizon. Sjálfstýring. Dýptar-og hraðamælir (Raymarin) ásamt gúmmíbáti. Vindrafstöð. Þriggja strokka díselvél af gerðinni Status Marine 17 hö. Inni er svefnpláss fyrir fimm, eldavél og salerni. Skútan er staðsett í bryggjustæði við Hörpu. Bryggjugjald greitt til hausts. Vagn fyrir skútuna fylgir, staðsettur í Gufunesi. Verð: 2.000.000 Upplýsingar veitir Gunnar s. 863 9393, gunnark@centrum.is Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR ÞÓRU HAFLIÐADÓTTUR, (Dunnu), áfengisráðgjafa. Þökkum starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir frábæra þjónustu. . Rúnar Guðbjartsson, Hafdís Rúnarsdóttir, Karl Friðriksson, Guðbjartur Rúnarsson, Sara T. Rúnarsdóttir, Kristinn Steinar Kristinsson, Rúnar Rúnarsson, Usa Klangengern, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHILDUR EYJA ÞÓRÐARDÓTTIR, fyrrverandi deildarstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. júní klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarfélagið Göngum saman. . Sigríður Elín Sigfúsdóttir, Oddur Carl Einarsson, Arnór Þórir Sigfússon, Gunnhildur Óskarsdóttir, Gunnlaugur Sigfússon, Sólveig Kristjánsdóttir, barnabörn og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, RAFN GESTSSON, fyrrv. bankafulltrúi, Árskógum 8 (áður Háaleitisbraut 28), Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 4. júní. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 22. júní kl. 13. . Helga Guðrún Helgadóttir, Lára S. Rafnsdóttir, Jóhannes Atlason, Theodóra Guðrún Rafnsdóttir, Hlöðver Örn Rafnsson, Sigríður Sverrisdóttir, Högni Rafnsson, Antonia Gutes Turu, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.