Morgunblaðið - 18.06.2016, Síða 6
Í MARSEILLE
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Margir íbúa hafnarborgarinnar Mars-
eille við Miðjarðarhafið kannast við
Ísland. Ekki vegna siglinga eða fisk-
veiða, þótt hvort tveggja gæti tengt þá
við eyjuna fögru; nei, vegna fótbolta
að sjálfsögðu.
Jafntefli fámennustu þjóðar á EM
frá upphafi við Portúgal kom Íslandi á
kortið hér syðra og líklega hafa kjána-
leg ummæli Cristianos Ronaldo að
leikslokum um hugsunarhátt smæl-
ingjans orðið til þess að fótbolta-
áhugamenn mjög víða hafa auga með
landsliði Íslands.
Ertu frá Íslandi? Til hamingju, er
hvarvetna haft á orði þegar grunur
leikur á uppruna þessa bláklædda
fólks sem orðið er svo áberandi í borg-
inni.
Vilja helst sjá alla leikina!
Íslendingar af öllum stærðum og
gerðum virðast komnir til Marseille.
Sumir leita uppi fjörið hvar sem það
er að finna, aðrir hafa það náðugt í
faðmi fjölskyldu og vina.
Sigfríður Sophusdóttir, fyrrverandi
landsliðsmarkmaður í fótbolta úr
Breiðabliki, var á stuðningsmanna-
svæðinu (Fan Zone) á ströndinni í
gærmorgun ásamt eiginmanni sínum,
Arnari Laufdal Aðalsteinssyni, og
sonunum Arnari og Róberti. „Þeir
vilja helst vera á Fan Zone allan dag-
inn og horfa á alla leiki dagsins á risa-
skjánum; við gætum verið hér frá
klukkan þrjú á daginn til ellefu á
kvöldin!“ sagði hún um synina.
„Þetta hefur verið alveg frábært,“
sagði eiginmaðurinn. „Við vorum í
Lyon fyrstu dagana, horfðum á leiki á
risaskjá og eldri strákurinn hefur
verið duglegur að spjalla við aðra
stuðningsmenn, til dæmis Íra og
Englendinga, og syngja alls konar
fótboltasöngva með þeim. Þeir fá
þessa keppni beint í æð, sem er al-
gjörlega frábært. Þetta er í rauninni
þeirra ferð.“
Sigfríður sagði „geggjað, ólýsan-
legt“ á leiknum gegn Portúgal í
Saint-Étienne. „Það var ótrúleg upp-
lifun. Ég fæ gæsahúð núna bara við
að rifja leikinn upp! Mér finnst frá-
bært að hafa verið á fyrsta leik karla-
landsliðsins á EM og leikurinn hefur
greinilega vakið mikla athygli. Leigu-
bílstjórinn sem keyrði okkur áðan
fagnaði okkur mikið og við verðum
alls staðar vör við mikla velvild. Allir
elska litla Ísland.“
80 manna hópferð
Hólmfríður Garðarsdóttir frá
Húsavík býr í Noregi, þar sem hún
rekur litla ferðaskrifstofu. Hún tók að
sér í haust að skipuleggja ferð á EM
fyrir nokkra fótboltaáhugamenn en
verkefnið vatt upp á sig. „Við erum 80
hérna og það hefur verið æðislegt. Al-
veg dásamlegt,“ sagði hún við Morg-
unblaðið í Saint-Étienne í vikunni.
Allir í hópnum tengjast Húsavík með
einhverjum hætti; Hólmfríður er til
dæmis sjálf þaðan, og ætla áttatíu-
menningarnir að sjá alla þrjá leiki Ís-
lands í riðlinum. „Þetta byrjaði í
haust, þá fóru fimm húsvískir drengir
og einn Norðfirðingur á leik Íslands
og Hollands í Amsterdam og í öl- og
sigurvímu eftir leikinn ákváðu þeir að
við færum til Frakklands,“ segir
Hólmfríður og hlær.
Fjölskylduferð Hjónin Sigfríður Sophusdóttir og Arnar Laufdal Aðalsteinsson ásamt sonunum
Arnari, til vinstri, og Róberti Laufdal á stuðningsmannasvæðinu í Marseille í gærmorgun.
Alvöru hópferð Þau eru hluti 80 manna hóps, nátengdum Húsavík. Sæmundur Sigurjónsson,
Einar Sigurjónsson, fararstjórinn Hólmfríður Garðarsdóttir og Klara Sigríður Sveinsdóttir.
„Ertu frá Íslandi? Til hamingju“
Skipulagning fimm manna ferðar á EM í Frakklandi vatt mikið upp á sig og 80 manns sem
tengjast Húsavík fóru saman „Verðum alls staðar vör við mikla velvild. Allir elska litla Ísland“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hæ, jó, jibbí jei Þessir drengir komu niður á strönd í gærmorgun og sungu hið þekkta stef Hæ, hó, jibbí jei ... Óhætt er að segja það hafi vakið athygli.
Ísland, Ísland! Strákurinn sem kom hlaupandi til karlanna á ströndinni,
fékk fánann að gjöf og tók undir íslenska stuðningssöngva af innlifun.
6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Smáratorgi, Kópavogi
Opið virka daga 11.00-18.00
Laugardaga 11.00-18.00
Sunnudaga 12.00-18.00
Vínlandsleið, Grafarholti
Opið virka daga 11.00-18.00
Laugardaga 11.00-16.00
Sunnudaga 13.00-17.00
Markaður Smáratorgi Outlet Grafarvogi
60%
50%
50%
40%
40%
LÁGMARKS-
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
VÖRUM NÚ
40%60%
EM Í FÓTBOLTA KARLA