Morgunblaðið - 18.06.2016, Page 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Stórbrotin áætlun er að verða að
veruleika. Þú hefur haft augun á óraunhæfu
markmiði í langan tíma en gengið vel í leið
að því. Nú þarftu að sanna fyrir sjálfum þér
að þú getur vissulega öðlast það.
20. apríl - 20. maí
Naut Þetta er góður tími til að endurmeta
sambönd þín við vini þína. Fáðu hlutlausan
aðila til aðstoðar því hann sér málið öðrum
augum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Næstu vikur verða fullar af alls
kyns skemmtilegri afþreyingu. Leyfðu öðr-
um, og þá sérstaklega lítilmagnanum, að
njóta sannmælis þegar til kastanna kemur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er gaman að taka fulla ábyrgð á
litlu hlutunum í lífinu. Heppni nútíðarinnar
tengist fortíðinni með einhverjum hætti,
hver er sinnar gæfu smiður.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Eins og segir í laginu, er ekki hægt að
reka á eftir ástinni. Nú er rétti tíminn til
þess að vera aðgætnari, varkárari og þrosk-
aðri.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að brjótast út úr þeim hugs-
anagangi, sem ríkt hefur svo lengi. Hnýttu
lausa enda og fáðu yfirsýn yfir málin.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er ætlast til að þú halir inn pen-
inga, og þá þarf að kunna að smjaðra. Vertu
bara viss um að það kynni þig fyrir ein-
hverju alveg nýju.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er komið að því að taka
ákvörðun svo þú verður að taka af skarið.
Oft þarf nú ekki stóra hluti til, heldur bara
breyta út af vananum og svo aftur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú átt orðastað við samstarfs-
mann og það samtal veldur þér hugarangri.
Ekki aðeins veistu nákvæmlega hvað þú vilt
heldur veistu líka hvernig þú átt að fá því
framgengt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Í dag finnst þér gaman að skipu-
leggja ferðalög. Flýttu þér samt hægt og
gefðu öðrum möguleikum gaum. Hikaðu
ekki við að hrinda hugmyndum þínum í
framkvæmd.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Djúpur skoðanaágreiningur ríkir á
milli þín og samstarfsmanna þinna. Láttu
aðra vita af fyrirætlunum þínum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ferðaáætlanir þínar eru bæði stór-
brotnar og glæsilegar. Láttu vini þína vita
hversu mikilvægir þeir eru þér, þeir munu
endurgjalda þér það og meira til.
Sem endranær var síðasta laug-ardagsgáta eftir Guðmund
Arnfinnsson:
Af ýmsu bergi brotnir menn.
Bretar og Danir teljast vera,
Þegna ríkis rúmar enn.
Reynist grúppur í sér bera.
Helgi R. Einarsson svarar og
verða menn að ráða í svarið:
Lausnarorðið loks ég sá,
lukkan hafði völdin.
Saxar leika saxa á
í Saxlandi á kvöldin.
Guðrún Bjarnadóttir á þessa
lausn:
Þjóðerni ólík. Yrkjum ljóð:
Sem Evrópuþjóð eiga nefndu sess.
Séu landmæri skinn, er skrokkur þjóð.
Skýr grúppudæmi: SÞ, AGS.
Guðmundur Arnfinnsson skýrir
gátuna þannig:
Þjóð merkir líka þjóðernið.
Þjóð eru Bretar og Danirnir.
Þjóð sem ríkisþegnar við.
Þjóð eru hópar og söfnuðir.
Og lætur tvær limrur fylgja:
Ofvirkum áþekk stökkli,
andrík í sigurhökli
ávarpar þjóð
og þylur ljóð
Elísabet undan Jökli.
Af embætti lét hann Óli,
en eins og köttur í bóli
bjarnar væri,
þó vel sig bæri
hann Sturla á forsetastóli.
Síðan kemur laugardagsgátan
eftir Guðmund:
Höfði kvenna er hann á.
Yfir glugga líta má.
Í bókbandinu þjónar þér.
Þessi garpur mikill er.
Og enn koma tvær forsetalimrur
eftir Guðmund til:
Fólkið er hugstætt Hildi,
hefja vill mannleg gildi
auðsöfnun ofar,
alþjóð lofar
að sýna mannúð og mildi.
Hér guðsríki Guðrún boðar,
gjarnan við þróun aðstoðar,
vill landgræðslu stunda,
með leiðtogum funda.
Leiðir til úrbóta skoðar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Rík eru ráð
rammrar þjóðar
Í klípu
„ÉG VEIT ÞAÐ EKKI… LOF MÉR
AÐ SOFA Á ÞESSU.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERS VEGNA HEYRI ÉG ÞIG ALDREI
SEGJA „VINSAMLEGA“ OG „TAKK FYRIR“?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að deila
MP3-spilaranum
þínum.
STUNDUM RÆTAST
DRAUMAR
NEIBBS, ÞÚ ERT ENN EKKI
PÍTSA MEÐ PEPPERÓNI
ÞÚ ERT
FÍFL!
SPÝTUR OG SPREK,
SPÆNA MITT ÞREK,
EN UPPNEFNI SÆRA
MIG ALDREI!
ÞAÐ GILDIR HINS VEGAR
ANNAÐ UM ANDREMMUNA ÞÍNA!!
Asparglytta og grasormar eru nýj-ustu „gæludýrin“ á heimilinu.
Þau kosta ekki neitt og hægt að næla
sér í þau hvar sem er. Þessi skordýr
eru nú að finna víða á heimilinu, ým-
ist í glerkrukku eða prýðilegu plast-
íláti.
Í fyrstu hélt Víkverji að afkvæmið
færi með fleipur þegar það tönnlaðist
á þessu orði, asparglytta, og benti í
allar áttir á iðjagrænar aspir. Mikil
ósköp sem hægt er að dást að þess-
um litlu fallegu bjöllum.
x x x
Víkverji var búinn að gleyma þvíhvað það er gaman að fylgjast
með þessum litlu pöddum að störfum
og hversu heillaður hann var sjálfur
af þeim þegar hann var barn. Það
rifjaðist upp fyrir honum þegar hann
horfði á barnið með trýnið inni á milli
runna að tína samviskusamlega upp
grasorma og asparglyttu og setja í
box. Barnið var himinsælt með af-
raksturinn og pöddurnar í boxinu.
x x x
Háskóli Íslands og Ferðafélag Ís-lands buðu upp á skordýra-
skoðun í Elliðarárdalnum á dög-
unum. Það fannst Víkverja frábært
framtak. Pöddur voru skoðaðar og
sérfræðingar fræddu um tegundir og
annað þess háttar. Allir gátu mætt
þeim að kostnaðarlausu. Börn hafa
einlægan áhuga á því sem þau skoða
og þau eru alltaf svo óhrædd við að
spyrja – sem við mættum tileinka
okkur í ríkari mæli.
x x x
Þegar Víkverji fór að skoða þessarpöddur sem voru komnar inn í
stofu til hans enn frekar áttaði hann
sig á því að hann gleymdi algjörlega
stað og stund. Hann horfði heillaður
á grasorm spæna í sig vænan bita af
epli. Víkverji er viss um að hann hafi
áttað sig á því í fyrsta skipti um hvað
núvitund snýst. Það er að hugsa ekki
um neitt heldur vera fullkomlega
meðvitaður um það sem fyrir augu
ber. Svei mér þá ef það heppnaðist
ekki fullkomlega í þetta eina sinn.
Þökk sé pöddunum í lífi Víkverja sem
hafa gert sig heimakomnar í stofu-
glugganum. Ætli hann taki sig ekki
til og fjölgi þeim þegar fram líða
stundir. víkverji@mbl.is
Víkverji
Hann rekur réttar munaðarleysingj-
ans og ekkjunnar og sýnir aðkomu-
manninum kærleika og gefur honum
fæði og klæði. (5. Mós. 10:18)
EDDA
HEILDVERSLUN
Stofnsett 1932
Heildverslun með lín fyrir:
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 525 8210
eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is
83
ÁRA
Rúmföt, handklæði, sængur, koddar
og annað lín fyrir ferðaþjónustuna
- hótelið
- gistiheimilið
- bændagistinguna
- heimagistinguna
- veitingasalinn
- heilsulindina
- þvottahúsið
- sérverslunina