Náttúrufræðingurinn - 2014, Síða 67
Náttúrufræðingurinn
106
og þegar hefur verið vikið að, og
utan hans. During og van Tooren
gáfu á sínum tíma ágætt yfirlit yfir
margbreytileika þessara samskipta39
og síðan hefur þekkingu okkar
fleygt fram á þessu sviði.40 Hér er
ekki hægt að gera þeim öllum skil en
þó verður fjallað stuttlega um sam-
skipti mosa, æðplantna og stórra
beitardýra (sauðfé, hreindýr, gæsir).
Mosar − æðplöntur
Mosar hafa margs konar óbein áhrif
á æðplöntur í gegnum víxlverkun
mosahjúpsins við lofthjúp og
jarðveg. Þessi áhrif eru ýmist jákvæð
eða neikvæð. Mosar og æðplöntur
geta auk þess verið í beinni sam-
keppni um auðlindir. Þegar hefur
verið fjallað um hæfni mosa til að
taka til sín köfnunarefni í úrkomu í
annars næringarsnauðu umhverfi,
og við þær aðstæður eru þeir mun
samkeppnishæfari en æðplönturnar
sem með þeim vaxa. Í lágvöxnum
túndrugróðri geta mosar einnig haft
betur í samkeppni um ljós.41,42 Við
hagstæðari skilyrði þar sem æð-
plöntur ná nokkurri þekju og hæð
hafa þær jafnan yfirhöndina og í
lággróðrinum þrífast aðeins skugg-
þolnari mosategundir.
Jákvæð áhrif æðplantna hverrar á
aðra (fyrirgreiðsla, e. facilitation) er
fyrirbæri sem hefur fengið aukna at-
hygli á síðari árum. Bent hefur verið
á að við óhagstæð ytri skilyrði vegi
þau upp neikvæð samskiptaáhrif
(samkeppni).43,44 Það á einnig við
um samskipti mosa og æðplantna.
Sem dæmi má nefna að í breiðum
holtasóleyar (Dryas octopetala) voru
jákvæð áhrif á tegundafjölbreytni
mosa neikvæðum áhrifum yfirsterk-
ari á Svalbarða (há-Arktis), en ekki á
hálendi Suður-Noregs.45 Mosalagið
getur einnig veitt smávöxnum æð-
plöntum skjól og skapað hagstæðari
rakaskilyrði fyrir aðrar hávaxnari.46
Þetta var rannsakað nánar í tilraun á
Svalbarða þar sem æðplöntum með
mismunandi vaxtarform var plantað
annars vegar í mosa af mismunandi
þykkt (3 og 6 cm) og hins vegar þar
sem mosaþekjan var fjarlægð með
öllu.47 Eftir þrjú sumur var ljóst að
þunnur mosi hafði jákvæð áhrif á
lífmassa smárunnans Salix polaris og
að þykkur mosi hafði neikvæð áhrif
á lífmassa kornsúru (tvíkímblaða
jurt, Bistorta vivipara) og tveggja
graskenndra tegunda, liðagrassins
Alopecurus borealis og fjallhæru (Lu-
zula confusa). Tilraunir á rannsóknar-
stofu leiddu í ljós að flókið samspil
jákvæðra og neikvæðra áhrifaþátta
mosans lá að baki þessum heildar-
áhrifum. Niðurstöður rannsókn-
anna voru dregnar saman í líkan
sem sýnir hvernig jákvæð heildar-
áhrif breytast í neikvæð með þykkn-
andi mosaþekju (7. mynd).47 Þegar
fjallað er um samskipti lífvera dugir
hins vegar ekki að einblína á eitt
þroskastig þeirra því form samskipt-
anna getur sveiflast milli jákvæðs og
neikvæðs eftir þroska.
Áhrif mosaþekju á örugg set fyrir
nýliðun fræplantna hafa verið tals-
vert rannsökuð bæði erlendis og
hér á landi. Sýnt hefur verið fram
á að mosaþekja minnki hættu á
afráni á fræjum í graslendi en að
áhrifin á nýliðun af fræi séu ýmist
jákvæð eða neikvæð,39 sem ræðst
af því hvaða tegund á í hlut og af
þykkt mosaþekjunnar. Rannsóknir
Sohlbergs og Bliss sýndu að þunn
mosaþekja og lífræn skán sköpuðu
hagstæð skilyrði fyrir nýliðun fræpl-
antna í heimskautatúndru,48 og rann-
sóknir í Hekluhraunum bentu til að
þunn hraungambraþekja geti einnig
haft jákvæð áhrif á nýliðun þar.49,50
Niðurstöður rannsókna á nýliðun
víðis í uppgræðslum bentu einnig
til að þunn mosaþekja (1 cm) hefði
jákvæð áhrif.51 Jákvæð áhrif mosans
6. mynd. Áhrif þykktar mosalags á jarðvegsþætti á Svalbarða þar sem mosaþykkt var stöðluð
við 3, 6 og 12 cm í tilraun. A) Þiðnun virka lagsins yfir sumarmánuðina 2003. B) Dags-
sveiflur hitastigs í jarðvegi (2 cm dýpt), mælt á 6 tíma fresti, meðaltöl yfir vaxtartímann
(meðaltöl ± staðalskekkja). C) Nýtanlegt köfnunarefni á formi ammóníums og nítrats mælt
sem styrkur jóna á resin-himnu yfir vaxtartímann. Súlur sýna meðaltöl ± staðalskekkju.
Marktækur munur var milli tilraunameðferða með ólíkan bókstaf (a, b), n.s. = ekki mark-
tækt. Endurteiknað og einfaldað eftir Gornall o.fl.3 – Effect of moss layer depth on soil envi-
ronment in Svalbard where the depth was standardised to 3, 6 and 12 cm in an experiment.
A) Soil thaw depth throughout the season (means ± SE) B) Diurnal temperature patterns
measured at 6 hour intervals from late June to late August (means ± SE). C) Available
ammonium and nitrate as determinded by use of ion-exchange membranes. Bars show treat-
ment means ± SE. Significant difference between treatments is indicated by different letters
(a, b), n.s. = not significant. Redrawn and modified from Gornall et al.3
84_3-4.indd 106 1601//15 12:50
147
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
mikilvægi lífbreytileika og tilurð
hans (þróunarfræði) og einnig á
loftslagsbreytingum. Hversu djúpt
er farið í ofangreind atriði þarf
að sjálfsögðu að miða við aldur
nemenda og þekkingu. Með ferð í
fjöru og síðari úrvinnslu er unnt að
fjalla um alla þessa þætti og stuðla
þannig að aukinni menntun til
sjálfbærni.
Í námskrá fyrir leikskóla er ekki
nefnt sérstaklega að nemendur eigi
að læra um sérstök náttúrufræðileg
fyrirbæri eins og lífverur fjörunnar.
Hins vegar er bent á að í náttúrunni
er í boði fjölbreyttur efniviður og
margvísleg tækifæri til rannsókna
og uppgötvana.41 Einnig segir
að starfshættir eigi að stuðla að
virðingu barna fyrir náttúrunni og
umhverfi sínu og að í leikskóla eigi
börn að fá tækifæri til fjölbreyttrar
hreyfingar og útiveru. Í námskrá
fyrir grunnskóla, náttúrufræði-
hluta, er lögð áhersla á menntun til
sjálfbærni og getu til aðgerða og þar
er víða að finna hæfniviðmið sem
auðvelt er að tengja við vettvangs-
ferð í fjöru og úrvinnslu hennar.
Hér nægir að nefna að nemendur
eiga að geta lýst lífverum í nánasta
umhverfi sínu, einkennum þeirra,
hegðun og tengslum (vistfræði),
geta fjallað um samspil manna og
náttúru, læra grunnatriði þróunar-
líffræði og erfðafræði og kynnast
mismunandi vistkerfum (bls.
172–174).1 Hér verður ekki fjallað
um náttúrufræðileg viðfangsefni í
kennsluskrám framhaldsskóla né
háskóla. Augljóslega er fjaran góð
uppspretta margs konar náms á efri
stigum og í sérhæfðum námskeið-
um, einkum dýrafræði og vistfræði.
Námsefni og annað efni
tengt fjörunni
Til að geta notað vettvangsferð í fjöru
með þau markmið í huga sem fjallað
hefur verið um hér að framan þarf
margt að koma til. Í fyrsta lagi skiptir
menntun og reynsla kennarans máli.
Í öðru lagi að skipulag skólastarfsins
sé sveigjanlegt og gefi kost á útinámi.
Í þriðja lagi að ferðin sjálf kosti ekki
mikið og sé ekki of tímafrek. Í fjórða
lagi að tæki og tóla séu til staðar,
bæði til notkunar í ferðinni sjálfri og
við úrvinnsluna (ílát, bakkar, stækk-
unargler, víðsjár, myndavélar og
smáforrit). Síðast en ekki síst er það
námsefnið og annað efni fyrir kenn-
ara og almenning sem þarf að vera
handhægt.
Námsgagnastofnun hefur gefið
út mikið námsefni um hafið og efni
sem tengist því. Hér verður einung-
is fjallað um námsefni sem gefið er
út á þessari öld, og er ekki um tæm-
andi lista að ræða. Fjaran og hafið –
námsvefur er efnismikill vefur eftir
Karl Gunnarsson og Þóri Haralds-
son42 og geymir fróðleik um lífverur
sem lifa í fjörunni og hafinu. Þar
er jafnframt mikið myndefni, ljós-
myndir, teikningar og myndbönd,
og einnig gagnvirkt efni fyrir nem-
endur. Safn kennsluhugmynda sem
tengjast hafinu og fjöruferðum er að
finna í bæklingi eftir Auði Gunnars-
dóttur og Guðbjörgu Ragnars–dótt-
ur.43 Námsefnið Lífríkið í sjó eftir Sól-
rúnu Harðardóttur44 er ætlað 10–12
ára nemendum. Þar er hafinu lýst
með texta og myndum og fjallað
um sjávarföllin, mismunandi fjörur,
stórar og smáar lífverur sem er að
finna í fjörunni og fleira. Í bókinni
Líf á landi eftir sama höfund45 fyrir
sama aldursstig er fjallað um fugla í
fjörunni, strandplöntur og refinn. Á
unglingastigi grunnskólans (13–15
ára) er fjallað um helstu hópa lif-
andi vera í bókinni Lífheimurinn
– litróf náttúrunnar46 og um vist-
fræði og þróunarlíffræði í bókinni
Maður og náttúra.47 Augljóslega er
ferð í fjöruna góður vettvangur
til að raungera það námsefni. Á
yngsta stigi grunnskólans (6–9
ára) tengist ströndin efni sumra
bókanna í flokknum „Komdu og
skoðaðu“, svo sem Komdu og skoð-
aðu umhverfið,48 Komdu og skoðaðu
hringrásir,49 Komdu og skoðaðu hafið50
og Komdu og skoðaðu hvað dýrin
gera.51 Öllum þessum bókum fylgja
kennsluleiðbeiningar.
Að lokum er hér vakin sérstök
athygli á nýlegu efni sem nýtist vel
í vettvangsferðum í fjöruna. Fyrst er
að nefna safn verkefna fyrir mið- og
unglingastig á vef sem heitir Nátt-
úrustígur ásamt ítarlegum kennslu-
leiðbeiningum. Þar eru útfærð verk-
efni við norðurströnd Skerjafjarðar
þar sem líffræði, landafræði og
umhverfismennt er fléttað saman
á áhugaverðan hátt.52,53 Í öðru lagi
stuðningsefni sem Námsgagna-
stofnun hefur gefið út , þ.e. greining-
arlykla um smádýr (Landið, Fjaran,
Dvergaþangið (Pelvetia canaliculata) finnst efst í klettafjörum og finnur sér ýmsa vaxtar-
staði. – Channel wrack (Pelvetia canaliculata) can grow where the wave is strong and is
found at the highest tide level in rocky shores. Ljósm./Photo: María B. Steinarsdóttir.
84_3-4.indd 147 1601//15 12:50
1501197 N
atturufr
5A
C
M
Y
K
56