Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2016
S Á L F R Æ Ð I T R Y L L I R
„Magnaður og ógn-
vekjandi sálfræðitryllir.“
SundayMirror
„Höfundur í heimsklassa.“
Crimezone.nl
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Hjónin Kristófer Oliversson og
Svanfríður Jónsdóttir komu til
Reykjavíkurhafnar á skútu sinni
Hugi í gær eftir ferðalag kringum
hnöttinn í keppninni World ARC –
Around the World Rally, sem byrj-
aði og endaði á Sankti Lúsíu í Kar-
íbahafinu.
Ferðin gekk stóráfallalaust fyrir
sig og ekkert stoppaði förina. Tókst
hjónunum meðal annars að ráða
niðurlögum elds, bregðast við leka
og búa um rifin segl.
Hugur er fyrsta skútan til að
sigla kringum jörðina undir ís-
lensku flaggi.
Síðasti spölurinn var frá Græn-
landi, en Kristófer segir að hann
hafi tekið nokkurn tíma vegna
djúpra lægða milli Íslands og Græn-
lands. Tvo daga hafi tekið að finna
rétta „gluggann“ til að sigla yfir.
Förin hófst í janúar á síðasta ári í
tilefni af sextugsafmæli hjónanna
beggja og 40 ára brúðkaupsafmæli
þeirra. „Þetta varð óskaplega
skemmtilegt samfélag, fólk á öllum
aldri, frá þriggja ára upp í áttrætt.
Þetta var meira eins og skemmtileg
sigling í góðra vina hópi, þótt menn
væru að keppa,“ segir Kristófer.
Fyrst um-
hverfis
hnöttinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skútan Hugur kom til Reykjavíkur í gær að lokinni hringferð um hnöttinn
Hugur Kristófer og Svanfríður sigldu inn í Reykjavíkurhöfn í gær eftir ferðalag sitt. Að sögn Kristófers
stefna þau næst til Svíþjóðar, þar sem skútan Hugur var smíðuð, en þar verður gert lítillega að skútunni.
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
Sjö hljómsveitir sem bókaðar hafa
verið á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
hótuðu því í gær að hætta við að
spila á hátíðinni nema að skýr
stefnubreyting kæmi frá bæjaryfir-
völdum í Vestmannaeyjum vegna
orðræðu og verklags lögreglustjór-
ans undanfarna daga.
Um er að ræða hljómsveitirnar og
tónlistarmennina Retro Stefson, Úlf
Úlf, Agent Fresco, Emmsjé Gauta,
Sturla Atlas, Dikta og GKR. Í kjöl-
farið gaf hljómsveitin Quarashi það
út að hún styðji hljómsveitirnar
heilshugar um að draga sig úr hátíð-
inni ef þjóðhátíðarnefnd og lög-
reglustjóri breyti ekki afstöðu sinni.
Í kjölfarið ákvað þjóðhátíðarnefnd
að bjóða Stígamótum og neyðar-
móttöku Landspítalans að taka út
forvarnarstarf, gæslu og viðbragðs-
teymi hátíðarinnar.
Í tilkynningu frá nefndinni sagði:
„ÍBV íþróttafélag skipuleggur og
heldur Þjóðhátíð Vestmannaeyja og
gerir allt sem stendur í valdi félags-
ins til að tryggja öryggi hátíðar-
gesta. Félagið hefur hins vegar ekk-
ert ákvörðunarvald um það hvenær
eða með hvaða hætti lögreglu-
yfirvöld kjósa að segja frá hugsan-
legum lögbrotum sem framin eru á
hátíðarsvæðinu.“
Ræða við Stígamót í dag
Hörður Orri Grettisson, tals-
maður þjóðhátíðarnefndar, sagði í
samtali við mbl.is að nefndin hefði
ekki tekið neina ákvörðun um hvað
farið yrði fram á af Stígamótum og
neyðarmóttöku, en hún væri opin
fyrir öllu og vildi heyra í aðilum
málsins. Haft yrði samband við
aðilana í dag, enda hefði lítill tími
gefist í gær, þar sem málið kom til-
tölulega seint upp og fólk farið heim.
Hljómsveitirnar funduðu í gær-
kvöldi, eftir yfirlýsingu þjóðhátíðar-
nefndar, en engin niðurstaða fékkst
á þeim fundi um hvernig brugðist
yrði við.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, sagði í samtali við
Ríkisútvarpið að það væri misskiln-
ingur að bæjaryfirvöld hefðu eitt-
hvað um löggæslu á Þjóðhátíð að
segja.
„Ég á nú erfitt með að vera með
viðbrögð gagnvart því hvar hljóm-
sveitir spila. Nú er það þannig að
Vestmannaeyjabær hvorki heldur
Þjóðhátíð né stjórnar lögreglunni,
þannig að það er kannski erfitt fyrir
mig að vera með einhver viðbrögð
gagnvart því hvað hljómsveitir velja
að gera eða hvernig þessi mál þróast
en vissulega er þessi umræða leið.“
Hóta að spila ekki á Þjóðhátíð
Sjö auglýstar hljómsveitir á Þjóðhátíð segjast draga sig úr dagskránni nema
skýr stefnubreyting komi frá bæjaryfirvöldum og lögreglu í Vestmannaeyjum
Morgunblaðið/Eggert
Hljómsveit Retro Stefson er ein
hljómsveitanna sem gagnrýnir.
Hverfisráð Kjalarness mótmælir
áformum Reykjavíkurborgar um að
leigja lóð í Esjuhlíðum af ríkissjóði
en þar hyggst fyrirtækið Esjuferðir
ehf. koma upp kláfi sem getur tekið
allt að 80 manns.
Í bókun hverfisráðsins á fundi
sínum, segir að borgin „gangi er-
inda einkafyrirtækis sem hafi mjög
einsleita sýn á uppbyggingu
útivistarsvæðis við Mógilsá,“ en
fyrirhuguð er bygging um 37 metra
hárra mastra og þjónustu-
miðstöðvar á Rauðhóli.
Áætlaður kostnaður við verkið er
um þrír milljarðar króna.
„Okkur finnst undirbúnings-
vinnan ekki hafa verið unnin í
nægu samráði við heimafólk, þá
sem búa þarna og þá sem nota
svæðið. Þess vegna báðum við um
að það yrði farið hægar og málið
skoðað betur áður en lóðin yrði tek-
in á leigu,“ segir Sigríður Péturs-
dóttir, formaður hverfisráðsins.
Að hennar sögn er hugmyndin
upprunalega komin frá verk-
fræðistofu, en í yfirlýsingunni eru
borgaryfirvöld hvött til að efna til
samkeppni um möguleikana í Esju-
hlíðum.
„Hugmyndin kemur frá þessu
eina fyrirtæki að því er best við vit-
um. Okkur finnst að borgin ætti að
koma meira að þessu sjálf og vera
búin að hugsa svæðið áður en eitt
fyrirtæki geti komið með sínar hug-
myndir,“ segir Sigríður.
Aðspurð hvort hverfisráðið legg-
ist gegn hugmyndinni um kláf í
heild, segir Sigríður ekki tímabært
að meta það að svo stöddu.
„Þetta er ekki komið á það stig.
Það er ekki búið að vinna nægilega
mikla vinnu til að leigja lóð, sem
okkur fannst of stórt skref. Undir-
búningsvinnan er eftir og samráð
við íbúa,“ segir hún.
Á fundi borgarráðs í gær hvöttu
Framsókn og flugvallarvinir til
þess að fullt tillit yrði tekið til bók-
unar hverfisráðsins. jbe@mbl.is
Leggjast gegn Esjuferju
Esjan Áform eru uppi um að byggja
kláf í Esjunni fyrir þrjá milljarða.
Borgin haft of lítið
samráð við íbúa Kjal-
arness um kláfinn
„Um kom-
andi versl-
unarmanna-
helgi verða
allar upplýs-
ingar veittar
um leið og
talið er að
það skaði
hvorki rann-
sóknarhags-
muni né vel-
ferð brotaþola. Undir þetta
falla upplýsingar um fjölda
brota, eðli þeirra og allar aðrar
þær upplýsingar sem almennt
eru veittar,“ segir m.a. í til-
kynningu sem Páley Borgþórs-
dóttir, lögreglustjóri í Vest-
mannaeyjum, sendi frá sér í
gær.
Allar upplýs-
ingar veittar
TILKYNNING FRÁ PÁLEYJU
Páley
Borgþórsdóttir