Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 22.07.2016, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 2016 Geimskipið Enterprise er núá þriðja ári sínu af fimmára sendiför um geiminn.Markmiðið er að kanna ókunnar lendur, uppgötva framandi líf og siðmenningu þar sem enginn hefur farið áður. En það er ekki laust við að samveran í geimnum hafi reynt á áhöfnina, og skipstjór- inn, James T. Kirk (Chris Pine), við- urkennir í dagbók sinni að hann sé orðinn nokkuð þreyttur á hinu dag- lega streði og veltir fyrir sér hvort að hann eigi að þiggja stöðuhækkun og hætta þannig könnunarferðum sínum um geiminn. Um líkt leyti fær næstráðandi hans, Vúlkaninn Spock (Zachary Quinto) þær fréttir að Spock eldri (Leonard Nimoy) sé látinn, og fær efasemdir um að kröftum hans sé best varið í þjónustu Stjörnuflotans. Eftir fremur misheppnaða sendiför fær áhöfnin stund milli stríða í nýj- ustu geimstöð flotans, Yorktown, sem er nánast eins og paradís í geimnum, tákn alls þess besta sem stjörnusambandið (e. Federation) stendur fyrir. Adam er hins vegar ekki lengi í paradís. Neyðarkall berst frá ná- lægri geimþoku og Enterprise er sent á vettvang til þess að kanna málið. Illmennið Krall (Idris Elba) vegur þar að skipinu úr launsátri, og fyrr en varir þurfa Kirk, Spock og hinir úr áhöfninni að taka á hinum stóra sínum, ætli þeir sér að komast lifandi frá hildarleiknum. Markmið Krall er einfalt, að leggja sambandið í rúst og fyrsta skotmark hans er Yorktown-stöðin. En hver er Krall og hvaðan kom hann? Star Trek Beyond er þrettánda myndin í hinum gríðarmikla kvik- myndabálk sem spratt upp úr Star Trek-sjónvarpsþáttunum vinsælu, og sú þriðja sem gerist í hinum nýja söguheim, sem J.J. Abrams bjó til árið 2009 á grunni hins gamla. Fyrri myndirnar tvær fengu báðar góða dóma, þó að ýmsum gömlum trekk- urum þættu þær kannski leggja full- mikið upp úr hasarnum á kostnað hins tilfinningaríka og mannlega vís- indaskáldskapar sem ávallt hefur einkennt Star Trek. Skemmst er frá því að segja að líklega kemst Star Trek Beyond einna næst því að líkjast gömlu góðu sjónvarpsþáttunum, en þeir fagna einmitt hálfrar aldar afmæli sínu í september næstkomandi. Handritið, sem breski gamanleikarinn Simon Pegg er annar höfunda að, er á stundum mjög í anda gömlu þátt- anna, þar sem lagt var upp úr sam- spilinu á milli Kirk, Spock og skips- læknisins McCoy (Karl Urban) og það nálgaðist dauðadóm fyrir auka- leikara að setja á sig rauða skyrtu. Þá er sjaldan langt í húmorinn. Það sést langar leiðir að leik- ararnir eru greinilega komnir með góð tök á karakterum sínum. Chris Pine er í atferli og raddbeitingu nán- ast orðinn að William Shatner, sem lék Kirk í gamla daga. Þá er það sér- staklega hrein unun að fylgjast með þeim Urban og Quinto í hlutverkum sínum sem læknirinn tilfinningaríki og hinn kaldi Vúlkani sem horfir á allt með augum rökhyggjunnar. Þá ná Pegg í hlutverki Scottys vélstjóra og Sofia Boutella í hlutverki geim- verunnar Jailuh (Kingsman) mjög vel saman. Hasarinn er þó á sínum stað og eru allar tæknibrellurnar fram- kvæmdar með miklum sóma. Þar glittir þó ögn í það að leikstjórinn Justin Lin, sem tók við keflinu af J.J. Abrams þegar sá fór að búa til Stjörnustríðsmyndir, er einna þekktastur fyrir þátt sinn í Fast and the Furious-myndunum. Hefði lík- lega að ósekju mátt stytta myndina um heilar fimmtán mínútur með því að klippa hasaratriðin ögn betur til, en þó dregur það lítið úr gæðum myndarinnar í heild. Ef handrit myndarinnar er henn- ar helsti styrkur, þá er þar einnig Akkilesarhælinn að finna. Lang- stærsti galli myndarinnar er nefni- lega í þrjótinum Krall. Breski stór- leikarinn Idris Elba leysir hlutverk hans mjög vel af hendi eins og hans var von og vísa, en Krall og kónar hans eru samt sem áður ekki nógu vel kynntir til sögunnar með þeim afleiðingum að þeir virka nánast eins og illmenni úr Disney-mynd, sem eru vondir bara til þess að vera vondir. Það dregur til dæmis veru- lega úr tengingu áhorfandans við myndina, þegar búinn er til „loka- bardagi“ við einn af aðstoð- armönnum Kralls, án þess að hann hafi nokkra baksögu svo nokkru nemi. Þrátt fyrir þessa hnökra er Star Trek Beyond ekki bara verðug við- bót í kvikmyndabálkinn, heldur hefði vart verið hægt að biðja um betri afmælisgjöf á hálfrar aldar af- mæli þáttanna en einmitt mynd sem nær að blanda saman öllu því besta sem Star Trek, bæði þættir og myndir, hafa gert í gegnum tíðina. Hálfrar aldar afmælinu fagnað Ber er hver að baki Samspilið á milli þeirra McCoy (Karl Urban) og Spock (Zachary Quinto) er á meðal hápunkta myndarinnar að mati gagnrýnanda Morgunblaðsins, sem gefur Star Trek Beyond fjórar stjörnur. Sambíóin og Smárabíó Star Trek Beyond bbbbn Leikstjóri: Justin Lin. Handrit: Simon Pegg og Doug Jung. Aðalhlutverk: Chris Pine, Zachary Quinto, Karl Urban, Zoe Saldana, John Cho, Simon Pegg, Anton Yelchin, Sofia Boutella og Idris Elba. Bandaríkin 2016, 122 mínútur. STEFÁN GUNNAR SVEINSSON KVIKMYNDIR Frumsýndar verða tvær nýjar vís- indaskáldsögumyndir í dag og end- ursýnd hin klassíska unglingamynd Clueless en hún kom út árið 1995. Vísindaskáldsögurnar eru kannski nýjar en eru byggðar á gömlum grunni; þannig þekkja allir til Star Trek og Ghostbusters. Star Terk Beyond Nýjasta Star Trek-myndin, Star Trek Beyond, er sú þrettánda í röð- inni og kom sú fyrsta, Star Trek: The Motion Picture, út árið 1979. Þessi er sú þriðja í röð nýrrar kyn- slóðar Star Trek-mynda með stór- leikurum á borð við Chris Pine, Zachary Quinto, Zoe Saldana og Simon Pegg fyrir framan myndavél- ina. Leikstjórinn Justin Lin leikstýrir myndinni og Simon Pegg og Doug Jung eru meðal þeirra sem skrifa handritið. Imbd: 86% Metacritic: 71% Rotten Tomatoes: 93% Ghostbusters Líkt og Star Trek ættu flestir 30 ára og eldri að muna eftir Ghost- busters en fyrsta myndin kom út ár- ið 1984 og önnur 1989. Núna eftir ansi langt hlé er verið að endurvekja draugabanana en í stað hinna klass- ísku Bill Murray, Dan Aykroyd, Ha- rold Ramis og Emie Hudson í hlut- verkum draugabananna eru komnar þær Melissa McCarthy, Kristen Wi- ig, Kate McKinnon og Leslie Jones. Myndin er í leikstjórn Paul Feig. Imbd: 53% Metacritic: 60% Rotten Tomatoes: 73% Clueless Alicia Silverstone er í ógleyman- legu hlutverki sem dekurdrósin Cher í unglingamyndinni Clueless. Myndin fjallar um hóp forríkra og ofdekraðra krakka í Beverly Hills þar sem allt snýst um vinsældir og að falla inn í hópinn. Myndin er laus- lega byggð á skáldsögunni Emma eftir Jane Austin og hún kom fyrst í bíóhús árið 1995. Imbd: 68% Metacritic: 68% Rotten Tomatoes: 81% Bíó Tvær nýjar og ein gömul í bíó. Vísindaskáldsögur Í bókadómi Steinþórs Guðbjarts- sonar um bókina Villibráð eftir höf- undinn Lee Child, sem birtist á menningarsíðu Morgunblaðsins í gær, var eingöngu birtur rökstuðn- ingur einkunnarinnar en ekki ein- kunnin sjálf. Steinþór gaf bókinni fjórar og hálfa stjörnu en hann seg- ir Villibráð vera eina af þessum spennusögum sem hafa allt og þýð- ingin sé góð. Leiðrétting: bókadóm- ur um Villibráð bbbbm Spennusaga Villibráð STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Verkfærasalan - Síðumúla 11 - 560-8888 - www.vfs.is Frábær verð! 99.900 Verð Bandsög 100mm Stærð blaðs 1470x13mm. Geta í 90° 100x150mm. TT 388001 129.900 Verð Bandslípivél 75x2000mm Öflug bandslípivél með 3.000W mótor. Band 75x2000mm TT389001 GHOSTBUSTERS 5, 8, 10:30 THE INFILTRATOR 5, 8, 10:35 ÍSÖLD ÍSL.TAL 3:50, 5:50 CENTRAL INTELLIGENCE 8 MIKE AND DAVE 10:25 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL 3:50 TILBOÐ KL 5 TILBOÐ KL 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.