Morgunblaðið - 28.07.2016, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2016
Fylgist með okkur á facebook
ÚTSALAÚTSALAÚTSALA
Götumarkaðurinn hefst í d
ag
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Um þrjúleytið í gær barst stjórn-
stöð Landhelgisgæslunnar tilkynn-
ing um að rannsóknarskipið Dröfn
hefði strandað í Þorskafirði á
Barðaströnd. Þyrla Gæslunnar var
kölluð á vettvang og björgunar-
sveitir á svæðinu voru einnig kall-
aðar út.
Er þyrlan kom á staðinn kannaði
áhöfn hennar aðstæður og hvort
borist hefði mengun frá skipinu
sem reyndist ekki vera. Aðstæður á
vettvangi voru góðar og engin
hætta var talin vera á ferðum.
Ákveðið var að bíða eftir flóði og
freista þess að losa skipið þegar
það yrði, en næsta flóð var laust eft-
ir miðnætti í nótt.
Björgunarsveitarmenn af svæð-
inu voru á vettvangi fram eftir
kvöldi en áhöfnin á Dröfn vann sjálf
að því að losa skipið undir eftirliti
Landhelgisgæslunnar.
Dröfn
strandaði í
Þorskafirði
Reyna átti að ná
skipinu á flóði í nótt
Strand Rannsóknarskipið Dröfn
strandaði í Þorskafirði í gær.
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, hefur lagt
fram kæru vegna ærumeiðandi um-
mæla á netinu. Þetta kemur fram á
Facebook-síðu hennar.
„Teningunum er kastað. Eftir
rúmlega sjö ára níðskrif um mig á
netinu gekk ég á fund lögreglunnar
og lagði fram kæru vegna ærumeið-
andi ummæla og skrifa. Nú fer málið
í ferli,“ skrifar Vigdís en tilefnið er
listi sem vefsíðan Sandkassinn birti
eftir helgi yfir tuttugu einstaklinga
sem sagðir voru vera „nýrasistar“.
Vigdís sagði í samtali við mbl.is í
gær að hún hefði ekki getað setið
undir þeim ummælum sem höfð voru
um hana á síðunni.Vefsíðunni hefur
nú verið lokað en þar sagði að nýras-
istar væru þeir sem verið hefðu
áberandi í þjóðfélagsumræðunni og
beitt sér gegn fólki á grundvelli
þjóðernis, litarháttar eða uppruna.
Fyrir utan Vigdísi voru m.a. á list-
anum Gústaf Adolf Níelsson sagn-
fræðingur og Ásmundur Friðriksson
þingmaður.
Vigdís Hauks-
dóttir kærir
ummæli
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Hálendisvakt björgunarsveitanna í
sumar hefur gengið með ágætum, en
liðlega 150 manns sinna vaktinni sem
nú er rúmlega hálfnuð.
„Tíðafarið er oft ákvarðandi hvað
varðar þessi alvarlegri atvik og við
höfum verið mjög heppin með veður
það sem af er sumri,“ segir Guð-
brandur Örn Arnarson hjá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörgu.
„En það hefur verið viss renning-
ur af verkefnum og það þarf ekki
mikið út af að bregða í veðrinu til að
það verði mun meira að gera hjá
okkur, en hingað til hefur það hjálp-
að okkur að halda þessum alvarlegri
atvikum í skefjum,“ segir Guðbrand-
ur og bætir við að yfirleitt komi há-
lendisvaktin að rúmlega 300 atvikum
á hverju ári.
Spurður hvort fjölgun erlendra
ferðamanna hafi í för með sér aukið
álag segir hann að vissulega geri hún
það.
„En við finnum svolítið öðruvísi
fyrir henni. Þar sem við höfum sett
mikla áherslu á forvarnir þá reynum
við að tala mikið við sjálfa ferða-
mennina og höfum fjölgað upplýs-
ingaskjám, auk þess sem heimsókn-
um á vefinn okkar fer sífellt
fjölgandi.“
Þá segir Guðbrandur að aðeins
með samstilltu átaki náist að forða
fólki frá því að lenda í vandræðum.
„Við finnum það að forvarnir okk-
ar eru að virka mjög vel, enda höfum
við verið dugleg að efna til samstarfs
við ferðaþjónustuaðila, bílaleigur og
fleiri. Við búum náttúrulega í þessu
harðbýla landi og þurfum að miða
allt okkar starf við þær aðstæður.“
Veðrið er hálendisvaktinni hliðhollt í ár
Fjölgun erlendra ferðamanna á Íslandi hefur fyrst og fremst áhrif á forvarnarstarf Landsbjargar
Morgunblaðið/Eggert
Björgunarsveit Liðlega 150 manns
sinna vaktinni yfir allt sumarið.
Hálendisvaktin
» Landsbjörg hefur staðið fyr-
ir vaktinni í tíu ár, en hún á að
efla slysavarnir á hálendinu.
» Björgunarsveitir skiptast á
að vera á hálendinu, til að leið-
beina og aðstoða ferðafólk.
» Eru þær í Nýjadal á Sprengi-
sandsleið, Drekagili við Öskju
og við Landmannalaugar.