Morgunblaðið - 28.07.2016, Page 27
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2016
fjölda einkasýninga frá 1971 og
tekið þátt í fjölda samsýninga hér
heima og víða erlendis. „Ég hef far-
ið um víðan völl í listsköpun minni,
byrjaði sem geómetrískur
abstraktmálari, en smám saman
fóru myndirnar að verða fígúratíf-
ari. Ég geri mikið af skyssum og er
lengi að mála verkin. Undirstöðu-
þættir málverksins, það er að segja
form, bygging og litur, hafa ávallt
höfðað sterkt til mín.“
Sigurður hlaut Menningar-
verðlaun DV 1989 fyrir myndlist og
hefur hlotið starfslaun listamanna
nokkrum sinnum.
„Ég hef varla áhuga á neinu öðru
en málaralist. Hlusta þó á tónlist
og alltaf þegar ég er að mála, mest
djass og klassík, og horfi á kvik-
myndir af mikilli ástríðu. Auk þess
tefli ég gjarnan við góða vini öðru
hverju til gamans.“
Fjölskylda
Kona Sigurðar er Ingibjörg
Einarsdóttir f. 25.08.51, hjúkrunar-
fræðingur. Foreldrar hennar: Ein-
ar Sigurbjörnsson, f. 19.2. 1917, d.
19.4. 1975, bóndi í Hjörsey á Mýr-
um, og k.h. Matthildur Soffía Marí-
asdóttir, f. 14.5. 1919, húsfreyja í
Hjörsey. Fyrri kona Sigurðar er
Ingveldur Róbertsdóttir, f. 30.5.
1953, prófarkalesari og þýðandi.
Börn Sigurðar og Ingveldar eru 1)
Unnur Malín, f. 17.2. 1984, söng-
kona og tónskáld, bús. á Reykja-
völlum í Biskupstungum, maki:
Arnar Sigurbjartsson húsamálari,
sonur: Unnsteinn Magni, f. 2010;
Þorvaldur Kári, f. 3.3. 1985,
tónlistarmaður og -kennari, bús. í
Reykjavík; Arnljótur, f. 20.11. 1987,
tónlistarmaður í Reykjavík; Gylfi, f.
17.9. 1990, myndlistarmaður og
tónlistarmaður í Reykjavík, og Val-
gerður, f. 14.9. 1992, myndlistar-
maður í Antwerpen, maki: Baldvin
Einarsson myndlistarmaður. Dóttir
Sigurðar og Hrefnu Steinþórs-
dóttur f. 1.4.1949, er Theódóra
Svala, f. 6.3. 1978, námsmaður í
Reykjavík, maki: Egill Sverrisson
sölumaður, börn: Viktor, f. 2000,
Erik Alexander, f. 2002, og Bjarki
Hrafn, f. 2014.
Systir Sigurðar er Malín, f. 17.4.
1950, fatahönnuður og kaupmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Sigurðar: Örlygur Sig-
urðsson, f. 13.2. 1920, d. 24.10.
2002, listmálari í Reykjavík, og
k.h., Unnur Eiríksdóttir, f. 3.6.
1920, d. 30.12. 2008, verslunar-
maður í Reykjavík.
Úr frændgarði Sigurðar Örlygssonar
Sigurður
Örlygsson
Margrét Eyjólfsdóttir
húsfr. í Garðar, frá
Efra-Apavatni, Árn.
Halldór Þorsteinn Halldórsson
Ármann fór til Vesturheims og settist að í
Garðar, N-Dakota
Valgerður Kristín Halldórsdóttir
húsfreyja í Rvík
Eiríkur Hjartarson
raffræðingur og kaupm. í Rvík
Unnur Eiríksdóttir
kaupmaður í Reykjavík
Margrét Prjóna-Eiríksdóttir
húsfr., frá Uppsölum
Hjörtur Guðmundsson
bóndi á Uppsölum í Svarfaðardal
Malín
Örlygsdóttir
fata-
hönnuður í
Rvík
Örlygur
Smári
tónlistar-
maður í
Rvík
Margrét Eiríksdóttir
píanóleikari í Rvík
Auður Eiríksdóttir
kennari í Rvík og Hafnarf.
Valgerður
Andrésdóttir
píanóleikari í Rvík
Gamalíel
Hjartarson
b. á Uppsölum
Hannes
Gamalíelsson
fulltrúi í Rvík
Jón Þór
Hannesson
fv. frkvstj.
Sagafilm
Ólafur
Sigurðsson
yfirlæknir á Akureyri
Steingrímur Th. Sigurðsson
listmálari
Halldóra
Ólafsdóttir
yfirlæknir í Rvík
Ingibjörg
Guðmundsdóttir
kennari, síðar húsfr. í
Síðumúla, Borgarf.
Þorbjörg
Andrésdóttir
hjúkrunarfr.
í Rvík
Ólafur Óskar
Axelsson
arkitekt og
tónskáld
Víkingur
Heiðar
Ólafsson
píanóleikari
Jón Halldórsson
b. á Ásláksstöðum á
Vatnsleysuströnd
Guðjón Jónsson
kaupm. í Vík í
Mýrdal, síðar bryti
Kjartan Guðjónsson
listmálari
Þórunn Ólafsdóttir
húsfr., frá Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi
Ólafur Finnsson
prestur í Kálfholti í
Holtum, Rang
Halldóra Ólafsdóttir
húsfr. í Rvík og á
Akureyri
Sigurður Guðmundsson
skólameistari MA á
Akureyri
Örlygur Sigurðsson
listmálari í Reykjavík
Ingibjörg Guðrún
Sigurðardóttir
húsfr., frá Reykjum á
Reykjabraut
Guðmundur Erlendsson
hreppstj. og bóndi í Mjóadal í Laxárdal, A-Hún
Guðmundur Ingvi
Sigurðsson
lögfr. í Rvík
Sigurður Guðmundsson
prófessor í HÍ og fyrrv.
landlæknir
Þórunn Guðmundsd.
hrl. og form. bankaráðs Seðlab.
100 ára
Guðbjörg J. Runólfsdóttir
85 ára
Guðbjörg Jónsdóttir
Hulda Jóhannsdóttir
Margrét Karlsdóttir
80 ára
Ásta Svanhvít Þórð-
ardóttir
Einar Gunnar Jakobsson
Marinó Haraldsson
Maríus Kárason
Ólafur Halldór Torfason
75 ára
Friðrik Ragnarsson
Lýður Vigfússon
Ólöf Auðbjörg Ósk-
arsdóttir
Valdimar H. Jóhannesson
Valur Helgason
William Sigurjón Tracey
70 ára
Björn Jakobsson
Fanney Lára Einarsdóttir
Gunnar Guðlaugsson
Ragnheiður Helga
Jóhannsdóttir
Sigrún Ragnarsdóttir
Sigurður Örlygsson
Vera Snæhólm
Ægir Ellertsson
60 ára
Anna Lára Þorsteinsdóttir
Edda Sóley Óskarsdóttir
Guðmundur Rúnar
Ólafsson
Guðrún Guðmundsdóttir
Gunnlaugur B.
Gunnlaugsson
Jacek Jan Surma
Jófríður Alda Halldórs-
dóttir
Jón Sigurður Snorrason
Kristjana Axelsdóttir
Kristjana Sigmundsdóttir
Roza Krystyna Jagielska
Sigtryggur S. Sigtryggs-
son
50 ára
Anna Dóra Sæþórsdóttir
Bergþóra Njálsdóttir
Elín Sigurðardóttir
Hanna Jakubowska
Lilja Þorkelsdóttir
Ragnheiður Baldursdóttir
Víðir Ólafsson
40 ára
Agnieszka Katarzyna
Szczesna
Baldur Friðbjörnsson
Birgir Örn Guðjónsson
Guðlaugur Michael Steed
Guðmundur Ísfeld
Hákon Rúnar Jónsson
Júlíus Örn Júlíusson
Kristín Hrönn
Guðmundsdóttir
Pálmi Þór Erlingsson
Wichien Sawatraksa
30 ára
Dagný Jóhannesdóttir
Guðný Björg Hjálm-
arsdóttir
Hrefna Líf Ólafsdóttir
Íris Hildur Sigmarsdóttir
Katrín Stefánsdóttir
Laxman Gurung
Mads Rosager Hansen
Marlena Marta Bosowska
Monika Toczydlowska
Ragnhildur Anna
Ragnarsdóttir
Solveiga Jonikiené
Unnþór Jónsson
Valur Oddgeir Bjarnason
Til hamingju með daginn
40 ára Pálmi er úr Vog-
um á Vatnsleysuströnd en
býr í Njarðvík. Hann er
sjálfstætt starfandi og
byggir hús.
Maki: Elín Sigríður Krist-
jánsdóttir, f. 1986, flug-
freyja hjá Icelandair.
Börn: Kristján Þór, f.
2005, og Alexander og
Baltasar, f. 2015.
Foreldrar: Erlingur Garð-
arsson, f. 1949, og Anna
Valdís Jónsdóttir, f. 1956.
Þau búa í Vogum.
Pálmi Þór
Erlingsson
30 ára Unnþór er Ísfirð-
ingur en býr í Reykjavík.
Hann er lögfræðingur og
starfar við löginnheimtu
hjá Íslandsbanka.
Maki: Viktoría Guð-
mundsdóttir, f. 1986, lög-
fræðingur hjá Sýslumann-
inum á höfuðborgar-
svæðinu.
Foreldrar: Jón Þorgrímur
Steingrímsson, f. 1947, d.
2014, skipstjóri, og Hug-
ljúf Ólafsdóttir, f. 1950,
matráður í MÍ.
Unnþór
Jónsson
30 ára Valur er frá Akra-
nesi en býr í Kópavogi og
starfar sem verkfræð-
ingur fyrir CFD Odin.
Maki: Guðrún Helga
Heiðarsdóttir, f. 1985,
verkfræðingur hjá Ice-
landair Hotels.
Dóttir: Bergdís Freyja, f.
2014.
Foreldrar: Bjarni O.V.
Þóroddsson, f. 1943,
byggingatæknifræðingur,
og Kristín Dýrmunds-
dóttir, f. 1945, sjúkraliði.
Valur Oddgeir
Bjarnason
Eva Marín Hlynsdóttir hefur varið
doktorsritgerð sína í stjórnmálafræði
við stjórnmálafræðideild Háskóla Ís-
lands. Ritgerðin nefnist The Icelandic
Mayor: A comparative Analysis of Politi-
cal and Administrative Leadership Ro-
les at the Icelandic Local Government
Level (Íslenskir bæjar- og sveitarstjórar:
Samanburðargreining á hlutverkum
þeirra í stjórnmálum og stjórnsýslu).
Leiðbeinandi var dr. Gunnar Helgi
Kristinsson, prófessor við stjórnmála-
fræðideild Háskóla Íslands.
Markmið rannsóknarinnar var að
greina hlutverk bæjar- og sveitarstjóra
á Íslandi út frá samskiptum þeirra við
sveitarstjórn, stjórnsýslu, íbúa sveitar-
félagsins og ytri aðila. Rannsóknin var
unnin á kjörtímabilinu 2010-2014, gerð
var skoðanakönnun meðal allra ís-
lenskra bæjar- og sveitarstjóra og odd-
vita í smærri sveitarfélögum, jafnframt
voru tekin viðtöl við bæjar- og sveitar-
stjóra í sveitarfélögum með yfir 500
íbúa. Sett var fram flokkun, á einföldum
kvarða, á íslenskum bæjar- og sveitar-
stjórum sem réðst af því hvort bæjar-
og sveitarstjórar telja að hlutverk þeirra
eigi fyrst og fremst að ráðast af póli-
tísku hlutleysi eða ekki.
Niðurstöðurnar
benda til að íbúa-
fjöldi sveitarfélags
ásamt kyni bæjar-
og sveitarstjóra
skipti verulegu
máli þegar kemur
að því að skýra röð-
un þeirra á kvarð-
anum. Þannig eru
faglegir bæjar- og sveitarstjórar í litlum
sveitarfélögum með lítið stjórnsýslulegt
bolmagn oftar á pólitískt hlutlausum
enda kvarðans. Einnig er mikill meiri-
hluti faglegra kvenbæjar- og sveit-
arstjóra staðsettur á pólitískt hlut-
lausum enda ássins. Þá er greinanlegur
munur á milli þess hvort pólitískir bæj-
ar- og sveitarstjórar leggja meiri áherslu
á stjórnsýslulegt hlutverk sitt eða póli-
tískt hlutverk.
Að lokum sýna niðurstöður að ís-
lenskir bæjar- og sveitarstjórar leika al-
mennt stórt samfélagslegt hlutverk.
Mikilvægi þeirra sem leiðtoga bæði inn-
an samfélagsins og út á við er mun
meira en almennt þekkist í Norður-
Evrópu og er á margan hátt líkara því
sem gerist í sveitarfélagakerfum sunnar
í álfunni.
Eva Marín Hlynsdóttir
Eva Marín Hlynsdóttir (f. 1975) lauk BA-prófi í stjórnmálafræði 2001, þremur ár-
um síðar lauk hún MA-prófi í stjórnmálafræði og MPA-prófi árið 2011. Hún hefur
starfað við kennslu á framhalds- og háskólastigi frá 2006 og er lektor í opinberri
stjórnsýslu við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Eva Marín er gift Sveini
Hannesi Sveinssyni og eiga þau tvö börn, Silju Rut og Svein Jökul.
Doktor
Eðalfiskur ehf • Sólbakka 4 • 310 Borgarnesi • S. 437 1680 • sala@edalfiskur.is • www.edalfiskur.is
Reyktur og grafinn
Eðallax
fyrir ljúfar stundir