Morgunblaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016 19 daga ferð á ári APANS 1.-19. nóv. 2016 með KÍNAKLÚBBI UNNAR Farið verður til SHANGHAI, SUZHOU, TONGLI, GUILIN, XIAN og BEIJING. Einnig siglt á LI fljótinu og farið upp á KÍNAMÚRINN. Heildarverð á mann: Kr. 660 þúsund Kínastund Hópar og einstaklingar geta pantað „Kínastund“, á Njálsgötunni, með mynda- sýningu, sýningu á Tai-Chi og kínverskum listmunum, ásamt veitingum. Kínasafn Unnar Njálsgötu 33B, er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14.00–16.00. Aðgangur kr. 1.000.- Einnig er hægt að panta sérsýningar. Allt innifalið, þ.e. full dagskrá skv. ferðaskrá, gisting í tvíbýli á 4-5 stjörnu hótelum (einb. + 100 þ.), fullt fæði með máltíðardrykkjum, skattar og gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar Guðjónsdóttur, en þetta verður 38. hópferðin, sem hún skipuleggur og leiðir um Kína. Ferðaskráin er á vefnum. Til Kína með konu sem kann sitt Kína Kínaklúbbur Unnar Njálsgötu 33, 101 Reykjavík sími: 551 2596, farsími: 868 2726 Vefsíða: kinaklubbur.weebly.com Netfang: kinaklubbur@simnet.is 60 þúsund kr. afsláttur fyrir þá sem greiða fyrir 1. september. Hjörtur J. Guðmundsson hjortur@mbl.is Fyrir liggur að þungavigtarfólk mun hverfa á braut úr þingflokkum núver- andi stjórnarflokka, Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokksins, eftir næstu þingkosningar óháð því hverjar niðurstöður kosninganna verða. Þannig tilkynnti Illugi Gunn- arsson menntamálaráðherra í gær að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðislokksins í Reykjavík, sem fram fer 3. septem- ber. Framboðsfrestur rann út í gær klukkan 16. Áður hafði Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi innanrík- isráðherra, lýst því yfir að hún ætlaði ekki að gefa kost á sér til áframhald- andi þingmennsku. Þau Hanna Birna og Illugi vermdu efstu sæti framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík fyrir síðustu þingkosningar og því ljóst að sjálf- stæðismenn þurfa að velja sér nýja oddvita fyrir kjördæmin. Við það bæt- ist að Pétur H. Blöndal lést á síðasta ári en hann skipaði þriðja sætið á framboðslistanum fyrir kosningarnar 2013. Brynjar Níelsson var í fjórða sætinu og hyggst gefa áfram kost á sér. Hann stefnir á eitt af efstu sæt- unum. Ólöf stefnir á fyrsta sætið Ólöf Nordal, innanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, stefnir á fyrsta sætið á framboðslist- anum en hún á ekki sæti á þingi. Þing- mennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson, Birgir Ármannsson og Sigríður Á. Andersen gefa áfram kost á sér. Guð- laugur stefnir á að skipa efsta sætið í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu og Birgir og Sigríður Á., sem tók við þingsæti Péturs H. Blöndal, stefna á sæti ofarlega á listanum. Þá stefnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, á 2.-3. sæti. Alls lýstu 16 einstaklingar yfir framboði í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík Auk ofan- greindra má nefna, að Hildi Sverris- dóttur, borgarfulltrúi, og Guðmund Franklin Jónsson, sem leiddi flokkinn Hægri græna. Tekist á um oddvitasætið Þrír þingmenn Framsóknarflokks- ins í Reykjavík ætla ekki að gefa áfram kost á sér til þingmennsku; Vigdís Hauksdóttir, Frosti Sigurjóns- son og Sigrún Magnúsdóttir um- hverfisráðherra. Fjórði þingmaður flokksins í höfuðborginni, Karl Garð- arsson, hyggst hins vegar gefa kost á sér í efsta sætið í Reykjavíkurkjör- dæmi norður. Hann er nú annar þing- maður Framsóknarflokksins í Reykjavík suður. Þorsteinn Sæmundsson, þingmað- ur Framsóknarflokksins í Suðvestur- kjördæmi, ætlar að reyna fyrir sér í Reykjavíkurkjördæmi norður og stefnir á fyrsta sætið og sama á við um Hauk Loga Karlsson lögfræðing. Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra stefnir á fyrsta sætið á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavíkur- kjördæmi suður. Valið verður í fimm efstu sætin á framboðslista Fram- sóknarflokksins í Reykjavík á tvö- földu kjördæmaþingi sem fram fer 27. ágúst. Tekist verður á um oddvita sjálf- stæðismanna í Suðurkjördæmi en þar er sótt að Ragnheiði Elínu Árnadótt- ur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Ás- mundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, stefnir á fyrsta sætið og sama á við um Pál Magn- ússon, fyrrverandi útvarpsstjóra. Þá hefur Árni Johnsen, fyrrverandi þing- maður flokksins, lýst yfir framboði í eitt af efstu sætunum. Unnur Brá Konráðsdóttir og Vilhjálmur Árnason gefa áfram kost á sér. Unnur stefnir á 2. sætið og Vilhjálmur það þriðja. Prófkjörið fer fram 10. september. Einar K. Guðfinnsson, forseti Al- þingis, ætlar að hætta á þingi og Har- aldur Benediksson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, vill leiða listann. Teitur Björn Einarsson, að- stoðarmaður fjármálaráðherra, vill einnig fylla skarð Einars. Þá hyggst Ragnheiður Ríkharðsdóttir láta af þingmennsku en aðrir þingmenn Suð- vesturkjördæmis ætla að gefa áfram kost á sér. Framsóknarþingmennirn- ir Haraldur Einarsson og Páll Jóhann Pálsson gefa ekki áfram kost á sér. Ekki er vitað annað en að aðrir þing- menn flokksins gefi áfram kost á sér. Tekist á um oddvitasæti hjá ríkisstjórnarflokkunum  Forystusæti í þremur kjördæmum laus  Tveir ráðherrar gefa ekki kost á sér Morgunblaðið/Golli Þingmenn Þegar er ljóst að talverðar breytingar verða á þingliði ríkis- stjórnarflokkanna óháð því hvernig næstu kosningar kunna að fara. Valið á framboðslista » Prófkjör fara fram hjá Sjálf- stæðisflokknum í öllum kjör- dæmum. Prófkjör verða 3. september í Reykjavík, Norð- vesturkjördæmi og Norðaust- urkjördæmi en 10. september í Suðvesturkjördæmi og Suður- kjördæmi. » Valið verður á framboðslista Framsóknarflokksins á kjör- dæmaþingum og aukakjör- dæmaþingum. Tvöfalt kjör- dæmaþing fer fram í Reykjavík 27. ágúst og aukakjördæma- þing í Suðvesturkjördæmi 25. ágúst. Þá verða auka- kjördæmaþing 20. ágúst í Norðvestur- og Norðaustur- kjördæmi og kjördæmisþing í Suðurkjördæmi sama dag. Tekist verður á um oddvitasætið á framboðslista Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs í Norðvest- urkjördæmi vegna næstu þingkosn- inga. Flokkurinn fékk einn þingmann kjörinn í síðustu kosn- ingum, Lilju Rafneyju Magn- úsdóttur, sem gefur áfram kost á sér sem oddviti framboðslistans. Það sæti vill einnig Bjarni Jónsson, for- maður Svæðisfélags VG í Skagafirði. Þá gefur Lárus Ástmar Hannesson kost á sér í 1.-2. sæti og Rúnar Gísla- son stefnir á 1.-3. sæti. Samanlagt gefa ellefu kost á sér í forvali um sex efstu sætin sem fram fer 31. ágúst til 5. september. Framboðslisti VG í Norðaustur- kjördæmi liggur þegar fyrir, en valið var á hann með uppstillingu. Efstu þrjú sætin skipa þingmennirnir Steingrímur J. Sigfússon og Bjarkey Gunnarsdóttir og varaformaður flokksins, Björn Valur Gíslason. Uppstilling er einnig í öðrum kjör- dæmum. Einn þingmaður VG hætt- ir, Ögmundur Jónasson, sem er eini þingmaður flokksins í Suðvestur- kjördæmi. Ekki er vitað annað en að aðrir ætli að gefa áfram kost á sér. Tveir hætta Tveir þingmenn Samfylkingar- innar hætta, Kristján L. Möller og Katrín Júlíusdóttir. Ekki er vitað annað en að aðrir þingmenn flokks- ins ætli að gefa áfram kost á sér. Ólína Þorvarðardóttir fær mót- framboð í Norðvesturkjördæmi, en hún tók við þingmennsku á kjör- tímabilinu af Guðbjarti Hannessyni heitnum. Inga Björk Bjarnadóttir býður sig fram í 1.-2. sæti framboðs- lista flokksins. Helmingur þingflokks hættir Stillt verður upp á framboðslista Bjartrar framtíðar í öllum kjör- dæmum og stefnt að því að listanir liggi fyrir 10. september, þegar árs- þing flokksins fer fram. Helmingur þingmanna flokksins gefur ekki kost á sér áfram; þau Guðmundur Stein- grímsson, fyrrverandi flokks- formaður, Brynhildur Pétursdóttir og Róbert Marshall. Hinir þrír hafa í hyggju að bjóða áfram fram krafta sína: Björt Ólafsdóttir, Óttarr Proppé og Páll Valur Björnsson. Skoðanakannanir undanfarna mánuði hafa ekki verið Bjartri fram- tíð hliðhollar og hafa þær bent til þess að flokkurinn nái ekki lág- marksfylgi samkvæmt lögum til þess að fá fulltrúa kjörna á Alþingi. Það er 5%. Því er alls óvíst hvort ein- hverjir af þingmönnum Bjartrar framtíðar eigi afturkvæmt á þing. hjorturjg@mbl.is Farið gegn tveimur oddvit- um Vinstri grænna  Björt framtíð stillir upp á framboðslista flokksins Morgunblaðið/Kristinn Breytingar Ögmundur Jónasson gefur ekki áfram kost á sér fyrir VG. Jón Valdimar Jóhannsson, sem eftirlýstur var af Alþjóðalögreglunni (Interpol) í maí síðastliðnum, er kominn í leitirnar. Leitað var að honum í tengslum við stórfellda líkamsárás sem framin var á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi árið 2014. Mál hans hefur nú verið þingfest í héraðsdómi og er Jón Valdimar kærður fyrir að hafa hrint öðrum karlmanni með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut lífshættulega áverka á höfði. Er fórnarlambið sagt þjást af varanlegri skerðingu, hægri hugs- un og þunglyndi auk þess sem maðurinn glímir við skert líkamlegt og andlegt þol eftir fallið. Háttsemi Jóns Valdimars er talin varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, en grein sú fjallar um líkamsárásir sem valda öðrum tjóni á líkama eða heilbrigði. Ákæra var gefin út í málinu í febr- úar síðastliðnum, en við handtöku- skipun sinnti Jón Valdimar ekki fyrirkalli og boðaði ekki lögmæt for- föll. Var því haft samband við Inter- pol, sem því næst lýsti eftir honum. Er slíkt venjan þegar líkur eru tald- ar á að viðkomandi sé utan heima- lands síns, en samkvæmt ákæru er Jón Valdimar búsettur í Danmörku. AFP Interpol Jón Valdimar er grunaður um stórfellda líkamsárás árið 2014. Mál Jóns þingfest í héraði  Var eftirlýstur af Interpol eftir árás

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.