Morgunblaðið - 13.08.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2016
Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður
Sími 560 4300 | www.saltkaup.is | saltkaup@saltkaup.is
Jólin nálgast,
ekki falla á tíma
Kíktu á heimasíðunawww.saltkaup.is
Auglýstu fyrirtækið á ódýran hátt ...
Áprentaðir burðarpokar
fyrir fyrirtæki
Hafðu samband við sölumann
fyrir frekari upplýsingar
Píratar hafa nú lokið við þrjúprófkjör fyrir fimm af sex
kjördæmum landsins. Prófkjörin
hljóta að vera forystumönnum Pí-
rata veruleg vonbrigði.
Fyrsta prófkjöriðvar í
Norðaustur-
kjördæmi. Þar voru
14 frambjóðendur
en aðeins 78 kjós-
endur. Þetta þýðir
að hver frambjóð-
andi fékk að meðaltali aðeins 4-5
kjósendur til að taka þátt.
Næsta prófkjör var í Suður-kjördæmi og þar voru fram-
bjóðendurnir 24. Samtals greiddu
113 Píratar atkvæði, sem felur í sér
að hver frambjóðandi fékk að með-
altali 3-4 til að taka þátt í prófkjör-
inu.
Í prófkjörinu sem lauk í gær ognáði yfir þrjú kjördæmi skánaði
hlutfall frambjóðenda og kjósenda
nokkuð en var samt afar óhagstætt.
Frambjóðendur voru 105 en kjós-
endur aðeins 1.034, eða 8-9 á hvern
frambjóðanda.
Og allt er þetta þeim mun undar-legra þegar haft er í huga að
prófkjörin stóðu yfir í hálfan mán-
uð og kjósendur gátu greitt at-
kvæði heima í stofu, á kaffihúsi eða
í fjarlægri heimsálfu ef því er að
skipta.
Flokkur sem mælst hefur meðtöluvert fylgi um alllangt
skeið hlýtur að hafa miklar áhyggj-
ur af þessu áhugaleysi kjósenda.
Getur verið að mældur stuðn-ingur við Pírata í könnunum
sé aðallega yfirlýsing um óánægju
með aðra en ekki stuðningsyfirlýs-
ing við Pírata?
Birgitta
Jónsdóttir
Það hallar á kjósendur
í prófkjörum Pírata
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 12.8., kl. 18.00
Reykjavík 14 skýjað
Bolungarvík 8 heiðskírt
Akureyri 12 skýjað
Nuuk 9 léttskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Ósló 12 rigning
Kaupmannahöfn 16 rigning
Stokkhólmur 18 alskýjað
Helsinki 16 heiðskírt
Lúxemborg 24 léttskýjað
Brussel 24 léttskýjað
Dublin 18 alskýjað
Glasgow 15 rigning
London 27 heiðskírt
París 26 heiðskírt
Amsterdam 22 léttskýjað
Hamborg 19 rigning
Berlín 19 skýjað
Vín 16 skýjað
Moskva 13 rigning
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 30 heiðskírt
Barcelona 27 heiðskírt
Mallorca 29 heiðskírt
Róm 28 heiðskírt
Aþena 30 heiðskírt
Winnipeg 20 heiðskírt
Montreal 15 rigning
New York 31 heiðskírt
Chicago 25 rigning
Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:15 21:51
ÍSAFJÖRÐUR 5:05 22:10
SIGLUFJÖRÐUR 4:48 21:54
DJÚPIVOGUR 4:41 21:24
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki hefur fengist leyfi til að flytja
inn fósturvísa úr norskum holda-
nautum til að kynbæta íslenska
holdanautastofna. Í gær var byrjað
að grafa fyrir grunni einangrunar-
stöðvar við tilraunabúið á Stóra-Ár-
móti í Flóahreppi.
Talsvert er síðan Landssamband
kúabænda (LK) pantaði fósturvísa
hjá Ræktunarfélagi norskra holda-
nautabænda. Vonast var til að fóstur-
vísarnir yrðu tilbúnir í apríl og settir
upp í kýr hér í júní. Matvælastofn-
anirnar hér og í Noregi hafa verið í
samskiptum vegna undirbúnings
heilbrigðisvottorðs sem er skilyrði
þess að leyfi fáist til innflutnings.
LK, Búnaðarfélag Íslands og Bún-
aðarsambands Suðurlands standa að
félaginu Nautgriparæktarmiðstöð
Íslands sem ætlað er að reka ein-
angrunarstöðina. Fósturvísarnir
verða úr Aberdeen Angus-holda-
nautakyni, hreinræktaðir gripir.
Notaðar verða tíu kvígur og þær
sæddar með sæði úr fjórum úrvals-
nautum. Fósturvísarnir verða síðan
teknar úr kvígunum og settir upp í
kýr í einangrunarstöðinni á Stóra-
Ármóti.
Sveinn Sigurmundsson, fram-
kvæmdastjóri Búnaðarsambandsins,
segir að ekki sé búið að taka fóstur-
vísana. Leyfi hafi ekki fengist til inn-
flutningsins. Slíkt ferli taki alltaf
ákveðinn tíma.
Líða þurfa tveir mánuðir frá því
fósturvísarnir eru teknir og þar til
flytja má þá til landsins. Því er enn
ekki ljóst hvenær fyrstu kálfarnir
fæðast og enn síður hvenær hægt
verður að dreifa þeim til bænda.
Tvöföld girðing um lóðina
Á meðan er unnið að undirbúningi.
Vinna við að girða af landsvæði vænt-
anlegrar einangrunarstöðvar á
Stóra-Ármóti er langt komin en tvö-
föld girðing verður um lóðina. Búið
er að teikna húsið sem verður annars
vegar deild fyrir kýrnar og hins veg-
ar uppeldisálma fyrir kálfana eftir að
þeir verða teknir undan kúnum.
Í gær var fyrsta skóflustungan að
einangrunarstöðinni tekin og byrjað
að grafa fyrir grunni hennar. Reynt
verður að hraða byggingu hússins.
Einangrun á Stóra-Ármóti
Ekki hefur fengist leyfi til að flytja inn fósturvísa af holdanautakyni frá Noregi
Enn dregst að hægt sé að hefja kynbætur á íslenskum holdanautastofnum
Blakkur Norska Aberdeen Angus-nautið Horgen Erie 74029 mun eignast
afkvæmi á Íslandi. Hann gefur svarta kálfa en getur einnig gefið rauða.
Tveir karlmenn á
þrítugsaldri hafa
verið úrskurðaðir
í áframhaldandi
gæsluvarðhald í
fjórar vikur á
grundvelli al-
mannahagsmuna
í tengslum við
rannsókn lögregl-
unnar á höfuð-
borgarsvæðinu á
skotárás sem átti sér stað í Fella-
hverfi í Breiðholti um síðustu helgi.
Annar maðurinn var handtekinn á
laugardag og hinn á mánudag, en
samkvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni eru þeir 28 og 29 ára gamlir,
fæddir árin 1988 og 1987. Mennirnir
hafa áður komið við sögu hjá lögregl-
unni, eru báðir íslenskir ríkisborg-
arar en af erlendu bergi brotnir.
Almenn lögregla vopnaðist
Lögreglu var tilkynnt um tvo
skothvelli í Fellahverfi í Breiðholti
að kvöldi föstudagsins 5. ágúst sl.
Hafði þá skotum verið hleypt af á
fólksbifreið í kjölfar stimpinga við
söluturn í hverfinu.
Skömmu síðar mættu lögreglu-
menn, sem fengu heimild til að vopn-
ast skammbyssum, á vettvang og
fengu þeir aðstoð frá sérsveit ríkis-
lögreglustjóra. Í kjölfarið var stóru
svæði lokað fyrir umferð akandi og
gangandi vegfarenda og hófst um-
fangsmikil leit lögreglu.
Gæsluvarðhald
framlengt í skotmáli
Mennirnir eru báðir á þrítugsaldri
Fjölmennt lið var
kallað út.